Fréttablaðið - 11.03.2009, Síða 11
MIÐVIKUDAGUR 11. mars 2009 11
Aðalfundur
Sláturfélags Suðurlands svf.
Aðalfundur Sláturfélags Suðurlands svf. verður haldinn á Laugalandi
Holtum, föstudaginn 27. mars 2009 og hefst kl. 15:00.
Dagskrá:
1. Aðalfundarstörf samkvæmt 24. gr. samþykkta félagsins.
2. Tillaga stjórnar um breytingar á 17. gr. samþykkta félagsins.
3. Önnur mál, löglega upp borin.
Tillögur frá félagsaðilum sem bera á fram á aðalfundi þurfa að vera
komnar skriflega í hendur stjórnarinnar eigi síðar en 14 dögum fyrir
aðalfund.
Reykjavík, 6. mars 2009.
Stjórn Sláturfélags Suðurlands svf.
A
u
g
lý
si
n
g
a
sí
m
i
– Mest lesið
ÚTIVIST Tveir íslenskir ofurhlaup-
arar taka þátt í Sahara eyðimerkur-
maraþoninu sem fram fer í Mar-
okkó um næstu mánaðamót og
verða þeir fyrstir íslenskra hlaup-
ara til að taka þátt í þessu hlaupi.
Þetta eru þeir Ágúst Kvaran og
Justin Bjarnason.
Ágúst Kvaran segir að Justin
Bjarnason, sem er af íslensku bergi
brotinn en býr í Englandi, hafi
hringt í sig nýlega og sagt sér að
hann taki einnig þátt í hlaupinu. Þeir
hafi síðan verið í tölvusambandi.
Sahara eyðimerkurmaraþon-
ið er áfangahlaup þar sem hlaup-
ið er í eyðimörkinni sunnan Atlas-
fjalla í suðausturhluta Marokkó.
Nákvæmri hlaupaleið og vega-
lengd er haldið leyndri fram á síð-
asta dag fyrir hlaup. Hlaupin eru
sex hlaup á sjö dögum, samtals um
245 kílómetrar. Fyrstu þrjá dagana
eru 30 til 40 kílómetra hlaup hvern
dag. Á fjórða degi er ofurmaraþon
þegar hlaupin er 75-80 kílómetra
leið. Fimmti dagurinn er hvíldar-
dagur en á þeim sjötta er hlaupið
mara þon, 42,2 kílómetrar, og svo
endað síðasta daginn á 15-20 kíló-
metra hlaupi.
Undirlag er fjölbreytt, að sögn
Ágústs, allt frá lausum sandi til
stórgrýtis. Hlaupið er yfir fjall-
garða og í uppþornuðum árfarveg-
um. Keppendur bera matarbirgð-
ir og eldunar- og svefnbúnað frá
fyrsta degi fyrir allt tímabilið en fá
vatn með reglulegu millibili. Dval-
ist er í tjaldbúðum milli hlaupa. Hiti
um hádaginn getur farið upp undir
fimmtíu stig og niður fyrir tíu gráð-
ur á nóttunni.
Yfir 800 keppendur eru skráðir
til þátttöku, frá um 39 þjóðlöndum.
Hlaupið er skipulagt af Frökkum í
samvinnu við innfædda. Fylgst er
með hlaupinu og það myndað af
sjónvarpsstöðinni Eurosport. - ghs
Undirbúningurinn fyrir 245 kílómetra eyðimerkurhlaupið á lokaspretti:
Íslendingar hlaupa í Sahara
VIÐSKIPTI Fullyrðingar lögmanna
Íslandsbanka og skilanefndar
Glitnis um að stjórnendur Baugs
Group hafi vísvitandi reynt að
blekkja kröfuhafa félagsins eru
rangar, og geta flokkast sem róg-
burður, segir í yfirlýsingu frá
Baugi Group.
Eins og fram kom í Fréttablað-
inu í gær komu fram ásakanir um
blekkingar þegar tekist var á um
greiðslustöðvun Baugs Group í
héraðsdómi á mánudag.
Í yfirlýsingu frá Gunnari S. Sig-
urðssyni, forstjóra Baugs Group,
segir að þau gögn sem lögmenn
Íslandsbanka og Glitnis séu að
bera saman séu ekki sambærileg.
Annars vegar sé um að ræða
kynningu á stöðu félagsins fyrir
kröfuhafa. Hins vegar kynn-
ingu á verkefni sem kallað hafi
verið Project Sunrise. Það hafi
verið samstarfsverkefni Baugs og
Landsbankans.
Samanburður á þessu tvennu sé
ekki aðeins villandi „heldur einnig
meiðandi í garð stjórnenda Baugs“,
segir í yfirlýsingunni.
Í yfirlýsingum frá skilanefnd
Glitnis og Íslandsbanka kemur
fram að staðið sé í einu og öllu við
orð lögmanna í héraðsdómi. Fyrri
skýringar Baugs séu ekki í sam-
ræmi við það sem fram komi í til-
kynningu félagsins í gær. Íslands-
banki hvetur í yfirlýsingu sinni
Baug Group til að gera þau gögn
sem vísað var til í héraðsdómi
opinber. - bj
Stjórnendur Baugs Group og skilanefnd Glitnis í hár saman vegna ásakana:
Segja fullyrðingarnar rógburð
MEIÐANDI Ásakanir ganga á víxl milli
Gunnars S. Sigurðssonar, forstjóra Baugs
Group, og skilanefndar Glitnis.
SAHARA EYÐIMÖRKIN
Hlaupaleiðin breytist á hverju ári en
svona var hún í fyrra.
Spánn
Moracco Alsír
Casablanca
Hlaupaleiðin
Hlaupið er í lausum sandi og stór-
grýti, yfir fjallgarða og í uppþornuð-
um árfarvegum í Sahara eyðimerkur-
maraþoninu í Marokkó.