Fréttablaðið - 11.03.2009, Qupperneq 28
11. mars 2009 MIÐVIKUDAGUR8
AUGLÝSING UM STYRKI ÚR
SJÓÐI ODDS ÓLAFSSONAR
Stjórn Sjóðs Odds Ólafssonar auglýsir eftir umsóknum
um styrki úr sjóðnum.
Tilgangur sjóðsins er að styrkja:
1. Rannsóknir á fötlun og fræðslu um hana.
2. Forvarnir í þágu fatlaðra og endurhæfingu
þeirra.
3. Rannsókarverkefni á sviði
öndunarfærasjúkdóma og fræðslu um þá.
4. Forvarnir og endurhæfingu vegna
öndunarfærasjúkdóma
5. Fatlaða til framhaldsnáms og rannsóknarstarfa.
Umsóknir um styrki úr sjóðnum í samræmi við
ofangreind markmið ásamt ítarlegum upplýsingum um
umsækjendur og væntanleg verkefni ber að senda til
stjórnar Sjóðs Odds Ólafssonar, Brynju Hússjóði
Öryrkjabandalagsins, Hátúni 10, 105 Reykjavík.
Leyfi Persónuverndar, Vísindasiðanefndar eða
annarra siðanefnda skulu fylgja umsókn þar sem það á
við.
Umsóknarfrestur er til 1. apríl 2009.
BORGARTÚNI 12-14 - 105 REYKJAVÍK - SÍMI 411 1111 - MYNDSENDIR 411 3071
Auglýsing um breytingar
á deiliskipulagsáætlunum
í Reykjavík
Í samræmi við 25. gr. skipulags- og byggingarlaga
nr. 73/1997, með síðari breytingum, eru
hér með auglýstar tillögur að breytingum á
deiliskipulagsáætlunum í Reykjavík.
Bryggjuhverfi
Tillaga að breytingu á deiliskipulagi fyrir Bryggjuhverfi
vesturhluta svæðis. Breytingin nær yfir allar lóðir
við Tangarbryggju, lóðir við Naustabryggju 17-19
og 31-33 og bílastæðalóð fyrir hús 15C og 16 við
Naustabryggju. Gatan Tangarbryggja verður færð um
40 metra í vestur og stækkar deiliskipulagssvæðið
um 1,3 hektarar við þá breytingu. Atvinnuhúsnæði
sem er á vestari hluta gildandi deiliskipulags mun
víkja að stærstum hluta fyrir íbúðarhúsnæði og
aðstöðu smábátahafnar. Við Tangarbryggju 22A
verður afmörkuð lóð fyrir olíuafgreiðslu báta. Milli
hverfis og núverandi atvinnusvæðis (Björgun) verður
gerð jarðvegsmön grædd grasi og kjarri sem mun
standa þar til fyrirtækið flytur af svæðinu.
Nánar um tillöguna vísast til kynningargagna
Laugavegur 50, reitur 1.173.1
Tillaga að breytingu á deiliskipulagi fyrir reit 1.173.1
vegna lóðarinnar nr. 50 við Laugaveg. Í breytingunni
felst m.a. hækkun á porti um fjörutíu sentimetra og
jarðhæð í allt að þrjá komma einn metra. Einnig
að setja megi flatan kvist á þak gamla hússins að
norðanverðu og lyfta hluta af þaki að sunnan. Heimilt
verði að hafa allt að fjórar íbúðir í húsinum og verslun
og veitingastað á jarðhæð. Hámarksbyggingamagn
ofanjarðar verði þrjú hundruð og sex fermetrar.
Nánar um tillöguna vísast til kynningargagna
Tillögurnar liggja frammi í þjónustuveri Reykjavíkur-
borgar að Borgartúni 12-14, 1. hæð, virka daga
kl. 8:20 – 16:15, frá 11. mars 2009 til og með 22.
apríl 2009. Einnig má sjá tillögurnar á heimasíðu
sviðsins, www.skipbygg.is. Eru þeir sem telja sig
eiga hagsmuna að gæta hvattir til að kynna sér
tillögurnar. Ábendingum og athugasemdum við
tillögurnar skal skila skriflega eða á netfangið
skipulag@rvk.is, til skipulags- og byggingarsviðs
eigi síðar en 22. apríl 2009. Vinsamlegast notið
uppgefið netfang fyrir innsendar athugasemdir
með tölvupósti. Þeir sem eigi gera athugasemdir
innan tilskilins frests, teljast samþykkja tillögurnar.
Reykjavík, 11. mars 2009
Skipulagsstjóri Reykjavíkur
Reykjavíkurborg
Skipulags- og byggingarsvið
Aðalfundur í Samkaupum hf.
Stjórn Samkaupa hf. boðar hér með til aðalfundar í félaginu
fyrir rekstrarárið 2008.
Fundurinn verður haldinn miðvikudaginn 18. mars 2009 kl 15 í sal Verslunar-
mannafélags Suðurnesja að Vatnsnesvegi 14, 230 Reykjanesbæ.
Á dagskrá fundarins eru aðalfundarstörf samkvæmt 14. gr. samþykkta félagsins.
Þá verður lögð fyrir fundinn tillaga um að félagið megi eignast og eiga allt að
10% hlutafjár í félaginu í 3 ár.
Stjórn Samkaupa hf.
Tilkynningar