Fréttablaðið - 01.04.2009, Page 48

Fréttablaðið - 01.04.2009, Page 48
24 1. apríl 2009 MIÐVIKUDAGUR menning@frettabladid.is á morgun kl. 12 Þóra Einarsdóttir heldur á morg- un tónleika í hádegistónleikaröð Hafnarborgar með undirleik Ant- oníu Havesi. Á efnisskránni eru aríur eftir Mozart. Þóra hefur frá unga aldri átt glæsilegan feril í Þýskalandi og víðar um Evrópu og sungið í mörgum virtum óperu- húsum. Hún er ótvírætt einn helsti túlkandi Mozarts hér á landi. Áfram heldur viðamikið prógramm Múlans sem nú er sestur að undir Café Cultura í Skuggahverfinu. Næstu tónleikar Jazzklúbbs- ins Múlans verða haldnir þar annað kvöld. Þar kemur fram ÞÞÞ kvintettinn sem flytur nýja tónlist eftir trommuleikar- ann Þorvald Þór Þorvaldsson sem nýfluttur er til landsins eftir sex og hálfs árs búsetu í Bandaríkjunum. Tónleikarnir verða liður í undirbúningi fyrir upptökur á nýrri plötu með tónlist hans, en tónlist sína kallar Þorvaldur „emo-jazz“ þ.e. lágstemmd, tilfinningaþrungin nútíma heimstónlist undir sterkum djassáhrifum. Bandaríski bassaleikarinn Jon Estes kemur sérstaklega til landsins frá Brooklyn til að spila á tónleikunum. Aðrir hljóðfæra- leikarar eru úr hópi fastra og sterkra stoða djasslífsins á Íslandi, bræðurnir Óskar og Ómar Guðjónssynir ásamt Eyþóri Gunnarssyni. Tónleikar Múlans fara fram í Jazzkjallaranum á Café Cultura, Hverfisgötu 18, gegnt Þjóðleikhúsinu og hefjast þeir kl. 21. ÞÞÞ þrunginn af djassi í Múlanum Páskatónleikar Sinfón- íuhljómsveitar Íslands eru annað kvöld og verða með glæsilegasta móti. Flutt verður Sköpunin eftir Joseph Haydn sem er eitt vinsælasta kórverk klassíska tímans og eitt af meistaraverkum Haydns. Um þessar mundir eru liðin 200 ár frá dauða þessa mikla snillings sem hafði gífurleg áhrif á þróun tónlistarinnar með verkum sínum. Ásamt Sinfóníuhljómsveitinni taka tveir kórar þátt í flutningnum, en einnig koma þrír einsöngvarar og hljómsveitarstjóri til landsins sem öll hafa sérhæft sig í flutningi á Sköpuninni. Stjórnandinn er Paul McCreesh. Er ekki ofsögum sagt að hingaðkoma hans sætir tíðind- um: McCreesh er einn fremsti túlkandi gamallar tónlistar í heimi. Hljóðritanir hans á tónlist, barokk- endurreisnar- og klassíska tímans hafa hlotið viðurkenningu um allan heim fyrir kraft, skýrleika og inn- sæi. Hljóðritun hans á Sköpuninni 2008 hlaut Gramophone-verðlaun- in sem geisladiskur ársins í flokki söng- og kórtónlistar. Einsöngvarar eru breski tenór- inn James Gilchrist sem kemur til landsins beint úr tónleikaferð þar sem hann syngur Sköpunina, þýski barítóninn Stephan Loges og sópransöngkonan Rebecca Bott- one. Einnig taka tveir kórar þátt í flutningnum; Kór Áskirkju og Hljómeyki. Fyrsti flutningur Sköpunar- innar fór fram í Vínarborg 1798, og fyrsti opinberi flutningurinn í Burgtheater ári síðar. Í bæði skiptin var verkið sungið á þýsku, en þegar Sköpunin var gefin út á nótum árið 1800 var textinn bæði á ensku og þýsku, og var það í fyrsta sinn sem verk var hugsað í tvítyngdri útgáfu allt frá byrj- un. Á Íslandi hefur þýska útgáfan heyrst mun oftar en sú enska, en nú mun enski textinn hljóma, sem McCreesh hefur lagfært á nokkr- um stöðum til að hann falli betur að sönglínunum. Sinfóníuhljómsveit Íslands tók síðast þátt í flutningi þessa magn- aða verks fyrir tuttugu árum. Tón- leikarnir eru í Háskólabíói og hefj- ast klukkan 19.30. Verkið er flutt án hlés