Morgunblaðið - 10.01.2006, Síða 14
14 ÞRIÐJUDAGUR 10. JANÚAR 2006 MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
MÚSLÍMSKIR pílagrímar biðjast fyrir á og við Fjall
miskunnarinnar en það er á Arafat-sléttu, skammt frá
Mekka. Þar eru nú samankomnar um tvær milljónir
manna vegna Hajj-hátíðarinnar en ætlast er til að hver
einasti múslími fari að minnsta kosti í eina pílagrímsför
til borgarinnar um ævina.
Reuters
Pílagrímar á Fjalli miskunnarinnar
París, Nýju Delhí. AP, AFP. | Talið er, að
á síðustu tveimur áratugum hafi fæð-
ingum stúlkubarna á Indlandi fækkað
um 10 milljónir vegna fóstureyðinga.
Ástæðan er sú, að nú er unnt að
greina í móðurkviði hvort um er að
ræða dreng eða stúlku og almennt
eru drengir teknir fram yfir stúlkur.
Kemur þetta fram í breska lækna-
tímaritinu The Lancet en það voru
indverskir og kanadískir vísinda-
menn, sem stóðu að rannsókninni.
Fór hún fram meðal rúmlega milljón
indverskra fjölskyldna árið 1998 og
skoðaðar voru næstum 134.000 fæð-
ingar 1997. Í ljós kom, að þegar síð-
asta barn hjóna hafði verið stúlka,
stórjukust líkurnar á, að það næsta
yrði drengur. Þá var hlutfall fæddra
stúlkna ekki nema 759 á móti 1.000
drengjum. Þegar tvö síðustu börn
hjóna höfðu verið stúlkur, skekktust
hlutföllin enn meira drengjunum í vil.
Það sýndi sig hins vegar, að þegar
síðasta eða tvö síðustu börn hjóna
höfðu verið drengir, þá var hlutfallið
milli næstu barna, drengja og
stúlkna, nokkurn veginn það sama.
Áætlað er, að vegna fóstureyðing-
anna vanti nú um 10 milljónir stúlkna
og ungra kvenna á Indlandi og það
eru ekki síst konur, sem notið hafa
menntunar, sem láta eyða stúlku-
fóstrum.
Niðurstaða rannsóknarinnar kem-
ur ekki á óvart en í október varaði ein
stofnun Sameinuðu þjóðanna við fóst-
ureyðingum af þessu tagi á Indlandi
og sagði, að vaxandi munur á fjölda
karla og kvenna í landinu gæti haft
mjög alvarlegar, samfélagslegar af-
leiðingar í för með sér. Það sama er
raunar uppi á teningnum í Afganist-
an, Kína, Nepal, Pakistan og Suður-
Kóreu.
Indverskir foreldrar
láta eyða stúlkufóstri
Farið að valda alvarlegu ójafnvægi milli kynjanna
Kíev. AP. | Réttarhöld í máli þriggja
fyrrum lögreglumanna, sem sakaðir
eru um að hafa myrt einn þekktasta
blaðamann Úkraínu, hófust í höfuð-
borginni, Kíev, í gær.
Mennirnir þrír, þeir Valeríj Kos-
tenko, Míkola Protasov og Olexan-
der Popovísj, voru leiddir fyrir dóm-
ara í áfrýjunarrétti. Þeir eru sakaðir
um að hafa myrt Georgíj Gongadze,
sem hélt úti afar gagnrýnni umfjöll-
un um stjórnvöld á vefsíðu er nefnd-
ist Úkraínska Pravda eða „Sannleik-
urinn um Úkraínu“. Fjórði mað-
urinn, sem grunaður er að tengist
ódæðinu, herforinginn Olexíj Pú-
katsj, er talinn hafa flúið land.
Gongadze var 31 árs er hann
hvarf, 16. september árið 2000.
Tveimur mánuðum síðar fannst lík
hans í skógi einum nærri Kíev. Höf-
uðið hafði verið höggvið af líkinu og
hefur ekki fundist.
