Morgunblaðið - 12.01.2006, Side 6
6 FIMMTUDAGUR 12. JANÚAR 2006 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Eigum enn örfá sæti laus í okkar vinsælu golfferðir til
Túnis, þar sem búið og snætt er á fyrsta flokks hótelum og
leikið golf á góðum völlum í þægilegum hita.
Sími 437 2323, fax 437 2321. Netfang fv@fv.is
2006
Bókanir og nánari upplýsingar
hjá Ferðaskrifstofu
Vesturlands í síma 437 2323
eða með netpósti til fv@fv.is.
Brottför 24. febrúar: Verð kr. 149.500
á mann í tvíbýli.
5 sæti laus.
Brottför 7. apríl (páskar): Verð kr. 162.700
á mann í tvíbýli.
9 sæti laus.
Innifalið í verði er flug, flugvallarskattar,
fararstjórn, akstur, gisting á fyrsta flokks
hótelum í 10 nætur með morgunverði og
kvöldverði, 9 vallargjöld á góðum golfvöllum.
Fararstjóri er Sigurður Pétursson golfkennari.
TÖLUR úr árlegri vetrartalningu
fuglaáhugamanna eru nú óðum að
skila sér en um er að ræða talsvert
umfangsmikla rannsóknaraðgerð
sem byggist á starfi sjálfboðaliða um
land allt. Ævar Petersen, forstöðu-
maður Reykjavíkurseturs Náttúru-
fræðistofnunar, heldur utan um taln-
inguna og segir margt áhugavert nú
þegar vera komið fram.
Til að mynda hefur mikið sést af
svartbaki – alla vega á suðvestur-
horninu – sem telst nokkuð óvenju-
legt þegar litið er til þess að mikil
fækkun hefur verið á þeim á und-
anförnum tíu til tuttugu árum og var
hann jafnvel settur á válista árið
2001.
Ævar sagði hins vegar að óvenju
lítið hefði sést af öndum. „Þegar
hver talningamaður á fætur öðrum
segir að það sé lítið af öndum, stokk-
önd og rauðhöfðaönd til dæmis sem
eru algengustu andategundir á land-
inu, þá spyr maður sig hvað sé að.
Hvort það hafi verið lélegt varp í
sumar eða hvort það sé vegna þess
að fuglarnir eru ekki á sjónum þar
sem flest talningasvæðin eru,“ segir
Ævar og áréttar að erfitt sé að slá
einhverju föstu í þessum efnum.
Hann segir að nokkrar vísbendingar
séu fyrir því að um lélegt varpár sé
að ræða en jafnvel hafi verið lítið af
æðarfugli, sem þó er algengasta teg-
undin og um 30 þúsund fuglar hafi
sést það sem af er talningu.
Ævar segir álíka margar tegundir
hafa sést í ár og undanfarin ár, á
milli 80 til 100 tegundir. Margar
þeirra eru sárasjaldgæfar, svokall-
aðir flækingsfuglar, og til að mynda
sáust svartsvanur og ljóshöfðaönd
sem kemur frá Bandaríkjunum.
Vetrartalning Náttúrufræðistofn-
unnar hefur farið fram á hverjum
vetri í rúmlega hálfa öld og eru taln-
ingasvæðin nærri eitt hundrað tals-
ins. Ævar segir markmiðið með taln-
ingunni til að mynda að finna út
hvaða fuglategundir hér er að finna
að vetrarlagi en einnig að kanna tíðni
tegundanna og fjölda fugla. Með því
er hægt að fylgjast með fjölgun eða
fækkun í einstökum stofnum.
Fyrstu tölur úr vetrartalningu Náttúrufræðistofnunar
benda til að minna sé af öndum en undanfarin ár
Lélegt varp í ár hugs-
anlegur sökudólgur
Eftir Andra Karl
andri@mbl.is
Morgunblaðið/Alfons Finnsson
Meira ber á svartbaki í vetrartalningu Náttúrufræðistofnunar en á und-
anförnum árum en árið 2001 var tegundin sett á válista.
GÍSLI Hjartarson,
ritstjóri, rithöfundur
og leiðsögumaður á
Ísafirði, lést á heimili
sínu 10. janúar sl., 58
ára að aldri. Gísli var
fæddur á Ísafirði 27.
október árið 1947.
Foreldrar hans voru
Hjörtur Bjarnason
skipstjóri, látinn 1998,
og Svanfríður Gísla-
dóttir, látin 2003.
Gísli lauk gagn-
fræðaprófi frá Brúar-
landsskóla í Mosfells-
sveit árið 1968 og
stundaði næstu árin nám við í und-
irbúnings- og raungreinadeild
Tækniskóla Íslands og Iðnskóla Ísa-
fjarðar. Gísli gegndi ýmsum öðrum
störfum á yngri árum, m.a. stundaði
hann sjómennsku og var skrifstofu-
stjóri Rafveitu Ísafjarðar 1970–73.
Hann var skólastjóri Grunnskóla
Fellshrepps á árunum 1973–74 og
1976–77 og kennari við Grunnskóla
Þingeyrar 1974–75, Grunnskóla
Súðavíkur 1975–76, Grunnskóla Bol-
ungarvíkur frá 1977–79
og síðar við Grunnskóla
Ísafjarðar. Síðastliðin ár
starfaði Gísli að farar-
stjórn á Vestfjörðum, að-
allega á Hornströndum.
