Fréttablaðið - 11.03.2009, Side 32
MARKAÐURINN 11. MARS 2009 MIÐVIKUDAGUR6
S K O Ð U N
Sögurnar... tölurnar... fólkið...
O R Ð S K Ý R I N G I N
ÚT GÁFU FÉ LAG: 365 miðlar ehf. RIT STJÓRI: Óli Kr. Ármannsson, olikr@markadurinn.is RITSTJÓRN: Jón Aðalsteinn Bergsveinsson, jonab@markadurinn.is AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón
Laufdal RIT STJÓRN OG AUGLÝSING AR: Skaftahlíð 24, 105 Reykja vík AÐ AL SÍMI: 512 5000 SÍMBRÉF: 512 5301 NETFÖNG: rit stjorn@markadurinn.is og aug lys ing ar@markadur-
inn.is VEFFANG: visir.is UM BROT: 365 miðlar ehf. PRENT VINNSLA: Ísa fold arprent smiðja ehf. DREIFING: Pósthúsið ehf. dreifing@posthusid.is Markaðinum er dreift ókeyp is með
Fréttablaðinu Markaðurinn áskil ur sér rétt til að birta allt efni blaðs ins í staf rænu formi og í gagna bönk um án end ur gjalds.
Fyrirtæki geta varið stöðu sína vegna eigna eða
skulda fyrir áhættu vegna gengisbreytinga með
framvirkum samningum. Þannig getur til dæmis
fyrirtæki í innflutningi séð sér hag í því að verj-
ast geti það keypt vörur nokkru áður en greiða þarf
erlendum birgjum.
Ef fyrirtækið tekur inn vörur en þarf ekki að
greiða fyrr en mánuði síðar fylgir því talsverð
áhætta. Breytist gengið getur fyrirtækið annað
hvort greitt minna eða meira fyrir vöruna, eftir
því hvort krónan styrkist eða veikist.
Þá getur borgað sig fyrir fyrirtækið að verja sig
fyrir þessari áhættu, að hluta eða öllu leyti. Það má
gera með því að gera framvirka samninga við fjár-
málastofnanir um kaup á ákveðinni upphæð í er-
lendum gjaldmiðli, á fyrirfram ákveðnu gengi og
fyrirfram ákveðinni dagsetningu. Einnig er hægt
að semja um kauprétt á ákveðinni upphæð.
Svipaðri aðferð er einnig beitt við kaup á verðbréf-
um. Þá getur fjárfestir samið um sölurétt á verð-
bréfunum á ákveðnu verði og þannig takmarkað
fyrirfram hugsanlegt tap af fjárfestingunni.
Varin staða
Firma Consulting er óháð ráðgjafafyrirtæki
sem sérhæfir sig í stórum og millistórum
fyrirtækjum
Firma Consulting, Þingaseli 10, 109 Reykjavík,
GSM: (+354) 820 8800 og (+354) 896 6665,
Fax: (354) 557 7766, Veffang: firmaconsulting.is
Magnús Hreggviðsson viðskiptafræðingur og lög-
giltur fyrirtækja-, fasteigna- og skipasali. Magnús er
með áratuga reynslu af endurskoðunarstörfum, sem
rekstrarráðgjafi, fyrirtækja- og fasteignasali, útgef-
andi, fasteignarekandi, „land-developer“ í Smára-
hvammi og starfandi stjórnarformaður í nokkrum
fyrirtækjum. Er aðalráðgjafi hjá Firma Consulting.
(magnus@firmaconsulting.is)
Ráðgjöf
til fyrirtækja
AF ALÞINGI Greinarhöfundur segir skilvirkustu leið stjórnvalda til endurreisnar atvinnu- og efnahagslífinu að skapa eftirsóknarverða en
trúverðuga framtíðarsýn sem felur í sér áherslur og markmið til lengri tíma.
Þó svo hagfræðingar séu almennt
ekki sammála um hvernig skil-
greina beri efnahagskreppu, þá
má segja að þar sé átt við lang-
dreginn samdrátt efnahagslífs
sem einkennist af falli í þjóðar-
framleiðslu og eftirspurn, geng-
isfalli gjaldmiðils, auknu atvinnu-
leysi, skorti á lánsfé og gjald-
þrotum. Þó svo skammt sé liðið
á íslensku kreppuna virðist þetta
allt eiga ágætlega við um það
ástand sem hér er að skapast.
