Morgunblaðið - 15.01.2006, Page 20
20 SUNNUDAGUR 15. JANÚAR 2006 MORGUNBLAÐIÐ
Í sex ár hefur Ragnheiður Ólafsdóttir búið íLondon og síðustu árin hefur hún fengistvið hönnun á leðurvörum og skartgrip-um. Framleiðsla hennar fæst í verslun-inni Flex í Bankastræti 11.
Í febrúar næstkomandi munu Ragnheiður og
samstarfsmaður hennar, Anthony Vrahimis,
standa fyrir námskeiði í töskugerð sem mun
verða auglýst hér á landi en haldið í London. Að-
eins 5 til 6 nemendur geta tekið þátt í því.
Allt byrjaði þetta með áramótaheiti að sögn
Ragnheiðar, eða Röggu, eins og hún kallar sig.
„Þá var ég 24 ára gömul og með þrjú börn, ég
var full af útþrá og strengdi það áramótaheit að
árið 2000, þegar ég yrði 45 ára, þá skyldi ég
kaupa mér Chanel-dragt og fara til útlanda til að
freista gæfunnar,“ segir Ragga, en hún var
stödd hér á Íslandi í jólafríi á dögunum.
„Ég sagði börnunum mínum þetta og þau
spurðu oft hvað ég ætlaði eiginlega að gera er-
lendis, en ég varðist allra fregna, enda vissi ég
ekki hvað ég ætti eiginlega að taka mér fyrir
hendur þegar þar að kæmi.
Svo kom að því að árið 2000 var að renna upp.
Ég átti orðið fyrirtæki, Fantasía hét það og seldi
skart. Ég hefði vafalaust getað lifað vel á því
fram á elliár. En ég vildi gera heit mitt að veru-
leika. Þetta var auðvitað fífldirfska. Ég grét í
þrjá mánuði áður en ég lét til skarar skríða. En
svo seldi ég fyrirtækið og bílinn minn og leigði
út íbúðina mína, börnin uppkomin fóru sína leið
og ég hélt af stað til London. Vinkona mín hafði
beðið mig um að útvega sér Au pair-stúlku. Ég
hringdi í hana og sagðist vera með stúlku handa
henni, hún væri að vísu svolítið gömul en mjög
ágæt og kynni að ala upp börn.
„Ert þetta þú?“ sagði vinkona mín.
„Einmitt,“ svaraði ég. Hún réð mig á stund-
inni og ég fór og hafði mjög gott af að breyta til,
vera á róluvöllum með lítil börn og sinna hús-
verkum. Vinkona mín borgaði mér laun og við
fórum út að borða fyrir þau. Það var mjög gam-
an hjá okkur þessa þrjá mánuði sem ég var hjá
henni. Þá fór ég í skóla til Oxford. Ég hafði
löngum verið lesblind og það háði mér mikið í
skóla. Ég hélt kannski að þetta væri öðruvísi í
háskólaborginni Oxford. En ég var jafnlesblind
þar og hér á Íslandi, jafnvel þótt þeir væru þar
með sérkennslu fyrir lesblinda.“
Frá því áramótaheitið var strengt og þar til
Ragnheiður lagði af stað út í hinn stóra heim var
líf hennar mjög viðburðaríkt.
„Ég ólst upp í Kópavogi og var mjög klár
krakki þar til ég fór í barnaskóla – þá var ég ekki
lengur klár, lesblindan sá fyrir því. Á þeim árum
var lesblinda ekki viðurkennt vandamál. Tvö af
börnum mínum eiga líka við lesblindu að stríða.
Þegar ég kom með þau í sama skólann og ég
hafði verið í sem krakki komst ég að því að ekki
var enn búið að viðurkenna lesblindu sem
vandamál í þeim skóla.
Ég eignaðist ung fyrsta barnið mitt, gifti mig
svo og eignaðist tvö börn í viðbót en varð ein-
stæð móðir 27 ára.
