Morgunblaðið - 12.01.2006, Side 37
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. JANÚAR 2006 37
UMRÆÐAN
ÁRIÐ 2006 er hafið og hinn 1.
september næstkom-
andi verður settur
tappi í Kára-
hnjúkastíflurnar.
Samstundis byrjar
Hálslón að myndast.
Fyrsta eilífðarblóm-
inu verður drekkt þá
um daginn og svo
fylgja þau öll hin þús-
und á eftir. Svörtum
skugga mun bregða á
íslenska sögu og nátt-
úru. Þjóðin mun
þurfa að takast á við
djúpa sorg og langt
sorgarferli.
Við myndun lóns-
ins horfum við á eftir
ósnortnum víðernum
sem við einu sinni
sóttum okkur inn-
blástur í af virðingu
og stolti, víðernum
sem sýna sérstöðu
okkar og ríkidæmi.
Tákni hreinleika hins
ósnerta verður sökkt,
tákni fegurðar og
víðáttu sem á sér
ekki hliðstæður um
víða veröld.
Nú er veruleikinn sá að ljós-
myndabækur um Ísland og
ímyndaauglýsingar sem laða að
ferðamenn eða kaupendur ís-
lenskra vara, ávarp fjallkonunnar
eða flutningur ættjarðarljóða hef-
ur allt litast af hræsni, innantómu
og hjáróma blaðri sem vekur ein-
göngu ógleðitilfinningu. Kára-
hnjúkavirkjun verður að eilífu
smánarblettur á íslenskri þjóð.
Hin gömlu örnefni
Fyrir nokkrum ár-
um var hart barist
gegn virkjun á Eyja-
bökkum. Hætt var við
þá framkvæmd en á
það skal þó bent að
Eyjabakkasvæðið
raskast mikið af fram-
kvæmdum við Kára-
hnjúka. Ufsarstífla í
Jökulsá á Fljótsdal er
ein af fjölmörgum
stíflum Kára-
hnjúkavirkjunar og
myndar uppistöðulón í
nánd við Eyjabakka.
Með tilkomu hennar
þornar upp röð fimm-
tán stórkostlegra
vatnsfalla en jökuláin
sameinast Jökulsá á
Brú í röri.
Þegar barist var
gegn virkjun á Eyja-
bökkum var bent á þá
staðreynd að á teikni-
borði Landsvirkjunar
lægi fyrir hugmynd
um að blanda Jökulsá
á Brú, Jökulsá í
Fljótsdal og Jökulsá á Fjöllum
saman í röri um Fljótsdal og síðan
áleiðis til sjávar um Lagarfljót. Þá
var tekinn saman langur listi yfir
örnefni staða sem myndu breytast
og skerðast eða hverfa undir vatn.
Þeir myndu breytast vegna jarð-
efnaflutninga, línulagna, stöðv-
arhúsa, vega og annarra mann-
virkja. Að gefnu tilefni höfum við
nú valið 44 örnefni af þeim fjöl-
mörgu sem þetta á við vegna
Kárahnjúkavirkjunar:
Brúarjökull, Búrfellsflói, Desj-
arárdalur, Efra-Jökulsárgil,
Ekkjufellshólmar, Eyjabakkafoss,
Faxi, Folavatn, Gjögurfossar,
Gljúfrakvísl, Grjótá, Hafra-
hvammagljúfur, Háls, Héraðsflói,
Hjalladalur, Hníflafoss, Hölkná,
Hólmaflúðir, Hrakstrandarfoss,
Hreinatungur, Jökla, Jökuldalur,
Jökulsá á Brú, Jökulsá á Dal, Jök-
ulsá í Fljótsdal, Kárahnjúkar,
Kirkjufoss, Klapparlækur, Kleif-
arskógur, Kringilsárrani, Lag-
arfljót, Lindur, Rauðaflúð, Sauðá,
Sauðakofi, Sauðárdalur, Skakki-
foss, Slæðufoss, Snikilsá, Sporður,
Tröllagilslækur, Tungufoss, Töðu-
hraukar, Töfrafoss.
