Morgunblaðið - 12.01.2006, Blaðsíða 4
4 FIMMTUDAGUR 12. JANÚAR 2006 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Viltu hætta að reykja?
Ókeypis aðstoð
ÆTTUM
SAMAN
800 6030
Reyksíminn
UNDIR miðnætti í gær höfðu nærri
20.000 einstaklingar tekið þátt í
undirskriftasöfnun ungliðasamtaka
stjórnmálaflokkanna, Stúdentaráðs
Háskóla Íslands, námsmannasam-
taka og fleiri samtaka ungs fólks,
þar sem skorað er á blaðamenn og
ritstjóra DV að endurskoða rit-
stjórnarsefnu sína og sýna ábyrgð
og virðingu í umfjöllun um menn og
viðkvæm málefni. Jafnframt eru
eigendur og útgefendur blaðsins
minntir á þá samfélagslegu ábyrgð
sem fylgi því að gefa út fjölmiðil.
Í gær sammæltust fyrrgreindir
aðilar um að hafa heimasíður sínar
lokaðar milli klukkan 11 og 14 í
mótmælaskyni við það sem sögð er
vera óábyrg ritstjórnarstefna DV
og ítrekað skeytingarleysi sem ein-
kenni umfjöllun blaðsins um menn
og viðkvæm málefni.
Þau samtök sem að þessum að-
gerðum standa eru Deiglan.com,
Samband ungra sjálfstæðismanna,
Ungir jafnaðarmenn, Stúdentaráð
HÍ, , Múrinn.is , Samband ungra
framsóknarmanna, Tíkin.is, Ung
frjálslynd, Heimdallur, Ung vinstri-
græn, Vaka, Röskva og H-listinn.
Formenn þingflokka á Alþingi
taka undir ályktun ungliðahreyfinga
stjórnmálaflokkanna. Þetta kemur
fram í áskorun sem þeir sendu fjöl-
miðlum í gær. Í áskoruninni kemur
fram að formennirnir vilja minna
eigendur og ritstjórnir fjölmiðla á
að tjáningarfrelsinu fylgir mikil
ábyrgð og ber að forðast allt, sem
valdið getur saklausu fólki eða fólki
sem á um sárt að binda, óþarfa
sársauka eða vanvirðu, eins og segi
í siðareglum Blaðamannafélags Ís-
lands.
Undir áskorunina skrifa Arn-
björg Sveinsdóttir, Sjálfstæðis-
flokki, Hjálmar Árnason, Fram-
sóknarflokki, Magnús Þór Haf-
steinsson, Frjálslynda flokknum,
Margrét Frímannsdóttir, Samfylk-
ingunni og Ögmundur Jónasson,
Vinstri hreyfingunni – Grænu fram-
boði.
Stjórn Hvatar, félag sjálfstæðis-
kvenna í Reykjavík fordæmir í
ályktun harðlega vinnubrögð DV.
„Það er ekki spurning að tjáning-
arfrelsið er ekki ofar friðhelgi
einkalífsins í máli sem þessu þar
sem sekt hefur ekki verið sönnuð.
Það er í valdi dómstóla okkar ann-
ars ágæta lands að kveða upp úr-
skurð sem slíkan,“ segir m.a. í
ályktuninni.
Formenn þingflokka og fjölmörg samtök ungs fólks álykta um umfjöllun DV
Blaðamenn og ritstjóri DV
endurskoði ritstjórnarstefnu
STJÓRN Dagsbrúnar hf., móður-
félags 365 prentmiðla, sem gefur
m.a. út DV, mun ræða málefni DV
á fundi á morgun, föstudag. Í
tilkynningu sem borist hefur
Morgunblaðinu frá Þórdísi Sig-
urðardóttur, stjórnarformanni
Dagsbrúnar hf., segir: „Af gefnu
tilefni vill stjórn Dagsbrúnar hf.
