Fréttablaðið - 11.03.2009, Qupperneq 31
H A U S
MARKAÐURINN 5MIÐVIKUDAGUR 11. MARS 2009
Ú T T E K T
Atvinnuleysi mældist 6,9 prósent
í janúar innan þeirra 30 ríkja sem
aðild eiga að Efnahags- og fram-
farastofnuninni (OECD), sam-
kvæmt tölum sem birtar voru í
vikunni. Þetta er 8,3 prósenta
aukning á milli mánaða en 1,3
prósent frá sama tíma í fyrra. Af
einstökum hagsvæðum mældist
atvinnuleysi 8,3 prósent á evru-
svæðinu en 8,1 prósent í Banda-
ríkjunum. Aukningin er innan
allra aðildarríkjanna að Japan
og Mexíkó undanskildum en þar
dróst atvinnuleysi saman um
4,3 til 4,6 prósent milli mánaða.
Mesta atvinnuleysið var á Spáni,
eða 14,8 prósent.
Tölur um atvinnuleysi hér eru
ekki í upplýsingum OECD. Það
mældist 6,6 prósent í mánuðin-
um, samkvæmt Vinnumálastofn-
un, sem er 32 prósenta aukning
frá í desember. Tölur sem þessar
hafa ekki sést síðan í janúar 1995
en þá var atvinnuleysi 6,8 prósent.
Á sama tíma í fyrra stóð atvinnu-
leysi í einu prósenti. - jab
SÓTT UM VINNU Fólk á leið úr atvinnu -
miðlun í Madríd á Spáni. Atvinnuleysi var
þar mest innan aðildar ríkja OECD í janúar,
eða 14,8 prósent. MARKAÐURINN/AP
Atvinnuleysi eykst
Stjórn Alþjóðabankans greindi frá
því á sunnudag að útlit sé fyrir að
hagvöxtur muni dragast saman á
árinu og muni milliríkjaviðskipti
fylgja með niður í svelginn.
Bankinn gefur spána út fyrir
fund fjármálaráðherra tuttugu
umsvifamestu iðnríkja heims, sem
haldinn verður í Lundúnum í Bret-
landi um næstu helgi.
Bandaríska dagblaðið New York
Times, sem segir þetta dekkstu
hagspá sem sést hafi það sem af
er ári, hefur eftir hagfræðingum
bankans að þessir tveir þættir hafi
ekki fylgst að síðan á árum seinni
heimsstyrjaldarinnar. Síðan þá
eru liðin rúm sextíu ár.
Alþjóðabankinn dregur upp afar
dökka mynd af horfum heimshag-
kerfisins, segir að áhrifanna muni
gæta langt út fyrir það sem áður
var talið. Talið er til að undirmáls-
kreppan, sem hófst fyrir tveim-
ur árum með vanskilum banda-
rískra fasteignalántakenda, hafi
undið svo upp á sig að nú bíti hún
af krafti í þá sem síst skyldi, fá-
tækustu þjóðir heims í Suður-Am-
eríku, Afríku og í SA-Asíu.
Þá kemur fram að ekki megi úti-
loka að alþjóðlegar lánastofnanir
á borð við Alþjóðabankann og Al-
þjóðagjaldeyrissjóðinn muni ekki
hafa burði til að koma öllum þeim
til hjálpar sem leiti ásjár þeirra.
Blaðið segir Robert B. Zoellick,
forstjóra Alþjóðabankans, hafa
mælst til þess að ríkustu þjóð-
ir heims taki höndum saman til
hjálpar þeim sem minna megi sín
og mæli hann með því að ríkustu
þjóðir heims sammælist um
stofnun bjargráðasjóðs til handa
þeim fátækari, sem þau geti sótt
í til stuðnings fyrirtækjum í nauð-
um. Verði draumar Zoellicks að
veruleika munu ríkustu lönd heims
leggja ákveðna upphæð í sérstak-
an sjóð, um 0,7 prósent, af þeirra
eigin björgunarpakka.
Líkur eru á að nokkur lönd í
Mið- og Austur-Evrópu, svo sem
Pólland, Ungverjaland og Tékk-
land, geti sótt sér fé í sjóðinn. Þessi
lönd hafa orðið fyrir verulegum
skakkaföllum vegna samdráttar í
útflutningi til Vestur-Evrópu sam-
hliða því að aðgangur landanna að
fjármagni hefur lokast.
ROBERT B. ZOELLICK Forstjóri Alþjóða-
bankans hefur viðrað hugmyndir um stofn-
un sjóðs handa fátækustu ríkjum heims
sem þær ríkustu leggi í. Innlegg þjóðanna
er lítið brot af þeim björgunarpökkum sem
þær samþykkja til bjargar eigin skinni.
MARKAÐURINN/AP
Ríkar þjóðir hjálpa
þeim efnaminni
ÍS
L
E
N
S
K
A
S
IA
.I
S
I
C
E
4
51
67
0
2/
0
9
LÍTILL FJÁRMAGNSKOSTNAÐUR
Ekki safna skuldum vegna fjármagnskostnaðar í vörum.
Með flugfrakt sparar þú umtalsverð gjöld vegna fjármagns-
kostnaðar þar sem þú getur pantað minna inn í einu,
með styttri fyrirvara og færð vöruna mun fyrr í hendur.
MIKILL FJÁRMAGNSKOSTNAÐUR
BEINT FRAKTFLUG – 24 ÁFANGASTAÐIR
Í EVRÓPU, BANDARÍKJUNUM OG KANADA.
WWW.ICELANDAIRCARGO.IS