Morgunblaðið - 12.01.2006, Blaðsíða 1
STOFNAÐ 1913 11. TBL. 94. ÁRG. FIMMTUDAGUR 12. JANÚAR 2006 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is
Minningar
kallaðar fram
Gamli tíminn allsráðandi í minninga-
herbergjum elliheimila | Daglegt líf
Viðskipti | Hver býður bestu vextina? Að sameina hagsmuni
forstjóra og hluthafa Málið | Capone-bræður eins árs Borgarstjórinn
hlakkar til kosninga Íþróttir | Jóhannes Karl á leið til Alkmaar
MAÐURINN, sem svipti sig lífi á
Ísafirði í fyrradag, skildi eftir bréf til
ættingja sinna, þar sem hann ber af
sér sakir um kynferðisofbeldi en
segist ekki geta staðið undir atlögu
fjölmiðla. Sigurður Hjartarson,
bróðir hins látna, greindi Morg-
unblaðinu frá þessu í gær. Í forsíðu-
frétt DV á þriðjudag var birt mynd
af manninum og hann nafngreindur
undir fyrirsögninni „Einhentur
kennari sagður nauðga piltum“.
„Í bréfinu sem hann skildi eftir
ber hann þessar sakir af sér en seg-
ist ekki geta staðið undir þessari
fjölmiðlaatlögu. Öðru get ég ekki
greint frá enda persónulegt,“ segir
Sigurður um innihald bréfsins.
„Hér blakta víða fánar í hálfa
stöng og hér eru menn slegnir sem
víðar,“ segir Skúli Sigurður Ólafs-
son, sóknarprestur á Ísafirði, spurð-
ur um áhrif fréttar DV um manninn
og fráfalls hans á bæjarlífið.
Lögreglan á Ísafirði mun að svo
stöddu engar upplýsingar gefa um
málið og rannsókn þess.
Fara ekki eftir siðareglum BÍ
Miklar umræður um mál þetta
hafa farið fram í fjölmiðlum og á vef-
síðum og hafa margir stjórn-
málamenn lagt orð í belg. Hjálmar
Árnason, þingflokksformaður Fram-
sóknarflokksins, skrifaði á heima-
síðu sína: „DV fór yfir strikið og ekki
einasta greip til mannorðsmorðs
heldur morðs í eiginlegri merkingu.
Og það er stórt orð en ekki verður
séð annað en full innistæða sé þar að
baki.“
Björn Bjarnason dómsmálaráð-
herra segir m.a. á heimasíðu sinni:
„Hve lengi ætla eigendur DV að láta
blaðið veitast að varnarlausu fólki á
sinn kostnað?“ Björn segir sömu-
leiðis: „Ég vorkenni forystumönnum
Blaðamannafélags Íslands að þurfa
að tjá sig út og suður um þetta mál
af tillitssemi við félagsmenn, sem
hafa meginreglur félagsins að engu
en nota það sem skálkaskjól. Trú-
verðugleiki blaðamanna styrkist
ekki við slíkan blindingsleik.“
Stjórn Blaðamannafélags Íslands
(BÍ) telur ótækt að DV fari eftir eig-
in siðareglum, þar sem þær stangist
á við siðareglur Blaðamannafélags-
ins. Kemur þetta fram í ályktun sem
stjórnin samþykkti á fundi í gær.
Jónas Kristjánsson, ritstjóri DV,
sagði m.a. í Kastljósi Ríkissjón-
varpsins í gærkvöldi að DV hefði
fjallað af sanngirni um mál manns-
ins og myndi gera það áfram. Hann
sagði að sjónarmið þolenda í málinu,
sem ættu um sárt að binda, hefðu
ekki náð fram að ganga.
Dagsbrún hf. fjallar um DV
Stjórn Dagsbrúnar hf., móður-
félags 365 prentmiðla, sem gefur
m.a. út DV, mun ræða málefni DV á
fundi á morgun, föstudag, að því er
segir í tilkynningu frá Þórdísi Sig-
urðardóttur stjórnarformanni.
Sagðist ekki geta staðið
undir þessari fjölmiðlaatlögu
Eftir Sunnu Ósk Logadóttur
sunna@mbl.is
Bréf mannsins sem svipti sig lífi eftir ásakanir í DV um kynferðisofbeldi
Blaðamenn | 4
BÖRN frá Kasmír-héraði halda hér
á lofti gjöfum, Barbie-dúkkum og
ýmsu öðru, sem óháð hjálparsamtök
dreifðu á fyrsta degi Eid al-Adha-
hátíðar múslíma í flóttamannabúð-
um í Islamabad í Pakistan. Börnin
hafast nú við í búðunum í kjölfar
jarðskjálftans í Kasmír 8. október sl.
sem kostaði yfir 73.000 manns lífið
og olli því að þrjár milljónir manna
misstu heimili sín.
Múslímar halda Eid al-Adha til að
minnast fórnar Múhameðs spá-
manns en hann gaf son sinn, Ismail,
er guð krafðist þess. Deginum er
gjarnan fagnað með slátrun búfén-
aðar en hátíðahöld voru í rólegri
kantinum í Pakistan að þessu sinni,
enda eru menn enn að takast á við
hörmulegar afleiðingar skjálftans í
október. Jarðskjálfti upp á 5,1 á
Richters-kvarðanum skók Islama-
bad snemma í gær en engar fregnir
höfðu þó borist af meiðslum á fólki.
