Fréttablaðið - 01.04.2009, Qupperneq 16

Fréttablaðið - 01.04.2009, Qupperneq 16
16 1. apríl 2009 MIÐVIKUDAGUR FRÉTTASKÝRING: Obama til Evrópu FRÉTTASKÝRING AUÐUNN ARNÓRSSON audunn@frettabladid.is Barack Obama lagði í gær upp í fyrstu Evrópuferð sína eftir að hann tók við embætti fyrir tveimur mánuðum. Sú ferð verður ekki eintómir fagnaðar- fundir. Evrópubúar fögnuðu innilega kjöri Baracks Obama til forseta Bandaríkjanna í nóvember síðast- liðnum. Nú kemur hann í fyrstu heimsóknina eftir embættistök- una til „gömlu álfunnar“, en fagn- aðarstemningin er liðin hjá. Dag- leg samskipti bandamannanna beggja vegna Atlantsála eru vand- kvæðum bundin, ekki sízt vegna þess að enn eru margar lykilstöð- ur í ráðuneytum í Washington, sem eiga að sinna samskiptunum við Evrópu, ómannaðar. Hveitibrauðsdögum lokið? Stjórnmálaskýrendum þykir sennilegt að hinn nýi Bandaríkja- forseti, sem svo miklar vonir eru bundnar við eftir átta ára lægð í samskiptunum yfir Atlantshafið vegna Bush-stjórnarinnar, eigi í Evrópuförinni eftir að upplifa að hveitibrauðsdögunum sé lokið og alvara hversdagsstjórnmálanna á krepputímum taki við. Þó er næsta víst að honum verði mætt af velvilja, einkum og sér í lagi af þeim þjóðum og ráða- mönnum Evrópu sem var hvað mest uppsigað við Bush-stjórn- ina. Á þeim tveimur mánuðum sem hann hefur haldið um stjórn- taumana vestra hefur hann gert ýmislegt sem fellur vel í kramið - lokað Guantanamo-fangabúðun- um á Kúbu, bannað yfirheyrsluað- ferðir hjá CIA sem margir flokka sem pyntingar, og nálgast sjón- armið Evrópumanna í ýmsum af heitustu deilumálum alþjóða- stjórnmálanna, svo sem varðandi samskiptin við Íran og Mið-Austur- lönd, og í loftslagsmálum. Segjast vilja hlusta Háttsettir fulltrúar Bandaríkja- stjórnar hafa líka í aðdraganda ferðarinnar reynt að skapa gott andrúmsloft fyrir viðræður leið- toganna með yfirlýsingum á borð við „við viljum endurreisa virð- ingu fyrir Bandaríkjunum, eink- um og sér í lagi í Evrópu.“ Þessir fulltrúar hinna nýju valdhafa vestra segjast vilja „leggja vel við hlustir“. Það vantar heldur ekki að Obama ætlar sér að eiga ítar- leg skoðanaskipti við leiðtoga Evrópu: - Á G20-fundinum í Lundúnum hittir hann brezka forsætisráð- herrann Gordon Brown, stjórnar- andstöðuleiðtogann David Camer- on og Elísabetu II drottningu. - Hann mun eiga fund með Nicolas Sarkozy Frakklandsfor- seta í tengslum við leiðtogafund NATO í Strassburg og Kehl. - Með Angelu Merkel, kanzlara Þýzkalands, fundar hann í Baden- Baden, þar sem NATO-leiðtogarn- ir, þar á meðal Jóhanna Sigurðar- dóttir forsætisráðherra, munu snæða saman kvöldverð. - Hann mun auk þess eiga sinn fyrsta tvíhliða fund með Dmítrí Medvedev Rússlandsforseta í tengslum við G20-fundinn í Lund- únum. Þar mun hann einnig hitta Hu Jintao Kínaforseta, og vera má að utan Evrópu þyki þessir fund- ir hans áhugaverðari en þeir sem hann á með leiðtogum Evrópu- sambandsríkjanna. Deilumálum frestað? Það er enda svo, að nokkrum þungvægustu deilumálunum virð- ist hafa verið skotið á frest: - Á G20-fundinum virðist ekki eiga að þvinga neinn til að setja meira opinbert fé í kreppuvarna- aðgerðir. Bandaríkjastjórn vill að sérstaklega Þjóðverjar setji meira fé í slíkar aðgerðir, en vestra vilji menn heldur ekki knýja fram atkvæðagreiðslu um málið á fund- inum - það kvað bandaríski fjár- málaráðherrann hafa fullvissað þýzka efnahagsmálaráðherrann um. - Í bili mun Obama heldur ekki beita evrópska kollega sína meiri þrýstingi um að senda fleiri her- menn til Afganistans. Hvert bandalagsríki verði að leggja það af mörkum sem það telji réttast – þetta kvað vera hin nýja stefna í Hvíta húsinu. Þessa stefnu