Fréttablaðið - 11.03.2009, Page 22
11. mars 2009 MIÐVIKUDAGUR2
VISITICELAND.COM er ferðavefur
Ferðamálastofu. Á vefnum má meðal
annars finna upplýsingar um gistingu,
dægradvöl, náttúru og staðhætti.
Everest er hæsta fjall jarðar, alls um 8.844,43
metrar yfir sjávarmáli. Fyrstu menn á tindinn voru
Ný-Sjálendingurinn Edmund Hillary og nepalskur
leiðsögumaður hans, Tenzing Norgay. Náðu þeir
tindinum 29. maí 1953.
wikipedia.org
Tvö skútusiglinganámskeið
verða haldin í vor á vegum
íslenska fyrirtækisins Seaways
ehf. í Göeck í Suður-Tyrklandi.
Fyrra námskeiðið fer fram 13. til
23. apríl og það seinna 23. apríl
til 3. maí.
Námskeiðin eru ætluð þeim sem
hlotið hafa bókleg skipstjórnar-
réttindi en þarna verður boðið
upp á verklega kennslu á 45 feta
skútu af gerðinni Jeanneau Sun
Odyssey 45.
Námskeiðin standa yfir í tíu
daga og verður fjöldi nemenda 3 til
6 á skútu. Siglt verður frá Göeck
til Fimike á fyrra námskeiðinu og
frá Fimike til Göeck á því seinna.
Þátttakendur búa um borð meðan
á námskeiðinu stendur, fá þjálfun
í stjórnun seglskipa, beitingu segl-
búnaðar og vélar við ýmiss konar
aðstæður og notkun siglingatækja
svo eitthvað sé nefnt. Að nám-
skeiði loknu fá þáttakendur sem
lokið hafa bóklegu prófi, réttindi
til stjórnunar seglskipa, þó ekki á
úthöfum.
Stjórnandi námskeiðanna er
Önundur Jóhannson flugstjóri einn
eigandi Seaways Sailing en nánari
upplýsingar er að finna á www.sea-
ways-sailing.com. - rat
Siglt í sólinni
Á fyrra námskeiðinu er siglt frá Göeck til
Fimike og til baka á því seinna.
Félagarnir Hjalti Vigfús Hjaltason
og Gísli Jónsson, sem báðir starfa
hjá Arctic trucks, eru nýkomnir
heim úr sögulegri ferð á Suður-
pólinn. Þeir óku, í félagi við aðra,
fjórum sérútbúnum jeppum frá
Arctic Trucks á pólinn en þetta er
í fyrsta skipti sem fjórhjóladrifin
farartæki ná því marki.
Í ferðinni gegndu þeir hlutverki
þjónustuaðila fyrir þátttakendur
í gönguskíðakeppninni Amund-
sen Omega 3 ski race ásamt því
að fylgja kvikmyndatökuliði og
öðru fylgdarliði keppninnar á
pólinn. Ferðin tók í heildina tæpa
þrjá mánuði og býður árangurinn
upp á ýmsa framtíðarmöguleika.
„Við lögðum í hann frá Íslandi
í lok nóvember og eyddum fyrstu
þremur vikunum á rússnesku
stöðinni Novo Airbase á norður-
strönd Suðurskautslandsins við
undirbúning. Hlutverk okkar
var, í samstarfi við forsvars-
menn keppninnar, að marka nýja
keppnisleið. Við keyrðum upp á
hásléttuna og fundum leið sem er
tvisvar sinnum lengri en sú leið
sem venjulega er farin. Á leiðinni
rákumst við á mörg sprungusvæði
sem við merktum kirfilega.“
Að því loknu komu keppend-
ur á staðinn og gengu fyrstu 200
kílómetrana til að aðlagast hæð-
inni. Þeim var síðan flogið á byrj-
unarreit keppninnar. Á meðan
keppendurnir gengu keyrði Gísli
á undan til að marka leiðina og
koma fyrsta bílahollinu á staðinn.
Ferðin tók tæpar tvær vikur. „Á
þeim tíma held ég að ég hafi sofið
í um það bil sex nætur,“ segir
Gísli sem var að vonum úrvinda
af þreytu. „Það gerði þó lítið til þó
Söguleg ferð á Suðurpólinn
Tveir íslenskir ofurhugar óku nýlega sérútbúnum jeppum á Suðurpólinn en það er í fyrsta skipti sem slík
farartæki ná því marki. Þeir gegndu hlutverki þjónustuaðila fyrir þátttakendur í gönguskíðakeppni.
Hjalti Vigfús
Hjaltason og
Gísli Jónsson á
Suðurpólnum.
ER RAFGEYMIRINN TÓMUR?
HLEÐSLUTÆKI
12V 3,6A 12V 0,8A
Tilboð í mars
10% afsláttur af þessum tveimur tækjum
M
YN
D
/Ú
R
E
IN
K
A
SA
FN
I
Hringdu í síma
ef blaðið berst ekki