Morgunblaðið - 12.01.2006, Page 47
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. JANÚAR 2006 47
HESTAR
HESTAVEFURINN 847.is stóð fyrir ljósmyndasamkeppni í lok síðasta árs og liggja nú úrslit
fyrir um bestu hestaljósmynd ársins 2005. Á fjórða hundrað mynda barst í keppnina en dóm-
nefnd valdi sex þeirra til úrslita og 830 lesendur vefjarins kusu síðan um hvaða mynd hlyti
fyrstu verðlaun.
Ljósmynd Hugrúnar Hörpu Reynisdóttur á Kjalarnesi, Kíkt af syllu, varð hlutskörpust og
hlaut hátt í helming atkvæða. Myndin sýnir folald á Hlíðarbergi á Hornafirði sem horfir
fram af klettasyllu.
Í öðru sæti varð mynd Lindu Sverrisdóttur sem nefnist Í langferð og sýnir hún hestamenn
á ferð yfir Stóru-Laxá. Sigurjón Reynisson frá Miðengi sendi myndina inn í keppnina.
Þriðja sætið kom í hlut Hálfdáns Jónssonar í Noregi og er myndin af nýfæddu folaldi í fífil-
skreyttu túni.
Verðlaunahafar fá send gjafabréf frá hestavöruversluninni Knapanum í Borgarnesi.
Ljósmynda-
samkeppni 847.is
ÍÞRÓTTA- og Ólympíusamband Íslands,
ÍSÍ, afhenti í síðustu viku á Grandhóteli 58
íþróttamönnum í 32 greinum viðurkenningu
fyrir framúrskarandi árangur á liðnu ári.
Sérsambönd innan ÍSÍ velja afreksfólk sitt í
íþróttum og útnefndi Landssamband hesta-
mannafélaga Sigurð Sigurðarson hesta-
íþróttamann ársins 2005 og Huldu Gúst-
afsdóttur hestaíþróttakonu ársins. Samtök
íþróttafréttamanna völdu íþróttamann
ársins í sama hófi og eins og kunnugt er
varð Eiður Smári Guðjohnsen knatt-
spyrnumaður langefstur í kjörinu.
Nokkur umræða fer fram ár hvert á með-
al hestamanna um vægi hestaíþrótta við
kjör á íþróttamanni ársins og oft hefur sú
gagnrýni heyrst að fyrrnefnd samtök snið-
gangi hestamenn. Að þessu sinni lenti Sig-
urður Sigurðarson í 12.–13. sæti í kjörinu og
er það besti árangur hestaíþróttamanna síð-
an árið 1993 en þá hlaut Sigurbjörn Bárð-
arson titilinn íþróttamaður ársins.
Úr sömu sveit, Rangárþingi ytra
Sigurður og Hulda eru heiðruð fyrir afrek
á keppnisvellinum árið 2005 og er viður-
kenning þeirra verðskulduð.
Sigurður var kjörinn knapi ársins af svo-
kallaðri „hófapressu“ á uppskeruhátíð
hestamanna í nóvember sl. Í umsögn stjórn-
ar Landssambands hestamannafélaga segir
um Sigurð: „Sigurður náði í sumar Íslands-
meistaratitlinum í fjórgangi af þeim Olil
Amble og Suðra frá Holtsmúla en þau hafa
verið ósigrandi. Sigurður er heimsmeistari í
fjórgangi og var sigur hans aldrei í hættu.
Hann sýndi miklar framfarir í reiðmennsku
og náði sigri jafnt í gæðinga-, íþrótta- og
skeiðkeppni auk þess að sýna til dóms góð
kynbótahross. Sigurður er góð fyrirmynd og
hefur sýnt prúðmennsku og ástundun svo
eftir er tekið. Enginn sem á horfði mun
gleyma sýningu hans á gæðingnum Silfur-
toppi frá Lækjamóti á HM þar sem hann
var stærsta leynivopn Íslands.“
Huldu Gústafsdóttur vegnaði einnig vel á
síðasta ári. Hún sigraði m.a. í Kvennatölti í
atvinnumannaflokki og á Íslandsmótinu
hafnaði hún í 3. sæti í fjórgangi og tölti í
meistaraflokki. Umsögn stjórnar LH um
Huldu hljóðar svo: „Hulda hefur staðið í
fremstu röð kvenna í hestaíþróttum og hef-
ur verið í landsliði Íslands. Hulda náði góð-
um árangri í sumar og þá er helst að telja
sigra hennar í tölti á hryssunni List frá
Vakurstöðum.“
Hestaíþróttamenn ársins eru búsettir í
sama sveitarfélaginu, Rangárþingi ytra, Sig-
urður í Þjóðólfshaga í Holtum og Hulda á
Árbakka í Landsveit, og sætir það nokkrum
tíðindum. Ef til vill má segja að úrslitin
endurspegli sterka stöðu hestamennskunnar
í Rangárvallasýslu en sífellt fleiri hesta-
menn setjast að í sýslunni og stærðarinnar
hestabú, nokkurs konar búgarðar, rísa víða.
Sigurður Sigurðarson og Hulda Gústafs-
dóttir hestaíþróttamenn ársins 2005
Morgunblaðið/Eyþór
Sigurður Sigurðarson og Silfurtoppur frá Lækjamóti í stuði á Íslandsmótinu.
Ljósmynd/Gunnar Jónsson
Hulda Gústafsdóttir og List frá Vakurstöðum fara mikinn á Selfossi.
Eftir Þuríði Magnúsínu Björnsdóttur
thuridur@mbl.is