Fréttablaðið - 01.04.2009, Page 32

Fréttablaðið - 01.04.2009, Page 32
LÍFRÆNT RUSL er gott að flokka. Góð leið til að geyma ruslið er að opna tóma mjólkurfernu upp á gátt og nota hana undir lífræna ruslið. Mjólkurfernur halda vel raka, auðvelt er að skola þær og nota aftur. GÓÐ RÁÐ fyrir þig og umhverfið Náttúran.is - vefur með umhverfisvitund Skrifstofan Þarftu raunverulega nýja tölvu? Þegar gamla tölvan er orðin hæg og þreytt er oft nóg að auka RAM eða vinnsluminni tölvunnar (RAM = Random Access Memory). Einn- ig er hægt að skipta um skjákort með litlum tilkostnaði. Örgjörvinn getur einnig verið orðinn hægur og er hægt að skipta um örgjörva og viftu án mikilla erfiðleika á mörgum borðtölvum. Ef harði diskurinn er orðinn fullur, þá er hægt að hafa tvo harða diska á sömu tölvunni, skipta um þann sem fyrir er og fá sér stærri eða nota lausan flakkara. Stundum er líka hægt að fækka viðbótum, slökkva á sjónrænu sjónarpili (MS Vista), hreinsa til á harða diskinum og endurraða gögn- um á hann (Defragment). Eins má setja gamlan póst í geymslu (Archi- ve) og koma eldri gögnum í varð- veislu á lausum diskum eða brenna á geisladiska. Rétt er að hafa í huga að allir harðir diskar gefa sig ein- hvern tíma og þá er gott að eiga afrit af mikilvægum gögnum. Ef ákveðið er að kaupa nýja tölvu, þá er margt sem þú getur gert til þess að draga úr umhverf- isáhrifunum. Þú getur notað gömlu músina og gömlu hátalarana og gamla skjáinn áfram þótt þú kaup- ir nýja tölvu. Forðastu að kaupa pakka þar sem allt er innifalið. Það er líka dýrara. Kannski getur þú keypt notaða tölvu. Gættu þó að því að hún sé ekki þýfi eða léleg eftirlíking. Leitastu við að kaupa tölvu sem er umhverfismerkt eða merkt með TCO 03. TCO merk- ing nær eins og Svansmerk- ing yfir vinnufræðilega þætti og vinnuumhverfi (Ergonomi). Meira um tölvur á: http://www. natturan. is/husid/1391/ Listrænir skúlptúrar úr litríku hlaupi eru sannarlega augna- konfekt í veislum og öðrum slíkum uppákomum. Breska fyrirtækið Bompas & Parr býður upp á allsérstæða þjónustu. Það sérhæfir sig í því að útbúa hlaup í hinu ótrúlegasta formi fyrir ýmsar uppákomur, veislur og mannfögnuði. Hlaupið getur verið í laginu eins og byggingar, dýr eða hvað sem er og óhætt að segja að slíkir ætir skúlptúrar lífgi upp á veisluborðið. Þeir sem vilja kynna sér nánar hlaupdýrðina geta heimsótt vefsíð- una www.jellymongers.co.uk. - sg Veisluhlaup Veisluborð og krásir mótaðar úr hlaupi. Ótrúlegustu byggingar er hægt að móta úr hlaupi. ÁRMÚLA 42 - SÍMI 553 4236 BÍLSKÚRS OG IÐNAÐARHURÐIR • Hurðir til á lager • Smíðað eftir máli • Eldvarnarhurðir • Öryggishurðir Hringdu í síma ef blaðið berst ekki

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.