Fréttablaðið - 11.03.2009, Síða 6

Fréttablaðið - 11.03.2009, Síða 6
6 11. mars 2009 MIÐVIKUDAGUR Á Jóhanna Sigurðardóttir að verða formaður Samfylkingar- innar? Já 59,5% Nei 40,5% SPURNING DAGSINS Í DAG: Ert þú sátt(ur) við vinnubrögð alþingismanna síðustu daga? Segðu þína skoðun á visir.is NÝJAR OG HANDHÆGARI UMBÚÐIRostur.is EFNAHAGSMÁL Það er „brandari“ að embætti sérstaks saksóknara sem falið hefur verið að rannsaka hvort eitthvað saknæmt hafi átt sér stað í bankahruninu á Íslandi hafi ekki fleiri en fjórum starfsmönn- um á að skipa. Þetta sagði Eva Joly, fyrrverandi rannsóknardómari í Frakklandi, á málfundi í Háskólan- um í Reykjavík í gær, þar sem hún flutti erindi um alþjóðlegt flæði fjármagns og þróunarlönd. Joly hefur áunnið sér alþjóðlega viðurkenningu fyrir baráttu sína gegn spillingu og fjármálaglæp- um, en frá árinu 1994 gegndi hún embætti yfirrannsóknardómara, juge d‘instruction, í Frakklandi, en það er embætti sem nýtur sérstakr- ar verndar enda liggur í hlutarins eðli að sá sem því gegnir lendi uppi á kant við volduga aðila. Sem rannsóknardómari var Joly lykilmaður í að rekja eitt stærsta spillingarmál sem upp hefur komið í Frakklandi, þar sem olíu- félagið Elf Aquitaine, sem þá var í ríkiseigu, var grunað um misferli. Málið leiddi til dóma yfir fjölda háttsettra embættis- og stjórnmála- manna. Joly rakti í erindi sínu svæsin dæmi um spillingu í kringum auð- lindanýtingu í þróunarlöndum, þar sem voldug vestræn fyrirtæki eiga í hlut í flestum tilvikum og arðræna í félagi við spillta valaklíku heima- manna þau fátæku lönd sem í hlut eiga. En hún rakti einnig dæmi um spillingarrannsóknir á Vesturlönd- um og erfiðleikana sem þeir sem vinna að slíkum rannsóknum lenda í samkvæmt hennar reynslu. Einn aðalvandinn sé sá að þeir aðilar sem stundi stærstu efnahagsbrot- in séu fjölþjóðlegir en þær stofn- anir sem hafa vald til að rannsaka slík mál og sækja menn til saka séu bundnar við einstök þjóðríki og þar með aðeins þann hluta viðkomandi efnahagsbrotastarfsemi sem undir lögsögu þess ríkis heyrir. Sérstök meinsemd í þessu sam- hengi segir Joly að séu skatta- skjól á borð við bresku Jómfrúr- eyjar, sem gera mönnum með „einbeittan brotavilja“ kleift að skrá skúffufyrirtæki án þess að fram komi hver í raun standi að baki því. Frjálsræðisvæðing hins hnattvædda fjármálakerfis í anda nýfrjálshyggju hafi gert illt verra. Stór hluti verðbréfaviðskipta hafi farið fram með ógegnsæjum hætti í gegnum skúffufyrirtæki í skatta- skjólum. Hún bendir á að rússneskir auðjöfrar, sem komust í aðstöðu til að auðgast gríðarlega við einkavæð- inguna í kjölfar hruns Sovétríkj- anna, hafi með hjálp skattaskjóla komið gríðarlegum fjárhæðum undan, sem með réttu ættu að koma rússneskum almenningi til góða. Joly sagði að það myndi „ekki koma sér á óvart“ ef í ljós kæmi að íslenskir auðjöfrar hefðu komið undan stórfé úr bönkunum föllnu. audunn@frettabladid.is SKÝR SKILABOÐ Fullt var út úr dyrum þegar Joly talaði í Háskólanum í Reykjavík í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON Skattaskjólin eru ein mesta meinsemdin Eva Joly, sem var rannsóknardómari í Frakklandi og verður ráðgjafi íslensku stjórnarinnar, segir skattaskjól vera meinsemd í fjármálakerfinu. Hana grunar að íslenskir auðmenn feli fé og segir starfsmannafæð sérstaks saksóknara „brandara“. STJÓRNMÁL „Það sem við höfum sagt og stendur að sjálfsögðu er að það verða engar skattabreytingar gerðar í tíð þessarar ríkisstjórn- ar. En ég held að öllum hugsandi mönnum sé ljóst hvað fram undan er.“ Þessu svaraði Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra til í gær, spurður hvort hann væri sam- mála Indriða H. Þorlákssyni, ráðu- neytisstjóra fjármálaráðuneytis- ins, um að hækka verði skatta til að laga stöðu ríkissjóðs. Steingrímur segir öllum ljóst að ríkissjóður verði ekki rekinn um aldur og ævi með allt að 170 millj- arða króna halla á ári. Og fram- undan er, að sögn Steingríms: „Að takast á við þetta verkefni sem bankahrunið og efnahagshrunið og óráðsían og óstjórnin hér á undan- förnum árum færir stjórnvöldum sem nú eru, í hendur.