Fréttablaðið - 20.03.2009, Page 36
10 föstudagur 20. mars
tíðin
✽ alltaf á toppnum
BRÚÐKAUPSMYNDIN Við Svenni Þór giftum okkur síðastliðið sumar
og fengum þennan ramma að gjöf. Ég var svo ánægð með vöndinn að
ég tímdi ekki að henda honum.
GUSGUS Á NASA Fyrstu tónleikar GusGus verða
haldnir í kvöld á Nasa en sveitin hefur fyllt staðinn í hvert
skipti sem hún hefur troðið þar upp. GusGus spilaði síð-
ast hér á landi á Iceland Airwaves en sveitin hefur klárað
sjöttu hljóðversskífuna sína sem heitir 24/7 og kemur sú
plata út í júní.
ÓPERUPERLUR Í ÍSLENSKU ÓPERUNNI
Óperuunnendum gefst tækifæri til að njóta nokkurra af
helstu perlum óperubókmenntanna í sýningunni Óperu-
perlur sem sýnd er í Íslensku óperunni í kvöld. Sýningin sló
í gegn hjá áhorfendum þegar hún var frumsýnd en meðal
söngvara eru margir af fremstu óperusöngvurum landsins.
söngkona
„Heimsóknum er alltaf að fjölga
og að meðaltali skoða 500
manns bloggsíðuna á dag, sem
er geggjað,“ segir Ása Ottesen
um bloggsíðu sína trend-land.
blogspot.com, en hún heldur
fyrirlestur um tískublogg í Nor-
ræna húsinu á mánudaginn
klukkan 16.
„Fyrirlesturinn tekur um tut-
tugu mínútur og ég mun fjalla
stutt um bloggið mitt, af hverju
ég byrjaði með það og sýni
myndir á glærum. Ég fjalla líka
um muninn á tískubloggum, en
sum þeirra eru gerð af stelpum
sem mynda fötin sín en önnur
eru af götutísku eða útdráttur úr
tískublöðum,“ útskýrir Ása. „Ég
segi svo frá því hvað mér finnst
vera í tísku og hvað verður mest
áberandi í sumar. Svo verður
auðvitað frjálst að spyrja mig
um hvað sem tengist tísku.“
Ása Ottesen:
Heldur fyrirlestur
um tískublogg
MORGUNGJÖFIN
Þetta hálsmen gaf
maðurinn minn mér
í morgungjöf, dag-
inn eftir stóra dag-
inn. Það er í stíl við
trúlofunarhringinn.
GJÖF FRÁ
DÓTTUR MINNI
Þetta hjarta föndr aði
Anita dóttir mín og lét
mig hafa með mér til
Serbíu í Eurovision. Yndis-
legur lukkugripur sem ég
held mikið uppá.
TÖLVAN
AIR-BOXIÐ
BÆKUR
LJÓSAKRÓNAN
GRILLIÐ
TOPP
10
PÍANÓIÐ
BAÐKARIÐ
Nic‘s sticks fyrir neglurnar Þú
þarft ekki lengur að eyða löng-
um stundum í að lakka á þér
neglurnar heima fyrir því OPI
hefur sent frá sér nýjung sem
er að gera allt vitlaust vest-
anhafs. Oprah er einn
helsti aðdáandi nagla-
lakksins sem kemur
í formi penna. það
fæst í ótal mis-
munandi litum,
passar vel í vesk-
ið og þornar á ör-
skotsstundu svo
þú getur notað það
hvar og hvenær
sem er.
Naglalakk í
formi penna
Vinsælt Nic‘s sticks
passar vel í veskið svo
konur geta naglalakk-
að sig hvar og hvenær
sem er.
REGÍNA ÓSK ÓSKARSDÓTTIR
Vinsælt Um 500 manns skoða blogg-
síðu Ásu daglega á trend-land.blogspot.
com.
Sími : 568 5305 • Grandagarði 5
Opið v i rka daga 900 - 1800
Laugardaga 900 - 1300
Fullkomin öryggiskerfi með miklum möguleikum og þráðlausum
skynjurum. Henta vel fyrir heimili, sumarhús og fyrirtæki og
fást í mörgum útfærslum. Uppsetning í boði ef óskað er.
TILVERAN
getur verið
streitulaus...
ÖRYGGI ÁN MÁNAÐARGJALDA
www.sm.is
UMBOÐSMENN UM LAND ALLT
MEÐ ÍSLENSKU TALI OG TEXTA
MEÐAL MÖGULEIKA:
REYKSKYNJARI
VATNSSKYNJARI
HITASKYNJARI
GASSKYNJARI
ÖRYGGISHNAPPUR
EINKA ÖRYGGISKERFI