Ég þurfti auðvitað að vinna fyrir mér og börn-
unum og sinnti hinum fjölbreytilegustu störfum.
Ég lærði hárgreiðslu en lauk því námi ekki og
tilviljunin hagaði því svo að ég fór að vinna sem
búningahönnuður fyrir auglýsingar, sjónvarp
og kvikmyndir. Ég var með lítið fyrirtæki með
vinkonu minni sem sinnti m.a. atvinnumiðlun og
vörukynningu. Vinkona mín var klæðskeri að
mennt og á kvöldin, þegar verkefni voru fyrir
hendi í búningahönnuninni, var saumavélin tek-
in fram og skrifstofan breyttist í saumastofu.
Við höfðum oft ansi mikið að gera, t.d. meðan
verið var að gera búninga fyrir kvikmyndina
Nonna og Manna. Ég hannaði líka búninga fyrir
Siggu Beinteins þegar hún keppti í Evróvisjón
og fór með henni, Grétari Örvarssyni og Stjórn-
inni út þegar þau urðu í 4. sæti. Um tíma vann ég
hjá Stöð 2 sem búningahönnuður.
Svo kom að því að ég fékk nóg af þessum
geira og átti þann draum heitastan að fá vinnu
frá kl. 9 til 5, eins og „allir hinir“. Ég var orðin
þreytt á hinum óreglulega vinnutíma og óreglu-
legu launagreiðslum og sá í hillingum stöðug-
leika hins borgaralega lífs.
En enginn vildi ráða mig í skrifstofuvinnu, ég
sótti t.d. um vinnu á síma en þegar ferilskrá mín
var skoðuð þótti undarlegt að ég vildi sinna
slíkri vinnu.
„Þú hefur gert svo margt, þú ættir ekki að
vera að vinna á síma,“ var svarið.
Hætti að telja við 10 þúsundasta hringinn
Þá fór ég að vinna á saumastofu og í framhaldi
af því ákvað ég að stofna fyrirtæki. Ég fékk horn
í húsnæði hjá vinkonu minni sem nýlega hafði
stofnað fyrirtæki og ein önnur kona var þarna
líka. Sú fór á sýningu í New York og ég bað hana
um að finna fyrir mig eitthvað sniðugt til að
flytja inn. Hún kom með skrauthringa fyrir mig,
ódýra en mjög fallega. Ég gróf upp fyrirtækið
sem framleiddi þá og fékk að selja þá hér. Þessir
hringar seldust mjög vel, ég hætti að telja þegar
ég hafði selt 10 þúsund hringa. Smám saman
vatt þetta upp á sig og ég seldi margs konar
skart. Ég fór líka á námskeið hjá Iðntæknistofn-
un og fleirum, sem haldið var fyrir konur sem
vildu reka fyrirtæki. Það nám kom sér mjög vel
fyrir mig og opnaði mér sýn inn í margt á þeim
vettvangi.“
En hvenær skyldi leðurhönnunin hafa komið
inn í myndina?
„Eftir að ég kom frá Oxford fór ég aftur til
vinkonu minnar og sá um sama leyti auglýst
starf hjá fyrirtæki sem sá um innrömmun og
lýsingu, m.a. hjá BT-símafyrirtækinu. Ég fékk
þarna starf og ferðaðist mikið meðan ég vann
þar, við hönnun á lýsingu og starfsumhverfi
m.a., ferðalögin voru skemmtileg.
Næst fór ég að vinna hjá vel efnuðum vís-
indahjónum, þar hafði ég frí um miðjan daginn
og þá skapaðist svigrúm til að læra eitthvað. Ég
sá auglýsingu um námskeið í handtöskugerð.
