Fréttablaðið - 11.03.2009, Side 34
Forkólfar þess sem eftir lifir af
íslensku viðskiptalífi eru þessa
dagana að hita upp fyrir hið
árlega Viðskiptaþing Viðskipta-
ráðs sem hefst á morgun.
Nokkrir framámanna viðskipta-
lífsins hafa sést upp á síðkastið
taka á því í ræktinni. Greinilegt
er að þar eru sumir á heima-
velli. Aðrir sem þar hafa sést –
pent sagt –
hefðu mátt
sýna fyrir-
hyggju og
byrja
æfingarnar
fyrr hafi
þeir ætlað
að vera í
formi fyrir
þingið í ár.
SÍMA NÚM ER MARKAÐARINS: 512 5000, fax: 512 5301, rit stjorn@markadurinn.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Aug lýs ingadeild: auglys ing ar@markadurinn.is Veffang: visir.is
B A N K A H Ó L F I Ð
Hitað upp
Bandaríski fjármálaspekúlant-
inn Jim Cramer, einn af kunn-
ustu álitsgjöfum vestan hafs
um fjármálamarkaði og líklega
einn lífleg-
asti stjórnandi
sjónvarpsþátt-
ar um viðskipti,
er svartsýnn á
horfurnar fyrir
hönd banda-
rískra hluta-
bréfaeigenda.
Cramer birti
nýtt verðmat í vikunni á net-
miðlinum Street.com og játar
þar mistök, sem fólust í of mikl-
um væntingum til nýrrar ríkis-
stjórnar Baracks Obama, for-
seta Bandaríkjanna, sem hann
taldi mundu kæta markaðinn og
hífa verðið upp. Það gekki ekki
eftir en vekur óneitanlega upp
minningar um greiningardeildir
bankanna (fyrir ríkisvæðingu),
sem sáu græna tíð fram undan í
nær hverju mati allt fram undir
það síðasta.
Of miklar
væntingar
Markaðurinn er ekki einn þeirra
sem þverskallast við og neitar að
endurskoða mat sitt. Fyrir nokkru
var hér sagt frá einum gráglettn-
um sem taldi meiri vinningslík-
ur felast í kaupum á hlutabréf-
um Straums en lottómiða. Miðað
við þróun mála í vikunni er nú
orðið nokkuð jöfnu saman að
líkja enda hlutabréf húmorist-
ans hér um bil jafn verðmikil
og Víkingalottómiði með tvær
tölur réttar en enga bónustölu.
Kunningi Markaðarins hefur nú
dustað rykið af gömlum ramma
sem hann keypti á gamla geng-
inu í Ikea á síðustu útsölu og
hengt útprentaða
eignastöðu sína upp
á vegg í vinnuher-
berginu við
hlið ramma
með bréf-
um Atorku,
Existu,
Glitnis,
Kaupþings
o g L a n d s -
bankans.
Lottómiðinn
33 milljónir evra, um 4,7 milljarðar króna, var sú upp-hæð sem Straumur átti að greiða á mánudag, þegar bankinn var tekinn yfi r. Haldbært fé var um 15 milljónir evra, 2,1 milljarður króna. 7,2
milljarða króna tap varð fyrir afskriftir á
síðasta ári hjá RARIK. Rekstrarhagnaður
fyrir fjármagnsliði, skatta og afskriftir var
um 1,9 milljarðar króna. 1,2
milljarða króna afgangur varð af lánasjóði
sveitarfélaga á síðasta ári. Engu að síður
niðurfærði sjóðurinn tæplega 1,5 milljarða
króna vegna afl eiðusamninga við Glitni.