Morgunblaðið - 12.01.2006, Síða 2
2 FIMMTUDAGUR 12. JANÚAR 2006 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
MIÐLÆG GATNASTÝRING
Í bígerð er umfangsmikil end-
urbót á stjórn umferðarflæðis á höf-
uðborgarsvæðinu með því að koma á
miðlægri tölvustýringu fyrir um-
ferðarljós. Talið er að nýja kerfið
muni greiða fyrir umferð og minnka
mengun. Gert er ráð fyrir að kostn-
aður verði á milli 100 og 150 millj-
ónir.
Íbúar eru slegnir
Maðurinn, sem svipti sig lífi á Ísa-
firði í fyrradag, skildi eftir bréf til
ættingja sinna, þar sem hann ber af
sér sakir um kynferðisofbeldi en
segist ekki geta staðið undir atlögu
fjölmiðla. Sóknarprestur á Ísafirði
segir fána víða blakta í hálfa stöng
og íbúar séu slegnir sem víðar.
Stjórn Blaðamannafélags Íslands
samþykkti ályktun í gær þar sem
segir ótækt að DV fari eftir eigin
siðareglum, þar sem þær stangist á
við siðareglur Blaðamannafélagsins.
Stjórn Dagsbrúnar hf., móðurfélags
365 prentmiðla, sem gefur m.a. út
DV, mun ræða málefni DV á fundi á
morgun.
Valdabarátta í Úkraínu
Viktor Jústsjenkó, forseti Úkr-
aínu, sagði í gær að brottrekstur rík-
isstjórnar landsins, sem samþykktur
var af meirihluta úkraínska þingsins
í fyrradag, stæðist ekki stjórnarskrá
landsins. Hann segir andstæðinga
hans vera að reyna að valda upp-
lausn í aðdraganda þingkosninga.
1,4 milljarða kröfur
Lýstar kröfur í þrotabú Slipp-
félagsins á Akureyri nema um 1,4
milljarða króna. Á skiptafundinum
komu fram nokkur mótmæli um af-
stöðu skiptastjóra til nokkurra
krafna auk þess sem mikið var rætt
um aðdraganda gjaldþrotsins og
hvort eignir hefðu verið rýrðar.
Y f i r l i t
Í dag
Fréttaskýring 8 Umræðan 32/38
Úr verinu 12 Bréf 38
Erlent 14/16 Minningar 38/43
Minn staður 18 Hestar 47
Höfuðborgin 20 Myndasögur 48
Akureyri 20/21 Dagbók 48/51
Suðurnes 21 Velvakandi 49
Austurland 22/23 Staður og stund 50
Landið 22/23 Leikhús 52
Daglegt líf 24 Bíó 54/57
Neytendur 25/27 Ljósvakamiðlar 58
Menning 28, 52/57 Veður 59
Forystugrein 30 Staksteinar 59
* * *
Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Innlendar fréttir frett@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Erlendar fréttir Ásgeir Sverrisson, fréttastjóri, asv@mbl.is
Viðskipti vidsk@mbl.is Björn Jóhann Björnsson, fréttastjóri, bjb@mbl.is Úr verinu Hjörtur Gíslason, fréttastjóri, hjgi@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Orri Páll Ormarsson, ritstjórnarfulltrúi, orri@mbl.is Inga
Rún Sigurðardóttir, ingarun@mbl.is Umræðan|Bréf til blaðsins Magnús Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is Guðlaug Sigurðardóttir, gudlaug@mbl.is Sveinn Guðjónsson, svg@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson
Dagbók|Kirkjustarf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp|Sjónvarp Auður Jónsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
!
"
#
$
%
&
'() *
+,,,
LANDSSAMBAND lögreglumanna
mótmælir harðlega fyrirliggjandi
frumvarpi til breytinga á umferðar-
lögum og telur það geta haft slæm
áhrif á löggæslumál á Íslandi. Sam-
kvæmt frumvarpinu er starfsmönn-
um Vegagerðarinnar m.a. veitt
heimild til að stöðva ökutæki og
sinna margþættu eftirliti með öku-
tækjum og ökumönnum.
Þá er jafnframt gert ráð fyrir að
gruni starfsmenn Vegagerðar við
umrætt eftirlit að ótilgreind alvarleg
brot hafi átt sér stað sé þeim heimilt
að banna frekari för ökutækis til að
hindra áframhaldandi brot þar til
lögregla kemur á vettvang.