er þó hægt að túlka sem vantrausts- yfirlýsingu í garð Evrópumanna – Bandaríkin vilji frekar leysa málin upp á eigin spýtur. Lykilstöður enn ómannaðar Annað vandamál, sem gerir bættu samstarfi yfir Atlantshafið erfitt fyrir, er hve margar lykilstöð- ur í ráðuneytunum í Washington eru enn ómannaðar vegna hins langa og stranga ferlis sem þeir eru látnir ganga í gegn um sem veljast í þær stöður. Til að mynda hefur Phil Gordon, maðurinn sem á að stýra þeirri deild bandaríska utanríkisráðuneytisins sem sinnir samskiptum við Evrópu, ekki enn verið formlega staðfestur í emb- ætti af öldungadeild Bandaríkja- þings. „Það er ótrúlegt hve fáir eru til viðræðu af hálfu Bandaríkja- stjórnar,“ hefur fréttavefur Der Spiegel eftir háttsettum þýzkum embættismanni, sem átti í viðræð- um við bandaríska fjármálaráðu- neytið í sambandi við mál þýzku Opel-bílaverksmiðjanna, sem eru hluti af GM-samsteypunni sem hefur hlotið gríðarhá lán úr bandaríska ríkissjóðnum til að afstýra gjaldþroti. Bretar eru líka sagðir mjög ósáttir við það hve illa þeirra mönnum gengur að fá svör frá bandarískum starfssyst- kinum. Hlakkar í gagnrýnisröddum Fréttir af óánægju af þessu tagi valda því, að það hlakkar í þeim Bandaríkjamönnum, einkum fulltrúum Bush-stjórnarinnar fyrrverandi, sem fannst alltaf að hrifning Evrópumanna af Obama væri yfirdrifin og hún gæti ekki endað í neinu öðru en vonbrigð- um. „Hér með sést að það var ekki innistæða fyrir því að gefa sér að Evrópa myndi fylkja sér að baki þessari Bandaríkjastjórn,“ hefur Washington Post eftir Nile Gard- iner, Evrópumálasérfræðingi við Heritage-stofnunina í Washington, sem hefur náin tengsl við Repú- blikanaflokkinn. Það er reynd- ar svo, að evrópskir ráðamenn hafa lýst verulegum efasemdum um stefnu Obama-stjórnarinnar í málefnum Afganistans, og um til- lögur Bandaríkjamanna um leiðir út úr alþjóðlegu fjármála- og efna- hagskreppunni. En slíkar efasemdir hafa ekki náð til almennings í Evrópulönd- unum. Í hans augum er ljóminn af stjórnmálastjörnunni Obama enn óskaddaður og því er við því að búast að hann fái hlýjar móttökur þar sem evrópskur almenningur fær á annað borð tækifæri til að berja stjörnuna augum. „Obama getur eftir sem áður leitað stuðn- ings í Evrópu við stefnumið Bandaríkjanna og skapað hrifn- ingu fyrir samstilltum aðgerðum,“ segir Karen Dornfried frá Þýzka Marshall-sjóðnum (German Mars- hall Fund) í Washington, „sem George W. Bush gat ekki.“ Erfið Evrópuferð stjórnmálastjörnunnar © GRAPHIC NEWS Fyrsta Evrópuför Obama forseta Ætlunarverk Baracks Obama Bandaríkjaforseta í fyrstu ferð sinni til Evrópu frá því hann tók við embætti er að festa í sessi tengslin milli bandamanna beggja vegna Atlantshafs, eiga samráð um aðgerðir gegn heimskreppunni og um stefnuna í Afganistan. 1 2 3 4 5 5 4 3 2 1 31. marz-2. apríl, London: G20-fundur 3.-4. Apríl, Strassborg í Frakklandi og Kehl í Þýzka- landi: 60 ára afmælis- leiðtogafundur NATO. Obama á þar tvíhliða fundi við Nicolas Sarkozy Frakklandsforseta og Angelu Merkel, kanzlara Þýzkalands 5. apríl, Prag í Tékk- landi: Hittir leiðtoga aðildarríkja Evrópusam- bandsins 6. apríl, Ankara í Tyrk- landi: Ávarpar Tyrklandsþing 7. Apríl, Istanbúl í Tyrk- landi: Sækir fund SÞ um Banda- lag menningarsvæða – gæti notað þennan vettvang til að ávarpa heim múslima Bretland Þýskaland Tékkland Tyrkland Frakkland 137 / VESTURBÆJARÚTIBÚ 4 10 4 0 0 0 | l an d sb an ki nn .is LAGT Í ‘ANN Obama-hjónin veifa viðstöddum á Andrews-herflugvellinum við Washington er þau gengu um borð í forsetavélina sem flutti þau til Lundúna, fyrsta áfangastaðar Evrópuferðarinnar. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.