Fréttablaðið - 11.03.2009, Side 23
MIÐVIKUDAGUR 11. mars 2009 3
að ég dottaði undir stýri þar sem
allt var flatt í kring,“ segir hann
sposkur.
Hjalti fylgdi svo í kjölfarið en
varð fyrir því óláni að annar bíll-
inn í hans holli bilaði og þurfti að
fljúga til hans nýjum millikassa.
Á leið sinni lentu flugmennirnir í
snjóblindu og skullu beint á ísinn.
Flugvélin eyðilagðist en fjögurra
manna áhöfn komst lífs af. Hjalti
og fylgdarlið hans komu að slys-
inu og segir hann mikla mildi að
ekki fór verr.
Norska liðið sem vann keppnina
var um 18 daga frá byrjunarreit
að pólnum sem er 800 kílómetra
leið. Þangað voru keppendur og
fylgdarlið sótt með flugvél en
Hjalti, Gísli og hinir ökumenn-
irnir héldu keyrandi til baka. Sú
ferð tók ekki nema átta daga. Leið-
in er um 2.400 kílómetrar og leiða
menn líkur að því að um heimsmet
sé að ræða.
Hjalti segir árangurinn mikinn
sigur fyrir það íslenska hug-
vit sem býr að baki jeppunum.
„Rússarnir hafa flogið inn alls
kyns farartækjum í von um að þau
muni leysa af hólmi dýr tæki eins
og snjótroðara og flugvélar sem
er notast við á pólnum en hingað
til hafa önnur og betri ekki fund-
ist. Fólkið á staðnum hafði satt
að segja ekki mikla trú á því að
okkur myndi takast þetta en fylgd-
ist þó grannt með og var yfir sig
hrifið að leiðangrinum loknum,“
segir Hjalti.
„Umhverfisvitundin á staðn-
um er mikil og er sífellt verið að
leita leiða til að draga úr meng-
um. Við notum vélar sem eru með
allra síðustu mengunarstöðlum og
eyða jepparnir um fimm til sex
sinnum minna eldsneyti en þau
farartæki sem fyrir eru á staðn-
um. Það má því segja að þarna séu
framtíðartækifæri fyrir íslenskt
hugvit,“ segir Gísli. Þeir Hjalti og
Gísli halda myndasýninu úr ferð-
inni, í húsakynnum Arctic Trucks
að Kletthálsi 3, miðvikudaginn
18. mars klukkan 20 og eru allir
velkomnir. vera@frettabladid.is
Þessi fallega mörgæs varð á vegi þeirra
félaga.
Vonir standa til þess að jepparnir geti leyst dýrari farartæki sem notast er við á Suðurpólnum að einhverju leyti af hólmi.
MasterCard
Mundu
ferðaávísunina!
NÆSTU FERÐIR JEPPADEILDAR ÚTIVISTAR:
Strútur - Hvanngil 14. - 15. mars
Landmannalaugar - jeppar og gönguskíði 27. - 29. mars
Grímsfjall 23. - 26. apríl
Útivist • Laugavegi 178 • Sími 562 1000 • www.utivist.is
Smiðjuvegi 34 - gul gata Kópavogi • Sími 544 5151 • biljofur@biljofur.is
SÉRHÆFÐ ÞJÓNUSTA FYRIR
BIFREIÐAVERKSTÆÐI