Morgunblaðið - 12.01.2006, Qupperneq 49
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. JANÚAR 2006 49
DAGBÓK
1. d4 Rf6 2. c4 e6 3. Rc3 Bb4 4. e3
O-O 5. Rge2 He8 6. a3 Bf8 7. g3
d5 8. cxd5 exd5 9. Bg2 a5 10. O-O
Ra6 11. Bd2 c6 12. Hc1 Rc7 13.
Ra4 Re6 14. b4 Re4 15. Be1 axb4
16. axb4 Rd6 17. Rc5 Rc7 18. Rb3
h5 19. Ra5 h4 20. Rf4 hxg3 21.
hxg3 Re6 22. Rd3 Rg5 23. g4 f5
24. Re5 fxg4 25. Rxg4 Rgf7 26. f4
Bxg4 27. Dxg4 Hxe3 28. f5 Re4
29. Rxb7 Df6 30. Hd1 Ha2 31. Rc5
Bxc5 32. bxc5 Hee2 33. Bf3 Hh2
34. Bxe4 dxe4 35. Bf2 Dh6 36.
Dxe4
Staðan kom upp á rússneska
meistaramótinu sem er nýlokið í
Moskvu. Alexander Morozevich
(2707) hafði svart gegn Sergey
Volkov (2614). 36... He2! 37. Dg4
svartur hefði mátað eftir 37. Dxe2
Hh1+ 38. Kg2 Dh3#. Í framhald-
inu er sókn svarts einnig óstöðv-
andi. 37...Rg5 38. Dg3 Rh3+ 39.
Kxh2 Rxf2+ 40. Kg1 Dh1#.
SKÁK
Helgi Áss Grétarsson | dagbok@mbl.is
Svartur á leik.
Árnaðheilla
dagbók@mbl.is
100 ÁRA afmæli. Í dag, 12. jan-úar, er 100 ára Ingibjörg Ög-
mundsdóttir frá Sauðárkróki, til
heimilis að Hrafnistu Reykjavík. Hún
tekur á móti vinum og vandamönnum í
Helgafelli, Hrafnistu Reykjavík, milli
kl. 16 og 18 í dag.
80 ÁRA afmæli. Í dag, 12. janúar,er áttræður Ívar L. Hjart-
arson, Búðargerði 3, Reykjavík. Hann
er að heiman í dag.
Innflytjendaráð
FÉLAGSMÁLARÁÐHERRA hef-
ur skipað innflytjendaráð til fjög-
urra ára. Meginverkefni ráðsins
verður að fjalla um helstu atriði er
snerta aðlögun innflytjenda að ís-
lensku samfélagi. Meðal annars skal
ráðið vera stjórnvöldum til ráðgjafar
við stefnumótun í málaflokkum.
Sannarlega tímabært! En athygli
hefur hins vegar vakið að í ráðinu er
bara ein kona af erlendum uppruna
og hún verður fulltrúi innflytjenda á
Íslandi. Ha? Hvernig í ósköpunum
getur bara ein manneskja verið
fulltrúi fólks með mismunandi upp-
runa, hugsanir, væntingar og skoð-
anir? Ég bara spyr. Þetta er alls
ekki það sama og til dæmis að kjósa
fólk til Alþingis sem fulltrúa flokk-
anna. Af hverju eru ekki fleiri í
ráðinu af erlendum uppruna? Hefði
það ekki verið mun gagnlegra? Hve-
nær ætlar ríkisstjórnin að læra af
öðrum mistökum? Það margborgar
sig að láta fólk með reynslu sem inn-
flytjendur sjá um aðlögun innflytj-
enda og hafa meiri atkvæðisrétt í
málum sem að þeim snúa. Sama má
segja um nefnd um flóttafólk sem
einnig hefur verið skipuð en þar er
engan að finna af erlendum upp-
runa. Þetta er sorglegt. Í dag eru
margir innflytjendur á Íslandi sem
eru mjög hæfir til að takast á við slík
verkefni. En það virðist sem félags-
málaráðherra geri sér ekki grein
fyrir þessu. Svo er annað. Vita inn-
flytjendurnir sjálfir um þetta ráð?
Ég efast um það.
Samúel Richards,
Granaskjóli 40, Rvík.
