Morgunblaðið - 12.01.2006, Page 16
16 FIMMTUDAGUR 12. JANÚAR 2006 MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
Laugarásvegur - Glæsilegt útsýni
Ingólfur G. Gissurarson, lögg. fast.
www.valholl.is
Opið virka daga frá kl. 9.00-17.30.
Vorum að fá í sölu glæsilega 6 herb. íbúð (efri hæð og ris) í
þessu glæsilega húsi ásamt 25 fm bílskúr. Suðursvalir.
Nýtt glæsilegt eldhús, parket og fleira. 4 svefnherb og 2 stofur.
Baðherb. með hornbaðkari. Sólskáli. Glæsilegt útsýni.
Eign á einstökum stað. Verð 34,5 millj.
Moskva. AFP. | Meira en 1.000
Rússar týndu lífi í eldsvoðum,
sem tengdust hátíðarhöldum
vegna áramóta.
Rússneskur embættismaður
greindi frá þessu í gær og sagði
hann að í um það bil 75% tilvika
hefðu eldarnir kviknað af or-
sökum, sem rekja mætti til
mikillar áfengisneyslu.
Frá nýársdegi og til 10.
þessa mánaðar týndu alls 1.008
Rússar lífi í eldsvoðum. Á sjálfa
nýarsnótt fórust 135 manns í
landinu og voru þá meira en eitt
þúsund eldsvoðar skráðir.
Næsta sólarhringinn gengu 184
Rússar á fund feðra sinna af
sömu sökum.
Á degi hverjum farast að
meðaltali um 50 manns í Rúss-
landi í eldsvoðum eða um
18.000 manns á ári.
Mannskæð
áramót
mennum orðavaðli. „Við erum ekki
að biðja hann að hafa einhverja
ákveðna skoðun. Við erum að
spyrja hvort hann hafi yfirleitt ein-
hverja skoðun. Svo virðist þó ekki
vera,“ sagði Schumer.
Þegar Alito var spurður í fyrra-
dag hvort Bush forseti hefði farið
að lögum er hann heimilaði hler-
anir án dómsúrskurðar, sagði
hann, að mannréttindaákvæði
stjórnarskrárinnar ættu við jafnt á
stríðs- og friðartímum. Bætti síðan
við, að samt sem áður yrði að meta
hvert mál með tilliti til ástandsins
hverju sinni.
Ætlar að skoða
málin með „opnum huga“
Í yfirheyrslunum hefur Alito
verið spurður um afstöðu sína til
fóstureyðinga og hafa sumir minnt
á minnisblað, sem hann skrifaði
1985 er hann starfaði fyrir rík-
isstjórn Ronalds Reagans. Í því
segist hann vera „sérstaklega
hreykinn“ af framlagi sínu í málum
þar sem Reaganstjórnin hélt því
fram, að stjórnarskráin virði ekki
rétt kvenna til fóstureyðingar.
DÓMSMÁLANEFND bandarísku
öldungadeildarinnar hefur á síð-
ustu dögum spurt Samuel Alito,
sem George W. Bush, forseti
Bandaríkjanna, hefur útnefnt sem
hæstaréttardómara, spjörunum úr
en við mismikla hrifningu nefnd-
armanna. Repúblikanar, flokks-
bræður hans, láta sér vel líka held-
ur almenn svör hans við flestum
spurningum en demókratar, sem
reyna hvað þeir geta til að finna
höggstað á honum, kvarta yfir því,
að hann hafi ekki ákveðna skoðun á
neinu máli, jafnvel þótt ferill hans
gefi annað til kynna.
Enginn dregur hæfni Alitos sem
lögspekings í efa og það er líka
ljóst, að hann kann þá list margra
stjórnmálamanna að segja sem
minnst og alls ekkert mjög umdeil-
anlegt. Þá fer það heldur ekki á
milli mála, að í yfirheyrslunum í
dómsmálanefndinni hefur hann
reynt að milda nokkuð þá mynd,
sem margir hafa af honum sem
gallhörðum íhaldsmanni.
Demókrötum er samt ekki rótt.
Þeir óttast, að með Alito, sem tek-
ur við af hinum hófsama dómara,
Söndru Day O’Connor, muni hæsti-
réttur, sem er skipaður níu mönn-
um, færast enn til hægri.
Það gæti aftur bitnað á rétti
kvenna til fóstureyðinga og orðið
til að stórauka valdsvið fram-
kvæmdavaldsins. Margir saka ein-
mitt Bush forseta um að hafa tekið
sér meira vald en stjórnarskráin
heimilar.
Alito hefur í svörum sínum reynt
að slá á þennan ótta og þegar Pat-
rick Leahy, oddviti demókrata í
dómsmálanefndinni, spurði hvort
forsetinn mætti sniðganga lögin og
heimila ólögmætt framferði, þá
svaraði Alito þessu til:
„Ekkert er mikilvægara en lögin
og enginn í þessu landi, sama
hvaða stöðu hann gegnir, er yfir
lögin hafinn. Lögin ná til allra.“
Þetta svar þykir dæmigert fyrir
önnur svör hans í yfirheyrslunum
og þau hafa vakið gremju demó-
krata.
Segir þjóðina eiga
skilið betri svör
„Bandaríkjamenn eiga skilið að
fá betri svör frá væntanlegum
hæstaréttardómara,“ sagði Edward
Kennedy og Leahy sagði, að svör
Alitos væru „óskýr og loðin og
stundum í beinni mótsögn við hans
fyrri feril“. Charles Schumer, öld-
ungadeildarþingmaður demókrata í
New York, sagði, að Alito viki sér
undan öllum spurningum með al-
Svör Alitos við þessum spurn-
ingum voru á þá leið, að hann
myndi í fyrsta lagi skoða fyrri úr-
skurði hæstaréttar í þessum mál-
um. Síðan sagði hann, að Roe v.
