Morgunblaðið - 12.01.2006, Page 50
50 FIMMTUDAGUR 12. JANÚAR 2006 MORGUNBLAÐIÐ
DAGBÓK
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Gerðu upp við þig hvað þú vilt fá út úr
tilteknu sambandi. Hálfbakaðar eða
óljósar skuldbindingar þarfnast úr-
lausnar. Hér er augljóslega á ferðinni
verkefni sem þarfnast viðbragða frem-
ur en málþófs.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Athafnir á ólíkum sviðum lífsins gleðja
nautið. Gættu þess að takmarka þig
ekki of mikið. Leggðu verkefnalistann
til hliðar og gefðu þér svigrúm fyrir
óvæntar uppákomur.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Það er sóun á tíma og orku að ætla að
standa á máli sínu í dag, ekki síst við
ljón eða bogmann. Er ekki frábært
hversu góðum árangri maður nær ef
maður er sáttur þótt aðrir haldi að
maður hafi rangt fyrir sér.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Iðkun, agi og endurtekning skila ár-
angri. Haltu þínu striki þrátt fyrir
óþægindi, efasemdir og eigin takmark-
anir. Þess verður ekki langt að bíða að
nístandi sársauki hjartans breytist í
gleði.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Allt er eins og það á að vera. Í alvöru.
Að berjast gegn straumnum er eins og
að ætla sér að hamla gangi jarðarinnar
um sólu. Sættu þig við núverandi stöðu
áður en þú reynir að breyta henni.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Himintunglin hvetja meyjuna til þess
að losa sig við takmarkandi hugmyndir
um sjálfa sig. Hún getur tekist á við
ferðalög, auðævi og frægð ef hún bara
trúir því sjálf.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Ef breyting verður á viðhorfi vog-
arinnar til vinnunnar er allt eins hugs-
anlegt að hún laði að sér áhugaverða
manneskju. Eitt leiðir af öðru og fyrr
en varir verður hún hluti af hópi sem
hana hefur alltaf langað til þess að til-
heyra.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Fjölskyldan virðir sporðdrekann hugs-
anlega meira, ef hann lærir að deila
skyldum sínum með fleiri. Að fjárfesta
í öðrum þýðir að vita hvenær maður á
að leyfa fólki að klára sitt upp á eigin
spýtur.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Reyndu að komast hjá því að taka að
þér of mörg verkefni, þú sérð bara eftir
því síðar. Vellíðan er mikilvægari en
hvaða peningaupphæð sem er. Notaðu
kvöldið í að spá í spennandi leiðir til
þess að sjá þér farborða.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Opinber persóna steingeitarinnar fær-
ir henni verkefni, vini og rómantík. En
það er samband hennar við sjálfa sig
sem færir henni hamingju. Athugaðu
hvaða tóntegund þú notar þegar þú ert
á eintali við þína eigin persónu.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberinn eyðir peningum til þess að
græða peninga og eyðir þeim svo aftur
í kvöld í skemmtanir og afþreyingu,
sem er vel þess virði. Vogir og hrútar
sýna þér fádæma ástleitni.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Fiskurinn er að verða sterkari og vitr-
ari og þarf að sýna þeim sem taka hæg-
ari framförum þolinmæði. Reyndu að
fara út í viðskipti með krabba, sér-
staklega ef þú hyggst selja það sem þú
hefur skapað.
Stjörnuspá
Holiday Mathis
Tungl í krabba minnir á
móður, sem er sterk og við-
kvæm í senn. Hún finnur
styrk í viðkvæmninni og viðkvæmni í
styrknum. Leystu vandamál sem þú glím-
ir við í sambandi við kvenpersónu í lífi
þínu, heilunin felst í uppgjöfinni.
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16
Krossgáta
Lárétt | 1 hlutdeild, 4 lóð,
7 ól, 8 halinn, 9 illgjörn,
11 gylla, 13 hæðum, 14
Jesú, 15 fá á sig þunnan
ís, 17 skaði, 20 sár, 22
myndun, 23 grefur, 24
eldstæði, 25 skepnurnar.
Lóðrétt | 1 árás, 2 súr-
efnið, 3 vot, 4 listi, 5
skikkju, 6 niðurfelling,
10 yfirbygging á skipi, 12
keyra, 13 stefna, 15 hafa
stjórn á, 16 saddi, 18
kantur, 19 líffærin, 20
sæla, 21 föndur.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 kvenfólks, 8 vítur, 9 öldur, 10 Týr, 11 neita, 13
feikn, 15 bauks, 18 skóla, 21 tóm, 22 Eldey, 23 efast, 24
fangelsið.
Lóðrétt: 2 vetni, 3 narta, 4 óþörf, 5 koddi, 6 svín, 7 grun,
12 tak, 14 eik, 15 brek, 16 undra, 17 stygg, 18 smell, 19
óvani, 20 autt.
