Morgunblaðið - 12.01.2006, Blaðsíða 42
42 FIMMTUDAGUR 12. JANÚAR 2006 MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
Stuttar stelpulegar
hlátursrokur, húmor,
örlæti, hlýja, þraut-
seigja, vakandi áhugi, samkennd,
tryggð og umfram allt raungóð
kona eru þau orð og hugsanir sem
þjóta um hugann þegar hún Aðal-
björg kveður. Ég vil þakka allar
góðu stundirnar á Hlíðarveginum
þar sem alltaf var slegið upp ekta
sveitaprestkonukaffi með spari-
stelli og meðlæti og umgjörðin var
hlýleg, stofan með útsaumuðu
rokokóstólunum, myndunum, púð-
unum, bogaglugganum, hannyrða-
lampanum með stækkunarglerinu,
heillakarli og fleiri dýrgripum frá
liðinni ævi þar sem Bjarni sat ró-
legur og beið ... í málverkinu yfir
sófanum og hlustaði umburðarlynd-
ur á okkur segja sögur af fólkinu
AÐALBJÖRG S.
GUÐMUNDSDÓTTIR
✝ Aðalbjörg Sig-ríður Guð-
mundsdóttir fædd-
ist á Kirkjubóli í
Norðfjarðarsveit
23. júlí 1921. Hún
lést á Landspítalan-
um 29. desember
síðastliðinn og var
útför hennar gerð
frá Langholtskirkju
4. janúar.
okkar og spjalla um
allt mögulegt því það
var svo gaman að
spjalla við hana Aðal-
björgu.
Svo datt Ýr yfirleitt
inn með blað eða eitt-
hvað handa ömmu
sinni sem sagði að
hún passaði svo vel
upp á sig. Aðalbjörg
fylgdist með stolti og
af vakandi áhuga með
börnum sínum og
barnabörnunum bæði
í smáu og stóru og
þau með henni.
Ég sakna hennar Aðalbjargar og
alls þess sem hún stóð fyrir. Þegar
ég hugsa til stofunnar hennar og
sveitaeldhússins í Kópavoginum
þar sem alltaf er verið að sjóða eitt-
hvað í stórum pottum hugsa ég til
þessar höfðinglegu konu og veit að
hún fer ekki tómhent á góðan stað.
. . .
Skip siglir út Sundin, strandferðaskip.
Það stefnir beint á sólina. Það er á leið til
Sólarinnar með vörur og póst.
(Hannes Pét.)
Guð styrki og leiði fjölskyldu og
alla ástvini Aðalbjargar.
Jónína Óskarsdóttir.
Kæra Hjödda mín.
Loksins ertu búin að
fá hvíldina eftir erfið
veikindi. Edda systir þín stóð eins
og klettur við hlið þér uns yfir
lauk. Ég var svo heppin að kynnast
HJÖRDÍS
INGVARSDÓTTIR
✝ Hjördís Ingv-arsdóttir fædd-
ist 6. júní 1932. Hún
lést á líknardeild
Landspítalans á
Landakoti 19. nóv-
ember síðastliðinn
og var jarðsungin
frá kirkju Óháða
safnaðarins við Há-
teigsveg 29. nóvem-
ber.
þér í gegnum hana.
Ég vann hjá þér um
tíma. Þú varst yndis-
legur vinnuveitandi,
alltaf kát, hress og
skilningsrík.
Edda mín þú hefur
misst mikið. Ég sam-
hryggist fjölskyldunni.
Þegar þú ert sorgmæddur
skoðaðu þá aftur huga þinn
og þú munt sjá að þú grætur
vegna þess sem var gleði
þín.
(Kahlil Gibran.)
Hvíl þú í friði, Hjödda mín.
Þín
Guðný (Gullý).
arnauðsyn í dag. Auk stórheimilis
birtust oft fyrirvaralaust gestir.
Ekkert raskaði ró ömmu. Hún tók
fullan þátt í umræðum um þjóð-
félagsleg efni og án þess að virðast
hafa fyrir því var gestum boðið til
borðs, ætíð var til matur.
