Fréttablaðið


Fréttablaðið - 23.03.2009, Qupperneq 4

Fréttablaðið - 23.03.2009, Qupperneq 4
4 23. mars 2009 MÁNUDAGUR ORKUMÁL Iceland America Energy (IAE), félag í meirihlutaeigu REI, útrásararms Orkuveitu Reykjavíkur, er svo gott sem gjaldþrota og eign- ir félagsins í Bandaríkjunum eru flestar verðlitlar og duga ekki fyrir skuldum. Fjárfesting sem nemur um 1,8 milljörðum króna, og er að mestu leyti íslensk, virðist að engu orðin. Verði félagið gjaldþrota er það talið hafa í för með sér fjölda málsókna vegna ógreiddra launa og skulda við birgja. Tal Finney stjórnarmaður, sem á fimmtán prósent í IAE, kynnti opin- berlega viðskiptaáætlun til að bjarga IAE. Þar kemst Finney að þeirri niðurstöðu að félagið sé svo gott sem gjaldþrota og flestar eignir félags- ins séu verðlitlar. Grunnhugsunin í áætlun hans er að REI leggi félaginu til 340 milljónir króna í rekstrarfé. Hann telur að hægt sé að margfalda virði félagsins á nokkrum mánuðum. Samkvæmt heimildum Fréttablaðs- ins eru litlir möguleikar á því að rétta félagið við í því viðskiptaum- hverfi sem nú er í Bandaríkjunum. Fái Finney hljómgrunn hjá stjórn- endum OR og REI rynni rekstrar- féð að líkindum að hluta í hans eigin vasa þar sem hann er einn kröfuhafa á IAE vegna leigu á skrifstofuhús- næði, lögfræði- og ráðgjafarstarfa. Kjartan Magnússon, stjórnarfor- maður REI, fór til Bandaríkjanna nýlega til að kynna sér stöðu fyrir- tækisins og fundaði með Tal Finney. Hann telur það ofsagt að IAE sé svo gott sem gjaldþrota. Hann segir að reynt sé að hámarka þau verðmæti sem búi í fyrirtækinu. „Einn hefur gefið sig fram og lýst yfir áhuga.“ Kjartan vill ekki gefa upp hver sá aðili sé né hvað hann vilji að borga fyrir IAE. Jafnframt segir Kjartan að það komi ekki til greina að REI leggi IAE til frekara rekstrarfé, eins og Tal Finney telur að sé nauðsyn- legt. Hezy Ram, eigandi orkufyrirtæk- isins Ram Power Inc., sem GGE, fyrrverandi meirihlutaeigandi í IAE, fékk til að meta stöðu fyrirtæk- isins í desember 2008, komst einnig að þeirri niðurstöðu að fyrirtækið væri í alvarlegum vanda. Ram mælti með að umsvif IAE yrðu stórlega minnkuð með sölu eigna og skuldir greiddar. Spurður um stöðumat sitt á fyrirtækinu segir Hezy Ram að hann hafi starfað í nokkra daga hjá IAE eftir að fyrrverandi framkvæmda- stjóri, Magnús B. Jóhannesson, var rekinn. „Ég kom þeirri skoðun minni á framfæri við stjórnina að eina leið- in til að koma í veg fyrir gjaldþrot væri sala eigna. Mínum hugmyndum var hafnað enda þýddi hún að eig- endur IAE fengju ekkert.“ svavar@frettabladid.is Diddy.is Diddy.is dy.is Diddy.is iddy.is Diddy i. ddy is s is y isDidd .Fallegar vörur og frábært verð, sjón er sögu ríkari Did Didd Did Útsala Útsala Full búð af nýjum vörum, allt á að seljast, verslunin hættir. Tilvalið tækifæri að eignast fl ott föt á frábæru verði í kreppunni. 30%, 50% og 70% afsl. í boði. Buxur, leggings, toppar, kjólar, mussur, peysur og margt fl eira í boði. Allt topp vörur. og lygilegt verð. Stærðir frá 38 til 50. Opið frá 13 - 18 virka daga og 13 - 16 laugardag Diddy.is Faxafeni 14 • s: 588 8400 Orkuútrás REI talin stefna í gjaldþrot Orkuútrás REI í Bandaríkjunum virðist úr sögunni og tæpir tveir milljarðar tapaðir. Iceland America Energy, félag í meirihlutaeigu REI, er svo gott sem gjaldþrota, að mati stjórnarmanns. Ofsagt, segir stjórnarformaður REI. ORKA IAE starfar að fjölmörgum verkefnum í Bandaríkjunum en illa horfir með flest þeirra, og stjórnarmaður segir eignir verðlitlar. