Fréttablaðið - 23.03.2009, Síða 15
Sölufulltrúar Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Hugi Garðarsson hugi@365.is 512 5447
„Ég hef frá barnæsku verið höll
undir hannyrðir, en eftir að ég
kynntist bútasaumi datt ég alveg
í hans heim og hef ekki dottið úr
honum síðan,“ segir Ágústa Mark-
úsdóttir bútasaumskona, sem síðast-
liðin 25 ár hefur saumað í höndun-
um yfir hundrað bútasaumsteppi
handa vinum og vandamönnum.
„Það var fyrst í gegnum Guðfinnu
í Virku sem ég komst á snoðir um
bútasaum, en svo jók ég við þekk-
inguna þegar dóttir mín bjó um
tíma í Bandaríkjunum. Amish-fólk-
ið er öðru handverksfólki þekktara
fyrir bútasaum og á þeirra slóðir
hef ég tvisvar farið, sem var mikið
ævintýri að upplifa.“
Ágústa segir lita- og munstur-
sköpun bútasaums heillandi, en
bæði getur maður hannað sín eigin
munstur og saumað eftir uppskrift-
um úr bútasaumsblöðum. „Búta-
saumsteppi segja gjarnan sögur
og það er áskorun að takast á við
nýtt teppi. Ég er oftast með fimm
til átta teppi í handraðanum, en það
tekur mig fjóra mánuði að hand-
stinga hvert teppi,“ segir Ágústa
um þetta mesta áhugamál sitt.
„Ég hef lítinn tíma til annars, en
vann þó alltaf fullan vinnudag, þar
til ég hætti 68 ára eftir 25 ár hjá
Orkuveitunni. Þá fannst mér fljótt
afslappandi og gaman að geta allt-
af sest niður og tekið í nál, því til-
standið í kringum þetta gefur mér
óskaplega mikið,“ segir Ágústa
sem er nýorðin 75 ára. „Á afmæl-
inu héldu börnin mín sýningu á
80 bútasaumsteppum mínum, en
þau hafa alltaf sýnt saumaskap
mínum mikinn áhuga, sem gleður
mig mikið,“ segir Ágústa sem er í
tveimur bútasaumsklúbbum.
„Í öðrum sauma ég með Guð-
finnu í Virku og tíu öðrum, en hinn
er sautján kvenna bútasaumshópur
sem hittist vikulega vestur í Hús-
mæðraskóla. Það er virkilega góður
félagsskapur og saman höfum við
farið í ógleymanlega bútasaums-
ferð til Bandaríkjanna.“
thordis@frettabladid.is
Inn í heim bútasaumsins
Mestu dýrgripir kynslóðanna eru handunnir, heimagerðir hlutir ástvina, sem gefnir eru af heilum hug og
unnir af natni með heitu hjarta. Dæmi um slíkar gersemar eru bútasaumsteppi sem skreyta hvílur okkar.
Hér situr Ágústa Markúsdóttir við saumaskap og innan um sum af nýjustu bútasaumsteppunum sínum, en í hverju teppi liggur
margra mánaða vinna. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
www.eirberg.is • 569 3100 • Stórhöfða 25
Stuðningshlífar
fjölbreytt úrval
Hringdu í síma
ef blaðið berst ekki
KAFFIBOLLAR dökkna venjulega að innan með mikilli
notkun og erfitt getur verið að ná litnum úr þeim. Samkvæmt
gömlu húsráði er gott að láta bollana liggja í klórvatni um
stund og eiga þeir þá að verða skínandi hvítir á ný.