Amma mótaði umhverfi sitt og
viðhorf barna sinna. Mikil réttlæt-
iskennd og áhyggjur af því hvernig
lagfæra mætti þjóðfélagið svo þeir
sem minnst máttu sín gætu orðið
bjargálna. Ekki verður hjá því litið
að það voru þessar konur sem öðr-
um frekar lögðu grunninn að þeirri
þjóðfélagsgerð, sem byggð var upp
á síðustu öld. Eiginmenn, synir og
dætur fóru af heimilinu mótuð af
viðhorfum þeirra. Körlum eru svo
reistir minnisvarðar sakir þess að
talið er að þeir hafi komið málum í
höfn. En í viðtölum kemur ætíð
glöggt fram hvað varð til þess að
móta lífsstefnuna. Það heyrir maður
vel hjá pabba og systkinum hans.
Sophus fór að heiman til Reykja-
víkur í byrjun seinni heimstyrjald-
arinnar inn í þá ólgandi hringiðu
sem þar ríkti. Hann var boðberi
þeirra sjónarmiða sem hann ólst upp
við og hafði strax mótunaráhrif á
sínum vinnustöðum. Sophus hafði
kynnst glæsilegri stúlku sem var í
sveit á næsta bæ. Þau tóku saman
og hófu að byggja sér heimili. Hús-
næðisekla var gífurleg í Reykjavík á
þessum tíma. Faðir minn kom suður
nokkru síðar og var tíður gestur hjá
bróður sínum. Þegar foreldrar mínir
tóku saman voru þau á götunni í
orðsins fyllstu merkingu. Áslaug og
Sophus buðu þá foreldrum mínum
eitt herbergi á heimili sínu á Kjart-
ansgötunni. Þar var mitt fyrsta
heimili þar til foreldrum mínum
tókst að leysa úr sínum húsnæðis-
málum. Foreldrar mínir hafa aldrei
getað fullþakkað þennan mikla
greiða.
Sophus og Áslaug bjuggu við mik-
ið barnalán, sem hafa verið ásamt
foreldrum sínum virkir þátttakend-
ur og mótendur í þjóðfélagsupp-
byggingunni. Sophus hafði þann fá-
gætu eiginleika að geta komið
skoðunum sínum á framfæri í örfá-
um setningum. Maður vissi ná-
kvæmlega hvað hann meinti, þó
hann segði ekki nema nokkur orð.
Augun sögðu mikið, mannleg hlýjan
geislaði, en stutt var í glettnina og
jafnvel stríðnina. Gegnheill, traustur
og góður drengur. Þar fór maður
með góða þekkingu á öllum þáttum
þjóðfélagsins, kominn úr grasrót-
inni. Þýðingarmikill hluti þess hóps
sem barðist til aukinna mannrétt-
inda og skóp það þjóðfélag sem við
búum í í dag.
Sophus og Áslaug eiga samhentan
hóp sem víst er að syrgir nú föður,
en ekki síst góðan vin og félaga. Ég
vil fyrir hönd minnar fjölskyldu
þakka Sophusi fyrir góða samfylgd
og við sendum fjölskyldum barna
hans hugheilar samúðarkveðjur.
Guðmundur Gunnarsson.
Þeir falla frá vinirnir. Nú er líka
hann Sophus horfinn á vit feðranna,
traustur og heiðvirður samstarfs-
maður í um hálfan annan áratug og
ávallt sami góði, heilsteypti vinur-
inn. Þótt ég skipti um starfsvett-
vang og við hittumst æ sjaldnar,
hélst sama tryggðin og sama hlýja
vináttan. Hin síðari árin hefur fund-
um okkar fækkað þar sem aldur og
sjúkleiki hafa sett strik í reikning-
inn.
Ég hafði setið í stóli fram-
kvæmdastjóra Almenna bókafélags-
ins um tvö ár þegar við þurftum
1963 að ráða nýjan bókara eins og
starfið var nefnt í þá daga. Allmarg-
ar umsóknir bárust og nokkur vandi
var að finna hver myndi hæfastur til
starfsins. Ég kannaðist ekkert við
þennan mann, sem starfað hafði hjá
sama fyrirtækinu Rafmagni hf sem
gjaldkeri og bókari um 20 ára skeið.
