Fréttablaðið - 23.03.2009, Page 42
22 23. mars 2009 MÁNUDAGUR
sport@frettabladid.is
Nánar á expressferdir.is
eða í síma 5 900 100
19. – 22. júní
154.900kr.
Innifalið: Flug með sköttum og öðrum
greiðslum, hótelgisting í 3 nætur með
morgunverði, miði á Formúluna, íslensk
fararstjórn og rútuferðir.
Silverstone
Verð á mann í tvíbýli:
Formúla 1
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
Vináttulandsleikur:
Ísland-Færeyjar 1-2
0-1 Fróði Benjaminsen (21.), 0-2 Guðjón Antoní-
usson, sjm (42.), 1-2 Jónas Sævarsson (90.).
Enska úrvalsdeildin:
LIVERPOOL - ASTON VILLA 5-0
1-0 Dirk Kuyt (7.), 2-0 Albert Riera (32.), 3-0
Steven Gerrard (39.), 4-0 Steven Gerrard (49.),
5-0 Steven Gerrard (65.).
MANCHESTER CITY - SUNDERLAND 1-0
1-0 Micah Richards (56.).
WIGAN ATHLETIC - HULL CITY 1-0
1-0 Ben Watson (83.)
BLACKBURN ROVERS - WEST HAM 1-1
0-1 Mark Noble (34.), 1-1 Keith Andrews (50.).
FULHAM - MANCHESTER UNITED 2-0
1-0 Danny Murphy (17.), 2-0 Zoltan Gera (86.).
NEWCASTLE UNITED - ARSENAL 1-3
0-1 Nicklas Bendtner (56.), 1-1 Obafemi Martins
(57.), 1-2 Abou Diaby (63.), 1-3 Samir Nasri (66.).
PORTSMOUTH - EVERTON 2-1
0-1 Leighton Baines (3.), 1-1 Peter Crouch (21.),
2-1 Peter Crouch (74.).
STOKE CITY - MIDDLESBROUGH 1-0
1-0 Ryan Shawcross (83.).
TOTTENHAM HOTSPUR - CHELSEA 1-0
1-0 Luka Modric (49.).
WBA- BOLTON WANDERERS 1-1
0-1 Matthew Taylor (66.), 1-1 Robert Koren (81.)
STAÐA EFSTU OG NEÐSTU LIÐA:
Man, United 29 20 5 4 49-18 65
Liverpool 30 18 10 2 54-21 64
Chelsea 30 18 7 5 49-17 61
Arsenal 30 15 10 5 48-27 55
Aston Villa 30 15 7 8 43-36 52
Everton 30 13 9 8 40-31 48
-----------------------------------------------------
Portsmouth 29 8 8 13 32-46 32
Stoke City 30 8 8 14 29-47 32
Blackburn 30 7 10 13 33-49 31
Newcastle United 30 6 11 13 36-49 29
Middlesbrough 30 6 9 15 21-42 27
WBA 30 6 6 18 26-55 24
ÚRSLIT
HANDBOLTI Strákarnir okkar skutu
sér á topp 3. riðils í undankeppni
EM 2010 með stórsigri á Eistlend-
ingum, 38-24, að Ásvöllum í gær.
Strákarnir áttu hreint frábæran
leik og gengu í raun frá honum á
30 mínútum enda staðan í leikhléi,
20-8. Áhorfendur, sem troðfylltu
Ásvelli, urðu vitni að sannkallaðri
handboltaveislu í gær.
„Við vorum alveg svakalega til-
búnir og það skóp sigurinn. Við
leiðum með tólf mörkum í hálfleik
og slíkt hefst ekkert af sjálfu sér.
Menn voru ekki að vanmeta and-
stæðinginn og þess vegna náðum
við þessu forskoti. Þrátt fyrir góð
úrslit og góða stöðu erum við ekki
farnir að fagna sæti í Austurríki
enda er mikið eftir,“ sagði glað-
beittur þjálfari íslenska liðsins,
Guðmundur Guðmundsson.
Eins og svo margoft áður hafði
hann undirbúið lið sitt óaðfinnan-
lega. Strákarnir algjörlega tilbúnir
í slaginn nánast frá fyrstu mínútu.
Liðið spilað lungann úr leiknum
hreint stórkostlegan varnarleik
og sökkti Eistlendingunum síðan
með hraðaupphlaupum. Alls komu
19 mörk úr hröðum upphlaupum
sem er ekki ónýtt.
Það er ekki bara þessi góði
varnarleikur og fínu hraðaupp-
hlaup sem skapa sigurinn. And-
legt ástand leikmanna er líka til
fyrirmyndar og Guðmundi virðist
ávallt takast að senda lið sitt inn
á völlinn í hárréttu hugarástandi.
Það er eins og undirbúningur hans
og aðstoðarmannanna sé óaðfinn-
anlegur leik eftir leik.