„Ég tel þetta mikilvægt skref
vegna þess að hinir ákærðu eru
fulltrúar glæpsamlegs stjórnmála-
kerfis,“ sagði Miroslava Gongadze,
ekkja blaðamannsins, í gær. Með
orðum sínum vísaði hún til stjórnar
Leoníds Kútsma, fyrrum forseta
Úkraínu, sem var við völd er Gon-
gadze var myrtur. Vitað er að örygg-
isþjónusta stjórnvalda fylgdist með
Gongadze og mjög margir eru þeirr-
ar hyggju að háttsettir menn í Úkra-
ínu hafi fyrirskipað morðið. Þannig
hefur þingnefnd, sem rannsakaði
málið, sakað Kútsma um að hafa
borðið ábyrgð á hvarfi blaðamanns-
ins. Til er segulbandsupptaka, sem
þykir benda til þessa. Fyrrum ráða-
menn hafa á hinn bóginn ekki verið
ákærðir og Kútsma hefur ítrekað
lýst yfir sakleysi sínu.
Lögmaður móður Gongadze sagði
í gær ljóst að yfirvöld vildu að lög-
reglumennirnir fyrrverandi
yrðu dæmdir og þar með ljúka
málinu. Hann og fleiri hafa hvatt til
þess að málið verði rannsakað frekar
í því skyni að leiða raunverulega
ábyrgð þáverandi ráðamanna í ljós.
Morðið á Georgíj Gongadze varð
ekki síst til þess að hleypa af stað
„appelsínugulu byltingunni“ í Úkra-
ínu, sem lauk með því að lýðræðis-
lega kjörinn forseti, Víktor Jústsj-
enko tók við embætti en valdaklíku
sem rætur átti í sovéttímanum, var
komið frá.
Jústsjenko forseti hefur lagt ríka
áherslu á að mál Gongadze verði
upplýst og horfir ekki síst til þess að
pólitísk spenna í landinu fer vaxandi
í aðdraganda þingkosninga, sem
fram fara 26. mars. Honum hefur þó
reynst erfitt að leiða málið til lykta. Í
fyrra framdi fyrrum innanríkisráð-
herra landsins sjálfsmorð nokkrum
klukkustundum áður en hann átti að
bera vitni og ríkissaksóknari Úkra-
ínu var leystur frá störfum sökum
þess hægagangs, sem einkenna þótti
rekstur málsins.
AP
Lögreglumaður fylgist með fyrrverandi starfsbróður sínum, Valeríj Kos-
tenko, á bak við rimla er hann svaraði spurningum dómara.
Réttarhöld í
máli Gongadze
STJÓRNVÖLD í Ísrael skýrðu frá
því í gær að ákveðið hefði verið að
leyfa frambjóðendum í þingkosning-
um Palestínumanna að heyja kosn-
ingabaráttu í Austur-Jerúsalem.
Þetta á þó ekki við um frambjóðendur
hinnar íslömsku Hamas-hreyfingar.
Gideon Ezra, ráðherra öryggis-
mála, greindi frá því í útvarpsviðtali
að þess yrði krafist af frambjóðend-
um að þeir sæktu um leyfi til að kynna
framboð sitt í austurhluta borgarinn-
ar. Beiðni í þá veru þyrfti að leggja
fyrir lögregluyfirvöld. „Hver sá, sem
styður Hamas, mun ekki fá slíkt
leyfi,“ bætti ráðherrann við. Tals-
menn Hamas sögðust í gær ætla að
hundsa bann þetta og bentu á að unnt
yrði að reka kosningabaráttu í þess-
um hluta borgarinnar m.a. um síma
og Net.
Í máli Gideons Ezra kom á hinn
bóginn ekki fram hvort stjórnvöld í
Ísrael hafa ákveðið að heimila íbúum
Austur-Jerúsalem að taka þátt í kosn-
ingunum, sem fram fara 25. þessa
mánaðar. Verður það í annað skiptið á
tíu árum sem Palestínumenn ganga
til þingkosninga.
Mahmud Abbas, forseti heima-
stjórnar Palestínumanna og leiðtogi
Fatah-hreyfingarinnar, hefur hótað
að aflýsa kosningunum verði íbúum
Austur-Jerúsalem meinað að greiða
atkvæði. Ísraelar hafa gefið til kynna
að slíkt bann verði sett en hafa þó
ekki birt afdráttarlausa yfirlýsingu
þess efnis. Bandaríkjastjórn hefur
þrýst á Ísraela um að heimila kosn-
ingar í Austur-Jerúsalem. Nabil Sha-
ath, aðstoðarforsætisráðherra Palest-
ínumanna, greindi frá því í gær að
Bandaríkjamenn hefðu komið þeim
boðum til palestínskra stjórnvalda að
kosningar myndu einnig fara fram í
austurhlutanum. Staðfesting af hálfu
Ísraela hefði á hinn bóginn enn ekki
borist.