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA ■ Iceland America Energy var í eigu Enex. ■ Enex var í eigu GGE (73%) og REI (26,5%). ■ Enex var skipt upp á milli GGE og REI í febrúar. ■ REI yfirtók hlut Enex í IAE og á nú 84% í IAE. ■ GGE fékk hlut Enex í verkefnum í Þýskalandi og Kína. SKIPTING ENEX Á MILLI REI OG GGE LÖGREGLUMÁL Á annan tug bíla lenti í árekstrum á Hellisheiði í aftakaveðri á laugardag. Tilkynnt var um þriggja bíla árekstur á heiðinni rétt fyrir klukkan fimm á laugardag. Skömmu síðar urðu þrír árekstr- ar á svipuðum slóðum og telst lögreglunni á Selfossi svo til að tjón hafi orðið á þrettán bílum. Engin alvarleg slys urðu á fólki en Hellisheiðinni var lokað á meðan lögregla og sjúkraflutn- ingamenn voru að störfum. Laust fyrir klukkan sjö lentu svo snjóplógur og fólksbíll saman í Þrengslunum og voru þau lokuð í nokkrar klukkustundir. - ve Aftakaveður á Hellisheiði: Á annan tug bíla í árekstrum BANDARÍKIN Leikkonan Natasha Richardson var borin til grafar í gær. Bara nánustu ættingjar og vinir voru við- staddir. Richardson var jarðsett í Millbrook, um níutíu mílur norður af New York. Þar gift- ist hún leik- aranum Liam Neeson og ól upp syni þeirra tvo. Richardson lést á sjúkrahúsi í New York síðastliðinn miðviku- dag eftir skíðaslys í Kanada. - ve Richardson borin til grafar: Jörðuð nærri heimili sínu NATASHA RICHARDSON VEÐURSPÁ Alicante Bassel Berlín Billund Eindhoven Frankfurt Friedrichshafen Gautaborg Kaupmannahöfn Las Palmas London Mallorca New York Orlando Ósló París San Francisco Stokkhólmur HEIMURINN Vindhraði er í m/s. Hitastig eru í °C. Gildistími korta er um hádegi. 19° 18° 6° 5° 9° 7° 6° 6° 6° 19° 11° 19° 7° 24° 2° 15° 16° 1° Á MORGUN 6-15 m/s Hvassast á Vestfjörðum. -4-3 -1 0 MIÐVIKUDAGUR Norðlægar áttir. 5 7 3 4 2 3 3 2 5 6 8 4 3 1 2 1 2 2 5 3 5 -2 5 4 0 0 -1 -3 VÍÐA BJART Úrkomulítið hæg lætisveður einkennir veðrið í dag en lægð kemur upp að landinu í kvöld eða nótt með tilheyrandi vindi og vætu. Vorið lætur eitthvað bíða eftir sér en horfur eru á frekar svölu veðri í vikunni og kólnar töluvert um miðbik vikunnar. Soffía Sveinsdóttir veður- fréttamaður BANDARÍKIN, AP Barack Obama Bandaríkjaforseti fagnaði á laugardag endurkomu Frakklands að stjórn Atl- antshafsbanda- lagsins (NATO) eftir 43 ára fjarveru. Obama sagði fulla þátt- töku Evrópu- sambandslands- ins styrkja bandalagið og Evrópu alla. Franska þingið lýsti fyrr í mán- uðinum yfir stuðningi við ríkis- stjórn Sarkozys sem lagði það til að Frakkar tækju aftur þátt í hernað- arsamstarfi NATO. Frakkar hættu samstarfinu fyrir fjórum áratug- um í mótmælaskyni vegna hernað- aryfirburða Bandaríkjanna. AP fréttastofan segir vísbend- ingar um að Bandaríkin komi til með að styðja Anders Fogh Rasm- ussen í forsæti NATO, líkt og Frakkland, Þýskaland og Bretland geri. - ve Obama Bandaríkjaforseti: Fagnar endur- komu Frakka BARACK OBAMA REYKJANES Hópur hnísa fór mikinn í sjónum fyrir utan Keflavík og Njarðvík á laugardag. Sjónarvott- ar telja að dýrin hafi verið 100 til 200 talsins, en atgangurinn sást vel úr landi. Þá sáu farþegar á hvalaskoðun- arskipinu Eldingu hnúfubakstorfu. „Hnúfubakarnir voru uppteknir við að éta. Það var mikið af fiski þarna, annað hvort síld eða loðnu,“ segir Roland Buchholz, skipstjóri á Eldingunni. „Við sáum þá mjög vel. Hnúfubakar skipta sér ekkert af okkur þegar þeir gramsa í æti. Þeir koma bara reglulega upp til að anda og stinga sér svo niður og sýna þá vel sporðinn.