Morgunblaðið - 15.01.2006, Blaðsíða 53

Morgunblaðið - 15.01.2006, Blaðsíða 53
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 15. JANÚAR 2006 53 MINNINGAR ✝ Inga KristínÁgústsdóttir fæddist á Hellis- sandi 14. apríl 1917. Hún lést á hjúkrun- arheimilinu Sól- vangi í Hafnarfirði 4. janúar síðastlið- inn. Foreldrar Ingu voru Ágúst Illugi Pálsson járnsmiður, f. í Ferjukoti í Borgarhreppi 14. júlí 1874, d. í Hafn- arfirði 10. ágúst 1965 og Ingveldur Jónína Lárusdóttir húsfreyja, f. í Flateyjarbúð í Fróðárhreppi á Snæfellsfellsnesi 4. maí 1880, d. í Hafnarfirði 22. júní 1966. Inga var níunda í röð tíu systkina en eitt eftirlifandi er Árni, f. 3 apríl 1922. Inga fóstraði, ásamt móður sinni og tveimur eldri systrum, Elínu og Ragnhildi, Brynju Kolbrúnu, f. 5. nóv- ember 1942, dóttur Lárusar bróður síns, sem var vél- stjóri og fórst með skipinu Þormóði 1943, og síðar syni hennar tvo, Róbert Róbertsson, f. 14. mars 1968 og Auðólf Þorsteinsson, f. 9. desem- ber 1971. Útför Ingu fór fram í kyrrþey frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði. Ég get ekki sagt að ég hafi þekkt hug og hjarta Ingu K. Ágústdóttur til hlítar, þessarar ákveðnu, lágvöxnu en dulu konu, og efast reyndar um að nokkur hafi gert það. Leiðir okkar lágu saman fyrir tólf árum þegar fóstursonur hennar, Róbert, og ég, fórum að rugla saman reytum okkar. Þótti mér hún samstundis eftirtekt- arverður persónuleiki. Ég varð ekki fyrir vonbrigðum við frekari kynni. Inga var þó ekki margmál um sín hjartans mál frekar en margir af hennar kynslóð en dugleg eins og flestir þeir sem alast upp við kröpp kjör og þurfa að hafa fyrir því að fá sitt til að bíta og brenna. Sennilega verða tilfinningar þá munaður sem maður ber ekki á torg. En hjartagóð var hún Inga, það fór ekki framhjá neinum. Ekki að hún hafi verið að flíka því frekar en til- finningunum, en þegar minni máttar áttu í hlut, dýr og börn, veikir eða smælingjar, tók Inga niður grímuna og upp hanskann og hlúði að – án orða og oftast eins og ekkert væri sjálfsagðara. Ekki fékk hún alltaf greitt í sömu mynt en þannig er víst lífið stundum og eitthvað sagði mér að Inga hafi fljótt lært að það væri tímasóun að syrgja það. Æðruleysi er hugtak sem lýsir gömlu konunni vel. Uppákomur lífs- ins eða framkoma fólks var fyrir nokkru síðan hætt að koma henni á óvart en það þýðir ekki endilega að hún hafi alltaf verið sátt – hún var bara löngu hætt að æsa sig eða ergja yfir svoleiðis hlutum. ,,Guð, gefðu mér æðruleysi til að sætta mig við það sem ég fæ ekki breytt, kjark til að breyta því sem ég get breytt og vit til að greina þar á milli.“ Á stundum held ég að hún hljóti að hafa farið ansi oft með æðruleysisbænina. Inga, eins og hún var alltaf kölluð, var næstyngst tíu systkinanna sem öll komst á legg. Hún fæddist um vor ár- ið 1917, þegar styrjaldarlok nálguð- ust í því stríði sem síðar var nefnt heimsstyrjöldinni fyrri. Níu árum síðar fannst foreldrum Ingu, Ágústi og Ingveldi, orðið heldur tíðindas- nautt í verstöðinni vestur á Hellis- sandi, fæðingarstað Ingu, og ákváðu að freista gæfunnar og flytja suður. Í Hafnarfirði skyldi framtíðarheimili fjölskyldunnar rísa. Og þangað fluttu þau, byrjuðu búskapinn í leiguhús- næði, sem flest var bæði lítið og lé- legt, enda krepputímar. Nokkrum