koma því á framfæri að á áður
boðuðum stjórnarfundi félagsins,
sem haldinn verður föstudaginn
13. janúar nk., mun stjórn félags-
ins ræða þá umfjöllun sem átt hef-
ur sér stað undanfarna daga um
DV.“
Dagsbrún
ræðir
umfjöllun
um DV
Í BLAÐINU í gær er haft eftir Jón-
asi Kristjánssyni, ristjóra DV, að
hann hafi ekki skoðun á því hvort
fréttaflutningur DV og myndbirt-
ingar hafi valdi því að maður á Ísa-
firði svipti sig lífi í fyrradag. Orðrétt
er haft eftir Jónasi: „Við erum ekki í
dómarahlutverki. Við segjum fréttir
og þær eru réttar. Það stendur í
fréttinni að það sé lögreglurannsókn
og að það hafi verið gerð húsrann-
sókn. Allt þetta er hægt að lesa.“
Í frétt Blaðsins er ennfremur haft
eftir Jónasi að hann telji ekki að
siðareglur hafi verið brotnar og að
DV muni ekki endurskoða frétta-
stefnu sína í framhaldi af þessu til-
tekna máli. „Það er ekkert lagað
með því að segja að rétt sé rangt. Ef
þið segið frá einhverjum og hann
deyr daginn eftir er þá eitthvað
siðalögmál brotið? Það er ekkert
hægt að gefa sér það að þetta sem
gerðist sé bein afleiðing þess sem
stendur í blaðinu,“ er haft beint eftir
Jónasi. Þá er einnig haft eftir hon-
um að DV fjalli mikið um barnaníð-
inga og „ef að við hefðum ekki verið
með þær fréttir hefði t.d. Thelma
Ásdísardóttir ekki getað skrifað
sína bók. Þannig að það vorum við
sem breyttum því að það var farið
að tala um fólk undir nafni. Ef það
hefði ekki gerst hefði hún skrifað
bókina undir dulnefni og ætli menn
sem komu fyrir í bókinni hefðu ekki
líka verið undir dulnefni. Það eru
ekki aðrir fjölmiðlar í því en við og í
því er meiri áhætta fólgin. Ég skil
það vel að aðrir fjölmiðlar telji sig
hafa fundið blóðlyktina þegar þetta
kemur upp á og það er ekki heið-
arlegt,“ er haft eftir Jónasi í Blaðinu
í gær.
Jónas sat einnig fyrir svörum hjá
Sigmari Guðmundssyni og Jóhönnu
Vilhjálmsdóttur í Kastljósi RUV í
gærkvöldi.
Alltaf litið á sannleika og
tillitssemi sem andstæður
Þar sagði Jónas að ástæða væri til
samúðar í garð „þeirra mörgu sem
kærðu manninn, voru að kæra hann
og töluðu við lögregluna og eru með
vitnisburð, sem væntanlega verður
núna fleygt og ekkert gert með.
Hvað verður gert við þennan vitn-
isburð? Hvað verður gert við þetta
unga fólk sem telur sig hafa um sárt
að binda út af þessum manni?“ sagði
Jónas.
„Við skulum sjá þetta mál þegar
upp er staðið. Þetta er æsingur á
líðandi stund, sem stafar af því að
sjónarmið þolenda í málinu hafa
ekki náð fram að ganga. Fjölmiðlar
hafa ekki talað við þolendur málsins
og þeir eru skildir eftir út í kuld-
anum. Það vantar inn í myndina og
ég held að þessir aðilar, sem hafa
haft mjög hátt í gærkvöldi og í dag
myndu ekki hafa haft svona hátt, ef
þeir hefðu vitað um þennan vitn-
isburð,“ sagði hann.
Jónas var í þættinum spurður af
hverju hann stillti sannleika og til-
litssemi upp sem andstæðum. „Af
því að það er bara venjulega gert
þegar menn eru að fjalla um siði í
fjölmiðlum. Það er þarna sem rek-
ast á sjónarmið eins og í lögum og í
stjórnarskrá um annars vegar
einkalíf fólks og hins vegar um upp-
lýsingafrelsi. [...] Það er alltaf litið á
þetta sem andstæður, og það er ekki
hægt að búa til reglur, sem fara
akkúrat að báðu í senn.“
Spurður hvort ekki væri hægt að
fjalla af sanngirni og tillitssemi með
réttum og sönnum hætti um fólk og
láta síðan lögreglu og dómsyfirvöld
sjá um að leiða mál til lykta, svaraði
hann: „Við fjölluðum af sanngirni
um þetta mál og munum gera það
áfram.“
„Við fjölluðum af sann-
girni um þetta mál“
Morgunblaðið/Kristinn
ÞINGMENN og dómsmálaráðherra
voru meðal þeirra sem tjáðu sig á
heimasíðum sínum í gær um forsíðu-
frétt DV sem talið er að hafi leitt til
þess að maður hafi svipt sig lífi.
Björn Bjarnason dómsmálaráð-
herra beindi spjótum sínum að eig-
endum DV í gær. „Áliti mínu á
Baugsmiðlinum DV hef ég lýst oft
hér á síðunni og í dag voru sagðar
sorgarfréttir af afleiðingum forsíðu-
fréttar blaðsins.
Hve lengi ætla eigendur DV að
láta blaðið veitast að varnarlausu
fólki á sinn kostnað?“ spyr ráð-
herrann.
Össur Skarphéðinsson, þingmað-
ur Samfylkingarinnar, skrifar á sína
síðu í gær: „Um hvað skyldi Mikael
Torfason, ritstjóri DV, vera að hugsa
í kvöld? Skrifar Jónas Kristjánsson
leiðara á morgun um hvernig er að
leika Guð og vega menn á skálum
sannleikans? Senda 365-miðlar blóm
og kransa þegar Gísli Hjartarson
verður borinn til grafar á Ísafirði í
næstu viku? Eða verður allt óbreytt
á vígstöðvunum?“
Hjálmar Árnason, þingflokksfor-
maður Framsóknarflokksins ritar
harðorðan pistil vegna málsins á sína
heimasíðu. Hann segir að myndbirt-
ing DV af grunuðum manni hafi
reynst vera dauðadómur án réttar-
meðferðar eða laga. Spyr Hjálmar
hvernig ritstjóri, eigendur, auglýs-
endur og kaupendur blaðsins hygg-
ist axla sína ábyrgð á málinu, hvern-
ig íslenskir neytendur bregðist við
og hvernig blaðamannastéttin hygg-
ist bregðast við.