Góður þáttur hjá Jónasi
ÉG vil koma á framfæri þakklæti
fyrir mjög svo góðan þátt hjá Jónasi
Jónassyni en í þættinum var við-
mælandi hans Styrmir Gunnarsson,
ritstjóri Morgunblaðsins. Eins væri
gaman ef Jónas gæti fengið
Matthías Johannessen, fyrrverandi
ritstjóra, einnig í þáttinn.
Kærar þakkir.
Matthildur Ólafsdóttir.
Lyklakippa tapaðist
LYKLAKIPPA, með þremur lykl-
um, tveimur útidyralyklum og ein-
um bíllykli, tapaðist á Laugaveg-
inum aðfaranótt sunnudagsins 8.
janúar. Finnandi er vinsamlegast
beðinn um að hringja í síma 692-
7611. Kristján.
Reiðhjól týndist
í Vesturbænum
KARLMANNSREIÐHJÓL tapaðis
í Vesturbæ Reykjavíkur um miðjan
desember síðastliðinn. Hjólið er af
Daewoo-gerð. Stellið er úr áli og
stýrisstöngin er blá. Þeir sem hafa
séð hjólið eru beðnir að láta vita í
síma 899 7778. Fundarlaunum heit-
ið.
Velvakandi
Svarað í síma 5691100 frá 10–12
og 13–15 | velvakandi@mbl.is
Sókn eða vörn?
Norður
♠K
♥9542
♦K7
♣KDG865
Vestur Austur
♠86 ♠74
♥KG1063 ♥ÁD8
♦ÁG965 ♦D43
♣7 ♣Á9432
Suður
♠ÁDG109532
♥7
♦1082
♣10
Suður spilar fjóra spaða.
Út kemur laufsjöa og austur tekur
fyrsta slaginn með ás. Og nú er
spurningin þessi: Hvor hefur betur,
sagnhafi eða vörnin? Vörnin á þrjá
toppslagi og baráttan kemur til með
að snúast um þriðja tígul suðurs.
Það gengur augljóslega ekki að spila
laufi í öðrum slag, né heldur dugir
það vörninni ef austur tekur á
hjartaás og spilar svo laufi. Suður
stingur þá hátt, tekur trompin og
getur svo síðar hent tígli niður í lauf.
En prófum þetta: Austur tekur á
hjartaás í öðrum slag, skiptir yfir í
tígul og vestur dúkkar. Ef sagnhafi
spilar tígli um hæl, spilar vörnin
trompi og tryggir sér fjórða slaginn,
annaðhvort á tígul eða tromphund.
Svo vörnin á að hafa betur.
BRIDS
Guðmundur Páll Arnarson | dagbok@mbl.is
75 og 50 ÁRA afmæli. Í dag, 12. janúar, eiga afmæli mæðgurnar GuðlaugEggrún Konráðsdóttir, sem verður sjötíu og fimm ára og Sigrún Viktoría
Agnarsdóttir, sem verður fimmtíu ára. Þær njóta lífsins saman á afmælisdeginum
á Siglufirði.
Lokaritgerð Júlíu Bjarneyjar Björns-dóttur til BA-gráðu í stjórnmálafræðisíðastliðið vor bar heitið „Menningborgar sig“. Velti hún þar upp hug-
myndum um hvernig menning gæti haft áhrif á
sveitarfélög með jákvæðum hætti.
Hvernig er ritgerðin byggð upp?
„Hún hefst á fræðilegum hluta þar sem fjórar
kenningar eru teknar fyrir, en síðan tek ég
dæmi um sveitarfélagið Holstebro í Danmörku
og hvernig markviss menningarstefna hafði já-
kvæð áhrif á byggðarlagið. Í lokin fer ég aðeins
yfir menningarstefnu á Íslandi, og tek þá að-
allega fyrir menningarsamning sem mennta-
málaráðuneytið gerði við sextán sveitarfélög á
Austurlandi, sem var undirritaður árið 2000 og
endurnýjaður árið 2005.“
Og að hvaða niðurstöðum kemst þú; borgar
menning sig?
