Fréttablaðið - 23.03.2009, Qupperneq 36
16 23. mars 2009 MÁNUDAGUR
timamot@frettabladid.is
Tilkynningar um merkis-
atburði, stórafmæli og
útfarir má senda á netfangið
timamot@frettabladid.is.
Auglýsingar á að senda á
auglysingar@frettabladid.is
eða hringja í síma
512 5000.
MERKISATBURÐIR
1663 Sálmur Hallgríms Pét-
urssonar, Allt eins og
blómstrið eina, sunginn í
fyrsta sinn við útför.
1839 Hugtakið „ókei“ fyrst
notað í Bandaríkjunum.
1919 Benito Mussolini stofnar
Fasistaflokkinn í Mílanó á
Ítalíu.
1937 Sundhöllin í Reykjavík vígð
að viðstöddu fjölmenni.
1960 Söngsveitin Fílharmónía
syngur í fyrsta sinn opin-
berlega í Þjóðleikhúsinu.
1970 Þrír leikarar halda upp á
25 ára leikafmæli, þeir
Baldvin Halldórsson,
Gunnar Eyjólfsson og Ró-
bert Arnfinnsson.
Bandaríska sápuóperan Glæstar vonir, á frummál-
inu Bold and the Beautiful, var frumsýnd þennan
dag fyrir 22 árum.
Sögusviðið er Englaborg Kaliforníu, þar sem
Forrester-fjölskyldan stýrir tískuhúsi sínu og fallega
fólkið stundar dyggðir sínar og syndir til skiptis.
Frá upphafi hafa margir sömu leikaranna stað-
ið vaktina, eins og Susan Flannery, John
McCook, Katherine Kelly Lang, Ron Moss
og Hunter Tylo, en líkt og með aðrar
langlífar sápuóperur hefur verið óhjá-
kvæmilegt að endurráða í sum hlutverk
á tuttugu ára ferli þáttarins. Glæst-
ar vonir voru í upphafi systurþátt-
ur The Young and the Restless, sem
einnig var sköpunarverk Williams J.
Bell og Lee Phillips Bell.
Síðan þátturinn var frumsýnd-
ur í dagsjónvarpi CBS hefur hann
mælst með mest áhorf allra sápuópera í veröld-
inni; áætlaðar 26,2 milljónir áhorfenda á hverjum
degi, en eftir aldamót hefur þátturinn átt í auk-
inni samkeppni við veruleikaþætti og spjallþætti á
dagtíma.
Þátturinn hefur verið gagnrýndur fyrir
að eyða löngum tíma í einfaldan sögu-
þráð í stað þess að þróa meðfram
hliðarsögur til að gera hann flókn-
ari. Þátturinn hefur einnig verið
gagnrýndur fyrir að breyta sögu-
þræði án fyrirvara, ekki síst þegar
kemur að rómantískri pörun
söguhetjanna, en um leið hrósað
fyrir að dvelja ekki við vonlausan
söguþráð og enda hann strax. Þó
truflar enn marga að söguþráð-
urinn endar oft án viðhlítandi
niðurstöðu.
ÞETTA GERÐIST: 23. MARS 1987
Glæstar vonir frumsýndar vestra
„Starf KFUM- og K er fjölbreytt og
skemmtilegt, byggt á kristilegum boð-
skap. Við ræðum við börnin um Jesú
Krist sem fyrirmynd, kærleikann,
hvernig maður kemur fram við aðra og
syngjum gömlu og góðu KFUM-söngv-
ana. Þá læra börnin að biðja og ýmis
Biblíuvers, en margir hafa sagt okkur
árum og áratugum seinna hvernig þeir
fundu huggun í lærdómi æskuáranna
úr KFUM- og K þegar eitthvað bját-
aði á í lífinu. Starfið er því gott vega-
nesti út í lífið, enda komin á það 110
ára reynsla,“ segir Ástríður Jónsdótt-
ir, kynningarfulltrúi KFUM og KFUK
á Íslandi, sem hóf æskulýðsstarf sitt
fyrir 110 árum.
„Þá var séra Friðrik Friðriksson, oft
nefndur æskulýðsfulltrúi 20. aldarinn-
ar, nýfluttur heim frá Danmörku, þar
sem hann hafði kynnst sams konar
starfi, en í þá daga var afskaplega lítið
um æskulýðsstarf fyrir íslensk börn.
Friðrik var því fenginn til að stofna
Kristilegt félag ungra manna (KFUM)
fyrir stráka og var fyrsti fundurinn
haldinn 2. janúar 1899. Eftir nokkurra
vikna starf komu fermingarstúlkur
að máli við séra Friðrik og kröfðust
þess að hann héldi svipaða fundi fyrir
stelpur og að sjálfsögðu varð hann við
bón þeirra og fór af stað með Kristi-
legt félag ungra kvenna (KFUK) í apríl
sama ár,“ segir Ástríður um starfið
sem síðan hefur haldist óslitið og er
nú kraftmikið sem aldrei fyrr.