En að lokinni nokkurri eftirgrennsl-
an tók ég ákvörðun um að ráða hann
til starfans. Allar umsagnir sem ég
fékk um Sophus voru á einn veg og
strax þegar hann kom í viðtalið til
mín var ég ekki í minnsta vafa, hér
var kominn rétti maðurinn fyrir Al-
menna bókafélagið, mig sjálfan og
allt samstarfsfólkið. Hann var því
ráðinn á stundinni og var það mikið
lán fyrir okkur öll og fyrirtækið.
Það tók Sophus ekki langan tíma
að kynna sér þau verkefni sem hon-
um voru ætluð og brátt jukust þau
og urðu æ umfangsmeiri og ekki leið
á löngu áður en að þau voru í raun
orðin álíka og störf fjármálastjóra
eru í dag. En Sophus fékk starfs-
heitið skrifstofustjóri enda var ekki
búið að finna upp fjármálastjóra-
heitið um þær mundir, að auki held
ég að jafnhógvær og lítillátur maður
og Sophus hefði ekki kunnað því vel
að bera einhvern nýmóðins titil.
Hann skipti það líka mestu að vinna
verk sín eins vel og hann frekast gat
og stuðla þannig að vexti og við-
gangi Almenna bókafélagsins. Trú-
mennskan og vandvirknin var hon-
um í blóð borin og samviskusemin
kom fram í öllum störfum hans. Allt
átti sinn fasta stað á skrifstofunni
hans, reikningamöppurnar, bók-
haldsbækurnar, samlagningarvélin
og margföldunarvélin, hverskonar
pappírum og skjölum var raðað í
rétta bunka eða skúffur og ritföngin
og blekbyttan og pappírsklemmurn-
ar áttu sinn stað á skrifborðinu, sem
að öðru leyti var autt að loknum
vinnudegi, sem oftsinnis gat verið
býsna langur þegar verkefnin kröfð-
ust þess.Við vorum ekki mörg,
starfsfólkið hjá AB árið 1963, líklega
8–10 talsins, þegar Sophus bættist í
hópinn, en þá var aðsetur okkar að
Tjarnargötu 18, Seinna fluttumst við
um set í nýbyggt húsnæði félaganna
AB og Stuðla hf í Austurstræti 18 en
þar var einnig Bókaverslun Sigfúsar
Eymundssonar sem þá fyrir nokkru
var komin í eigu AB. Rekstur bóka-
útgáfunnar og verslunarinnar gekk
yfirleitt mjög vel og samstarf og
samheldni starfsfólksins var ein-
staklega góð. Auðvitað áraði mis-
jafnlega en þrátt fyrir of mikla fjár-
festingu vegna húsbyggingarinnar í
Austurstræti 18 aðallega árin 1960–
1967 tókst með ómetanlegri hjálp
starfsmanna eins og Sophusar að
sigla í gegnum allar þær þrengingar
klakklaust.
Bókaútgáfa félagsins var frá upp-
hafi í sleitulausum vexti ár frá ári og
kringum 1970 voru árlega gefnar út
um 150 bækur á vegum félagsins.
En þegar líða tók á 9. áratuginn og
þó einkum um 1986 fór að halla
verulega undan fæti fyrir AB og var
rekstur þess mjög erfiður.
Ég og aðrir, sem þekktu Sophus
vel, fundum að hann hafði þessi árin
oft miklar áhyggjur af starfsemi fé-
laganna og rekstrarstöðu þeirra og
greindi ýmsum stjórnendum og vel-
unnurum félagsins frá þeim, en flík-
aði þeim ekki við hvern sem var. Ég
held að menn hafi ekki hlustað nógu
grannt á aðvaranir hans þegar t.d.
farið var í alla bókabúðaútþensluna
1986–1988 þegar félagið opnaði
hverja bókaverslunina af annarri: í
Mjóddinni, Kringlunni og Eiðistorgi
og tók þar að auki á sama tíma í
gagnið nýtt, rándýrt tölvukerfi.