Það er eðlilegt að einhverjir
spyrji sig af hverju? Af hverju er
kreppa? Um það má hafa mörg
orð og rekja hagrænan aðdrag-
anda langt aftur í tímann. En til
einföldunar má segja að krepp-
an, og afleiðingar hennar, sé
fyrst og fremst til komin vegna
þess að trúverðugleiki hagkerfis-
ins hefur rýrnað. Einhverra hluta
vegna hafa hagsmunaaðilar við-
komandi hagkerfis ekki sömu trú
á því og áður og líta svo á að horf-
ur þeirra til framtíðar hafi versn-
að. Vantrú af þessu tagi eykur
líkur á flótta frá viðkomandi hag-
kerfi sem getur tekið á sig mis-
munandi myndir. Þetta getur átt
við um flótta fólks, sem leitar
betri lífsskilyrða annars staðar,
flótta fjármagns, í leit að örugg-
ari ávöxtun og jafnvel fyrirtækja,
sem leita hagfelldara rekstrarum-
hverfis og betri vaxtarskilyrða.
Ekkert af þessu er viðkomandi
hagkerfi hagstætt.
Ávallt er þörf á góðu fólki,
fjármagni og fyrirtækjum sem
er efniviður verðmætasköpun-
ar og um leið grunnstoðir þess
velferðarkerfis sem flestar þjóðir
leitast við að skapa.
LAND TÆKIFÆRA
Viðhorf eins og lýst er hér á
undan, væntingar um verri fram-
tíð, er stærsti vandi íslensks sam-
félags í dag. Í því kristallast verk-
efnið framundan, sem er að sann-
færa alla þá sem eiga hagsmuni
undir íslenska hagkerfinu, inn-
anlands og utan, um að Ísland
sé land tækifæra en ekki hnign-
unar. Þar kemur til kasta allra
þeirra sem hér ráða för, sérstak-
lega stjórnvalda.
Skilvirkasta leið stjórnvalda
að þessu marki er að skapa eft-
irsóknarverða en trúverðuga sýn
sem felur í sér áherslur og mark-
mið til lengri tíma.
Slík framtíðarsýn þarf að svara
áleitnum spurningum um afstöðu
stjórnvalda til afar mikilvægra
málaflokka á borð við utanríkis-
og peningamála, opinberra fjár-
mála, áherslur í atvinnuuppbygg-
ingu og umsvifa hins opinbera á
atvinnumarkaði. Hvernig verð-
ur varanlegum efnahagslegum
stöðugleika komið á? Á að halda
krónunni eða skipta um gjaldmið-
il? Hvaða gjaldmiðil? Verður sótt
um aðild að Evrópusambandinu?
Hvernig á að koma á jafnvægi í
fjármálum hins opinbera? Hvar
og hversu mikið verður skorið
niður? Hvaða áherslur verða í
skattlagningu á fyrirtæki og
einstaklinga? Hvert á umfang
þjónustu hins opinbera að vera
og hver eiga umsvif þess að
vera á atvinnumarkaði? Er eðli-
legt að opinber fyrirtæki keppi
við einkafyrirtæki? Er ríkið
heppilegur eigandi fyrirtækja í
atvinnurekstri?
Svör við þessum spurningum
hafa áhrif á væntingar fólks og
fyrirtækja til framtíðar á Íslandi.
Hvort sem svörin fela í sér
eftirsóknarverðar horfur eður
ei, skiptir höfuðmáli að eyða sem
fyrst þeirri umtalsverðu óvissu
sem nú ríkir um ofangreind mál.
Þannig er Íslendingum gert kleift
að leggjast á árarnar af meiri
vissu en annars er hægt og leggja
þannig grunn að þeirri góður
framtíð sem auðlindir Íslands
gefa færi á.
LÝST EFTIR SKÝRRI STEFNU
Það er eðlileg krafa að stefna
stjórnmálaflokkanna í ofan-
greindum málum liggi fyrir í að-
draganda kosninga í apríl. Vissu-
lega er þægilegt að ganga óbund-
inn til kosninga, en það væri
hreinlega óheiðarlegt gagnvart
kjósendum og á skjön við þá lýð-
ræðisvakningu sem nú er krafa
um í samfélaginu. Viðskiptaþing
í ár er haldið undir yfirskriftinni
Endurreisn hagkerfisins – horft
til framtíðar. Þar verður leitast
við að fá svör við ofangreindum
spurningum, frá sjónarhóli at-
vinnulífs og stjórnmála. Svörin
eru mikilvæg, því þau marka upp-
haf ferlis aðgerða sem trúverðug-
leiki stjórnvalda og endurreisn
hagkerfisins mun byggja á.