Alls taka yfir 5.000 börn þátt í starfi
KFUM og KFUK á ári hverju. „Stærsti
hópurinn er á aldursbilinu 9 til 18 ára,
en elstu félagarnir eru komnir á tír-
æðisaldur. Starfið skiptist í vetrar- og
sumarstarf, og á veturna sækja yfir 50
hópar hefðbundna fundi og fjölbreytt-
ar þemadeildir sem tengjast ýmsum
áhugamálum,“ segir Ástríður, en þess
má geta að rokkóperan Hero í Loftkast-
alanum er hluti af ungmennastarfi fé-
laganna.
Samtökin reka fimm sumarbúðir á
landinu. „Sumarbúðirnar njóta mikilla
vinsælda og í fyrra var sett aðsóknar-
met. Krakkar koma ár eftir ár, enda
erfitt að hætta vegna skemmtilegheita
og kærra vinabanda þeirra á milli.“
Mikill fjöldi sjálfboðaliða og sum-
arstarfmanna tekur þátt í metnaðar-
fullu æskulýðsstarfi KFUM- og K. „Við
leggjum mikið upp úr leiðtogaþjálfun,
til að gera þá hæfa og tilbúna til að vera
með börnin, eins og með námskeiðinu
Verndum þau, ef koma upp vísbend-
ingar um ofbeldi, misnotkun eða van-
rækslu, því leiðtogar okkar þurfa að
vera meðvitaðir, þekkja einkennin og
að bregðast við þeim.“
Um næstu helgi verður glæsileg af-
mælishátíð hjá KFUM- og K í Reykja-
vík og á Akureyri. „Við munum svo
halda áfram upp á afmælið árið um
kring; ekki síst með börnunum í æsku-
lýðsstarfinu, jafnt sumar, vetur, vor og
haust.“ thordis@frettabladid.is
KFUM OG KFUK Á ÍSLANDI: FAGNAR 110 ÁRA STÓRAFMÆLI SÍNU Á ÁRINU
Gott veganesti á lífsins braut
ÆSKULÝÐSSTARF Í 110 ÁR Ástríður Jónsdóttir er kynningarfulltrúi KFUM og KFUK á Íslandi. Í vikunni kemur út afmælisrit í tilefni af 110 ára afmæl-
inu og um næstu helgi verður stórhátíð í höfuðstöðvum félaganna í Reykjavík og á Akureyri. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
AFMÆLI
VALGERÐUR
SVERRISDÓTT-
IR alþingis-
maður er 59
ára.
EINAR SVEIN-
BJÖRNSSON
veðurfræðing-
ur er 44 ára.
BJARNI
ÁRMANNSSON
athafnamaður
er 41 árs.
ROKKARINN DAMON ALBARN
ER 41 ÁRS.
„Enginn og ekkert gerir mig
hamingjusamari en fjölskyld-
an mín og starfið mitt.“
Breski tónlistarmaðurinn og Ís-
landsvinurinn Damon Albarn
hóf ungur afskipti af tónlist og
leiklist. Hann er aðalspraut-
an í hljómsveitinni Blur, þar sem
hann syngur og spilar á hljóm-
borð ásamt því að semja lög
og gáfulega, kaldhæðnislega
texta undir áhrifum tónsmíða
Bítlanna, Rolling Stones, Kinks
og Small Faces.
ÁLFRÚN
HELGA ÖRN-
ÓLFSDÓTTIR
leikkona er 28
ára.
ÍSLENSKAR
LÍKKISTUR
ÍSLENSKAR
LÍKKISTU
Elskulegur eiginmaður minn, faðir,
tengdafaðir og afi,
Ingi Sævar Oddson
Asparási 1, Garðabæ,
lést á Landspítalanum Hringbraut fimmtudaginn
19. mars sl. Útför hans verður auglýst síðar.
Þuríður Antonsdóttir
Hrafnhildur Ingadóttir Barði Ágústsson
Oddur Ingason
Gunnar Ingason Svanhildur Kristinsdóttir
Ómar Ingason Aníta Berglind Einarsdóttir
og barnabörn.
Okkar ástkæra,
Ester Magnúsdóttir
frá Hellissandi, Melalind 8 Kópavogi,
verður jarðsungin frá Fossvogskirkju 25. mars kl. 13.00.
Alexander Alexandersson
Hjördís Alexandersdóttir Guðmundur Jón Jónsson
Bára Alexandersdóttir Þórarinn Hjálmarsson
Erla Alexandersdóttir Sigurður Jón Ragnarsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Boðið er upp á aðstoð við að telja
fram til skatts í söluturninum og
veitingastofunni Fjöregginu í Hafn-
arfirði. „Þetta eru mikið til fasta-
kúnnar sem koma hingað og þeir
eiga margir í smá vandræðum með
þetta svo ég ákvað að bjóða fram að-
stoð mína,“ segir Jóhann Sveinsson
eigandi. „Ég var í þessu lengi en nú
geri ég þetta bara frítt,“ segir Jóhann
sem var með bókhaldsþjónustu hér
áður fyrr. „Margir kúnnanna unnu
hér í grenndinni og komu þá hér við,
nú eru margir þeirra búnir að missa
vinnuna en koma þá hingað frekar til
að spjalla.“
Í sjoppuna með skattframtalið
Fólk kemur ekki eingöngu í Fjöreggið til að fá sér sætindi og í gogginn heldur einnig til að telja
rétt fram. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
CATHERINE
KEENER
leikkona er 51
árs.
HOPE DAVIS
LEIKKONA er
45 ára.