Almenna bókafélagið og Stuðlar
hf voru sameinuð í eitt hlutafélag í
desember 1989 til að lagfæra eig-
infjárstöðuna og reyna að ná betri
arði af rekstrinum, en allt kom fyrir
ekki. Gengið var til nauðasamninga
og nýir athafnamenn tóku við
stjórnartaumunum 1992 og loks var
hið nýja Almenna bókafélag hf úr-
skurðað gjaldþrota 1996. Nú er
gamla, góða félagið horfið af sjón-
arsviðinu. Félagið sem við Sophus
og allir starfsmenn AB unnum fyrir
af heilum hug og brennandi áhuga,
er týnt og tröllum gefið, en það sem
öllum í AB-hópnum svíður hvað sár-
ast verður alltaf sú ótrúlega stað-
reynd að allt bréfa- og skjalasafn fé-
laganna þar á meðal útgáfu-
samningar og fundargerðabækur og
allt bókhald þeirra hefur farið sama
veg, trúlega einhverntíma á síðustu
dögum félagsins.
Nú seinustu árin hefir Sophus átt
við sjúkleika að stríða og ekki er
langt um liðið frá því að elskuleg
eiginkona hans, Áslaug Friðriks-
dóttir skólastjóri, andaðist eftir
langvarandi veikindi. Þetta hafa ver-
ið erfiðir tímar fyrir ástvini þeirra
hjóna. Við Dóra og allt starfsfólk
gamla Almenna bókafélagsins syrgj-
um látinn samstarfsmann og konu
hans og þökkum þeim af alhug vin-
áttu þeirra og tryggð og vottum
innilega samúð öllum börnum
þeirra, fjölskyldum þeirra, ættingj-
um og vinum.
Baldvin Tryggvason.
Enn einn mætur gildisskátinn er
nú „farinn heim“; skammt er orðið
stórra högga í milli hjá okkur fé-
lögum þínum í St. Georgsgildinu í
Reykjavík. Söknuður ríkir í hjörtum
okkar vina þinna þar. Þótt heilsufar
þitt hafi ekki leyft að þú mættir mik-
ið á fundi okkar upp á síðkastið,
varst þú aldrei fjarri hugum okkar.
Hógvær og hlý nærvera þín var okk-
ur mikilvæg. Þú varst skáti af innstu
sannfæringu, trúðir einlæglega á
gildi og hugsjónir skátans, og hag-
aðir lífi þínu í fullu samræmi við það.
Ljúfar eru okkur hjónum minn-
ingarnar um þau fjölmörgu skipti er
þið, Áslaug heitin og þú, buðuð okk-
ur heim eða í sumarbústaðinn aust-
ur í Skyggnisskógi. Fallegt og
smekklegt heimilið, góður matur,
góður félagsskapur og hjartahlýja
léðu einstaka umgjörð um fjálgar og
eftirminnilegar umræður. Víða var
þar komið við; þú varst einlægur og
mjög ákveðinn sjálfstæðismaður og
lást ekki á þeim skoðunum þínum:
Hógvær varstu í öllum málflutningi;
skopskyn þitt beitt og athugasemdir
þínar oft eilítið kaldhæðnar, en aldr-
ei voru þær særandi.
Einnig minnist ég með ánægju og
söknuði tímans, er við áttum saman
sem bridge „makkerar“ í Krumma-
klúbbnum. Það var einstaklega ljúft
að spila með þér, aldrei heyrðist af
þínum vörum hnjóðsyrði, þótt
„makkerinn“ væri oft klaufskur í
spilamennskunni. Af þér lærði ég
margt – hafðu þakkir fyrir.