Sudoku
Miðstig
Lausnir síðustu Sudoku
Lausn, ábendingar og tölvuforrit á www.sudoku.com
Frumstig Miðstig Efstastig
Frumstig
© Puzzles by Pappocom
Þrautin felst í því að fylla út í reitina
þannig að í hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður að gerast þannig
að hver níu reita lína bæði lárétt og lóðrétt
birti einnig tölurnar 1-9 og aldrei má
tvítaka neina tölu í röðinni.
Efstastig
Staður og stund á mbl.is.
Nánari upplýsingar um viðburði dagsins er að
finna á Staður og stund undir Fólkið á mbl.is
Meira á mbl.is
Staðurogstund
http://www.mbl.is/sos
Tónlist
Café Rosenberg | Halli Reynis með tón-
leika í kvöld.
Norræna húsið | Félag þjóðfræðinga á Ís-
landi stendur fyrir tónleikum með skoska
sekkjapípuleikaranum og þjóðfræðingnum
Gary West í Norræna húsinu 12. janúar kl.
20. Gary West er talinn einn besti sekkja-
pípuleikari Skotlands og hefur komið fram
á virtustu tónlistarhátíðum. Aðgangseyrir
er 1.500 kr.
Myndlist
Aurum | Ragnheiður Ösp Sigurðardóttir
vöruhönnuður sýnir handgerðar fígúrur
sem unnar eru út frá þörfum eigendanna,
s.s. gegn myrkfælni. www.fridayfans.com.
Opið mán.–fös. 10–18 og lau. 11–16.
Café Karólína | Aðalsteinn Svanur sýnir
bleksprautuprentaðar ljósmyndir á segl-
dúk til 3. febr. www.simnet.is/adals-
teinn.svanur
Gallerí + Akureyri | Ingileif og Áslaug
Thorlacius til 22. jan. Opið um helgar kl.
14–17.
Gallerí Sævars Karls | Byggir brú milli
náttúru og borgar – Helgi Már Kristinsson
sýnir abstrakt málverk. Til 26. jan.
GUK+ | Hartmut Stockter til 16. jan.
Hafnarborg | Kári Sveinsson frá Færeyjum
og Pétur Bjarnason, myndhöggvari. Til 30.
jan.
Hallgrímskirkja | Kristín Gunnlaugsdóttir
og Margrét Jónsdóttir til febrúarloka.
Hrafnista, Hafnarfirði | Ellen Bjarnadóttir
sýnir í Menningarsal til 7. febrúar.
Iða | Sölusýning á málverkum Þóru Guð-
rúnar Benediktsdóttur til loka janúar.
Kaffi Sólon | Dóra Emils – Heyr himna
smiður – til 14. jan.
Karólína Restaurant | Óli G. með sýn-
inguna Týnda fiðrildið til loka apríl.
Kling og Bang gallerí | Ég sýni ekkert en í
nýju samhengi eftir Erling T.V. Klingenberg
& Hreyfingar – Movements eftir Sirru, Sig-
rúnu Sigurðardóttur. Til 22. janúar. Opið
fim.–sun. kl. 14–18.
Listasafn Einars Jónssonar | Fastasýning.
Listasafn Íslands | Ný íslensk myndlist II –
Um rými og frásögn. Sýning á verkum 13
ísl. samtímalistamanna. Til 12. febrúar.
Listasafn Reykjavíkur, Ásmundarsafn |
Bernd Koberling til 22. janúar.
Maðurinn og efnið, yfirlitssýning.
Listasafn Reykjavíkur, Hafnarhús | Erró
til 23. apríl
Listasafn Reykjavíkur, Kjarvalsstaðir |
Jóhannes Sveinsson Kjarval. 120 ár frá
fæðingu málarans. Til 19. mars.
Nýlistasafnið | Kees Visser, Þór Vigfússon
og Ívar Valgarðsson. Til 28. jan.
Saltfisksetur Íslands | Margrét Bára með
málverkasýningu í Listsýningarsal til 27
jan. Opið alla daga frá 11–18.
Yggdrasill | Tolli til 25. jan.
Þjóðmenningarhúsið | Á veitingastofunni
Matur og menning í Þjóðmenningarhúsinu
eru sýnd málverk eftir Hjört Hjartarson –
Myndir frá liðnu sumri.
Þjóðminjasafn Íslands | Huldukonur í ís-
lenskri myndlist í Bogasal, til 28. maí. Ljós-
myndir Marcos Paoluzzo í Myndasal og
ljósmyndir Péturs Thomsen í Myndasal. Til
20. febrúar.
Söfn
Hönnunarsafn Íslands | Feðginin Erla Sól-
veig Óskarsdóttir, iðnhönnuður, og Óskar L.
