Fréttablaðið - 01.04.2009, Page 59

Fréttablaðið - 01.04.2009, Page 59
MIÐVIKUDAGUR 1. apríl 2009 35 FÓTBOLTI Það ríkir mikil bjartsýni í herbúðum enska landsliðsins fyrir leikinn gegn Úkraínu á Wembley í kvöld. Liðið verður sterkara með hverjum leik undir stjórn Ítalans Fabio Capello. Hann er farinn að ná meira úr lykilmönnum en áður og leikmenn keppast við að hrósa stjóranum sínum. Wayne Rooney fékk sérstakt hrós frá þjálfaranum eftir leik- inn gegn Slóvakíu um helgina og Rooney borgaði fyrir sig í gær. „Við trúum því að við getum unnið alla leiki og það er að mörgu leyti þjálfaranum að þakka. Hann er alveg frábær. Veit hvað hann vill fá frá okkur og kann að ná því besta úr okkur,“ sagði Rooney en sjálfstraustið í enska landsliðinu var ekki svona gott þegar Capello tók við stjórnartaumunum. „Ég held að allir leikmenn liðs- ins hafi mikið sjálfstraust núna,“ sagði Capello. „Þeir leika án ótta og geta nú leikið af sama sjálfs- trausti með landsliðinu og þeir gera með félagsliði sínu. Það var ekki þannig áður.“ - hbg Englendingar taka á móti Úkraínu á Wembley: Mikið sjálfstraust hjá enska landsliðinu GLEÐI Það er mikil stemning hjá ensku landsliðsmönnunum þessa dagana sem leika við hvurn sinn fingur. NORDIC PHOTOS/GETTY IMAGES FÓTBOLTI Fabio Capello, landsliðs- þjálfari Englands, hefur staðfest að framherjinn hávaxni Peter Crouch verði einn á toppnum hjá enska landsliðinu gegn Úkraínu í kvöld. Það verða svo annað hvort Wayne Rooney eða Steven Gerrard í holunni fyrir aftan Crouch. „Ég er viss um að Crouch er besti kosturinn sem ég hef í þessa stöðu,“ sagði Capello sem á í talsverðum framherjavand- ræðum og nú síðast kallaði hann á Gabriel Agbonlahor í hópinn í stað Darrens Bent sem meiddist. - hbg Byrjunarlið enska liðsins: Peter Crouch í fremstu víglínu PETER CROUCH Fær tækifæri í byrjunar- liðinu í kvöld. NORDIC PHOTOS/GETTY IMAGES FÓTBOLTI Terry Butcher, aðstoðar- landsliðsþjálfari Skota, segir að það muni koma í hlut miðvallar- leikmannsins Scotts Brown að hafa gætur á Eiði Smára Guð- johnsen í landsleik Skotlands og Íslands á morgun. „Scott sópar upp allt sem kemur inn á svæðið fyrir framan vörnina og þar mun Eiður Guð- johnsen halda sér í leiknum,“ sagði Butcher. „Guðjohnsen er ekki fremsti maður því Ísland spilar sam- kvæmt 4-1-4-1 leikkerfinu. Brown mun gegna mjög mikilvægu hlut- verki en ég held að við munum gefa honum frjálsar hendur í leiknum. „Við spiluðum alls ekki vel þegar við mættum Íslandi í sept- ember en samt unnum við þann leik. Það er það sem við þurf- um að gera nú því það er langt síðan við unnum síðast á Hamp- den Park,“ sagði Butcher. Síðasti sigur Skota á Hampden Park í Glasgow kom árið 2007. - esá Eiður fær yfirfrakka: Brown á að stöðva Eið EIÐUR SMÁRI Verður í gjörgæslu hjá Skotum í kvöld. FRÉTTABLAÐIÐ/XX FÓTBOLTI Norska knattspyrnu- sambandið hefur gefið það út að þjálfarinn Egil „Drillo“ Olsen muni stýra norska landsliðinu út undankeppni HM. Olsen var fenginn til að stýra landsliðinu til bráðabirgða á meðan leitað væri að nýjum þjálfara í stað Age Hareide. Stór- kostlegur sigur norska liðsins gegn Þjóðverjum sannfærði alla um að hann væri rétti maðurinn í starfið. Olsen kemur því með norska liðið í Laugardalinn í haust er Ísland tekur á móti Noregi. - hbg Egil „Drillo“ Olsen: Verður áfram með Noreg

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.