Ég færi fjölskyldu Sophusar inni-
legar samúðarkveðjur frá gildisskát-
um Íslands og alveg sérstaklega frá
Reykjavíkurgildinu. Okkur er þakk-
læti efst í huga, kæri Sophus. Við
þökkum þér félagsskap þinn og vin-
áttu, þökkum framlag þitt til skáta-
hreyfingarinnar og minningarnar
góðu sem þú skilur eftir hjá okkur
öllum. Kæru aðstandendur, minnist
þess að af kaleik sorgarinnar verða
einhvern tíma að bergja allir þeir
sem lífinu lifa. Án dauða er ekki líf.
Hafið einnig í huga að Guð er með
okkur öllum í gleði og í sorg. Reynið
að muna þennan sannleik, er sorgin
nístir harðast.
Guð sé með ykkur öllum.
Einar Tjörvi Elíasson,
gildismeistari.
SOPHUS A.
GUÐMUNDSSON
Mig langar að minn-
ast Páls Ólafssonar
sem var minn fyrsti
vinnuveitandi. Páll
reyndist mér alltaf vel og var sann-
gjarn og hinn besti yfirmaður. Enda
var hann af gamla skólanum og lík-
aði mér það afar vel.
PÁLL ÞÓRIR
ÓLAFSSON
✝ Páll Þórir Ólafs-son fæddist í
Reykjavík 6. nóvem-
ber 1920. Hann and-
aðist á Hrafnistu í
Hafnarfirði 5. des-
ember síðastliðinn
og var útför hans
gerð frá Áskirkju
13. desember.
Á smurstöðinni
Klöpp, þar sem ég fet-
aði mín fyrstu spor á
vinnumarkaðinum, var
góður félagsskapur og
starfsandi. Margar
stundir fyrir utan vinnu
á heimili hans koma
upp í hugann. Hann var
tengdafaðir Snæju
systur minnar og þang-
að var alltaf gott að
koma. Ég þakka þær
stundir sem ég átti með
Páli og kveð hann héð-
an úr Barentshafinu með virðingu.
Sendi mínar innilegustu samúðar-
kveðjur til aðstandenda.
Sigurður Heiðar Agnarsson.
Morgunblaðið birtir minningargrein-
ar alla útgáfudagana.
Skil Minningargreinar skal senda í
gegnum vefsíðu Morgunblaðsins:
mbl.is (smellt á reitinn Morgunblað-
ið í fliparöndinni – þá birtist valkost-
urinn „Senda inn minningar/afmæli“
ásamt frekari upplýsingum).
Skilafrestur Ef birta á minningar-
grein á útfarardegi verður hún að
berast fyrir hádegi tveimur virkum
dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á
mánudegi eða þriðjudegi). Ef útför
komi aðeins fram í formálanum, sem
er feitletraður, en ekki í minning-
argreinunum.
Undirskrift Minningargreinahöfund-
ar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín
en ekki stuttnefni undir greinunum.
Myndir Ef mynd hefur birst í til-
kynningu er hún sjálfkrafa notuð
með minningargrein nema beðið sé
um annað. Ef nota á nýja mynd er
ráðlegt að senda hana á myndamót-
töku: pix@mbl.is og láta umsjónar-
menn minningargreina vita.
votta þeim sem kvaddur er virðingu
sína án þess að það sé gert með
langri grein. Ekki er unnt að tengja
viðhengi við síðuna.
Formáli Minningargreinum fylgir
formáli, sem nánustu aðstandendur
senda inn. Þar koma fram upplýs-
ingar um hvar og hvenær sá, sem
fjallað er um, fæddist, hvar og hve-
nær hann lést, um foreldra hans,
systkini, maka og börn og loks hvað-
an útförin fer fram og klukkan hvað
athöfnin hefst. Ætlast er til að þetta
hefur farið fram eða grein berst ekki
innan hins tiltekna skilafrests er
ekki unnt að lofa ákveðnum birting-
ardegi. Þar sem pláss er takmarkað
getur birting dregist, enda þótt
grein berist áður en skilafrestur
rennur út.
Lengd Minningargreinar séu ekki
lengri en 2.000 slög (stafir með bil-
um - mælt í Tools/Word Count). Ekki
er unnt að senda lengri grein. Hægt
er að senda örstutta kveðju,
HINSTU KVEÐJU, 5-15 línur, og
Minningargreinar