Morgunblaðið - 12.01.2006, Qupperneq 27
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. JANÚAR 2006 27
DAGLEGT LÍF Í JANÚAR
Við teljum að flestar okkarvörur séu gjaldgengar semhollustuvörur og henti vel
fyrir krakka til að taka með sér til
dæmis sem nesti í skólann,“ segir
Einar Matthíasson, framkvæmda-
stjóri markaðs- og þróunarsviðs hjá
MS, þegar hann er spurður út í
hvaða mjólkurvörur er best að gefa
börnum. „Hollusta mjólkur og
mjólkurafurða sem unnar eru úr
henni er ótvíræð,“ heldur hann
áfram. „Mjólk er næringarríkasta
einstaka fæðutegund sem völ er á.
Hún er ein mikilvægasta uppspretta
próteina úr fæðunni og inniheldur
fjölda vítamína og steinefna. Við
fáum 15–100% af ráðlögðum dag-
skammti 14–18 lífsnauðsynlegra
vítamína og steinefna úr aðeins
tveimur mjólkurglösum. Mjólk er
mikilvægur kalkgjafi og góð upp-
spretta sinks, fosfórs, joðs, A-
vítamíns og fjölmargra B-vítamína.“
Talsvert hefur verið rætt um sykr-
aðar mjólkurvörur að undanförnu og
þegar talið berst að þeim segir Ein-
ar: „Samkvæmt viðmiðum Manneld-
isráðs er talið eðlilegt að allt að 10%
heildarorkunnar sem fólk neytir
daglega komi úr viðbættum sykri
sem segir okkur að sykur sé ekki
hættulegur sem slíkur.“
Björn S. Gunnarsson, matvæla-
og næringarfræðingur hjá MS, segir
að sykur gefi orku en ekki næring-
arefni. „Sykur er orkuríkur og flest-
ar vörur sem innihalda sykur eru
mjög næringarsnauðar, eins og gos-
drykkir t.d.“ Björn segir næring-
argildi í sykruðum mjólkurvörum
ekki skerðast ýkja mikið við sykr-
unina. „Og vegna þess hversu nær-
ingarríkar mjólkurafurðir eru er
ekki hægt að horfa þær sömu augum
og sykraðar og næringarsnauðar
vörur þó að umræðan eigi alveg rétt
á sér.“
Björn og Einar eru sammála um
að vörur eins og hrísmjólk séu ekki
ætlaðar til að halda hollustu að fólki
heldur sé frekar um eftirrétt að
ræða. „Við erum með yfir 200 vöru-
tegundir og hrísmjólkin gefur ekk-
ert endilega rétta mynd af mjólk-
urvörum,“ segir Einar.
Jafnmikill sykur í
jógúrtdós og epli?
Hann nefnir sem dæmi að ein jóg-
úrtdós innihaldi álíka mikinn sykur
og eitt epli. „Við myndum nú seint
segja að epli væri óhollt.“
Einar veltir upp þeirri spurningu
af hverju sykur sé yfirhöfuð í mjólk-
urvörum. „Þetta eru náttúrulega
sýrðar vörur. Sykur er settur í vör-
una til að vinna á móti súrnum svo
að þær verði lystugri.“ Hann segir
að það sé alltaf spurning um jafn-
vægi að finna út hversu mikill sykur
má vera í hverri vöru. „Það er ekki
auðvelt að draga úr sykri í mjólk-
urvörum af því að þetta jafnvægi
milli súrleikans og sætunnar þarf að
vera fyrir hendi.“ Einar segir líka að
börn og unglingar finni meira fyrir
súru bragði og þurfi þess vegna
meira sætt á móti súru til að jafn-
vægi fáist. „Samt sem áður hefur
það verið okkar stefna að auka veru-
lega framboð á vörum án viðbætts
sykurs til að neytendur hafi valkost.
Í nýjungum sem komu frá okkur á
síðasta ári eru 2⁄3 ýmist sykurskertar
eða án viðbætts sykurs og það er
markmið MS að halda áfram að auka
framboð á sykurminni afurðum.“
Einar segir að í öllum vöruflokkum
MS séu valkostir án viðbætts syk-
urs.
Hverju mæla þeir með?
