Morgunblaðið - 12.01.2006, Qupperneq 39

Morgunblaðið - 12.01.2006, Qupperneq 39
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. JANÚAR 2006 39 MINNINGAR Þegar það var hringt í okkur hinn 12. desember og okkur til- kynnt að hann Ómar mágur minn hefði fallið frá kvöldið áður, þá fylltumst við einkenni- legri lömunartilfinningu. Og núna á annan dag jóla, þar sem ég sit við tölvuna að skrifa þessi fátæk- legu orð, trúi ég því vart að þessi höfðingi sé ekki lengur á meðal okkar. Hann Ómar var einstök mann- gerð, alltaf ljúfur, þægilegur og skemmtilegur í viðmóti. Og þó Ómar hefði alltaf nóg af verkefn- um hafði hann alltaf nægan tíma fyrir mannlegu hliðina, og því fengum við fjölskyldan að kynnast, því hjálpin hans Ómars var ekkert hálfkák. ÓMAR HLÍÐKVIST JÓHANNSSON ✝ Ómar HlíðkvistJóhannsson fædd- ist í Búðardal 10. jan- úar 1946. Hann lést á heimili sínu, Ásbúð 31 í Garðabæ, 11. desem- ber síðastliðinn og var útför hans gerð frá Vídalínskirkju í Garðabæ 21. desem- ber. Stórt skarð hefur verið höggvið í fjöl- skyldu okkar, þar sem hann Ómar var tekinn svona fljótt frá okkur. En eitt getum við huggað okkur við og það er trúin að við eigum eftir að hittast seinna. Elsku Setta mín, Haukur, Helga, Hrafn, Hekla, Freyja og Salka, við vottum ykkur okkar dýpstu samúð. Guð styrki ykkur öll. Með kveðju. Sigurður, Vigdís Helga, Jón Hafdal, Hrefna og Björgvin. Elsku Ómar minn, þín verður sárt saknað. Svo sjaldfundið blóm mun nú lifa hátt í minningum allra og skilja eftir mikið tóm en jafn- framt gleði og hlátur. Ég hef svo mikið fallegt um þig að segja, elsku Ómar minn. Þú gast alltaf komið mér til að hlæja, t.d. þegar þú lýstir dóttur minni sem var tveggja ára þá, þegar hún var að skipa honum Bangsa þínum að sitja og hlusta á meðan hún var að lesa fyrir hann. Þú hafðir svo skemmtilega rödd og talaðir af mikilli sannfæringu. Ég man líka þegar þú sagðir mér að Freyja dóttir þín ætti von á barni og stolt- ið leyndi sér ekki. Síðan töluðum við mikið um nafnið Hlíðkvist og ég sá hvað þú varðst rogginn þeg- ar þú minntist á afastrákinn þinn hann Hrafn Hlíðkvist. Ég vil trúa því að æðri máttur hafi virkilega þurft á þér að halda þarna uppi enda eru örugglega flókin verkefni þar sem þarf að leysa. Annað er ég viss um að svo sterk manneskja eins og þú varst Ómar minn munt alltaf lifa í minn- ingum allra sem þig þekktu. Þú tókst mér alltaf opnum örmum og allri fjölskyldunni minni og fyrir það er ég ævinlega þakklát. Ég bið guð um að vaka yfir fjölskyldu þinni og hjálpa henni í gegnum erfiða tíma. Með söknuð í hjarta, Ómar minn, ætla ég að kveðja þig og færa þér þessa rós að skilnaði: Virðing, von, hreinskilni og hlátur fylgir þér hvar sem þú ert. Góður, göfugur, sterkur strákur verður þú alltaf hvar sem þú ert. Með kveðju. Guðný Sigríður Sigurðardóttir og fjölskylda. Arnkell eða Addi eins og hann var kallaður í hópi okkar kollega hans, var bókbindari að mennt og sonur Guðmundar Gamalíelssonar, bókbindara og bóksala, og Sólveig- ar S. Bergmann. Arnkell hóf bók- bandsnám í Ísafoldarprentsmiðju 1. janúar 1942 og lauk þar námi 1946. Eftir námið fór hann til Danmerkur til að afla sér frekari menntunar í sínu fagi og vann þá hjá bókbands- verkstæðinu Pedersen & Pedersen í Kaupmannahöfn fram á árið 1947. ARNKELL BERGMANN GUÐMUNDSSON ✝ Arnkell Berg-mann