ár- um síðar hóf Ágúst með aðstoð elstu sona sinna að byggja heimili fjöl- skyldunnar, að Reykjavíkurvegi 32, fallegt einbýlishús þar sem hann hafði járnsmíðaverkstæði í kjallaran- um. Það hljóta að hafa verið gleði- tímar þegar þessi stóra fjölskylda gat loks flust í eigið húsnæði, jafnvel þótt það hafi annars verið erfiðir tímar og atvinnuþref á landinu. Eins og flestra annarra Íslendinga vænkaðist efna- hagur fjölskyldunnar í heimsstyrjöld- inni síðari. Kvenleggurinn sá um þvotta af hermönnum og sennilega hefur karleggurinn einnig haft ein- hverjar tekjur af hernum. En sorgin knúði líka grimmilega dyra. Þrír bræðra Ingu; þeir Ágúst, Lárus og Páll, létust í sjóslysum með stuttu millibili á stríðsárunum. Þetta var fjölskyldunni þungur harmur og mik- ill missir. En á Reykjavíkurveginum bjó Inga alla sína tíð, ásamt foreldrum sínum, systrum sínum, Elínu og Ragnhildi, og yngsta bróður, Árna – og saman héldu þau glæsilegt heimili þar sem oft var gestkvæmt, enda gestrisnin með eindæmum. Foreldr- um sínum bjó Inga síðan fallegt ævi- kvöld og ásamt eldri systrum sínum, sem jafnframt voru góðar vinkonur hennar, fóstraði hún Brynju Kol- brúnu, dóttur Lárusar, og síðan tvo syni hennar. Systrum sínum hjúkraði hún svo og sinnti fram í andlátið og yngri bróður þar til hann fór á Hrafn- istu. Að lokum fór þó svo að Inga þurfti að yfirgefa ættaróðalið vegna heilsuleysis og fluttist á Sólvang vorið 2003. Við Inga kynntumst ágætlega á þessum tólf árum, rökræddum stund- um en hlógum líka oft og áttum margar gleðistundir með Róberti og síðan Þorra Hrafni, syni okkar eftir að hann kom í heiminn fyrir tæpum sjö árum. Við höfðum að sjálfsögðu ekki alltaf sama smekk fyrir mönnum og málefnum, eins og gerist og geng- ur. Hún hafði gaman af ensku knatt- spyrnunni og hélt þar með Manchest- er City, missti aldrei af Söngvakeppni evrópskra sjónvarps- stöðva, fannst rauðar peysur falleg- astar og þótti molasykur ómissandi með kaffi. Góðar bækur og sögur kunnum við hins vegar báðar að meta – og sápuóperur, þótt Inga hafi kosið Nágranna fram yfir Leiðarljós. Stundum fannst mér, þrátt fyrir árin fimmtíu og fjögur sem skildu okkur að, við hafa um margt, sameig- inlegan skilning á lífinu og tilverunni – þótt við værum ekkert alltaf að hafa orð á þeim skilningi. Hann var bara þarna, jafnvel þegar við vorum ekki sammála um landsins gagn, nauð- synjar og fjölskyldu. Inga lá yfirleitt ekkert á skoðunum sínum, þannig – eða þá að hún þagði þær beinlínis fram. Hún var vel að sér og gat verið eldsnögg í tilsvörum. Lífsreynslan hafði slípað húmorinn svo hann gat verið svellkaldur ef því var að skipta. Hennar helstu trúnaðarvinir síð- ustu árin held ég samt að hafi verið kettirnir, líf hennar og yndi. Þá átti hún marga í gegnum tíðina, en þeir síðustu voru Sokkur og Bússí. Hún naut þess að dekra við þá og gefa þeim nýja, soðna ýsu eða eðalkatta- mat í nánast öll mál, enda voru þeir húsfreyjuhollir með afbrigðum. Barnabarnið hennar, Þorri Hrafn, var líka augasteinninn og sannkall- aður gleðigjafi síðustu árin. Fyrir hann var heldur ekkert of gott. Farin er nú falleg kona, dugnaðar- forkur, vel gefin og skemmtileg en í þau skipti sem maður lét orð í líkingu við þessi falla í eyru Ingu K. Ágústs- dóttur þá glotti hún bara. Hún átti erfitt