Leikmenn landsliðsins hafa óbil-
andi trú á eigin getu og því sem
liðið er að gera. Menn vinna af
fórnfýsi hver fyrir annan og hafa
svakalega gaman af hlutunum. Það
virðist líka engu skipta hverjir
spila hverju sinni. Allir skila sínu.
„Það eru ekki mörg landslið í
heiminum sem myndu þola það
að missa sex algjöra lykilmenn
úr sínum hópi. Það er rosalega
jákvætt hvað okkur gengur vel í
þessari erfiðu stöðu,“ sagði Guð-
mundur og breiddin í landsliðinu
er að verða mjög mikil. Það mikil
að það á eftir að verða hausverkur
fyrir landsliðsþjálfarann að velja
hópinn þegar sterkir menn snúa til
baka úr meiðslum.
„Vissulega verður það erfitt
en það er ánægjulegt að sjá hvað
þessir strákar falla vel inn í það
sem við erum að gera,“ sagði Guð-
mundur. henry@frettabladid.is
Á hraðri leið á EM í Austurríki
Íslenska hraðlestin skoraði 19 mörk úr hraðaupphlaupum gegn Eistlendingum og kafsigldi gestina. Niður-
staðan glæsilegur 14 marka sigur. Ísland komið á toppinn í riðlinum og með annan fótinn á EM 2010.
MAGNAÐUR Ásgeir Örn Hallgrímsson fór á kostum í Makedóníu og svo aftur á sínum
gamla heimavelli gegn Eistum í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
ÍSLAND-EISTLAND 38-24
Mörk Íslands (skot): Ásgeir Örn
Hallgrímsson 7 (8), Aron Pálmarsson
6 (7), Guðjón Valur Sigurðsson 5/3
(7/3), Ingimundur Ingimundarson
3 (5), Ragnar Óskarsson 3 (3), Þórir
Ólafsson 3 (3), Rúnar Kárason 3
(6), Vignir Svavarsson 2 (3), Sturla
Ásgeirsson 2 (2), Róbert Gunnarsson
2 (4), Sigurbergur Sveinsson 2 (3).
Varin skot: Björgvin Páll Gústavsson
12 (29) 41%, Hreiðar Levý Guð-
mundsson 6 (13/1) 46%.
Hraðaupphlaup: 19 (Ásgeir 4, Ingi-
mundur 3, Þórir 3, Guðjón 2, Róbert
2, Vignir 2, Sturla 2, Aron).
> Fjörið heldur áfram í Grindavík
Hin stórskemmtilega úrslitakeppni Ice-
land Express-deildar karla heldur áfram í
Röstinni í Grindavík í kvöld. Þá hefst hitt
undanúrslitaeinvígið er Grindavík tekur á
móti Snæfelli. Grindavík ruddi ÍR auð-
veldlega úr vegi á leið sinni í undanúr-
slitin en Snæfell þurfti oddaleik til þess
að ryðja Stjörnunni úr vegi. Vinna
þarf þrjár viðureignir til þess
að komast í úrslitarimmuna.
Leikurinn hefst klukkan 19.15 í
kvöld. Á sama tíma hefst annar
leikur KR og Hauka í úrslitaein-
vígi kvennaboltans. Leikið verður
vestur í bæ.
FÓTBOLTI Það er óhætt að segja að
helgin hafi spilast vel fyrir Liver-
pool. Á laugardag töpuðu bæði
Man. Utd og Chelsea og Liverpool
nýtti tækifærið til fullnustu í gær
er það valtaði yfir Aston Villa, 5-0.
United er því aðeins með eins stigs
forskot á toppnum en hefur leikið
einum leik færra en Liverpool.
„Við hefðum átt að bæta í og
skora meira til þess að fá marka-
muninn meira með okkur,“ sagði
Rafa Benitez, stjóri Liverpool,
eftir leikinn í dag en Liverpool
hefur nú skorað meira en United
í vetur.
„Maður veit aldrei hvað þarf
til að vera meistari og við eigum
að nýta öll svona tækifæri manni
fleiri. Ég er samt ekki að kvarta,
var mjög ánægður með frammi-
stöðuna,“ sagði Benitez. - hbg
Spenna í enska boltanum:
Liverpool stigi
á eftir United
SJÓÐHEITUR Steven Gerrard skoraði
þrennu í gær. NORDIC PHOTOS/GETTY IMAGES
Ísland lék í gær vináttulandsleik gegn Færeyjum í Kórnum
í Kópavogi og tapaði, 2-1. Um hálfgerðan B-landsleik var
að ræða þar sem þjálfarar beggja liða stilltu upp ungu og
óreyndu liði.
Færeyingar skoruðu tvívegis í fyrri hálfleik, í bæði skipti
eftir aukaspyrnu Súna Olsen á hægri kantinum. Fyrst
skoraði fyrirliðinn Fróði Benjaminsen með skalla og
svo varð Keflvíkingurinn Guðjón Árni Antoníusson fyrir
því óláni að skora sjálfsmark skömmu fyrir hálfleik.