Með Kárahnjúkavirkjun verða
umrædd áhrif orðin að veruleika
fyrir alla þessa staði, þeir munu
breytast, skerðast eða hverfa und-
ir vatn og við munum syrgja örlög
þeirra. Á stórum svæðum verður
afgerandi breyting á sjóndeild-
arhringnum.
Hin nýju ör-nefni
Nú skulum við geyma okkur hin
gömlu örnefni sem við höfum glat-
að en um leið horfast í augi við
hin nýju ör-nefni sem hafa komið í
staðinn. Réttast væri að rista þau
í veggi stíflugarðanna svo þau
megi opinberast öllum þeim sem
áhuga hafa. Grafskriftin gæti litið
svona út:
Frumvarp til laga um virkjun
Jökulsár á Brú og Jökulsár í
Fljótsdal samþykkt á Alþingi,
hinn 8. apríl árið 2002, með 44 at-
kvæðum gegn níu atkvæðum.
Tveir þingmenn sátu hjá en átta
voru fjarstaddir. Þeir sem sögðu
já voru eftirfarandi:
Arnbjörg Sveinsdóttir, Árni M.
Mathiesen, Ásta Möller, Bryndís
Hlöðversdóttir, Drífa Hjart-
ardóttir, Einar K. Guðfinnsson,
Einar Oddur Kristjánsson, Einar
Már Sigurðarson, Geir H. Haarde,
Gísli S. Einarsson, Guðjón Guð-
mundsson, Guðmundur Hall-
varðsson, Guðni Ágústsson, Guð-
rún Ögmundsdóttir, Halldór
Ásgrímsson, Halldór Blöndal,
Helga Guðrún Jónasdóttir, Hjálm-
ar Árnason, Ísólfur Gylfi Pálma-
son, Jóhann Ársælsson, Jóhanna
Sigurðardóttir, Jón Kristjánsson,
Jónína Bjartmarz, Karl V. Matth-
íasson, Kjartan Ólafsson, Kristinn
H. Gunnarsson, Kristján L. Möll-
er, Kristján Pálsson, Lúðvík Berg-
vinsson, Magnús Stefánsson, Mar-
grét Frímannsdóttir, Páll
Pétursson, Pétur H. Blöndal, Sig-
ríður Ingvarsdóttir, Sigríður A.
Þórðardóttir, Siv Friðleifsdóttir,
Sólveig Pétursdóttir, Sturla Böðv-
arsson, Svanfríður Jónasdóttir,
Tómas Ingi Olrich, Valgerður
Sverrisdóttir, Vilhjálmur Egilsson,
Þorgerður K. Gunnarsdóttir og
Össur Skarphéðinsson.
Hin nýju ör-nefni vitna um hug-
myndir og sýn margra íslenskra
þingmanna sem um alla framtíð
bera ábyrgð á þeirri eyðileggingu
sem virkjanaleyfi við Kárahnjúka
hefur í för með sér. Þau munu
vitna um skammsýni þeirra og
stjórnmálalegt bjargarleysi, um
landeyðingu og hversu lítils virði
ómetanleg náttúra er í þeirra
augum. Þau munu vitna um oflæti
þeirra og glópsku og vera
táknmynd stöðnunar og
hugmyndafátæktar. Hin nýju ör-
nefni eiga sér engar rætur í jörð-
inni, ná engri snertingu við hæðir
eða hóla í landslagi, er hvergi að
finna við uppsprettur eða ósa
þessa lands, heldur eru þau eins
og innantómt bergmál einnarskoð-
unar umræðu í þingsal alþingis,
eins og öskur vinnuvélar í kyrr-
látu umhverfi stórbrotinnar nátt-
úru.
Að lokum
Í okkar huga er það því mik-
ilvægt að sem flestir geri sér
grein fyrir því hverjir hinna þjóð-
kjörnu einstaklinga bera end-
anlega ábyrgð á Kárahnjúkavirkj-
un. Hafi þeir sótt umboð sitt til
almennings skal hver og einn
kjósandi skoða hug sinn í því efni.