Nýjasta neyslukönnun Manneld-
isráðs sýnir að einungis 6% heild-
arsykurneyslu komi úr mjólkur-
vörum, að sögn Einars, og Björn
minnir á manneldismarkmið í sam-
bandi við mjólkurneyslu. „Fólk á að
neyta a.m.k. 2 mjólkurskammta á
dag. Þar á meðal mætti gjarnan vera
venjuleg mjólk, léttmjólk eða jafnvel
nýmjólk, þá kannski frekar hjá yngri
börnum, undanrenna eða dreitill.
Ostar tilheyra líka þessum flokki.
Svo mætti alveg vera þarna líka ein-
hver jógúrt, skyr eða AB-mjólk.
Gerlarnir í sýrðu mjólkurvörunum
eru nefnilega heilnæmir. AB-
mjólkin og LGG eru því afurðir sem
hægt er að mæla með í því sam-
bandi.“
Einar bendir á að kalk sé talið
mikilvægt í forvörnum gegn bein-
þynningu. „Um 65–70% alls kalks
sem við neytum fáum við úr mjólk-
urvöruflokknum. Einnig hafa stórar
rannsóknir sýnt fram á að magrar
mjólkurvörur geti haft verndandi
áhrif á háþrýsting,“ segir hann og
nefnir sem dæmi DASH-rannsókn-
ina bandarísku.
Einar segir jafnframt að nýlegar
rannsóknir hafi sýnt að þeir sem
neyta mjólkur eigi oft auðveldara
með að halda þyngdinni í skefjum.
„Líklega hefur kalkið í mjólkinni
þessi áhrif með því að binda fitu
þannig að fituupptaka minnkar,
rannsóknir hafa líka sýnt að mjólkin
virðist hafa áhrif á fituefnaskipti lík-
amans, þ.e. brennslu fitunnar. Það
hefur líka verið sýnt fram á að þeir
sem neyta mjólkurvara neyta minna
af sykrum að jafnaði.“
NEYTENDUR | Mjólkurvörur eru nauðsynlegar og mjólk virðist hafa áhrif á fituefnaskipti líkamans
Ekki auðvelt að minnka
sykur í mjólkurvörum
Morgunblaðið/Golli
Björn S. Gunnarsson og Einar Matthíasson hjá MS segja að minnkandi
mjólkurneysla sé mikið áhyggjuefni.
Morgunblaðið/Ómar
Hollusta mjólkurvara er ótvíræð
og neysla réttu afurðanna öllum
nauðsynleg.
Eftir umræður um sykraðar mjólkurvörur þótti vel
við hæfi að finna út hvaða mjólkurafurðir eru best-
ar til neyslu. Sigrún Ásmundar fór og hitti Björn S.
Gunnarsson og Einar Matthíasson hjá MS og þeir
höfðu ýmislegt gott um þessar afurðir að segja.
sia@mbl.is
GEYMSLA MATVÆLA | Grænmeti og ávextir
NÝTT grænmeti og
ávexti á ýmist að geyma í
kæli eða við mismunandi
hitastig, allt upp í stofu-
hita. Mjög mismun-
andi er eftir teg-
undum hvaða
aðstæður henta best
og einnig getur fram-
leiðslu- og pökkunar-
ástand haft mikið að
segja um geymsluþol
þessara matvæla.
„Mikil aukning hefur
átt sér stað á und-
anförnum árum í sölu á ýms-
um tilbúnum salötum í plast-
umbúðum,“ segir Franklín
Georgsson. „Þetta er viðkvæm vara og ef
hún er ekki geymd í kæli er hætt við að ör-
verufjölgun verði mjög mikil á uppgefnu
geymsluþolstímabili sem haft getur áhrif á gæði og ör-
yggi vörunnar.“
Hann bendir á að ef hráefnið í salatið er ekki nægilega vel þrifið þá fylgi
oft örverur úr jarðvegi og frá vélum og tækjum sem notuð eru við vinnsl-
una. Ef ekki er staðið rétt að framleiðslu og dreifingu þessarar vöru verð-
ur að telja öruggara fyrir neytendur að kaupa salatið óunnið og vinna og
þrífa það sjálfir.
Það er öruggara að
kaupa óunnið salat