Ágústsson, húsgagnasmíðameistari, sýna
verk sín. Safnið er opið kl. 14–18, lokað
mánudaga. Til 20. jan.
Þjóðmenningarhúsið | Í tilefni þess að 50
ár eru liðin frá Nóbelsverðlaunaveitingunni
til Halldórs Laxness hefur Gljúfrasteinn
sett upp sýningu í bókasal Þjóðmenning-
arhússins. Sjá má sjálfan Nóbels-
verðlaunapeninginn, kjólinn sem Auður
Laxness klæddist við afhendingarathöfn-
ina, borðbúnað frá Nóbelssafninu í Svíþjóð
o.fl.
Þjóðmenningarhúsið | Sýnishorn af ár-
angri fornleifarannsókna sem njóta stuðn-
ings Kristnihátíðarsjóðs eru til sýnis í and-
dyri Þjóðmenningarhússins.
Rannsóknirnar fara fram á Skriðuklaustri,
Hólum, Þingvöllum, Keldudal, Reykholti,
Gásum, Kirkjubæjarklaustri og Skálholti.
Auk þess eru kumlastæði um land allt
rannsökuð.
Þjóðminjasafn Íslands | Boðið upp á fjöl-
breytta fræðslu og þjónustu fyrir safn-
gesti. Þar eru nýstárlegar og vandaðar
sýningar auk safnbúðar og kaffihúss. Opið
alla daga nema mánudaga kl. 11–17.
Skemmtanir
Félag íslenskra línudansara | Félagið held-
ur sína fyrstu línudanskeppni 14. janúar í
Íþróttahúsinu Ásgarði í Garðabæ. Húsið
opnað kl. 14.30 og mótið byrjar kl. 15. Að-
gangseyrir 1.500 kr., en 1.000 kr. fyrir fé-
lagsmenn. Í tilefni af keppninni verður fé-
lagið með línudansleik um kvöldið í
Breiðfirðingabúð kl. 21. Allir velkomnir.
Stjórnin.
Kiwanishúsið | Félagsvist alla fimmtudaga
í Kiwanishúsinu Mosfellsbæ, í landi Leir-
vogstungu við Vesturlandsveg. Spilaverð-
laun, kaffiveitingar. Sími 566 7495, húsið
opnað kl. 20.
Fyrirlestrar og fundir
Landakot | Fræðslunefnd Rannsóknastofu
HÍ og LSH í öldrunarfræðum (RHLÖ) held-
ur fræðslufund 12. janúar kl. 15, í kennslu-
salnum á 6. hæð á Landakoti. Guðrún
Reykdal félagsráðgjafi mun fjalla um ís-
lenskar niðurstöður úr Rai Home Care-
rannsókn. Sent verður út með fjar-
fundabúnaði.
Versalir, Ráðhúsi Þorlákshafnar | Sam-
fylkingin í Þorlákshöfn boðar til fundar
fimmtudaginn 12. janúar kl. 20 í Ráðhús-
kaffi. Fundarefni eru stjórnmál líðandi
stundar og framboðsmál. Gestir fundarins
verða Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, Ágúst
Ólafur Ágústsson og þingmenn kjördæm-
isins. Allir Samfylkingarfélagar og velunn-
arar velkomnir.
Frístundir og námskeið
Hússtjórnarskólinn | Náttúrlækningafélag
Reykjavíkur heldur matreiðslunámskeið í
grænmetisréttum laugardaginn 14. jan. Að
þessu sinni hefur félagið fengið til liðs við
sig Dóru Svavarsdóttur matreiðslumeist-
ara frá veitingahúsinu Á næstu grösum.
Námskeiðið verður haldið í Hússtjórn-
arskólanum, Sólvallagötu 12, og stendur
yfir frá kl. 11–17.
„ÞAÐ sem einkennir fiðlukonsert Sibeli-
usar og er kannski helsta ástæðan fyrir
vinsældum hans er
hversu vel tónskáld-
inu tekst að sameina
glæsilega virtúósa-
spilamennsku og
innhverfar kyrrð-
arstundir,“ segir
Árni Heimir Ingólfs-
son tónlistarfræð-
ingur um einleiks-
konsertinn sem
Boris Brovtsyn flyt-
ur á tónleikum Sinfóníuhljómsveitar Ís-
lands í kvöld. Hljómsveitarstjóri verður
Arvo Volmer.
Önnur verk á efnisskránni eru Lemm-
inkäinen og stúlkurnar frá Saari, auk þess
sem þar verður að finna tvö verk eftir
ungverska tónskáldið Zoltán Kodály. Efn-
isskrána má nálgast á heimasíðu Sinfón-
íuhljómsveitarinnar: sinfonia.is.
Sinfónían leikur
Sibelius