„Ekki þarf að velkjast í vafa um
það að með þessari breytingu á um-
ferðarlögum mun starfsmönnum
Vegagerðar verða veitt víðtækt lög-
regluvald og illskiljanlegt hvernig
tillögur að svo vanhugsuðum laga-
breytingum komi til,“ segir m.a. í yf-
irlýsingu Landssambands lögreglu-
manna.
Að sögn Páls E. Winkel, fram-
kvæmdastjóra Landssambands lög-
reglumanna, hefur félagið ekki sent
samgönguráðuneytinu athugasemd-
ir vegna frumvarpsins, þar sem fé-
lagið fékk ekki frumvarpið til um-
sagnar. Segir Páll það mjög
undarlegt í ljósi þess að félagið fær
öll frumvörp til umsagnar er varða
lögreglumál í landinu.
Þá bendir LL á að forsvarsmenn
ýmissa fyrirtækja sem frumvarpið
varðar, hafi haft samband við LL og
lýst eindreginni andstöðu við fyrir-
hugaða skipan mála. Telja þeir sig
eiga rétt á að faglegu eftirliti sé sinnt
af lögreglu en ekki ófaglærðum
starfsmönnum Vegagerðar. LL er
kunnugt um að forsvarsmenn ýmissa
fyrirtækja á Norðurlandi hafi safnað
tæplega 200 undirskriftum þar sem
ætluðum breytingum er mótmælt.
Landssamband lögreglumanna mótmælir breytingum á umferðarlögum
Telja frumvarpið færa vega-
gerðarmönnum lögregluvald
„ÞETTA var fallegur steinbogi og einn af þeim
stöðum sem ferðamenn fóru að skoða í Vest-
mannaeyjum. Nú er hann horfinn, hvað sem tekur
við,“ sagði Karl Gauti Hjaltason, sýslumaður í
Vestmannaeyjum, í samtali við Morgunblaðið.
Hann var á ferð á austurströnd Heimaeyjar
ásamt yfirlögregluþjóninum í Eyjum fyrr í vik-
unni er þeir uppgötvuðu að steinbogi sem prýtt
hefur austasta hluta Nýjahraunsins í Heimaey,
sem rann í gosinu 1973, var horfinn. Það hefur
gerst um helgina eða einhvern tíma í síðustu viku,
því meðfylgjandi mynd var tekin af steinboganum
29. desember síðastliðinn. Þá stóð boginn eins og
sést. Hin myndin sýnir staðinn um tíu dögum síðar
eða í byrjun vikunnar, en þá er steinboginn með
öllu horfinn og hafði látið undan ágangi sjávarins.
Karl Gauti sagði að það hefði mikið brotnað úr
nýja hrauninu á Heimaey undanfarnar vikur.
Hann hefði ekki séð svona miklar breytingar áð-
ur, enda hefðu verið svakaleg veður í vetur með
miklum sjógangi og roki.
Morgunblaðið/Sigurgeir
Steinboginn í Eyjum fallinn
Steinboginn var myndarlegur og er staðurinn óneitanlega sviplausari nú þegar hann er horfinn í brimið.
FRÍÐA Björk Ingvarsdóttir blaða-
maður hefur verið ráðin ritstjórnar-
fulltrúi menningar á ritstjórn Morg-
unblaðsins. Orri
Páll Ormarsson,
sem gegnt hefur
starfi ritstjórnar-
fulltrúa undan-
farin fimm ár, fer
að eigin ósk til
annarra starfa á
ritstjórninni.
Fríða Björk er
45 ára. Hún er
stúdent úr Verzl-
unarskóla Ís-
lands, lauk BA-prófi í almennri bók-
menntafræði og ensku frá Háskóla
Íslands og MA í bókmenntum frá
University of East Anglia. Hún
stundaði auk þess nám í brezkum
bókmenntum við Centre Univers-
itaire de Luxembourg í eitt ár. Hún
hefur unnið við leikhús, kvikmynda-
Ráðin ritstjórnar-
fulltrúi menningar
Fríða Björk
Ingvarsdóttir
gerð, þáttagerð fyrir útvarp hjá BBC
og RÚV, sem þýðandi hjá utanrík-
isráðuneytinu og sem stundakenn-
ari/aðjúnkt við Kennaraháskólann
og Háskóla Íslands. Hún hefur starf-
að á Morgunblaðinu frá árinu 2000.
Fríða Björk hefur m.a. þýtt skáld-
sögurnar Hestaskálina eftir Graham
Swift, sem kom út hjá Máli og menn-
ingu árið 1998, Glerhjálminn eftir
Sylviu Plath sem kom út hjá Sölku
árið 2003 og lauk nýverið við þýðingu
á þriðju skáldsögunni, sem koma
mun út hjá Sölku á þessu ári.
