Fréttablaðið - 23.03.2009, Side 1
Sími: 512 5000MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI
heilsa og hreyfing
MÁNUDAGUR 23. MARS 2009
Sölufulltrúar Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Hugi Garðarsson hugi@365.is 512 5447
„Ég hef frá barnæsku verið höll undir hannyrðir, en eftir að ég kynntist bútasaumi datt ég alveg í hans heim og hef ekki dottið úr honum síðan,“ segir Ágústa Markúsdóttir bútasa k
Ágústa segir lita- og munstur-sköpun bútasaums heillandi, en bæði getur maður hannað sín eiginmunstur og saumað efti
standið í kringum þetta gefur mér óskaplega mikið,“ segir Á úsem e ý
Inn í heim bútasaumsins
Mestu dýrgripir kynslóðanna eru handunnir, heimagerðir hlutir ástvina, sem gefnir eru af heilum hug og
unnir af natni með heitu hjarta. Dæmi um slíkar gersemar eru bútasaumsteppi sem skreyta hvílur okkar.
Hér situr Ágústa Markúsdóttir við saumaskap og innan um sum af nýjustu bútasaumsteppunum sínum, en í hverju teppi liggur
margra mánaða vinna.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
www.eirberg.is • 569 3100 • Stórhöfða 25
Stuðningshlífarfjölbreytt úrval
Hringdu í síma
ef blaðið berst ekki
KAFFIBOLLAR dökkna venjulega að innan með mikilli
notkun og erfitt getur verið að ná litnum úr þeim. Samkvæmt
gömlu húsráði er gott að láta bollana liggja í klórvatni um
stund og eiga þeir þá að verða skínandi hvítir á ný.
36,95%
72,75%
Fr
ét
ta
bl
að
ið
M
or
gu
nb
la
ði
ð
Allt sem þú þarft...
Fréttablaðið er með 97%
meiri lestur en Morgunblaðið.
Meðallestur á tölublað m.v. höfuðborgarsvæðið
18-49 ára. Könnun Capacent í nóvember 2008 - janúar 2009.
MÁNUDAGUR
23. mars 2009 — 71. tölublað — 9. árgangur
VEÐRIÐ Í DAG
ORKUMÁL Iceland America Energy
(IAE), félag í meirihlutaeigu REI,
útrásararms Orkuveitu Reykja-
víkur, er svo gott sem gjaldþrota
og eignir félagsins í Bandaríkjun-
um eru flestar verðlitlar og duga
ekki fyrir skuldum. Þetta kom
fram í máli stjórnarmanns IAE
á orkuráðstefnu í Bandaríkjun-
um í janúar. Kjartan Magnússon,
stjórnarformaður REI, vill ekki
staðfesta að fyrirtækið sé svo illa
statt.
Fjárfesting í verkefnum í
Bandaríkjunum á undanförnum
árum nemur tæpum tveimur millj-
örðum króna. Sú fjárfesting er að
mestu leyti íslensk og virðist að
engu orðin, samkvæmt Tal Finney,
stjórnarmanni IAE sem jafnframt
á fimmtán prósent í félaginu. Finn-
ey kynnti viðskiptaáætlun til að
bjarga IAE á orkuráðstefnu í jan-
úar. Þar kemst Finney að þeirri
niðurstöðu að félagið sé svo gott
sem gjaldþrota og flestar eignir
félagsins séu verðlitlar. Ekkert
liggur eftir og eina raunverulega
framkvæmdin, borun holu fyrir
tæpan milljarð, mistókst.
Grunnhugsunin í áætlun hans
til að bjarga IAE er að REI leggi
félaginu til 340 milljónir króna
í nýtt rekstrarfé. Hann telur að
hægt sé að margfalda virði félags-
ins á nokkrum mánuðum, en sam-
kvæmt heimildum Fréttablaðsins
eru litlir möguleikar á því að rétta
félagið við í því viðskiptaumhverfi
sem nú er í Bandaríkjunum.
Kjartan fór til Bandaríkjanna
nýlega til að kynna sér stöðu fyrir-
tækisins og fundaði með Tal Finn-
ey. Hann telur það ofsagt að IAE
sé svo gott sem gjaldþrota. Hann
segir að reynt sé að hámarka þau
verðmæti sem búi í fyrirtækinu.
Jafnframt segir Kjartan að það
komi ekki til greina að REI leggi
IAE til frekara rekstrarfé, eins og
Tal Finney telur að sé nauðsynlegt
til að fyrirbyggja gjaldþrot.
Hezy Ram, eigandi orku-
fyrirtækisins Ram Power Inc.,
sem Geysir Green Energy, fyrr-
um meirihlutaeigandi í IAE, fékk
til að meta stöðu fyrirtækisins í
desember 2008, komst einnig að
þeirri niðurstöðu að fyrirtæk-
ið væri í alvarlegum vanda. Ram
mælti með að umsvif IAE yrðu
stórlega minnkuð með sölu eigna
og skuldir greiddar. - shá / sjá síðu 4
Orkufyrirtæki REI í
nær vonlausri stöðu
Iceland America Energy, félag í eigu REI, er svo gott sem gjaldþrota, að sögn
stjórnarmanns þess. Tæplega tveggja milljarða króna fjárfesting virðist glötuð.
ÁGÚSTA MARKÚSDÓTTIR
Hefur handsaumað
yfir hundrað teppi
• heimili
Í MIÐJU BLAÐSINS
HREYFING OG HEILSA
Crossfit, mýrarköfun,
fílapóló og margt fleira
Sérblað um hreyfingu og heilsu
FYLGIR FRÉTTABLAÐINU Í DAG.