„Já, hún nefnilega borgar sig. Það sýndi sig í
Holstebro. Bæjarstjórinn tók meðvitaða
ákvörðun um að fjárfesta í menningu til að
bæta ímynd bæjarins og auka þar með fólks-
flutninga til bæjarins og fjölbreytni í atvinnulíf-
inu. Þeir vilja meina að það sé allt þessari
markvissu menningarstefnu að þakka. Á tíma-
bili var 15% fjölgun í sveitarfélaginu, í kring um
árið 1970 þegar fjárfestingarnar voru farnar að
vekja mikla athygli.“
Heldur þú að þær hugmyndir gætu nýst á Ís-
landi?
„Ég held það. Mikilvægasta verkefni þeirra
sem vinna að menningarmálum er að auka
skilning fólks á mikilvægi menningarstarfs,
bæði sem samfélagslegs og efnahagslegs ávinn-
ings fyrir sveitarfélögin. Það er ýmislegt í
gangi, eins og þessir menningarsamningar á
Austurlandi. Á Íslandi þar sem sveitarfélögin
eru lítil er samstarf sveitarfélaga um mótun
menningarstefnu mjög vænlegt til árangurs. Á
Vesturlandi var nýverið skrifað undir svipaðan
samning og fleiri sveitarfélög hafa komið sér
saman um að móta stefnu og eru í samninga-
viðræðum við menntamálaráðuneytið.“
En hvernig vaknaði hugmyndin að þessu rit-
gerðarefni?
„Ég las mér til um þessi mál í Kaup-
mannahafnarháskóla, þar sem ég tók þriðja ár-
ið mitt í stjórnmálafræði. Þar heyrði ég af
þessu módeli sem kallað er Holstebro-módelið
og ákvað að skoða hvort ekki mætti nota það á
Íslandi líka.“
Og er niðurstaða þín jákvæð?
„Já, að með vaxandi skilningi stjórnvalda og
almennings á mikilvægi menningar er að mót-
ast heildstæð stefna í þessum málum.“
Ritgerðir | Lokaritgerð úr stjórnmálafræði fjallar um jákvæð áhrif menningar
Menningarstefnan borgar sig
Júlía Bjarney
Björnsdóttir fæddist í
Reykjavík 29. mars
1979. Ólst upp á Flat-
eyri, en fluttist til
Reykjavíkur 1985.
Júlía lauk stúdents-
prófi frá Flensborg-
arskólanum í Hafn-
arfirði vorið 1999.
Stundaði nám við tann-
læknadeild 1999–2001
og lauk BA-prófi í stjórnmálafræði frá Háskóla
Íslands árið 2005, með skiptinámi við Kaup-
mannahafnarháskóla á árunum 2003–2004.
Júlía hefur verið búsett í Kaupmannahöfn síð-
an árið 2003 og starfar á íbúðamiðluninni
Hay4you. Hún er einhleyp og barnlaus.
eignamidlun@eignamidlun.is www.eignamidlun.is
Glæsilegt parhús á mjög vinsælum stað
á Seltjarnarnesi. Húsið er nýlegt, byggt
árið 1999 og er á tveimur hæðum.
Húsið skiptist í eldhús, stofu,
gestasnyrtingu, þvottahús og bílskúr á
neðri hæð. Á efri hæðinni eru þrjú
svefnherbergi, baðherbergi og
leikkrókur. Húsinu fylgir fallegur garður
þar sem er heitur pottur og tré sem
blómstra fallega. Hellulögð verönd auk
timburverandar. V. 42,0 m 5541
Suðurmýri - Glæsileg eign
Klappastíg 44 - sími 562 3614
Innleggsnótur og gjafakort í fullu gildi á útsölunni
ÚTSALA
H
á
g
æ
ð
a
fra
m
le
ið
sla
A
ll
ta
f
ó
d
ýr
ir
Nr. 1 í Ameríku
APÓTEK OG HEILSUBÚÐIR
Góð heilsa - Gulli betri
Acidophilus
FRÁ
Fyrir meltingu og maga
Sterkur acidophilus
Afmælisþakkir
Hjartans þakkir til allra ættingja minna og
góðra vina sem glöddust með mér og heiðruðu
mig með gjöfum og hlýjum kveðjum á 80 ára
afmælinu þ. 27. des sl. Guð gefi ykkur gæfuríkt
nýtt ár, með þökk fyrir liðna tíð.
Sigríður Unnur Bjarnadóttir,
Höfðagrund 26, Akranesi.