Ísraelar hertóku Austur-Jerúsal-
em árið 1967 og innlimuðu síðan borg-
arhlutann í ríki sitt. Þar búa nú um
200.000 Palestínumenn og lítur
stærsti hluti alþjóðasamfélagsins svo
á að borgarhlutinn falli undir her-
námssvæði Ísraela.
Ríkisstjórn Ísraels hefur þungar
áhyggjur af þátttöku Hamas í þing-
kosningunum. Félagar í hreyfingunni
hafa borið ábyrgð á fjölda árása gegn
Ísraelum á þeim fimm árum, sem liðin
eru frá því að Palestínumenn risu upp
öðru sinni gegn hernámsveldinu. Ha-
mas-hreyfingin nýtur mikils fylgis
enda sinnir hún margvíslegu fé-
lagslegu grasrótarstarfi. Hreyfingin
neitar á hinn bóginn að viðurkenna
tilverurétt Ísraelsríkis. Hamas hefur
náð góðum árangri í bæjar- og sveit-
arstjórnakosningum að undanförnu
og stefnir í að hreyfingin verði einnig
áhrifamikil á þingi Palestínumanna.
Af þessu hafa forráðamenn Fatah
áhyggjur. Ýmsir fréttaskýrendur
hafa haldið því fram að Abbas forseti
vilji nýta sér óbilgirni Ísraela til að fá
kosningunum frestað þar eð hann ótt-
ist að árangur Fatah verði slakur.
Fyrsta skrefið stigið
Hatem Abdelkader, helsti fram-
bjóðandi Fatah í Austur-Jerúsalem,
kvaðst í gær hafa fengið leyfi til að
hefja kosningabaráttu sína í hinum
arabíska hluta borgarinnar. Sagðist
hann líta svo á að með þessu hefðu
stjórnvöld í Ísrael stigið fyrsta skrefið
í þá átt að heimila kosningar í borg-
arhlutanum. Tveir þekktir frambjóð-
endur, þau Hanan Ashrawi og Mu-
stafa Barghuti, voru í liðinni viku
stöðvuð er þau hugðust hefja kosn-
ingabaráttu sína þar. Ashrawi kvaðst
í samtali við AFP-fréttastofuna í gær
ekki telja ákvörðun Ísraela frá því
fyrr um daginn breyta miklu. Sagðist
hún andvíg því að frambjóðendum
yrði gert að sækja um leyfi og mót-
mælti einnig þeirri ákvörðun að úti-
loka frambjóðendur Hamas. „Við vilj-
um fá fram skýra, pólitíska ákvörðun
af hálfu Ísraela varðandi kosninga-
ferlið allt í Austur-Jerúsalem,“ sagði
Ashrawi.
Í janúarmánuði í fyrra, þegar for-
setakosningar fóru fram í Palestínu,
var Aröbum í Austur-Jerúsalem leyft
að greiða atkvæði. Það var einnig gert
árið 1996 þegar fyrstu og einu kosn-
ingarnar til þings Palestínumanna
fóru fram.
Veikindi Ariels Sharons, forsætis-
ráðherra Ísraels, hafa hins vegar orð-
ið til þess að auka enn á óvissuna
varðandi kosningar Palestínumanna.
Á sunnudag kom ísraelska ríkis-
stjórnin í fyrsta skipti saman til form-
legs fundar eftir að Sharon veiktist.
Ehud Olmert, starfandi forsætisráð-
herra, lagði þá áherslu á að stefnu
Sharons yrði áfram fylgt en tjáði sig
ekki sérstaklega um kosningarnar í
Austur-Jerúsalem.
Heimila kosn-
ingabaráttu í
A-Jerúsalem
Frambjóðendur Hamas útilokaðir og
óvíst um kosningar í borgarhlutanum
Eftir Ásgeir Sverrisson
asv@mbl.is
Reuters
Palestínsk kona gengur framhjá
einu af fjölmörgum kosningaspjöld-
um í gamla borgarhlutanum.