Höfum það hugfast að þeir sem
nota náttúruna á þennan hátt eru
enn við völd í landinu og munu
með fleiri jáum, nýjum nöfnum
eða með fjarveru sinni úr þingsal
skapa því ný ör og ný ör-nefni í
ókominni framtíð.
Örnefni eða ör-nefni – Hverjir bera
ábyrgð á Kárahnjúkavirkjun?
Alda Sigurðardóttir og
Jón Özur Snorrason fjalla um
örnefni og ábyrgð þingmanna ’Hin nýju ör-nefni erueins og innantómt
bergmál einnarskoð-
unar umræðu í þingsal
Alþingis.‘
Jón Özur Snorrason
Alda er hjúkrunarfræðingur og
myndlistarmaður og Jón Özur er
framhaldsskólakennari.
Alda Sigurðardóttir
HAFNARGÖTU 29 - KEFLAVÍK - SÍMI 421 5099
TOMMY HILFIGER
DÖMU- OG HERRAFATNA‹UR
Útsalan er hafin
Útsalan er hafin
ÞAÐ er einsdæmi í víðri veröld að
löggjafinn hyggist skerða réttarstöðu
barna á jafn víðtækan hátt og for-
sætis- og félagsmálaráðherra ætla
með frumvarpi sínu um réttarstöðu
samkynhneigðra. Frumvarpið varðar
að vísu réttarstöðu samkynhneigðra
en hlutar þess skerða réttarstöðu
barna, þótt sumum
finnist það e.t.v.
skipta minna máli.
Þetta ætla ég að hafi
verið kjarni les-
endabréfs míns sem
birtist í Morg-
unblaðinu þann 11.
desember síðastlið-
inn.
Reynir Þór Egg-
ertsson gagnrýnir
bréf mitt harkalega í
grein sinni í Morg-
unblaðinu þann 17.
desember og sakar
mig um fordóma gegn samkyn-
hneigðum. Hafi það ekki verið ljóst að
í bréfi mínu hafði ég í huga hagsmuni
barna, en ekki gagnrýni á samkyn-
hneigða, þá vil ég skýra mál mitt: Nái
frumvarpið fram að ganga mun lesb-
ískt par geta fengið tæknifrjóvgun
með nafnlausu gjafasæði, og barnið
fær því hvorki fósturföður, né á það
möguleika á að afla sér upplýsinga
um faðerni sitt síðar er það fær
þroska til. Barnið á tvær mömmur en
engan pabba. Hann er hvergi að
finna! Verði frumvarpið að lögum hef-
ur homma- eða lesbískt par einnig
lagaleg réttindi til frumættleiðingar
erlendra barna. Þarna er barnið í
sömu stöðu. Tveir pabbar. Engin
mamma. Hana er hvergi að finna! Ég
óttast að litlu krílunum sem þannig
eru sett í stöðu „tilraunadýra“ í bylt-
ingarkenndri félagslegri tilraun þyki
sárt að eiga ekki mömmu og pabba
eins og hinir skólafélagarnir. Ráð-
herrarnir sem að frumvarpinu standa
mættu spyrja sig hvort þeir vildu að
löggjafinn hefði meinað þeim sem
börnum að eiga bæði föður og móður.
Og gert þeim að alast upp með sam-
kynja foreldrum.
Man einhver eftir gullnu reglunni
úr kristinfræðinni? Allt sem þér viljið
að aðrir menn gjöri yður...
