Morgunblaðið - 12.01.2006, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. JANÚAR 2006 23
MINNSTAÐUR
sem traustur viðskiptaaðili og við
höfum það líka. Við trúum því að
þetta samstarf muni skapa traust
hjá bændum og að unnt verði að
þróa fyrirtækið áfram og sækja
fram,“ segir Sigurður. Hann segir
að í þeirri samþjöppun sem sé að
verða í þessum rekstri skipti miklu
máli fyrir bændur að fá hraðar
greiðslur og trygga afsetningu af-
urðanna. Komið sé til móts við þessi
sjónarmið með því að tengjast
traustum aðila eignarböndum.
Kjarnafæði hefur á undanförnum
árum keypt um það bil þriðjung af-
urða SAH.
Sigurður segir aðspurður að
rekstur Sölufélagsins hafi gengið
vel undanfarin ár, þrátt fyrir erf-
iðleika á kjötmarkaði, og fjárhags-
staða fyrirtækisins sé traust. Fjár-
hagsstaða félagsins sé því ekki
ástæða þess að gengið er til sam-
starfs við Kjarnafæði.
ÞRJÚ verkefni eru tilnefnd til Eyrarrósarinnar,
sérstakrar viðurkenningar fyrir framúrskarandi
menningarverkefni á landsbyggðinni, sem verður
afhent á Bessastöðum í dag í annað sinn. Verk-
efnin eru Jöklasýning á Höfn í Hornafirði, Kóra-
stefna við Mývatn og LungA – listahátíð ungs
fólks á Austurlandi.
Fram kemur í tilkynningu um tilnefningarnar
að Jöklasýningin er fjölbreytt og metnaðarfullt
verkefni, þar sem stefnt er saman fjölmörgum að-
ilum og stofnunum á sviði vísinda, menningar og
ferðaþjónustu. Sýningin byggist á sérstöðu land-
svæðisins og sögu þess, auk þess sem fremstu vís-
inda- og háskólastofnanir landsins á þessu sviði
koma að uppbyggingu hennar og framkvæmd.
Kórastefna við Mývatn er sögð afar vandað tón-
listarverkefni með mikilli þátttöku innlendra og
erlendra kóra, auk þess sem tónlistarmenn úr ná-
grannasveitum taka þátt í því. Byggt á langri hefð
í byggðarlaginu og framkvæmdin einkennist af
miklum metnaði og þrautseigju. Gott samstarf við
fjölda aðila á svæðinu og sívaxandi þátttaka langt
út fyrir það sýnir að verkefnið á mikla framtíð fyr-
ir sér.
LungA – listahátíð ungs fólks, Austurlandi, er
sögð einkar litrík menningarhátíð ungs fólks í
tengslum við listahátíðina Á seyði. Listrænn
metnaður og afar fjölbreytt dagskrá með þátttöku
innlendra sem erlendra listamanna dregur athygli
að staðnum. Myndlist, tónlist, sirkus og úti-
viðburðir tvinna saman skemmtilega dagskrá,
sem höfðar til fjölmenns hóps heimamanna og
gesta.
Eitt þessara verkefna hlýtur Eyrarrósina, fjár-
styrk að upphæð 1,5 milljón kr. og verðlaunagrip
eftir Steinunni Þórarinsdóttur til eignar og hin
tvö hljóta 200 þúsund króna framlag. Öll verk-
efnin hljóta að auki tíu flugferðir frá Flugfélagi
Íslands. Fyrir réttu ári hlotnuðust Þjóðlagahátíð-
inni á Siglufirði verðlaunin.
Aukið menningarlíf á landsbyggðinni
Verðlaunin veitir Dorrit Moussaieff forsetafrú,
sem jafnframt er verndari Eyrarrósarinnar.
Eyrarrósin á rætur sínar í því að fyrir um
tveimur árum gerðu Listahátíð í Reykjavík,
Byggðastofnun og Flugfélag Íslands með sér
samkomulag um eflingu menningarlífs á lands-
byggðinni.
Markmiðið með Eyrarrósinni er að stuðla að
auknu menningarlífi á landsbyggðinni, auka
kynningarmöguleika einstakra sveitarfélaga og
landshluta og skapa sóknarfæri á sviði menning-
artengdrar ferðaþjónustu.
Menningarverðlaunin Eyrarrósin verða afhent á Bessastöðum í dag
Jöklasýning, Kórastefna og LungA tilnefnd
Neskaupstaður | Kaupmannasamtök
Austurlands afhentu Hollvina-
samtökum Fjórðungssjúkrahússins í
Neskaupstað peningagjöf að upphæð
tæplega 1,8 milljónir sl. laugardag.
Það var Gunnar Hjaltason f.h. Kaup-
mannasamtakanna sem afhenti gjöfina
Stefáni Þorleifssyni fyrrverandi
rekstrarstjóra og núverandi stjórn-
armeðlimi í Hollvinasamtökum Fjórð-
ungssjúkrahússins í Neskaupstað.
Gunnar Hjaltason sagði við það tæki-
færi að kaupmenn í Kaupmanna-
samtökum Austurlands hefðu lengi vel
velt því fyrir sér hvernig þeir gætu
veitt peningi, sem samtökin áttu, í góð-
an farveg sem kæmi öllum Austfirð-
ingum til góða. Með þessari ákvörðun
vonuðu þeir að fjárhæðin nýttist til að
greiða fyrir hluta af sneiðmyndatæki
sem Hollvinasamtökin réðust í að
kaupa á þessu ári. Kaupmannasamtök-
unum hefur nú verið slitið, en aup-
mönnum í félaginu hefur fækkað mjög
hin síðari ár og var það ástæða þess að
því var slitið.
Stefán Þorleifsson sagði að sú
ákvörðun Hollvinasamtakanna að
kaupa sneiðmyndatækið hefði verið
tekin á gamlársdag 2004. Tækið kost-
aði um 20 milljónir króna og nú, ári síð-
ar, eygja samtökin von um að greiða
skuld sína vegna allra þeirra góðu
gjafa sem þeim hafa borist á liðnu ári.
Kaupmenn hætta
Morgunblaðið/Kristín Ágústsdóttir
Peningar í góðan stað Gunnar Hjaltason, f.h. hinna sálugu Kaupmannasamtaka Austurlands, afhenti Stef-
áni Þorleifssyni hjá Hollvinasamtökum FSN peningagjöf.