Fréttablaðið - 11.03.2009, Síða 38
18 11. mars 2009 MIÐVIKUDAGUR
„Við byrjuðum aldrei á neinum
deilum því við vitum að við erum
númer 6. Ekki einu sinni númer 2.“
CHRIS MARTIN SÖNGVARI COLDPLAY
Svarar fregnum um að
Bono, söngvari U2,
hafi kallað hann
aumingja.
„Það er gott að
stunda kynlíf með
fólki sem þú elskar.
Ég hef ekki sofið
hjá mörgum á
tónleikaferð-
um því ég er
ekki hrifin af
einnar nætur
gamni.“
SÖNGKONAN LILY ALLEN
Einmana á tónleikaferðum.
„Ég er frábær frænka og ég
leik oft við frænda minn
sem er sjö ára. Ég er ekki
góð að meðhöndla smá-
börnin og bleyjurnar.“
SÖNGKONAN KELLY CLARKSON
Virðist ekki vera með barneignir
í huga, enda einhleyp.
folk@frettabladid.is
Fjöldi fólks vandar Svövu
Johansen hjá NTC ekki
kveðjurnar á Facebook-síðu
fataframleiðandans E-label.
Ástæðan er frétt sem birtist
í Fréttablaðinu þar sem eig-
endur E-label sökuðu Svövu
um að banna þeim að versla
við samstarfsaðila NTC í
Frakklandi.
Svava segir að viðbrögðin á Face-
book hafi ekki komið sér á óvart.
„Ekki miðað við ef þetta væri rétt
sem þær [eigendur E-label] eru að
bera á okkur. Ef ég vissi að eitt
fyrirtæki væri að gera þetta sem
þær segja að við séum að gera þá
þætti mér það ekkert flott,“ segir
Svava. „Það er verið að ná sér í
samúð hjá fólki út af kreppunni. Mér
finnst þetta fyrir neðan allar hellur
og lágkúruleg aðgerð. En ég held að
þegar fólk heyrir okkar hlið á mál-
inu þá sjái það í gegnum þetta.“
Svava ber af sér allar sakir og
segir málið á misskilningi byggt.
Í yfirlýsingu sem hún hefur birt á
heimasíðunni ntc.is segir hún að
starfsmaður E-label hafi komið að
máli við franska framleiðandann
og óskað eftir samstarfi. Þegar E-
label fékk þau svör að samningur
hefði verið gerður við NTC var því
svarað til að E-label-varan væri ekki
seld í verslunum á Íslandi heldur
væri hún fyrir Bretlandsmarkað.
Þá ákvað franski framleiðandinn
að athuga með samstarf. Kom þá í
ljós að pöntunarmagn fyrirtækisins
var talsvert undir þeim lágmörk-
um sem framleiðandinn er vanur
að vinna með ásamt því að varan
þótti of flókin í framleiðslu. Þar sat
málið fast þegar NTC frétti af því í
síðustu viku.
Svava segist hafa fengið afar
ósanngjarna meðferð á Facebook
því þar hafi einungis önnur hlið
málsins verið tekin upp. „Hefði
málið bara verið í Fréttablaðinu
hefði það fjarað út en það var verið
að vísa í blaðið inni á Facebook. Þar
halda þær [eigendur E-label] áfram
sem ritstjórar inni á þeirri síðu. Ég
hef séð að þær hafa verið að taka
út jákvæð komment. Þá sér maður
hver er að valta yfir hvern,“ segir
hún og bætir við um franska fram-
leiðandann: „Ef þeir vilja brjóta
samning við okkur þá er það þeirra
mál. Þá myndum við kannski fara
í mál við þá eða skoða það. En við
getum ekki staðið hér og sagt verk-
smiðju hvað hún á að gera. Málið
er að verksmiðjan ætlaði aldrei að
brjóta á okkur og E-label fór inn á
fölskum forsendum.“
freyr@frettabladid.is
Lágkúrulegt á Facebook
SVAVA JOHANSEN Svava er ósátt við umræðuna sem hefur sprottið upp á Facebook-
síðu framleiðandans E-label.
Stefnumót við frambjóðendur
Fundur með frambjóðendum í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins
vegna alþingiskosninganna í vor verður í Valhöll
miðvikudaginn 11. mars kl. 17:00. Fyrirkomulagið á fundinum
er með þeim hætti að fundargestum gefst tækifæri til þess að
spjalla við frambjóðendur og koma með spurningar til þeirra.
Þetta er síðasti sameiginlegi fundurinn fyrir prófkjörið 13. -14.
mars. Fundarstjóri er Marta Guðjónsdóttir, formaður Varðar.
Boðið verður upp á kaffiveitingar. Allir velkomnir!
Sjálfstæðisfélögin í Reykjavík
Sjálfstæðisflokkurinn Nánari upplýsingar um fundina og félagsstarf Sjálfstæðisflokksins
má finna á heimasíðu flokksins, www.xd.is, eða í síma 515 1700.
Hart í bak
Þrettándakvöld
Skoppa og Skrítla í söng-leik
Eterinn
Kardemommubærinn
ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ
Sími 551 1200 / midasala@leikhusid.is / www.leikhusid.is
Kynntu þér málið hjá sölumönnum Eirvíkur
Suðurlandsbraut 20, Reykjavík | Baldursnes 6, Akureyri | Sími 588 0200
Íslenskt stjórnborð - Stórt hurðarop
Íslenskar leiðbeiningar - 20 ára ending
Miele þvottavélar hafa verið framleiddar í yfir hundrað ár.
Miele þvottavélar eru framleiddar til að endast.
Þvottavélar - Verð frá kr. 139.995
Þurrkarar - Verð frá kr. 119.995
TILBOÐ
Sparaðu
með Miele