Wade-úrskurðurinn frá 1973, sem
tryggði rétt kvenna til fóstureyð-
ingar, væri ekki bindandi fyrir
hæstarétt.
„Ég mun skoða þessi mál með
opnum huga og hlusta á allar rök-
semdir,“ sagði Alito.
„Með opnum huga? Nema hvað?
Eigum við kannski eftir að heyra
það frá væntanlegum hæstaréttar-
dómara, að hann ætli að líta á mál-
in lokuðum huga?“ voru viðbrögð
Schumers við svari Alitos.
Þrátt fyrir ónægju demókrata er
ekki búist við, að þeir muni beita
málþófi til að reyna að koma í veg
fyrir, að öldungadeildin samþykki
útnefningu hans. Repúblikanar
hafa þar öruggan meirihluta, 55
þingmenn á móti 45, en samt er
búist við, að það verði mjórra á
munum en þegar útnefning John
Roberts var samþykkt með 78 at-
kvæðum gegn 22 í september síð-
astliðnum.
Saka Alito um skyndi-
legt skoðanaleysi
AP
Nokkur hópur stuðningsmanna Alitos fagnaði honum er hann gekk á fund dómsmálanefndarinnar í fyrradag.
Samuel Alito, sem
George W. Bush Banda-
ríkjaforseti hefur út-
nefnt sem hæstarétt-
ardómara, hefur verið
háll sem áll í yfir-
heyrslum dómsmála-
nefndarinnar og virðist
allt í einu ekki hafa
neina ákveðna skoðun í
umdeildum málum.
Ekki er þó búist við, að
demókratar beiti mál-
þófi til að koma í veg
fyrir skipan hans
Eftir Svein Sigurðsson
svs@mbl.is
Los Angeles. AFP. | Arnold Schwarz-
enegger, ríkisstjóri í Kaliforníu,
var réttindalaus á vélhjól er hann
lenti í árekstri á Harley Davidson-
hjólinu sínu um síðustu helgi. Var
það haft eftir
lögreglunni í
gær.
Sauma þurfti
saman efri vör-
ina á Schwarzen-
egger eftir
árekstur við bíl
en Patrick, 12
ára gamall sonur
hans, sem var
með pabba sínum
á hjólinu, slapp
ómeiddur.
Sara Faden hjá lögreglunni í Los
Angeles sagði, að ökuleyfi rík-
isstjórans gilti ekki um vélhjól og
því hefði hann verið réttindalaus á
hjólinu. Önnur ríkisstofnun, Bif-
reiðastofnunin, sagði hins vegar, að
Schwarzenegger hefði verið í rétti
vegna þess, að ekki þyrfti sérstakt
leyfi auk venjulegs ökuleyfis til að
aka þriggja hjóla vélhjólum. Sat
sonur hans í hliðarvagni en ekki
eru allir á því, að það jafngildi
þriggja hjóla vélhjóli. Verður rík-
islögmaður látinn skera úr um það.
Schwarzenegger kennir öku-
manni bílsins um en gantaðist þó
með það, að hann hefði ekki þorað
að beygja til vinstri því að þá hefðu
repúblikanar, flokksbræður hans,
orðið vitlausir. Hann hefði heldur
ekki þorað að beygja til hægri því
að þá hefði konan hans, sem er
demókrati, orðið brjáluð. Þess
vegna hefði hann keyrt beint áfram
og á bílinn.
Samansaumaður
Schwarzenegger.
Réttindalaus
ríkisstjóri?
VAXANDI útbreiðsla farsíma get-
ur haft slæm áhrif á fjölskyldulíf
karla og enn verri áhrif á fjöl-
skyldulíf kvenna séu þær á vinnu-
markaði, segir á vefsíðu CNN-
sjónvarpsstöðvarinnar bandarísku
nýverið. Eru þetta niðurstöður
vísindamanna í Bandaríkjunum
sem fylgst hafa með um 1.300
manns í tvö ár.
Sagt er frá könnuninni í ritinu
Journal of Marriage and Family.
Ástandinu er lýst sem svo að far-
síminn virki eins og strokleður
sem þurrki út mörkin milli vinn-
unnar og fjölskyldulífsins. Fólk
verði streittara vegna meira álags,
farsíminn hringi ekki bara enda-
laust í vinnunni heldur líka heima.
Einkum eru það karlar í Banda-
ríkjunum sem líta svo á að þeim
beri skylda til að
svara heima þótt
ljóst sé að upphring-
ingin sé vegna starfs-
ins.
En konur sem
vinna úti berjast líka
við þann vanda og
þar að auki þann að
stöðugt er verið að
hringja í þær í
vinnunni vegna við-
fangsefna sem tengj-
ast fjölskyldu og
heimili.
„Barn hringir til
dæmis í móður sína í
vinnunni og segir að örbylgjuofn-
inn hafi sprungið,“ segir Noelle
Chesley, prófessor í félagsfræði
við Wisconsin-háskóla í Milwauk-
ee, en hún stýrði
rannsókninni.
Að sögn Chesley
virðist farsíminn
ýta fremur undir
tjáskipti sem valdi
streitu en jákvæðari
tegundina, til dæm-
is að barni hafi
gengið vel í prófum.
Hún segir að at-
vinnurekendur ættu
að reyna að draga
markvisst úr óþarfa
hringingum í starfs-
menn eftir að
vinnudegi lýkur.
Einnig geti foreldrar á vinnu-
markaði skipst á, tekið að sér að
svara erfiðum símtölum barnanna
til skiptis, t.d. annan hvern dag.
Gemsinn slæmur
fyrir fjölskyldulífið?