Guð- mundsson, bók- bandsmeistari, fæddist í Reykjavík 7. desember 1924. Hann lést á Land- spítalanum fimmtu- daginn 15. desem- ber síðastliðinn og var útför hans gerð frá Áskirkju í Reykjavík 22. des- ember. Ég kynntist Arn- keli fyrst haustið 1947 þegar ég hóf nám í bókbandi hjá bók- bandsvinnustofunni Bókfelli, en hann var þá nýlega byrjaður að vinna þar. Þetta var í miðri jólavertíðinni og unnið var oft frá kl. 8 á morgnana til 11 á kvöldin. Það var al- gengt þá, en þætti nokkuð langur vinnu- tími í dag. Við Addi fengum það verkefni í hendur að raða saman örkum í bækur, eða taka upp sem kallað er á fagmáli. Gengum hvor á eftir öðr- um meðfram arkastöflunum allan daginn, Þetta þótti leiðinleg vinna, en það sem helst þurfti að hafa til að bera við þetta starf var þolin- mæði og létt lund. Þá eiginleika hafði Addi í ríkum mæli. Nú eru það upptökuvélar sem sjá um þessa vinnu. Allt sjálfvirkt, næstum því. Arnkell stóð þó ekki lengi við í Bókfelli, hann vann á næstu árum í flestöllum stærstu vinnustofum bæjarins, Félagsbókbandinu, Hól- um, aftur í Ísafold og síðast í Gut- enberg. Arnkell var ávallt mjög stéttvís maður, mætti vel á fundum félags síns, Bókbindarafélags Íslands, og tók þar oft til máls um menn og málefni. Það fór ekki hjá því að þar nutu sín vel þeir eiginleikar hans, góð rósemi í málflutningi og glað- lyndi. Maður komst alltaf í gott skap þegar Addi tók til máls. Hann tók virkan þátt í störfum fyrir fé- lagið. Hann var í varastjórn 1965 og í trúnaðarráði í mörg ár, en 1977 var hann kjörinn formaður félags- ins. Í hans stjórnartíð gekk Bók- bindarafélagið í Alþjóðasamband bókagerðarmanna (IGF) og Nord- isk Grafisk Union (NGU). Þá fékk Arnkell það vandasama hlutverk í hendur að vinna að sameiningu bókagerðarfélaganna, en þau sam- einuðust 1980 í einu stóru félagi, Félagi bókagerðarmanna. Honum fórst það vel úr hendi og komu mannkostir hans vel fram í því starfi. Um leið og ég vil votta eftirlif- andi konu hans, Huldu Guðmunds- dóttur, börnum hans og öðru vandafólki samúð, vil ég senda þessum gamla starfsfélaga mínum og stéttarbróður þakkarkveðju yfir móðuna miklu og árna honum allra heilla á nýjum tilverusviðum. Svanur Jóhannesson. HAFRÚN HAFSTEINSDÓTTIR ✝ Hafrún Haf-steinsdóttir fæddist í Keflavík 7. janúar 1971. Hún lést á Landspítalan- um við Hringbraut 16. desember síðast- liðinn og var útför hennar gerð frá Fella- og Hólakirkju 22. desember. þína og ég hélt að þetta yrði nú ekki mikið mál og æfði mig í tvo daga. Eftir að hafa keyrt á alla girð- ingarstaura í götunni sá ég að þessi trylli- tæki væru best geymd hjá þér enda þeyttistu um á þessu eins og ekkert væri. Best fannst mér að koma til þín á aðvent- unni, þú varst svo mikið jólabarn. Hjá þér var allt skreytt og fallegt, ég hafði sjálf oft svo lítinn tíma fyrir jól en komst í jólaskap heima hjá þér. Svo liðu árin og samband mismik- ið eins og gengur en alltaf við og við voru leikhúsferðir, húsdýragarður- inn, jeppaferðir, nú eða bara að tala saman. Minningarnar eru margar og gott að eiga þær. Ég kveð þig Kæra vinkona. Það er undarlegt til þess að hugsa að þú sért ekki lengur hér. Þegar þú bættist í vinkvennahópinn var ég nýflutt í mína fyrstu íbúð. Ég bjó þarna ásamt syni mínum og þú áttir son á svipuðum aldri. Við brölluðum margt með strákunum og oft var glatt á