Hjálmar spyr hvort verið geti að
DV hafi teygt velsæmismörk ís-
lenskrar blaðamennsku lengra en
góðu hófi gegni og þannig haft áhrif
á þau mörk í öðrum fjölmiðlum. „Er
ástæða til að leggja fram formlega
kæru gagnvart gjörningsmönnum
og láta dómstóla meta sekt þeirra?
Svör við þessum spurningum
hljóta að birtast á næstu dögum og
vikum. Sjálfur mun ég gefa mér góð-
an tíma til að leita þeirra – þegar og
ef mér rennur reiðin.“
Ráðherra og þingmenn tjá sig um forsíðufrétt DV
Spurt um ábyrgð
eigenda blaðsins
STJÓRN Blaðamannafélags Íslands
telur ótækt að DV fari eftir eigin
siðareglum, þar sem þær stangist á
við siðareglur Blaðamannafélagsins.
Álítur stjórnin að hverjum blaða-
manni sé skylt að starfa í samræmi
við siðareglur félagsins og leggur
áherslu á að þar komi fram að blaða-
menn skuli sýna fyllstu tillitssemi í
vandasömum málum, forðast allt,
sem valdið geti saklausu fólki, eða
fólki sem á um sárt að binda, óþarfa
sársauka eða vanvirðu.
Þetta kemur fram í ályktun sem
samþykkt var á stjórnarfundi félags-
ins í gærdag. Í ályktuninni er sá at-
burður, sem leitt hefur til umræðu
um vinnubrögð og ritstjórnarstefnu
DV, harmaður.
Arna Schram, formaður BÍ, segir
að fyrir jól hafi stjórn BÍ ákveðið að
hefja endurskoðun á siðareglum fé-
lagsins, m.a. í ljósi breytts fjölmiðla-
umhverfis og áherslna. Segist Arna
vilja reyna til þrautar að ná víðtækri
sátt um siðareglurnar. Komi hins
vegar í ljós, að það takist ekki, gæti
það vissulega gerst að einhver angi
af stéttinni teldi sig ekki geta starfað
í samræmi við endurskoðaðar siða-
reglur.
„Við munum halda áfram að
hvetja til umræðu um siðareglurnar
og hvert íslensk fjölmiðlun sé að
stefna og hvort blaðamenn séu sáttir
við þá stefnu,“ segir Arna.
„Þetta er ekki í fyrsta skipti, sem
stefna blaðsins vekur umræður en
engu að síður fannst stjórninni fullt
tilefni til að nota þetta tækifæri og
minna meðal annars á, að blaðamenn
hafa komið sér saman um siðareglur
og að stjórnin telji að blaðamönnum
sé skylt að starfa í samræmi við þær.
Enn fremur töldum við tímabært
að benda á að rit-
stjóri DV, Jónas
Kristjánsson,
hefur áður lýst
því yfir að rit-
stjórnin fari eftir
eigin siðareglum
þótt þær stangist
á við siðareglur
BÍ og það telji
stjórnin ótækt.
Við álítum að siðareglur BÍ séu þær
reglur sem blaðamenn eiga að fara
eftir og sá rammi, sem miða á við ef
fjölmiðlar vilja setja sér frekari
verklagsreglur,“ segir Arna.
Aðspurð segir hún að ekki sé
heimild í lögum BÍ til að víkja fé-
lagsmanni úr félaginu. Hún bendir
hins vegar á að í 6. gr. siðareglna fé-
lagsins segi að telji stjórn BÍ að
gengnum úrskurði siðanefndar að
brot sé svo alvarlegt að frekari ráð-
stafana sé þörf geti hún borið undir
félagsfund tillögu um vítur á viðkom-
andi blaðamann. Ályktun stjórnar
BÍ er eftirfarandi:
„Stjórn Blaðamannafélags Íslands
harmar þann atburð sem leitt hefur
til umræðu um vinnubrögð og rit-
stjórnarstefnu DV.
Stjórnin leggur áherslu á að í siða-
reglum BÍ stendur að blaðamenn
skuli sýna fyllstu tillitssemi í vanda-
sömum málum, forðast allt, sem
valdið geti saklausu fólki, eða fólki
sem á um sárt að binda, óþarfa sárs-
auka eða vanvirðu.
Ritstjóri DV hefur áður lýst því að
blaðið fari eftir eigin siðareglum þótt
þær stangist á við siðareglur BÍ.
Þetta telur stjórn Blaðamanna-
félagsins ótækt, og álítur að hverjum
blaðamanni sé skylt að starfa í sam-
ræmi við siðareglur félagsins.“
Ótækt að DV fari ekki
að siðareglum BÍ
Arna Schram