Ég fór til að athuga þetta og þegar ég kom
þarna inn fann ég samstundis að þetta var það
sem ég vildi gera. Ég varð beinlínis ástfangin af
þessu viðfangsefni og sagði við manninn sem
rak vinnustofuna, hann Anthony: „Ég ætla að
flytja hérna inn, þú losnar aldrei við mig, ég ætla
að læra allt sem þú getur kennt mér.“
Þannig byrjaði þetta. Þessi maður, sem er
samverkamaður minn núna, er mjög menntaður
á þessu sviði. Hann kenndi mér fyrst að gera
handtöskur en svo lærði ég að leðurklæða hluti,
innréttingar og gólf. Ég fór í læri hjá þessum
manni og nú erum við með sitt fyrirtækið hvort
en erum í góðu samstarfi. Hann ætlar, sem fyrr
greindi, að kenna á þriggja mánaða námskeið-
inu sem ég ætla að standa fyrir nú í febrúar.
Nemendur munu læra að hanna hugmyndir
sínar og þróa með sér mismunandi tækni og
verklag sem notað er við handtöskugerð. Í lok
námskeiðsins munu nemendurnir fara á stóra
hönnunarsýningu á Ítalíu þar sem sýnd eru efni,
leður, sylgjur og ýmsir fylgihlutir. Þessi ferð er
innifalin í verði námskeiðsins, ásamt gistingu,
öllu efni og vinnuaðstöðu.“
Skemmtilegt að hanna úr leðri
„Leðrið er einstaklega skemmtilegt efni, það
er gaman að hanna hluti úr því. Leðurgólf eru
eitt af því vinsælasta hjá ríku fólki núna. Leð-
urgólf eru skemmtileg, þau slitna vel og það má
slípa þau upp ef þarf. Einnig hef ég hannað heil-
margar leðurklæddar innréttingar, þær eru líka
mjög vinsælar.
Auk leðurvinnunnar er ég einnig að gera
skart úr fiskihreistri – hreistri af karfaroði. Ég
fæ það sent frá Íslandi og vinn svo út því á
vinnustofu minni í London. Mikil sala hefur ver-
ið á töskum sem ég hanna, ýmsum leðurhlutum
og svo skartgripunum úr hreistrinu. Þetta er
spennandi vettvangur og líflegur. Ég vinn bæði
fyrir einstaklinga og fyrirtæki og er í samstarfi
við ýmsa hönnuði. Oft sendi ég líka hluti á sýn-
ingar, t.d. á Ítalíu.
Ég sé ekki eftir að hafa selt fyrirtækið mitt
árið 2000, ég vildi breyta til og það tókst. Ég er
minn eigin húsbóndi og líkar það mjög vel.
Hingað til Íslands kem ég öðru hvoru, ég á hér
dóttur og dótturdóttur. Einnig heimsæki ég hin
börnin mín tvö sem búa erlendis, annað í Lúx-
emborg og hitt á Ítalíu.“
Leðurgólf slitna vel
Leður hefur löngum verið
vinsælt efni til hönnunar. Guðrún
Guðlaugsdóttir ræddi við Ragn-
heiði Ólafsdóttur, Röggu, sem
hannar hluti úr leðri og einnig
skartgripi úr fiskihreistri á vinnu-
stofu sinni í London.
Stigahandrið sem Ragga hannaði og leðurklæddi.
Höldur á skápa og skúffur. Hönnuður: Ragga.
Skápur sem Ragga hefur leðurklætt.
Skart úr fiskihreistri sem Ragga hefur hannað.
Box til að geyma flugur í, hönnuð af Röggu, eru
til sölu í Flex í Bankastræti.
Glæsilegar töskur, hannaðar af Röggu, eru til
sölu í Flex í Bankastræti.
Morgunblaðið/Golli
Ragnheiður Ólafsdóttir, eða Ragga.
TENGLAR
...........................................................
Nánari upplýsingar um námskeiðið getur fólk
fengið á ragga@raggadesign.com eða í síma
0044-7880643440.
gudrung@mbl.is