með að taka hrósi eða hlýjum orðum – og þó – undir lokin held ég að það hafi vottað fyrir brosi. Góða ferð, Inga mín, og vertu bless. Unnur Hrefna Jóhannsdóttir. INGA KRISTÍN ÁGÚSTSDÓTTIR Ástkær móðir mín, tengdamóðir, amma og systir, ÞORBJÖRG BJARNADÓTTIR frá Vigur, andaðist á hjúkrunarheimilinu Skjóli laugardaginn 7. janúar. Útför hennar fer fram frá Fossvogskirkju mánu- daginn 16. janúar kl. 15.00. Bjarni Brynjólfsson, Ingibjörg Anna Arnarsdóttir, Margrét Edda Lian Bjarnadóttir, Sigurður Bjarnason, Þórunn Bjarnadóttir, Sigurlaug Bjarnadóttir. Ástkær faðir okkar, afi, bróðir, mágur og tengda- sonur, EINAR GUÐBJÖRN BOGASON, Lyngby 17, 27493, Skurup, Svíþjóð, lést á sjúkrahúsi í Ystad miðvikudaginn 4. janúar. Útförin fer fram frá Simstorp-kirkju, Svíþjóð, föstudaginn 27. janúar kl. 13.00. Alex Einarsson, Bogi G.Í. Einarsson, Ólavía Lára Einarsdóttir, Valur Bogi Einarsson, Linda Rut Einarsdóttir, Sævar Hólm Einarsson, barnabörn, systkini, mágkona og tengdafólk. Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, KRISTBJÖRG ÞÓRÐARDÓTTIR, Tindaflöt 3, Akranesi, verður jarðsungin frá Akraneskirkju þriðjudaginn 17. janúar kl. 14.00. Hilmar Njáll Þórarinsson, Þórður H. Hilmarsson, Hjördís Kristinsdóttir, Valgerður Hilmarsdóttir, Elvar Holm Ríkarðsson og ömmubörn. Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, tengda- móðir, amma og langamma, ÞORGERÐUR ELÍSABET GRÍMSDÓTTIR, Árskógum 8, Reykjavík, lést mánudaginn 9. janúar. Útförin fer fram frá Háteigskirkju miðvikudaginn 18. janúar kl. 13.00. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir, en þeim sem vilja minnast hennar, er bent á Styrktarfélag vangefinna. Ólafur Hólm Einarsson, Stella Hólm Mc Farlane, Gavin Mc Farlane, Einar Hólm Ólafsson, Vilborg Árný Einarsdóttir, Birgir Hólm Ólafsson, Ósk Jóhanna Sigurjónsdóttir, ömmubörn og langömmubörn. Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir, afi og langafi, MAGNÚS S. MAGNÚSSON, áður Holtagerði 7, sem lést á Hrafnistu, Hafnarfirði, sunnudaginn 8. janúar, verður jarðsunginn frá Fossvogskapellu miðvikudaginn 18. janúar kl. 13.00. Þeim sem vilja minnast hans er vinsamlega bent á FAAS, Félag aðstandenda Alzheimerssjúklinga (sími 533 1088). Kristín Þóra Gunnsteinsdóttir, Geir Magnússon, Kristín Björnsdóttir, Helgi Magnússon, Guðlaug Guðjónsdóttir, Sigrún Magnúsdóttir, Jóhannes Halldórsson, barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir, amma og langamma, KRISTÍN (DANÍELSDÓTTIR) REID, verður jarðsungin frá Garðakirkju mánudaginn 16. janúar kl. 15.00. Ronald H. Reid og aðstandendur. Elskulegur einkasonur minn, faðir okkar, tengda- faðir og afi, SÆVIN BJARNASON, verður jarðsunginn frá Langholtskirkju mánudag- inn 16. janúar kl. 15.00. Guðný Hallgrímsdóttir, Guðný Sævinsdóttir, Símon Bahraoui, Haraldur Sævinsson, Ásgerður Þ. Ásgeirsdóttir, Sigrún Dóra Sævinsdóttir, Birgir Sævarsson, Bjarney Sævinsdóttir, Bjarni Fannar Bjarnason og barnabörn. Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar elskulegs eiginmanns míns, föður okkar og afa, ÞORSTEINS INGA JÓNSSONAR, Árkvörn 2b, Reykjavík. Alda Sófusdóttir, Jónína Þorsteinsdóttir, Ólöf Margrét Þorsteinsdóttir, Jón Ingi Þorsteinsson, Lárus Már Björnsson, og barnabörn.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.