en bein útsending verður frá tónleikunum á rás 1 Ríkisút- varpsins. pbb@frettabladid.is Sköpun heimsins í tónumRanghermt var hér á síðunni í gær að hópur Jóns Páls Eyjólfssonar, Jóns Atla Jónassonar og Halls Ingólfssonar heiti Mindcamp - hann heitir Mind- group. Beðist er afsökunar á þessari meinloku gagnrýnanda. LEIÐRÉTTING Í kvöld frumsýnir Kómedíuleik- húsið á Ísafirði nýtt íslenskt leik- verk, Auðun og ísbjörninn, í Tjöru- húsinu á Ísafirði. Leikurinn er byggður á Íslendingaþættinum Auðunar þáttur vestfirzka sem er einn besti og vinsælasti allra Íslendingaþátta. Hér segir frá bóndastrák frá Vestfjörðum sem leggst í vík- ing og á vegi hans verður taminn ísbjörn. Auðun ákveður að gefa Sveini Danakonungi ísbjörninn og hefst þá ævintýralegt ferðalag piltsins og bjarnarins. Höfundur og leikstjóri er Soffía Vagnsdótt- ir og leikari er Elfar Logi Hannes- son. Tónlistin í leiknum er eftir Hrólf Vagnsson en Bára Gríms- dóttir og Steindór Andersen flytja söngvana. Höfundar leikmynd- ar eru Kristján Gunnarsson og Marsbil G. Kristjánsdóttir en hún hannar einnig ísbjörninn, leikmuni og leikgervi. Búninga gerir Alda Veiga Sigurðardóttir. Uppselt er á frumsýningu en önnur sýning verður laugardaginn 4. apríl kl. 14. Einnig verður leikurinn sýnd- ur tvívegis um páskana á Ísafirði í tengslum við Skíðaviku og Leik- húspáska á Ísó sem eru nú haldn- ir í fyrsta sinn. Eftir páska verð- ur haldið í leikferð með Auðun og Ísbjörninn um Vestfirði og jafnvel víðar. Kómedíuleikhúsið er fyrsta og eina atvinnuleikhúsið á Vestfjörð- um. Leikhúsið hefur starfað fyrir vestan með miklum blóma síðan um síðustu aldamót og sett á svið fjölmörg leikverk. Þekktasti leik- ur Kómedíu er Gísli Súrsson sem hefur verið sýndur um 200 sinn- um bæði hér heima og erlendis og unnið tvívegis til verðlauna á erlendum leiklistarhátíðum. Af öðrum einleikjum Kómedíu má nefna Mugg, Stein Steinarr, Pétur og Einar, Dimmalimm og Jólasveina Grýlusyni. Kómedíu- leikhúsið sér einnig um listræna stjórn leiklistarhátíðarinnar Act alone á Ísafirði sem er helguð ein- leikjum. Act alone fékk Menning- arverðlaun DV árið 2008. Act alone verður haldin sjötta árið í röð dagna 14.-16. ágúst nú í ár. - pbb Auðun og ísbjörninn LEIKLIST Einar Logi og Alda Veiga í gervum sínum á ísfirskri strönd. MYND KOMEDÍULEIKHÚSIÐ TORTILLA VEISLUBAKKI EÐALBAKKI LÚXUSBAKKI DESERTBAKKI GAMLI GÓÐI TORTILLA OSTABAKKI 30 bitar 30 bitar 20 bitar 20 bitar 20 bitar 20 bitar 50 bitar Fyrir 10 manns PÍTUBAKKI ÁVAXTABAKKI Hver samlokubakki er hæfilegur fyrir fjóra eða fimm. *Frí heimsending gildir aðeins ef pantaðir eru 4 eða fleiri bakkar. FERSKT EINFALT & ÞÆGILEGT PANTAÐU SÓMA VEISLUBAKKA Pantaðu í síma 565 6000eða á www.somi.isFrí heimsending* Miðasala í síma 555 2222 og á >Ekki missa af Sýningu Söngskóla Sigurðar Demetz á Töfraflautunni eftir Mozart. Nemendaópera skólans réðist í að setja á svið óperu með hljómsveit, kór og öllu sem til þarf og er það gert undir öruggri stjórn Keiths Reed. Sýningar verða í Lindakirkju í Kópavogi í kvöld kl. 20 og á föstudag kl. 20. TÓNLIST Vanur maður, Paul McCreesh, stjórnar Sinfóníunni og samsettum kórum Áskirkju og Hljómeykis í flutningi á Sköpun Haydns annað kvöld. MYND SINFÓNÍUHLJÓMSVEIT ÍSLANDS TÓNLIST Þorvaldur Þór Þor- steinsson kominn heim í heiðar- dalinn og djassar í Múlanum.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.