O R Ð Í B E L G
Finnur
Oddsson
Framkvæmda-
stjóri
Viðskiptaráðs
Íslands
Kreppan og leiðin fram á við
Allt frá því að efnahagslífið hér fór á hliðina í október í fyrra hefur dóm-
stóll götunnar farið húsa á milli í leit að vandfundnum sökudólgum. Erfitt
er að greina hverjir það eru, hverjir luma á óhreinu mjöli í pokahorninu
og hverjir hafa hreinan skjöld.
Dómstóllinn fékk kræsingar að kjamsa á um síðustu helgi þegar
Morgunblaðið greindi frá umfangsmiklum lánveitingum venslaðra aðila
hjá Kaupþingi. Lánin hljóðuðu upp á tæpa fimm hundruð milljarða króna,
samkvæmt lánabók bankans í júní. Fátt annað hékk á spýtunni.
Sigurður Einarsson, fyrrverandi stjórnarformaður Kaupþings, sendi
frá sér tilkynningu daginn eftir fréttaflutning af lánveitingum bankans.
Hann sagði meðal annars, að í umfjöllun fjölmiðla hefði ekki verið gerð
grein fyrir veðtryggingum fyrir umræddum lánum og frádrætti vegna
þessa sem kveðið sé á um í reglum um stórar áhættuskuldbindingar.
„Meðal frádráttar má nefna handveð í peningainnistæðum og verð-
bréfum og skuldbindingar utan efnahagsreiknings. Þess vegna eru
þær upphæðir sem tilgreindar eru í fréttinni marklausar enda voru
áhættuskuldbindingar bankans til umræddra aðila mun lægri,“ segir
Sigurður og bendir á að sömuleiðis hafi því verið ranglega haldið fram
að umræddar lánveitingar hafi farið til eigenda bankans.
Þá telur Sigurður að verulegur hluti skuldbindinga Roberts Tchenguiz,
eins af umsvifamestu viðskiptavinum bankans í Bretlandi, hafi verið
vegna endurhverfra verðbréfaviðskipta og framvirkra samninga sem
fjármagnaðir voru af öðrum bönkum, en Kaupþing hafi haft milligöngu
um.
„Af umfjöllun síðustu vikna fæ ég ekki betur séð en að fjölmiðlum
séu sendar kerfisbundið misvísandi upplýsingar um starfsemi Kaup-
þings,“ segir Sigurður einnig í tilkynningunni.
Sigurður dregur upp greinargóða mynd af því gríðarlega flókna starfi
sem fram fór innan veggja Kaupþings fyrir hrun bankans, nokkuð sem
leikmenn eiga erfitt með að skilja.
Aðrar lykilpersónur sem tengdust umfjöllun um lánveitingar bank-
ans stigu ekki fram úr skugganum. Þær létu ekki í sér heyra og kusu
að standa hljóðar hjá.
Vart má segja að þær hafi bætt hlut sinn.
Þvert á móti má ætla að þögnin haldi lífi í varðeldi dómstóls
götunnar.
Edda Rós Karlsdóttur, hagfræðingur hjá Landsbankanum, bendir á
í úttekt í Markaðinum í dag að skortur sé á trausti á fjármálamörkuð-
um. Það hefur lengi legið fyrir, en aukist fremur en hitt. Nauðsynlegt
er að snúa þeirri þróun við.
Ein þeirra leiða er að þær lykilpersónur sem tengjast íslenska efna-
hagshruninu í fyrrahaust, stígi fram úr skugganum og geri hreint fyrir
sínum dyrum. Aðeins þá verður andrúmsloftið hreinsað og vörður lagð-
ar fyrir nýja framtíð. Þeir, sem halda sig í skugganum, tefja fyrir þeirri
vegferð.
Viðskiptaþing 2009 hefst á morgun undir yfirskriftinni „Endurreisn
hagkerfisins“. Líklegt má telja að það verði ólíkt þingum fyrri ára, jafn-
vel frábrugðið þinginu í fyrra þótt tekið hafi verið að halla verulega
undan fæti á mörkuðum þá, bæði hér heima og erlendis. Eitt markmiða
þingsins nú, er að skapa eftirsóknarverða en trúverðuga sýn sem felur
í sér áherslur og markmið til lengri tíma, líkt og Finnur Oddsson, fram-
kvæmdastjóri Viðskiptaráðs, segir í grein hér á síðunni. Hreinskilni
og sannleikur ættu sömuleiðis að vera með í för, enda næringarríkt og
hollt veganesti á langri leið.
Mikilvægt er að lykilpersónur sem tengjast hruni
efnahagslífsins geri hreint fyrir sínum dyrum.
Dularfullur auðkýfingur
hverfur af sjónarsviðinu
Jón Aðalsteinn Bergsveinsson