Fréttablaðið - 23.03.2009, Page 10
10 23. mars 2009 MÁNUDAGUR
Þarfir íslenskra fjölskyldna eru mismunandi. Þess vegna fæst vinsælasta fjölskyldu-
tryggingin í nokkrum útgáfum. Eftir því sem heimilið stækkar og áhugamálin breytast velur
þú þá vernd sem hentar þér best innan F plús trygginganna.
Þess vegna er F plús vinsælasta fjölskyldutryggingin á Íslandi.
Vátryggingafélag Íslands hf. | Ármúla 3 | 108 Reykjavík | Sími 560 5000 | vis.is
Vinsælasta íslenska
fjölskyldutryggingin
SPLASS! Drengur lætur sig gossa út
í vatnstank til að kæla sig í hitanum
í Hyderabad á Indlandi. Alþjóðlegi
vatnsdagurinn var í gær, sunnudaginn
22. mars. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
NEYTENDUR Talsmaður neytenda,
Gísli Tryggvason, hvetur þá sem
hafa tapað á peningamarkaðssjóð-
um við slit þeirra í haust að sækja
um skattaívilnanir til ríkisskatt-
stjóra. Skattaívilnun mundi þýða
lægri tekjuskattsstofn. Skattstjóri
hafði áður hafnað því að einstakl-
ingar ættu rétt á ívilnunum, en
Gísli telur að meta beri hvert og
einstakt tilvik.
Í lögum um tekjuskatt kemur
fram að skattstjóri skal taka til
greina umsókn manns um lækk-
un tekjuskattsstofns ef „gjald-
þol manns hefur skerst verulega
vegna taps á útistandandi kröfum
sem ekki stafa frá atvinnurekstri“.
Ríkisskattstjóri hafnaði, í svari
við erindi talsmannsins, því að
þetta ákvæði ætti við. Talsmaður
neytenda telur hins vegar að ekki
sé hægt að víkja lagaákvæði til
hliðar í skattframkvæmd.
Talsmaðurinn bendir á að ekki
sé skilgreint hverjar séu „úti-
standandi kröfur“ sem skattalög-
in kveða á um. Hann hvetur því
þá sem hafa tapað í sjóðunum að
láta reyna á, að höfðu samráði við
sérfræðinga, hvort tapið geti fall-
ið þar undir.
Í áliti talsmannsins, sem birt-
ist á heimasíðu hans, segir að lík-
legra sé að þeir sem nýlega fjár-
festu í sjóðunum og fengu lægri
útgreiðslu en þá sem nam upphaf-
legri fjárfestingu fái ívilnun en
þeir sem fengu aðeins lægri arð-
greiðslur. - kóp
Þeir sem töpuðu í peningamarkaðssjóðum sæki um skattaívilnanir:
Tap í sjóðum lækki skattstofn
FÓLK Talsmaður neytenda hvetur þá
sem töpuðu á peningamarkaðssjóðum
til að sækja um lækkun tekjuskattstofns
hjá ríkisskattsjóra. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
FERÐAÞJÓNUSTA Tvöföld gengis-
skráning íslensku krónunnar hér
á landi og erlendis truflar ferða-
þjónustuna hér á landi. Ferða-
menn, sem skoða verð til dæmis á
netinu, og miða við gengi íslensku
krónunnar erlendis reikna út allt
annað verð en miðað við gengið
hér.
Steingrímur Birgisson, for-
stjóri Bílaleigu Akureyrar, kann-
ast við þennan vanda og segir
hann helst eiga við um einstakl-
inga sem skoði og kaupi ferð-
ir á Netinu, umreikni verðið í
sinn gjaldmiðil og noti þá gengi
erlendis sem sé allt annað en hér.
„Þá kemur upp þessi misskilning-
ur en þegar maður útskýrir málið
þá skilja menn þetta,“ segir Stein-
grímur.
Hann kveðst bregðast við með
því að umreikna verðið í evrum
á gengi Seðlabankans. „Ísland er
samt ódýrt þó að maður noti það
gengi miðað við hvernig það var.
Ef maður notar seðlabankagengið
er það bara gefins,“ segir hann.
