Fréttablaðið - 11.03.2009, Side 37
MIÐVIKUDAGUR 11. mars 2009
Á háskólatónleikum í dag í hádeginu flytja Borgar
Magnason, kontrabassi, Frank Aarnik, slagverk,
og Peter Máté, píanó, verk eftir Áskel Másson. Tvö
verkanna eru frumfutt en eitt leikið í fyrsta skipti
opinberlega hér á landi. Tónleikarnir hefjast í Nor-
ræna húsinu kl. 12.30.
Áskell Másson (1953) stundaði nám við Tónlist-
arskólann í Reykjavík til ársins 1969 og spil-
aði þá með tilraunahljómsveit í Handíða- og
Myndlistarskólanum auk þess sem hann
vann um tíma með Náttúru. Hann sótti þá
einkanám í hljómfræði, kontrapunkti og
tónsmíðum hjá Patrick Savill og einka-
nám í slagverksleik hjá James Blades
í Lundúnum á árunum 1975-77. Árin
1973-75 starfaði Áskell sem tónsmiður
og slagverksleikari með ballett Þjóð-
leikhússins. Frá árunum 1978 til 1983
var hann dagskrárgerðarmaður við
Ríkisútvarpið. Eftir það hefur hann
alfarið helgað sig tónsmíðum og
samið mikinn fjölda tónverka, meðal
annars fyrir marga heimsþekkta
listamenn.
Verk hans hafa verið leikin um allan
heim og fjölmargar þekktar erlendar
hljómsveitir hafa flutt þau. Nefna má
Fílharmóníuhljómsveitina í New York,
Cleveland- hljómsveitina, Þjóðarsinfóníu-
hljómsveit Bandaríkjanna í Washinton,
Konunglegu fílharmóníuna í Lundúnum,
Residenzorkest den Haag, Fílharmóníu-
sveitina í Rotterdam og útvarps-
hljómsveitina í Vínar-
borg. Meðal helstu verka hans má nefna óperuna
Klakahöllina sem enn er í smíðum, sinfóníuna
Sinfonia Trilogia, óratoríuna Cecilía og Söngva um
vorið (fyrir sópran og hljómsveit) sem frumflutt
verða á næsta ári og alls 13 konserta, þar á meðal
Fiðlukonsert og Ora sem hlutu
Íslensku tónlistar verðlaunin
2006 og 2008 og einnig
tvöfaldi konsertinn
Crossings sem
nýlega heyrðist hér
á tónleikum Sin-
fóníunnar. Áskell
hefur margsinn-
is komið fram á
Háskólatón-
leikum og
frumflutt
verk sín.
- pbb
Ný verk eftir Áskel
Jazzklúbburinn Múlinn heldur
áfram starfsemi sinni á þessum
vetri eftir stutt hlé og verða fyrstu
tónleikar vorannar haldnir fimmtu-
daginn 12. mars. Múlinn hefur
flutt sig um set og mun starfsemi
hans fara fram í nýjum og glæsi-
legum sal í
kjallaranum á
Café Cultura,
Hverfisgötu.
Á dagskránni
verða tólf tón-
leikar með
sextán atrið-
um. Tónleika-
röðin hefst
á tónleikum
með Kvart-
ett Sigurð-
ar Flosason-
ar. Alls verða
12 tónleikar með sextán atriðum í
tónleikaröðinni. Kvartett Sigurð-
ar Flosasonar skipa að þessu sinni:
Sigurður Flosason, saxófónn, Eyþór
Gunnarsson, píanó, Valdimar Kol-
beinn Sigurjónsson, bassi, Einar
Valur Scheving, trommur, og á efn-
isskránni eru ný, nýleg og nokkur
eldri lög fyrir kvartett eftir Sigurð
Flosason. Annan fimmtudag verð-
ur Tríó Sunnu Gunnlaugsdóttur í
Múlanum með útsetningar Sunnu
á íslenskum þjóðlögum í bland við
frumsamið efni meðlima. - pbb
Múlinn flytur
TÓNLIST Sigurður
Flosason.
ÁSKELL
MÁSSON
Hljómsveitin Jeff Who? fær mjög
góða dóma fyrir aðra plötu sína, Jeff
Who?, á frönsku tónlistarsíðunni
The Wall. Platan kom út á síðasta
ári og var tilnefnd til Íslensku tón-
listarverðlaunanna á dögunum.
„Það er alveg ljóst að þessi
hljómsveit mun ná mjög langt.
Nýjasta plata þeirra er sannkölluð
tónlistaropinberun,“ segir gagnrýn-
andinn og bætir við: „Tíu stórfeng-
leg lög sem eru hvert öðru betra.“
Í framhaldinu lofar hann lögin,
útsetningarnar og spilamennskuna
og klykkir síðan út með orðunum:
„Það er ekki á hverjum degi sem
maður uppgötvar hljómsveit sem
býr yfir jafnmiklum hæfileikum
og Jeff Who? Frábær plata.“
Frábær í
Frakklandi
JEFF WHO? Hljómsveitin Jeff Who?
fær mjög góða dóma fyrir plötu sína á
franskri heimasíðu. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
NÝ SALATLÍNA FRÁ
SÓMA SEM BYGGÐ ER
Á LANGRI REYNSLU
AF SAMLOKUGERÐ