Væri ekki ráð að koma sér niður á
jörðina? Í skýrslu forsætisráðherra
um réttarstöðu samkynhneigðra
kemur fram að engar rannsóknir eru
til um þetta efni: „Eðli málsins sam-
kvæmt eru ekki enn fyrirliggjandi
rannsóknir varðandi ætt-
leidd börn samkyn-
hneigðra foreldra. Rann-
sóknir hafa sýnt að líkur
eru á því að börn samkyn-
hneigðra foreldra verði
fyrir ákveðnu félagslegu
álagi, einkum á fyrri hluta
unglingsára. Vegna
óvissu um sálræna líðan
erlendra ættleiddra
barna, sem skera sig m.a.
frá umhverfi sínu vegna
ólíks uppruna síns,
auk…“ ( bls.7). Með þess-
um rökum hafnaði helm-
ingur nefndarinnar frumættleiðingu
erlendra barna til samkynhneigðra
para. Tæknifrjóvgun til lesbísks pars
höfnuðu sömu aðilar einnig : „...að
þeir hagsmunir barnsins vegi þyngra
að það eigi rétt til að alast upp bæði
með móður og föður frekar en að um
ræði sjálfstæðan rétt einstaklings til
að eignast barn.“ (Bls.7). Af hverju er
við samningu frumvarpsins litið
framhjá málefnalegum rökum helm-
ings nefndarinnar? Liggur pólitískur
metnaður þar að baki? Á að fórna
börnum fyrir atkvæði?
Barnageðlæknir sem sæti á í ætt-
leiðingarnefnd er kallaður fyrir
nefndina og segir aðskilnaðarsár ein-
kennandi hjá ættleiddum börnum,
nefnir tengslarof sem á sér stað við
ættleiðingu á erlendu barni, og ótví-
ræð sálræn áhrif komi fram hjá þeim
öllum að einhverju leyti. Einnig nefn-
ir hann þær aðstæður að barn alist
upp hjá samkynhneigðum foreldrum
sem mögulegan álagsþátt (Bls 78).
Þórhildur Líndal, umboðsmaður
barna, bendir á að kannanir á högum
ættleiddra barna og kjörbarna vanti
með öllu hér á landi. Hún vill ekki sjá
lagabreytingar í þessu efni fyrr en
rannsóknir hafi farið fram.
Í skýrslunni er vitnað til Þórhildar:
„Ættleiðing erlends barns af sam-
kynhneigðu pari kynni að auka enn
frekar á það álag sem leiddi af að-
skilnaði við uppruna sinn,“ (bls. 78).
Þrír sérfræðingar til viðbótar eru
kallaðir fyrir vegna þessa málaflokks,
Fulltrúi dómsmálaráðuneytis í ætt-
leiðingarmálum og fulltrúar Íslenskr-
ar ættleiðingar. Töldu þær ekki tíma-
bært að breyta lögunum í þessum
efnum.
Af hverju ganga forsætis- og fé-
lagsmálaráðherra við samningu
frumvarpsins fram hjá áliti þessara
sérfræðinga sem nefndin leitaði álits
hjá? Pólitískir hagsmunir? Ljóst er
að ekki eru það hagsmunir barnanna
sem ráða för. Í biblíunni er saga af
manni sem byggði hús á sandi.
Í táknmáli biblíunnar og víðar
táknar hús fjölskyldu. Grunneiningu
samfélagsins. Þegar kemur steypi-
regn er betra að byggja á traustum
grunni.
Kapp er best með forsjá. Kapp í
þessu máli kallar á hræðileg siðferði-
leg mistök löggjafans gagnvart börn-
um.
Tilvitnanir eru í skýrslu forsætis-
ráðherra um réttarstöðu samkyn-
hneigðra á pappírsformi, hana má
einnig finna á rafrænu formi á vef for-
sætisráðuneytis undir „eldra útgefið
efni“.
Tilraunir á börnum
Guðjón Bragi Benediktsson
svarar grein Reynis Þórs Egg-
ertssonar um réttarstöðu sam-
kynhneigðra varðandi ættleið-
ingu á börnum
’Kapp er best meðforsjá. Kapp í þessu
máli kallar á hræðileg
siðferðileg mistök
löggjafans gagnvart
börnum.‘
Guðjón B. Benediktsson
Höfundur er heimavinnandi,
þriggja barna faðir.
Fréttir í tölvupósti