AFRÍKA Hundruð þúsunda Angóla-
manna söfnuðust saman í borg-
inni Lúanda í gær til að hlusta á
síðustu ræðu Benedikts páfa sex-
tánda (XVI) á ferðalagi hans um
Afríku.
Í ræðu sinni hvatti páfi meðal
annars íbúa álfunnar til að draga
úr þeim stríðsátökum sem hafa
átt sér stað þar síðustu áratugi
og sagði að „eyðileggingarmátt-
ur borgaralegra átaka“ hefði ríkt
of lengi í álfunni. Í ræðu sinni
syrgði páfi líka konurnar tvær
sem krömdust til bana á laugar-
daginn var þegar fólk streymdi
inn á íþróttaleikvang til að líta
hann augum.
Með ræðunni í Lúanda lauk sjö
daga heimsókn páfa til Afríku. - ve
Benedikt páfi í Afríku:
Vill að dragi úr
stríðsátökum
Gott veganesti
í lífinu
KFUM og KFUK
fagna 110 ára
afmæli á árinu.
TÍMAMÓT 16
FJÖLMIÐAR Um þessar mundir er
að koma út í Danmörku bókin
„Alt går efter planen – Saga-
en om Nyhedsavisen“ eða Allt
samkvæmt áætlun – sagan um
Nyhedsavisen. Bókina skrifuðu
fjórir fyrrverandi blaðamenn þar
og var ákvörðunin tekin kvöldið
sem ljósin voru slökkt hinsta sinni
á ritstjórnarskrifstofum á síðasta
ári þegar útgáfu var hætt. „Við
skoðuðum meðal annars hvernig
fjárfestar komu að þessu úr öllum
áttum og tengslin milli þeirra. Já,
við reyndum að elta peningana,“
segir Morten Runge einn höf-
unda. Sagan hefst á Íslandi þegar
Gunnar Smári Egilsson og Jón
Ásgeir Jóhannesson fóru að ræða
blaðaútgáfu og horfðu til Kaup-
mannahafnar. - jbg/ sjá síðu 26
Bók um Nyhedsavisen:
Eltu peningana
ÞÓRHALLUR SIGURÐSSON
Laddi leikur
í Roklandi
Kvikmynd eftir sögu Hallgríms Helgasonar
FÓLK 20
Auglýsir íslenskt
Ökuþórinn Felipe
Massa verður andlit
orkudrykkjarins
Soccerade sem
er í eigu Íslend-
inga.
FÓLK 20
Hægviðri Í dag verður hæg
breytileg átt um allt land en
hvessir heldur í kvöld. Víða verður
bjart, einkum suðaustanlands og
að mestu úrkomulaust. Hiti 1-5
stig.
VEÐUR 4
4
1
1
2
3
STJÓRNMÁL Kristján Þór Júlíus-
son tilkynnti um framboð sitt til
formanns Sjálfstæðisflokksins í
gær. Tveir hafa nú tilkynnt um
framboð sitt; Kristján og Bjarni
Benediktsson.
Kristján segist telja það styrk-
leikamerki fyrir Sjálfstæðisflokk-
inn að kosið sé á milli einstakl-
inga. „Það er nauðsynlegt fyrir
landsfund að kjósa á milli ólíkra
einstaklinga með það að markmiði
að hafa sem breiðasta og víðasta
skírskotun til almennings í land-
inu.“
Kristján segir stjórnmálamenn
undanfarið hafa orðið fyrir rétt-
mætri gagnrýni almennings og
komið hafi fram eðlileg krafa um
ábyrgð og endurnýjun. Sjálfur
hafi hann aldrei fengið pólitískan
frama eða völd á silfurfati.
„Sjálfstæðisflokkurinn verð-
ur, eins og aðrir að læra af því
sem aflaga fór og endurheimta
það traust sem hann hefur ávallt
notið hjá þjóðinni. Það mikla verk-
efni verður forysta Sjálfstæðis-
flokksins að leysa af auðmýkt og
með hagsmuni allra stétta í huga.“
Framboð sitt segir hann mega líta
á með þessa kröfu um endurnýjun
í huga. - kóp
Tveir hafa tilkynnt framboð til formanns Sjálfstæðisflokksins á landsfundi:
Kristján Þór býður sig fram
Léku sér
að Eistlendingum
Strákarnir okkar
sýndu sparihliðarnar
er þeir rúlluðu yfir
Eistlendinga að
Ásvöllum.
ÍÞRÓTTIR 22
PÁFINN Í AFRÍKU Sjö daga heimsókn
páfa til Afríku lauk í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/AFP
Neyðarlínan
„Í fljótu bragði kemur fátt á óvart
við upplýsingarnar um styrki til
stjórnmálaflokkanna: snýst þetta
ekki um einhvers konar hug-
sjónir?“ skrifar Guðmundur Andri
Thorsson.
Í DAG 14
BESTU SÆTIN Hvert sæti var skipað á áhorfendabekkjunum í Frostaskjólinu í gær þegar heimamenn í KR tóku á móti Keflavík í
fyrsta leik liðanna í undanúrslitum Iceland Express-deildarinnar. Það stoppar þó ekki uppátækjasamt ungt fólk, og þessir áhorf-
endur voru á besta stað til að fylgjast með afgerandi sigri heimamanna. Sjá síðu 22 FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI