Fréttablaðið - 23.03.2009, Qupperneq 24
23. MARS 2009 MÁNUDAGUR
80 prósent Vesturlandabúa
eiga við bakvandamál að stríða
einhvern tíma á ævinni, þar af
eru um tíu prósent sem glíma
við þrálát vandamál. Allt byrjar
þetta í skólum landsins þar sem
krakkar sitja allt of mikið segir
Haraldur Magnússon, hrygg- og
liðskekkjufræðingur (osteópati).
„Það er ekki til hin fullkomna set-
staða, líkaminn reiðir sig á hreyf-
inguna og þannig má segja að
við séum háð því að breyta um
stöðu,“ segir Haraldur Magnússon,
osteópat eða hrygg- og liðskekkju-
fræðingur, sem í vinnu sinni að-
stoðar fólk við að bæta líkams-
stöðu sína.
Bakvandamál af ýmsu tagi
eru sérlega algeng á Vesturlönd-
um segir Haraldur sem bendir á
að rannsóknir sýni að 80 prósent
Vesturlandabúa glíma við bakverki
um ævina. „Vandamál í baki eiga
að miklu leyti rætur sínar að rekja
til vitlausrar líkamsstöðu, þar á
meðal brjósklos sem margir kann-
ast við.“
Vandamál Vesturlandabúa hefst
á unga aldri, með of löngum setum
á stólum í skólum. „Stoðkerfi okkar
miðast við hreyfingu, kerfið reiðir
sig á hreyfinguna til að gera sig
ferskt,“ segir Haraldur sem bendir
á að stoðkerfi okkar verði auðvitað
veikara því minni þjálfun sem við
séum í og stoðkerfið, það er að
segja vöðvarnir sem hafa að megin-
markmiði að halda okkur uppi,
veikist við miklar setur.
ÁLAG Á BAKIÐ AÐ SITJA
„Þegar við sitjum kyrr þá drögum
við úr styrk okkar. Við erum held-
ur ekki hönnuð til þess að sitja ef
svo má að orði komast, rannsókn-
ir sýna að það er 40 prósent meira
álag á mjóbakið þegar við sitjum
en þegar við stöndum,“ segir Har-
aldur.
Skólakrakkar standa auðvitað
upp á milli tíma en það segir hann
ekki nægja, þau þyrftu að standa
upp í það minnsta á 20 mínútna
fresti til þess að rétta úr sér og
minnka líkurnar á því að líkams-
staða þeirra versni. „Það er líka
sagt að krakkar haldi ekki einbeit-
ingu lengur en í tuttugu mínútur og
þannig er kominn enn frekari rök-
stuðningur fyrir því að gera pásu
á tuttugu mínútna fresti.“
Gott ráð til þess að halda hreyf-
anleika líkamans bæði fyrir börn
og fullorðna er að sitja á hreyfan-
legum hlutum eins og til dæmis
stórum boltum. Haraldur segir
það tíðkast á meðal stórfyrirtækja
í Þýskalandi að láta alla sitja á bolt-
um. „Það er samt ekki rétt sem
sumir halda fram að við sitjum
alltaf rétt ef við sitjum á boltum,
við getum rétt eins verið hokin á
þeim.“
LÆRUM SJÓNRÆNT
Haraldur bendir á að við lærum
sjónrænt og fullorðnir séu ekki góð
fyrirmynd barna í líkamsburði, þau
hermi eftir okkur hoknar stöður.
„Svo er annað sem spilar inn í þetta,
það eru tískusveiflur, dissaratískan
svokallaða þar sem allir sitja keng-
bognir með buxurnar á hælunum.
Hún er ekki beinlínis góð fyrir-
mynd fyrir krakka.“
Slæm líkamsstaða í vinnunni er
að sögn Haraldar afar stór þáttur í
vandamálum fólks. Fólk sem situr
mikið í vinnunni er þar fremst í
flokki og þar eiga Vesturlandabú-
ar met. „Flestir venja sig á vitlausa
líkamsstöðu og þó að líkaminn að-
lagist því þá gerist það iðulega að
allt í einu förum við yfir sársauka-
þröskuldinn og þá er illt í efni.“
Líkamsrækt er ekki lausn á
vandanum svona út af fyrir sig
segir Haraldur, vegna þess að þeir
sem þegar eru í vitlausri stöðu æfa
þá einnig í henni og styrkja þannig
vöðva sem viðhalda rangri stöðu.
„Ýmis líkamsræktartæki eru dæmi
um æfingar sem geta aukið vanda-
mál í baki í stað þess að draga úr
þeim, til dæmis róðrartæki.“
GÓÐ OG VOND LÍKAMSRÆKT
Pílates-æfingar eru hins vegar að
sögn Haraldar mjög góðar fyrir lík-
amsstöðukerfið, það er að segja ef
maður veit hvernig á að vera beinn
og æfir í réttri stöðu. „Í raun hafa
allar æfingar möguleikann á því að
vera góðar en líka slæmar,“ segir
hann. „Jafnvel líkamsrækt sem
allir myndu halda að væri góð,
eins og að ganga, gerir bakinu ekki
gott ef maður ber sig vitlaust; hún
er auðvitað góð fyrir þolið en ekki
fyrir bakið.“
Haraldur, sem lærði stoðkerfis-
fræði, hjálpar fólki sem á við bak-
vandamál að stríða og segir hann að
aðstoðin snúi að einföldustu hlutum
þegar fólk kemur í meðferð til hans,
hann hjálpi því að sitja rétt, stíga
upp úr rúminu, standa og þar fram
eftir götunum.
Áhugasamir geta fræðst nánar
um efnið í fyrirlestri Haraldar um
líkamsstöðu í Manni lifandi, þriðju-
daginn 31. mars. - sbt
Of mikil kyrrseta
veldur bakverkjum
Bakvandamál eru sjaldgæfari hjá fólki
sem ekki situr við skrifborð allan dag-
inn. NORDICPHOTOS/GETTY
Mjög margir sitja í vitlausri stöðu allan
daginn með tilheyrandi álagi á bakið.
NORDICPHOTOS/GETTY
Of miklar setur fara illa með líkamann segir Haraldur Magnússon osteópat. FRÉTTABLAÐIÐ(ANTON.
LÁTTU ÞÉR LÍÐA VEL ...
Falleg, tímabær
og aðgengileg
bók sem vekur
hjá þér vellíðan
og jákvæðni á
krefjandi tímum.
1001 uppbyggileg slökunarheilræði fyrir
fólk sem hefur lítinn tíma til að slaka á!
Opnunartími í sumar:
Mánudaga-fi mmtudaga 9-22
Föstudaga og Laugardaga 9-20
Sunnudaga 9-21
Nánari upplýsingar í Hraunkoti í síma 565-3361 • www.hraunkot.is • hraunkot@keilir.is