Ísland var miklum mun meira með boltann, sérstak-
lega í fyrri hálfleik, en gekk illa að skapa sér færi. Þegar
það tókst strandaði það á Gunnari Nielsen, stórgóðum
markverði Færeyja, en hann er á mála hjá Manchester City.
Hann var án efa maður þessa leiks.
„Það var mjög lélegt að tapa þessum leik,“ sagði Davíð Þór
Viðarsson sem var fyrirliði íslenska landsliðsins. „Það má
skrifa bæði mörkin sem við fengum á okkur á einbeitingar-
leysi. Við eigum ekki að tapa á móti Færeyjum enda erum við
með betra lið en þeir. Þetta var nokkuð dapurt.“
Ólafur Jóhannesson landsliðsþjálfari tók í svipaðan streng.
„Mér fannst við virka áhugalausir í fyrri hálfleik og vorum ekki í takt
við leikinn. Við vorum seinir í alla bolta og í öll návígi. Þetta var í raun
bara göngubolti og full rólegt. Seinni hálfleikurinn var þó skárri
en það vantaði afgerandi færi til að skora mark sem tókst
þó í blálokin.“
Ólafur sagði Færeyinga einnig hafa gert vel í sinni
varnarvinnu og ekki megi taka það af gestunum.
Hann sagðist þó sáttur við að hafa fengið þennan
leik og lært ýmislegt af honum.
„Þarna fékk fullt af ungum strákum tækifæri
með landsliðinu. Ég sá margt sem ég veit betur
núna og hef ég nú myndað mér ákveðnari skoð-
anir á mönnum.“
ÍSLENSKA KNATTSPYRNULANDSLIÐIÐ: TAPAÐI Í FYRSTA SINN FRÁ UPPHAFI FYRIR FÆREYJUM
Við eigum ekki að tapa fyrir Færeyjum
KÖRFUBOLTI KR hefur lagt línurn-
ar fyrir frábært undanúrslitaein-
vígi í Iceland Express-deildinni
eftir stórsigur á heimavelli sínum í
gær. „Þeir voru bara betri og pökk-
uðu okkur saman,“ sagði Sigurður
Ingimundarson, þjálfari Keflavík-
ur, í samtali við Fréttablaðið eftir
leikinn.
Keflvíkingar byrjuðu mjög vel
í leiknum og voru yfir eftir fyrsta
leikhluta 25-21, en KR rétti úr
kútnum í öðrum leikhluta og hafði
yfir í hálfleik 54-45. Hafi varnar-
leikur KR ekki verið nógu góður í
fyrri hálfleik, small hann saman
í þriðja leikhluta þar sem Kefl-
víkingar skoruðu aðeins 12 stig.
Þegar um tvær mínútur voru eftir
af þriðja leikhlutanum náðu KR-
ingarnir 20 stiga forystu og eftir-
leikurinn var auðveldur. Benedikt
Guðmundsson þjálfari KR var
enda sáttur í leikslok.
„Það er 1-0 fyrir okkur en það er
bara korter búið af þessu einvígi.
Ég bað bara um sigur í hverjum
leik og mér er alveg sama hvern-
ig hann kemur. Við vitum að þetta
Keflavíkurlið er ekki sama lið og
spilaði hérna í vetur, enda komið
með frábæran Kana. Við náðum
kannski ekki alveg að loka á hann
en við héldum honum sæmilega
niðri,“ sagði Benedikt.
Þjálfari Keflavíkur var óánægð-
ur með sína menn.
„Það voru nokkuð margir menn
hjá okkur sem léku ekki með núna.
Ég þekki þá og veit að þeir taka því
persónulega að hafa ekki mætt
hérna í kvöld. Við erum ekki góðir
ef við mætum bara með tvo menn
með hausinn rétt skrúfaðan á,“
sagði Sigurður. - bb
KR komið með forystuna í einvíginu gegn Keflavík:
Valtað yfir Keflvíkinga
HEITUR Jón Arnór Stefánsson sýndi
frábæra takta í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLU
KR-Keflavík 102-74 (54-45)
Stig KR: Jón Arnór Stefánsson 24, Helgi Magnús-
son 16, Fannar Ólafsson 14, Jason Dourisseau 12
(10 frák), Jakob Sigurðarson 9, Brynjar Björnsson
8, Baldur Ólafsson 6, Skarphéðinn Ingason 6,
Guðmundur Magnússon 4, Darri Hilmarsson 2,
Pálmi Sigurgeirsson 1.
Stig Keflavíkur: Jesse Rosa 24, Sigurður
Þorsteinsson 17 (11 frák), Gunnar Einarsson 17,
Vilhjálmur Steinarsson 7, Almar Guðbrandsson 4,
Hörður Vilhjálmsson 2, Sverrir Sverrisson 2, Elvar
Sigurjónsson 1.