“ Indriði viðraði afstöðu sína til skattahækkana á opnum stjórn- málafundi og í Ríkisútvarpinu í síðustu viku. Steingrímur segir að þar hafi Indriði talað fyrir sjálfan sig. Fátítt er að ráðuneytisstjórar ræði opinberlega um pólitísk álita- mál. Venjan er að þeir túlki aðeins skoðanir þess ráðherra sem þeir starfa fyrir hverju sinni. Spurður hvort eðlilegt væri að ráðuneytisstjóri talaði um pólit- ísk álitamál sagðist Steingrímur telja svo vera. „Ég held að ráðu- neytisstjórinn í fjármálaráðuneyt- inu hljóti að mega mæta á fund og ræða þar málin eins og hver annar í landinu.“ - bþs Fjármálaráðherra segir að draga þurfi úr halla ríkissjóðs á komandi árum: Nauðsynlegt að hækka skatta DÓMSTÓLAR Ríkissaksóknari hefur ákært tvo menn fyrir brot gegn valdstjórninni. Annar þeirra beit í fingur lögreglumanns með þeim afleiðingum að fingurinn brotnaði um liðamót. Bitvarginum, sem er um tvítugt, er gefið að sök að hafa ráðist á mann við veitingastaðinn Mælifell á Sauðárkróki. Hann tók fórnarlambið hálstaki og herti að svo lokaðist fyrir öndunarveg. Sá sem fyrir árásinni varð missti meðvitund, en nærstaddir skárust þá í leikinn og losuðu tak árásarmannsins. Það var svo í lögreglubíl í kjölfar árásarinnar sem maðurinn beit lögreglumann í vísifingur hægri handar með þeim afleiðingum að fingurinn brotnaði og lögreglumaðurinn hlaut opin sár. Sá sem tekinn var hálstaki fer fram á rúmlega 800 þúsund krónur í skaðabætur. Hinum manninum, sem ríkissaksóknari ákærir, er gefið að sök að hafa ráðist á annan mann á götu á Sauðárkróki, kýlt hann í andlitið og ítrekað slegið hann með spýtu í andlit og líkama. Fórnarlambið skarst í framan, skrámaðist víða og hlaut bitfar á hendi. Þá brotnuðu fjórar tennur í honum og fimm tennur sprungu. - jss Ríkissaksóknari ákærir fyrir brot gegn valdstjórninni: Beit í fingur lögreglu og braut SAUÐÁRKRÓKUR Bitvargurinn lét til sín taka í lögreglubíl á Sauðárkróki. STEINGRÍMUR J. SIGFÚSSON INDRIÐI H. ÞORLÁKSSON DÓMSMÁL Jafet Ólafsson, fyrr- verandi framkvæmdastjóri VBS fjárfestingabanka, hefur verið dæmdur til að greiða ríkis- sjóði 250 þús- und króna sekt fyrir að rjúfa trúnað við við- skiptamann sinn. Það gerði Jafet með því að láta Sigurði G. Guðjóns- syni í té hljóð- upptöku af samtali sínu við Geir Zoëga, þar sem fram kom ástæða þess að Geir hætti við að selja Sigurði hlut sinn í Tryggingamið- stöðinni. Geir tilkynnti Fjármála- eftirlitinu um málið, sem tók það til rannsóknar og kærði að lokum til lögreglu. - sh Jafeti Ólafssyni hegnt: Sektaður fyrir að rjúfa trúnað JAFET ÓLAFSSON ALÞINGI Eigendur séreignarsparn- aðs geta tekið út allt að eina millj- ón króna af sparnaði sínum, óháð fjárhagsstöðu, eftir að frum- varp um útgreiðslu sparnaðarins var samþykkt með 44 samhljóða atkvæðum á Alþingi í gær. Fjárhæðin, að frádregnum sköttum, greiðist út með jöfnum mánaðarlegum greiðslum í níu mánuði eftir að beiðni um úttekt er skilað. Úttekt á sparnaðinum mun ekki skerða barnabætur, vaxtabætur eða atvinnuleysis- bætur. Áætlað er að um 200 milljarðar króna séu í frjálsum séreignar- sparnaði í dag. - bj Opnað fyrir séreignarsparnað: Má taka út eina milljón króna Ragna Árnadóttir dómsmálaráð- herra segir von á því að starfs- mönnum sérstaks saksóknara vegna bankahruns- ins verði fjölgað. Þetta segir Ragna í tilefni ef orðum Evu Joly, nýs ráðgjafa yfirvalda vegna rannsókn- arinnar, um að það sé brandari að saksóknarinn hafi aðeins fjóra starfsmenn. „Það er rétt að fimm mannss starfa við embætti sérstaks saksóknara að honum meðtöldum en reiknað hefur verið með að sá starfsmannafjöldi geti aukist í takt við málafjölda. Einnig er mikilvægt að saksóknari og eftirlitsstofnanir leggi saman krafta sína við yfirferð einstakra mála, og vinnur saksókn- arinn að því að svo verði,” segir dómsmála ráðherra. Ekki náðist í saksóknarann. - gar SAKSÓKNARINN FÆR FLEIRA FÓLK RAGNA ÁRNADÓTTIR KJÖRKASSINN

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.