Gísli var varabæjar-
fulltrúi Alþýðubanda-
lagsfélags Ísafjarðar
1970–74, formaður Al-
þýðubandalagsfélags
Ísafjarðar 1969–75 og í
stjórn þess til 1977. Þá
var hann formaður
Æskulýðsfylkingarinnar
á Ísafirði 1968–69 og for-
maður og stjórnarmaður
í Sjálfsbjörg um árabil. Gísli var for-
maður heilbrigðisnefndar Ísafjarðar
1971–74 og formaður hússtjórnar Al-
þýðuhússins á Ísafirði frá 1974.
Gísli var ritstjóri Vestfirðings um
tíma og einnig ritstjóri Skutuls,
blaðs Alþýðuflokksins í Vestfjarða-
kjördæmi, í mörg ár auk þess sem
hann skrifaði í ýmis blöð og tímarit.
Þá gaf hann út bókina 101 vestfirsk
þjóðsaga um árabil.
Gísli var ókvæntur og barnlaus.
GÍSLI HJARTARSON
Andlát
Færeysk-
ur togari
tekinn í
landhelgi
TIL greina kemur að ákæra
skipstjóra eða útgerð færeysks
togara vegna ólöglegra veiða
sem skipið var staðið að rétt
innan við miðlínuna milli land-
anna tveggja í lok síðustu viku.
Samkvæmt upplýsingum
Landhelgisgæslunnar stóð TF
SYN flugvél Gæslunnar skipið
að veiðum en var ekki með
varðskip í nágrenninu til að
færa það til hafnar. Áhöfn
gæsluvélarinnar reyndi árang-
urslaust að ná sambandi við
skipið.
Var ekki með leyfi
í íslenskri lögsögu
Færeyska skipið var ekki
með leyfi til veiða í íslenskri
lögsögu og vanrækti auk þess
tilkynningaskyldu og braut því
gegn lögum um veiðar og
vinnslu erlendra skipa í fisk-
veiðilandhelgi Íslands. Málið
hefur verið sent til Færeyja og
er nú til rannsóknar hjá lög-
reglunni í Þórshöfn. Sam-
kvæmt upplýsingum Gæslunn-
ar er óvíst með framhald
málsins er til greina kemur að
ákæra í málinu og freista þess
að rétta yfir skipstjóra eða út-
gerð láti þau sjá sig innan ís-
lenskrar lögsögu.
STÓRU olíufélögin þrjú hækkuðu í
gær verð á eldsneyti og er ástæðan
sögð vera þróun heimsmarkaðs-
verðs, sem hækkað hafi enn frekar
á undanförnum dögum sökum
spennu í Miðausturlöndum – sem
veldur óróa á olíumörkuðum.
Olíufélagið hf. reið á vaðið í
fyrrakvöld og tilkynnti um hækkun
verðs á miðnætti, verðhækkun á
bensínlítra nam tveimur krónum og
einni krónu af lítra af díselolíu. Ol-
íuverslun Íslands, Olís, sigldi í kjöl-
farið og hækkaði verð til jafns. Eft-
ir verðhækkunina er því algengasta
verð í sjálfsafgreiðslu á bensín-
stöðvum fyrirtækjanna, með fullri
þjónustu, nú 111,7 krónur lítrinn af
95 oktana bensíni og 108,3 krónur á
dísel. Ljóst er að verðmunurinn á
bensín og dísel hefur því aukist
nokkuð.
Skeljungur varð síðasta olíufélag-
ið til að hækka verðið í gær, bens-
ínlítrinn í sjálfsafgreiðslu hækkaði
um 1,80 krónur, verð á díselolíu um
0,50 og lítrinn á svartolíu hækkaði
um eina krónu.
Atlantsolía hafði ekki tilkynnt
hækkun á eldsneytisverði á stöðv-
um sínum í gærkvöldi.
Verð á eldsneyti hækkaði síðast
2. janúar sl. og hefur því hækkað
um ríflega þrjár krónur hjá stóru
olíufélögunum þremur það sem af
er á þessu ári.
Bensínverð hækkar aftur
TILLÖGUR eru uppi í bæjarstjórn
Akraness um að lækka álagningar-
stuðla fasteignaskatts á íbúðarhús-
næði og holræsagjalds um hátt í
20%, að sögn Guðmundar Páls Jóns-
sonar, bæjarstjóra á Akranesi. Til-
lögurnar verða til afgreiðslu á fundi
bæjarráðs í dag, en lagt er til að
álagningarhlutfall fasteignaskatts á
íbúðarhúsnæði lækki úr 0,431% í
0,352% og að álagningarhlutfall hol-
ræsagjalds lækki úr 0,20% í 0,175%.
álagning fasteignaskatts á atvinnu-
húsnæði er óbreytt. Fasteignamat á
Akranesi hækkaði um 20% á hús-
næði í fjölbýli og um 30% á sérbýli.
Um 20% lækkun á Akranesi
ÞEGAR síðdegisskammdegið er hið
svartasta er göngutúr kannski ekki
það fyrsta sem fólki dettur í hug
sem dægrastytting. Útiveran er
hins vegar hin besta skemmtun og
gönguferðir eru eflaust góð líkams-
rækt og hin mesta hollusta. Ekki
getur það heldur skemmt fyrir ef
tunglið lýsir leið manna í skamm-
deginu.
Morgunblaðið/Kristinn
Tunglið lýsir leiðina