hjalla. Þú áttir það til að elda eitthvað gómsætt eða ég gerði vöffl- ur og þú komst með rjómann. Einu sinni lánaðirðu mér línuskautana elsku Hafrún, guð geymi þig og passi börnin þín. Guðbjörg Svava. Mig langar til að skrifa örfá orð, þetta er allt eitthvað svo skrítið. Hafrún og ég kynntumst á Norðfirði um sjö ára aldur, í Ásgarði. Við vor- um góðar vinkonur, brölluðum margt og alltaf var Hafrún svo lífs- glöð. Leiðir okkar lágu hvorrar í sína áttina og minnkaði sambandið á milli okkar. En hún hefur alltaf átt hlut af hjarta mínu, hún var bara svo elskuleg. Stundum átti hún það til að hringja og bara til að athuga með mig. „Hvernig gengur?“ var þá spurt. Dreymdi hana eða var að hugsa um hana og þá hringdi hún. Alltaf söm við sig. Það er svo margt sem ég gæti sagt fallegt um þig, kæra vinkona, en ég vil bara þakka fyrir að hafa þekkt þá manneskju sem þú hafðir að geyma. Takk fyrir okkar stundir þó að þær hefðu mátt verða fleiri. Guð blessi fallegu börnin þín og styrki foreldrana þína. Takk fyrir allt. Jónína (Nonna). Elskulegur sonur minn, bróðir okkar og mágur, GUNNAR HARALDSSON, Ægisgrund 19, Garðabæ, lést á Landspítalanum í Fossvogi fimmtudaginn 5. janúar. Útför hans fer fram frá Garðakirkju föstudaginn 13. janúar kl. 13.00. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vilja minnast Gunnars er bent á Styrktarfélag vangefinna. Haraldur Örn Sigurðsson, Haukur Már Haraldsson, Erla Sigurbergsdóttir, Þóra Haraldsdóttir, Sigurður Haraldsson, Ewa Kurkowska, Haraldur Örn Haraldsson. Útför okkar ástkæru BRYNJU SIGURÐARDÓTTUR, Reynimel 72, sem lést á Landspítalanum við Hringbraut fimmtudaginn 5. janúar, verður gerð frá Grafar- vogskirkju föstudaginn 13. janúar kl. 13.00. Erla Ingadóttir, Húnbogi Þorsteinsson, Erla Inga Hilmarsdóttir, Dagbjartur Eiður Ólafsson, Brynja Rán Eiðsdóttir, Þorfinnur Hilmarsson, Sigurður Sigurðsson, Guðný Björk Hauksdóttir, Þorsteinn Húnbogason, Siv Friðleifsdóttir, Védís Húnbogadóttir, Snorri Bergmann. Ástkær systir og frænka, INGA KRISTÍN ÁGÚSTSDÓTTIR, Sólvangi, Hafnarfirði, áður Reykjavíkurvegi 32, lést á Sólvangi miðvikudaginn 4. janúar sl. Útförin hefur farið fram í kyrrþey. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki Sólvangs fyrir alúð og umhyggju síðustu árin. Árni Ágústsson, Brynja Kolbrún Lárusdóttir, Auðólfur Þorsteinsson, Róbert Róbertsson, Unnur Hrefna Jóhannsdóttir, Þorri Hrafn Róbertsson. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, SIGÞÓRA SIGURÐARDÓTTIR, Fossheiði 60, Selfossi, lést á Heilbrigðisstofnun Suðurlands, Selfossi, þriðudaginn 10. janúar. Útförin verður auglýst síðar. Unnur S. Bjarnþórsdóttir, Þorlákur Marteinsson, Guðrún Bjarnþórsdóttir, Hilmar Þ. Sturluson, Birna Bjarnþórsdóttir, Frans Páll Sigurðsson, barnabörn og barnabarnabörn. Elskulegur faðir okkar, fósturfaðir, tengdafaðir, bróðir, mágur og afi, PÉTUR G. PÉTURSSON heildsali, Grenibyggð 14, Mosfellsbæ, lést á heimili sínu mánudaginn 9. janúar. Jarðarförin fer fram frá Dómkirkjunni þriðjudaginn 17. janúar kl. 13.00. Guðrún Hulda Pétursdóttir, Sigríður Garðarsdóttir, Þormóður Jónsson, Magnús Garðarsson, Ingibjörg Guðmundsdóttir, Ólafur H. Garðarsson, Sigrún Óladóttir, Garðar Garðarsson, Einar Pétursson, Steindór Pétursson, Guðrún S. Grétarsdóttir og barnabörn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.