Fréttablaðið - 01.04.2009, Síða 29

Fréttablaðið - 01.04.2009, Síða 29
Sölufulltrúar Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Hugi Garðarsson hugi@365.is 512 5447 Áslaug Arnoldsdóttir hjúkrunar- fræðingur er einn reyndasti sendi- fulltrúi Rauða krossins á Íslandi og hefur starfað með hléum á átaka- svæðum frá árinu 1996. Síðastliðið haust var hún kölluð til Pakistans þar sem hún dvaldi í tvo mánuði. „Í lok ágúst voru gerðar árásir á ættflokkahéruð í Pakistan, rétt við landamæri Suður-Afganistans, en þar hafa talibanar hreiðrað um sig. Við það urðu 250 þúsund manns skyndilega flóttamenn og við því þurfti að bregðast,“ segir Áslaug. „Rauði krossinn setti í kjölfarið á fót neyðarteymi þar sem mér var falið að sjá um heilbrigðisþáttinn. Okkar hlutverk var að meta fjölda flóttamanna, aðstæður þeirra og hvernig ætti að bregðast við. Fljót- lega var ljóst að við þyrftum að finna varanlegar búðir þar sem fólkið var ekki á leiðinni heim í bráð enda hefur ástandið á svæðinu versnað til muna síðan í haust.“ Áslaug var eina konan í teyminu. Hún þurfti að vera í hefðbundnum fatnaði, var ekki heilsað með handa- bandi og var ýtt til hliðar í samræð- um. Ég var alveg gapandi yfir þess- ari framkomu en svo áttaði ég mig á því að konur voru hvergi á ferli og karlmenn þeir einu sem sáust,“ lýsir Áslaug en tekur það fram að svona sé þessu ekki háttað alls stað- ar í landinu enda fjölmargar konur þar sem ganga menntaveginn og fá að blómstra. Viðmótið í garð Áslaugar breytt- ist eitthvað þegar á leið enda gerði hún mönnum ljóst að hún væri eini starfsmaður Rauða krossins sem hægt væri að ræða við um það sem sneri að heilbrigðismálum. „Þegar verkefni mínu lauk þurfti ég hins vegar að fara til minna yfirmanna og tjá þeim að það yrði að vera karl- maður sem myndi leysa mig af. Þetta þótti mér mjög þungbært en ég komst að raun um að ég komst ekki nema ákveðið langt í samn- ingaviðræðum þar sem ég var kona.“ Áslaug starfaði í mikilli nálægð við átakasvæði og var mikið um sjálfsmorðssprengjuárásir. „Yfir- maður heilbrigðismála í héraðinu, sem ég starfaði mikið með, sagði mér að hafa ekki áhyggjur af þeim af því að það væri svo ríkt í íslam að hlífa konum við slíku. Meira að segja sjálfsmorðssprengjuárásar- mennirnir myndu virða það,“ segir Áslaug sem er ávallt í startholunum fyrir Rauða krossinn. vera@frettabladid.is Sinnti hjálparstarfi í Pakistan í skugga átaka Áslaug Arnoldsdóttir hefur starfað fyrir Rauða krossinn um margra ára skeið og er hjálparstarf órjúfan- legur hluti af lífi hennar. Síðastliðið haust lá leið hennar til Pakistan þar sem hún aðstoðaði flóttamenn. Áslaug lítur til með særðum eftir sjálfsmorðssprengjuárás í norðvesturhluta Pakistan. MYND/ÚR EINKASAFNI ITALIUFERDIR.COM er heimasíða þar sem finna má skemmtilegar hjóla- og gönguferðir um Ítalíu. Átta daga útivistar- og ævintýraferð er meðal þess sem er í boði í sumar. s g Mjódd UPPLÝSINGAR O Næsta námskeið hefst 3. apríl n.k. Kerlingarfjöll um páskana Sjá nánar á www.utivist.is

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.