Reuters
Gleðjast hverri gjöf
Kíev. AP, AFP. | Viktor Jústsjenkó,
forseti Úkraínu, fordæmdi í gær
samþykkt úkraínska þingsins frá því
í fyrradag þess eðlis að víkja skyldi
stjórn landsins frá.
Hann sagði
ákvörðun þingsins
af pólitískum rót-
um runna, ætlun
aðstandenda
hennar væri að
valda umróti og
upplausn í aðdrag-
anda þingkosning-
anna sem fara
fram í Úkraínu í mars.
Jústsjenkó sagði að samþykkt
þingsins ætti sér ekki stoð í stjórn-
arskrá Úkraínu, hún væri „óljós,
órökrétt og röng“. Er það afstaða
forsetans að þing landsins hafi ekki
vald til að reka ríkisstjórn þess frá
völdum. Þá sagði forsætisráðherra
Úkraínu, Júrí Jekhanúrov, að stjórn
hans héldi áfram störfum sínum eins
og ekkert hefði í skorist.
Embættismenn og fréttaskýrend-
ur segja ákvörðun meirihluta þings-
ins runna undan rifjum andstæðinga
Jústsjenkós sem vilji lama stjórn
hans í aðdraganda kosninga í mars,
en þar kann að ráðast hvort haldið
verður áfram á þeirri braut aukins
samstarfs við Vesturlönd, sem
Jústsjenkó hefur markað.
Breytingar á stjórnarskrá Úkr-
aínu áttu að taka gildi 1. janúar en
skv. þeim hefur þingið valdið til að
reka og skipa ríkisstjórn, í stað for-
setans. En þessar breytingar hafa
aðeins að hluta tekið gildi og skýrir
það að hluta þá óvissu sem nú ríkir.
Fordæmdi sam-
þykkt þingsins
Viktor Jústsjenkó
Stokkhólmur. AP. | Það kann ekki
að hljóma ýkja rómantískt að
ganga í heilagt hjónaband í flug-
stöðvarbyggingu, en þó er það
raunin að í Svíþjóð gerist það nú
æ vinsælla.
Talsmaður Arlanda-flugvallar í
Stokkhólmi sagði að í fyrra hefðu
488 pör kosið að halda sitt brúð-
kaup þar. Þetta er umtalsverð
aukning því að árið áður höfðu
348 pör verið gefin saman á flug-
vellinum; var það þó einnig aukn-
ing frá fyrra ári.
Brúðkaupin hafa ýmist verið
haldin í kapellu flugstöðvarhúss-
ins eða í sérstökum viðhafnarsal,
svonefndum VIP-sal, þar sem
brúðhjón geta skráð farangur
sinn, drukkið kampavín og snittur
og svo, þegar veislunni er lokið,
verið ekið beint út í flugvél, áleið-
is í brúðkaupsferðina.
„Fyrir þá sem leggja mest upp
úr brúðkaupsferðinni þá getur
það verið góður kostur að giftast
hér á Arlanda,“ sagði talsmaður
flugvallarins, Helena Miller.
Munu flestar athafnir fara fram
að sumarlagi eða í desember í
tengslum við ferðir til landa í
Asíu.
Flugstöðvar-
brúðkaupin
æ vinsælli
UNDIR miðnætti í gær höfðu hátt í
20.000 einstaklingar tekið þátt í
undirskriftasöfnun ungliðasamtaka
stjórnmálaflokkanna, Stúdentaráðs
Háskóla Íslands, námsmanna-
samtaka og fleiri samtaka ungs
fólks, þar sem skorað er á blaða-
menn og ritstjóra DV að endur-
skoða ritstjórnarstefnu sína og
sýna ábyrgð og virðingu í umfjöllun
um menn og viðkvæm málefni.
Undir þetta tóku formenn allra
þingflokka í áskorun sem send var
fjölmiðlum.
Undirskriftasöfnunin hófst kl. 11
í gærmorgun og fyrstu tólf klukku-
stundirnar, sem hún stóð, skrifuðu
nærri 25 manns á vefinn á mínútu
hverri. Um skeið annaði vefþjónn-
inn ekki álaginu, en þá voru skrán-
ingar um 60 á mínútu.
20.000
skora á DV
Stokkhólmur. AFP. | Kóngulær eiga það til að gera sér híbýli í mannanna
bústöðum. Það bar hins vegar svo við nýverið í Svíþjóð að kónguló ein
tók sér bólfestu í eyra konu nokkurrar – og hafðist þar við í 27 daga!
Frá því var sagt í Expressen í gær að kóngulóin hefði komið sér mak-
indalega fyrir í eyra konunnar á meðan hún svaf; en konuna rak minni
til þess að hún hefði séð kónguló í rúmi sínum í nóvember, heilum 27
dögum áður en skordýrinu var skolað út úr eyra hennar.
Konan mun fyrst hafa orðið var við óþægindi af völdum kóngulóar-
innar þegar hún fékk það sem hún taldi vera hellu fyrir eyranu. Gaf hún
sér þá að umtalsverður eyrnamergur hefði myndast. En þegar konan
heyrði hljóð er minnti hana á „klór“ eða „krafs“ skundaði hún í apótek
og fjárfesti þar í hreinsivökva. Og þegar hún síðan notaði vökvann skol-
aðist kóngulóin út úr eyranu, sem fyrr segir.
Með kónguló í eyranu
Viðskipti, Íþróttir og Málið