Fríða er gift Hans Jóhannssyni
fiðlusmíðameistara og eiga þau tvö
börn.
Ritstjórnarfulltrúi Lesbókar
Þröstur Helgason, sem undanfar-
in fimm ár hefur gegnt starfi um-
sjónarmanns Lesbókar á menning-
arritstjórn Morgunblaðsins, verður
nú ritstjórnarfulltrúi Lesbókar.
RÍKISSAKSÓKNARI hefur ákært
tvo menn fyrir barnaklám í að-
skildum málum en þeim er gefin að
sök varsla og dreifing á barnaklámi.
Í öðru tilvikinu lýtur sakarefnið að
66 klámljósmyndum og 6 stuttum
myndbandsskeiðum sem lagt var
hald á við rannsókn málsins. Kemur
hinn ákærði fyrir dóm 20. janúar
þar sem þingfesting málsins frá 10.
janúar frestaðist vegna forfalla
hans. Um er að ræða karlmann um
sextugt. Í hinu tilvikinu er um að
ræða karlmann á þrítugsaldri sem
gefin er að sök varsla og dreifing á
barnaklámi. Hjá honum fundust 798
ljósmyndir og 61 myndbandsskeið.
Ákæruvaldið krefst refsingar yfir
ákærðu fyrir brot á hegning-
arlögum en allt að tveggja ára fang-
elsi liggur við brotum sem varða
barnaklám.
Ákærðir fyrir barnaklám
GERA má ráð fyrir að ríkið greiði
niður um helming lánsfjárhæðar
meðalnámsláns á lánstíma þess, en
ríkið greiðir niður vexti námslána. Þá
er kostnaður við hvern og einn há-
skólanema um 600 þúsund kr. á ári
eða um 1,8 milljónir kr. á þriggja ára
námstíma. Kostnaður vegna fram-
haldsskólanema er einnig um 600
þúsund kr. á ári eða um 2,4 milljónir
kr. samanlagt á fjögurra ára náms-
tíma.
Þetta kemur meðal annars fram á
rikiskassinn.is, sem er vefur sem
haldið er úti af fjármálaráðuneytinu
með ýmsum upplýsingum um meg-
inatriði í ríkisrekstri og efnahagsmál-
um. Vefurinn hefur nú verið uppfærð-
ur miðað við ríkisreikning 2004 og eru
þar meðal annars sýnd dæmi um
kostnað við ýmsa starfsemi ríkisins
og framlög til ýmissa málaflokka, svo
sem vegna menntamála og menning-
ar, landbúnaðar, samgangna og heil-
brigðismála. Tekið er fram að neðan-
greindur útreikningur sé meira
gerður til gamans og sé fyrst og
fremst ætlaður til þess að veita inn-
sýn í kostnað við þjónustu ríkisins.
Fram kemur meðal annars að
kostnaður vegna allra framhalds-
skóla landsins er um 9,5 milljarðar á
ári eða um 33 þúsund kr. á hvern
landsmann.
Heildarframlög ríkisins vegna
landbúnaðarmála á árinu 2006 nema
8,5 milljörðum króna að því er segir á
vefnum eða 28 þúsund kr. á hvern
landsmann.
Þá kemur fram að ríkið greiðir um
2.400 kr. með hverjum sýningargesti
á ballettsýningu, hver aðgöngumiði á
tónleika Sinfóníuhljómsveitar Ís-
lands kosti tæpar 11 þúsund kr. og að
þar af greiði gestir um 1.600 kr.
vegna miðans, að kostnaður á hvern
sýningargest í Þjóðleikhúsinu hafi
verið um 9 þúsund kr. og að til jafn-
aðar hafi hver þeirra greitt um 2.400
kr. fyrir þjónustu leikhússins og að
kostnaður á hvern gest á óperusýn-
ingu hjá Íslensku óperunni hafi num-
ið um 28.800 kr. á hvern gest.
Þá kemur fram að kostnaður vegna
hjartaþræðingar er að meðaltali um
200 þúsund kr. á hvern sjúkling, að
meðalkostnaður við hverja fæðingu
er um 108 þúsund kr. og að meðal-
kostnaður við mjaðmakúluaðgerð var
um 700 þúsund kr. á hvern sjúkling.
Ýmsum upplýsingum um ríkisútgjöld
er haldið saman á rikiskassinn.is
Ríkið greiðir niður
um helming
meðalnámsláns