Steingrímur verður ekki mikið
var við þetta vandamál. „Við
höfum ekki mörg svona dæmi en
örfá og þá hefur starfsmaðurinn
bent viðskiptavininum á að við
tökum að sjálfsögðu við upphæð-
inni í krónum ef viðskiptavinur-
inn getur keypt krónur í sínum
banka, til dæmis í Þýskalandi.
Við gefum verðið upp í krónum á
heimasíðunni og fáum þá uppsett
verð.“
Ferðaþjónustufyrirtæki eru
með samninga við erlendar
ferðaskrifstofur í evrum og ann-
arri mynt og eru þeir miðaðir
við gamalt gengi. Einstaklingar
sem kaupa ferðina á Netinu hafa
hins vegar ekki upplýsingar um
gengis skráningu hér á landi. - ghs
ÁTTA SIG EKKI Á GENGINU Erlendir
ferðamenn sem skoða verð hjá íslensk-
um ferðaþjónustufyrirtækjum, átta sig
ekki á því að gengi íslensku krónunnar
er annað erlendis en hér.
Tvöföld gengisskráning hefur truflandi áhrif á ferðaþjónustu hér á landi:
Ísland er engu að síður ódýrt
HEILBRIGÐISMÁL Ögmundur Jónas-
son heilbrigðisráðherra gerir
um miðja þessa viku grein fyrir
því hvernig ná eigi fram þeim
sparnaði sem fór fyrir bí þegar
hann ógilti og breytti áformum
Guðlaugs Þórs Þórðarsonar
fyrrverandi heilbrigðisráð-
herra. Þær sneru að breyting-
um á starfsemi St. Jósefsspítala
og um sameiningu heilbrigðis-
stofnana og skipulagsbreytingar
samfara þeim.
Þrjár nefndir eru að ljúka
störfum, ein sem skoðar sér-
staklega starfsemi á St. Jósefs-
spítala, önnur skoðar starfsemi
Heilbrigðisstofnunar Suður-
nesja og sú þriðja starfsemi
Heilbrigðisstofnunar Suður-
lands á Selfossi. „Ég hef ákveðið
að bíða eftir niðurstöðum þess-
ara nefnda,“ segir Ögmundur.
- jse
Sparnaður í heilbrigðisgeira:
Niðurstöður
um miðja viku
DÓMSMÁL Insolidum, þrotabú í
eigu Daggar Pálsdóttur og Páls
Ágústs Ólafssonar, sonar henn-
ar, hefur verið dæmt til að greiða
Saga Capital fjárfestingarbanka
nær 300 milljónir króna, auk 2,8
milljóna í málskostnað. Dómur
féll í Héraðsdómi Reykjavíkur
fyrir helgi.
Málið varðar stofnfjárbréf
sem Insolidum keypti í SPRON í
gegnum Saga Capital í júlí 2007.
Félagið keypti bréfin fyrir tæpar
600 milljónir. Saga Capital fjár-
magnaði hluta kaupanna.
Í kjölfar verðfalls stofnfjár-
bréfanna fór Saga Capital fram á
aukið tryggingafé vegna þeirra.
Í fyrstu hafnaði Insolidum ekki
frekari tryggingum en óskaði
eftir að leysa vandann í samráði
við viðskiptabanka sinn. Á endan-
um gjaldfelldi Saga Capital lánið
og fór fram á að fá bréfin. - jss
Héraðsdómur Reykjavíkur:
Insolidum greiði
300 milljónir
ÍTALÍA Hátt í hundrað þúsund
manns mótmæltu mafíunni í
Napólí á Ítalíu í gær.
Á meðal mótmælenda var rann-
sóknablaðamaðurinn Roberto
Saviano. Í bók hans Gomorrah er
fjallað um ýmsa glæpi mafíunn-
ar. Saviano hefur notið lögreglu-
verndar síðan bókin kom út.
Talið er að ofbeldið sem fylgt
hefur mafíunni hafi kostað um
níu hundruð manns lífið á síðustu
áratugum. Mótmælendur kröfð-
ust aðgerða lögreglu. Ríkisstjór-
inn í Compania, Antonio Bassol-
ino, sagði mafíuna ekki eilífa og
kvað lögreglu í héraðinu þurfa
aukinn liðsstyrk. - ve
Hundrað þúsund Ítalir:
Mafíunni mót-
mælt í Napólí