“ Hnúfubakarnir í Njarðvík voru fullorðin dýr en frekar ung, að sögn Rolands, 13 til 15 metra löng. - ghs Hvalir við Keflavík og Njarðvík: Hnísur við land STÖKKVANDI HVALIR Hundruð hnísa voru nálægt landi við Keflavík og Njarðvík á laugardaginn. FRÉTTABLAÐIÐ/HILMAR BRAGI EFNAHAGSMÁL „Þetta hefur geng- ið vonum framar hingað til og við getum ekki verið annað en sátt, því við höfðum reiknað með meiri samdrætti. En auðvitað eru blikur á lofti hér eins og annars staðar,“ segir Jón Ingvar Pálsson, yfirlögfræðingur hjá Innheimtu- stofnun sveitarfélaga, sem sér um innheimtu meðlagsgreiðslna. Inn- heimtuhlutfall greiðslnanna hefur lækkað í kringum ellefu prósent frá því á sama tíma á síðasta ári. Að sögn Jóns Ingvars innheimti stofnunin meðlagsgreiðslur að upp- hæð 416 milljónir króna fyrstu tvo mánuði þessa árs, miðað við 426 milljónir í fyrra. Upphæð greiðsln- anna hækkaði um 9,6 prósent um áramótin. Sé sú hækkun tekin með er innheimtuhlutfallið nú um 69 prósent, en var 80 prósent. Jón Ingvar segir að í ljósi efna- hagsástandsins sé hátt innheimtu- hlutfall verðugt rannsóknarefni fyrir félagsfræðinga. „Í gegnum árin hefur það virst sem svo að verðmætamat fólks breytist í niður- sveiflum, þegar þrengir að. Fólk hugsar kannski frekar um að fram- færa börnin sín en að kaupa sér vél- sleða eða eitthvað slíkt. En þetta eru auðvitað bara vangaveltur.“ Jón Ingvar segir mikið um að atvinnulaust fólk leiti til stofnun- arinnar og óski eftir greiðslufresti. „Það er tekið vel í það hjá fólki í þessu ástandi,“ segir Jón Ingvar Pálsson. - kg Yfirlögfræðingur segir hátt innheimtuhlutfall meðlags verðugt rannsóknarefni: Hefur gengið vonum framar Áhöfnin var drukkin Fraktskip strandaði rétt utan við Kaupmannahöfn í gærmorgun. Danski sjóherinn hafði fylgst með skipinu í nokkurn tíma og séð að stefndi í strand. Þyrla reyndi árang- urslaust að ná sambandi við skipið. Þegar lóðsinn kom um borð reyndist áhöfnin öll dauðadrukkin og hafði skipstjórinn ekki orðið strandsins var. DANMÖRK Varð afi um helgina Anders Fogh Rasmussen, forsæt- isráðherra Danmerkur, varð afi um helgina þegar dóttir hans eignaðist stúlku sem var 3.400 grömm að þyngd og 50 sentimetrar að lengd. Þetta tilkynnti forsætisráðherrann á Facebook-síðu sinni. BARNASÝNING Yfirlögfræðingur hjá Inn- heimtustofnun sveitarfélaga er ánægður með innheimtuhlutfall meðlagsgreiðslna fyrstu tvo mánuði ársins. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR GENGIÐ 20.03.2009 GJALDMIÐLAR KAUP SALA HEIMILD: Seðlabanki Íslands 186,9614 GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR 113,44 113,98 163,93 164,73 153,85 154,71 20,645 20,765 17,840 17,946 13,923 14,005 1,1874 1,1944 171,36 172,38 Bandaríkjadalur Sterlingspund Evra Dönsk króna Norsk króna Sænsk króna Japanskt jen SDR

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.