Morgunblaðið - 15.01.2006, Blaðsíða 55

Morgunblaðið - 15.01.2006, Blaðsíða 55
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 15. JANÚAR 2006 55 MINNINGAR ✝ Níels FrímannSveinsson fædd- ist á Siglufirði 9. nóvember 1929. Hann lést á Land- spítalanum við Hringbraut 15. des- ember síðastliðinn. Hann var sonur hjónanna Sveins Fímannssonar skip- stjóra, f. 17.6. 1898, og Jónínu Níelsdótt- ur, f. 17.1. 1896, frá Æsustöðum í Eyjar- firði. Alsystir Níels- ar er Svava Sveinsdóttir, f. 11.5. 1928. Hálfsystir samfeðra er Hrönn Sveinsdóttir, f. 31.5. 1936. Fóstra Níelsar og Svövu var Jenný Jónasdóttir, f. 19. ágúst 1904. 19. ágúst 1958 kvæntist Níels Hjördísi Ingibjörgu Konráðsdótt- ir, f. 19. mars 1928. Foreldrar hennar eru Konráð Jóhannsson gullsmiður og Svava Jósteinsdótt- ir frá Akureyri. Níels og Hjördís eiga tvær dætur, þær eru: 1) Svava Jónína, f. 29.12. 1952, gift Árna Auð- uni Árnasyni, f. 30.3. 1951. Börn þeirra eru: a) Hjör- dís, f. 28.11. 1970, gift Þorsteini Viðar- syni, f. 23.10. 1974, sonur þeirra er Sindri Snær, f. 27.1. 2004, d. 30.1. 2005. b) Hjalti Freyr f. 30.4. 1976. c) Níels Árni, f. 1.10. 1979. 2) Jenný Sigurlína, f. 16.1. 1958, gift Guðna Páli Birgissyni, f. 20.5. 1958. Dóttir þeirra er Birg- itta Svava, f. 11.2. 1996. Níels starfaði aðallega við bíla- réttingar, en einnig var hann tón- listamaður og starfaði við það á árum áður. Útför Níelsar fór fram í kyrrð- þey að ósk hins látna. Elsku pabbi minn. Ósköp er erfitt að setjast niður og þurfa að kveðja þig. Þó að þú hafir þurft að ganga í gegnum erfiðan uppskurð, um það bil er aðventan gekk í garð, þá hafðir þú alltaf verið svo hraustur að við héldum öll sem elskum þig að þú kæmir aftur heim. Sú ósk var ekki uppfyllt og þú lok- aðir augunum fyrir fullt og allt 15. desember sl. í faðmi okkar systra og mömmu. Þegar sorgin og söknuðurinn nístir hjartað er gott að eiga góðar minningar og þær á ég nógar um þig pabbi minn. Öll sú hlýja og um- hyggja sem þú gafst mér, Árna mín- um og börnum okkar, Hjördísi, Hjalta og Níelsi, er ómetanleg. Ég brosi gegnum tárin þegar ég hugsa til bernskuáranna, þú varst þar alltaf bæði vakinn og sofinn yfir velferð minni. Þú sýndir áhuga á öllu sem ég tók mér fyrir hendur og varðst svo stoltur þegar vel gekk hjá mér. Það breytist ekkert þó að ég yrði fullorðin og eignaðist mann og börn. Þú vildir alltaf fá að vita hvernig gengi hjá öllum og varst tilbúinn að rétta hjálparhönd ef á þurfti að halda. Þær voru ekki svo fáar stundirnar hjá þér sem fóru í að leika við barnabörnin og skreppa með þau í bíltúr, enda var alltaf yndislegt að koma til afa og ömmu. Lífshlaupið þitt var auðvitað ekki alltaf dans á rósum og stundum voru erfiðir tímar, en alltaf fann maður hvað þú elskaðir hana mömmu, okkur systurnar, tengda- syni og barnabörn af öllu hjarta. Síðastliðið ár var okkur óskaplega erfitt. Við misstum svo mikið þegar litli langafastrákurinn þinn, hann Sindri Snær, kvaddi þennan heim. Ég trúi því að þú pabbi minn sért nú búinn að taka litla kútinn í faðm þinn og að þið tveir eigið aldeilis skemmtilegar stundir saman hjá guði. Ég trúi því líka að þú vakir áfram yfir velferð okkar og að við sjáumst aftur einhvern tímann í ei- lífðinni. Takk fyrir allt. Þín dóttir, Svava. Elsku pabbi. Þín er sárt saknað. Mér er efst í huga þakklæti til þín fyrir allt það sem þú hefur kennt mér og alla þína væntumþykju sem við öll í fjölskyld- unni fundum svo vel fyrir. Þú varst duglegur að leiðbeina okkur systr- unum í gegn um lífið og gafst okkur mörg heilræðin. Þú varst ákveðinn en alltaf svo hlýr og góður. Alltaf var hægt að leita til þín með sín vandamál stór sem smá og þú tókst öllu með jafnaðargeði. Þú varst sér- staklega iðinn og vandvirkur við allt það sem þú tókst þér fyrir hendur hvort heldur sem þú varst að gera við bíla eða að spila á hljóðfæri. Stundum fannst okkur í fjölskyld- unni nóg um alla þína nákvæmni og þann metnað sem þú lagðir í öll þín verk. Elsku pabbi, ég er þér líka svo þakklát fyrir hvað þú varst mikill afi. Þú kenndir afabörnunum þínum Hjördísi, Hjalta, Níelsi og litlu afa- stelpunni þinni Birgittu Svövu svo margt sem verður þeim gott vega- nesti í lífinu. Þú áttir líka góðar stundir með litla langafastráknum þínum honum Sindra Snæ sem við öll fengum að njóta allt of stutt. Dóttir mín Birgitta Svava á ljúfar minningar um afa sinn.Tímum sam- an sátu þau við krossgátur, tefldu eða spiluðu á spil og svo var kallað á ömmu þegar þið voruð svöng og kom hún þá færandi hendi og þótti ykkur þessi þjónusta ómissandi. Við eigum svo margar dýrmætar minn- ingar um þig sem hjálpar okkur á þessum erfiðu stundum. Þú sýndir mikinn styrk og yfirvegun í veik- indum þínum en mestar voru áhyggjur þínar af mömmu og það lýsir þér best. En nú vitum við að þér líður vel, hjartans þakkir fyrir allt, elsku pabbi minn. Þín dóttir, Jenný. NÍELS FRÍMANN SVEINSSON Kveðjustundir eru alltaf erfiðar og það er sárt að sjá á eftir afa mínum Soph- usi. Hinsvegar læddist sú hugsun fljótt að mér að þessi kveðjustund bæri jákvæðar breytingar í skauti sér því nú yrðu þau aftur sameinuð þau afi Sophus og amma Áslaug sem kvaddi okkur fyrir rúmu ári. Þau voru einstaklega samrýnd hjón og nærðust svo á ást og samveru hvort annars að aðskilnaðurinn reyndist afa Sophusi afar erfiður. Þótt það sé erfitt að horfast í augu við að eiga ekki lengur afa og ömmu og þau skilji eftir sig stórt tóm þá veldur mér ómældri gleði að þau geti sam- einast á ný. Ég veit að afi Sophus var tilbúinn til þess að kveðja jarð- lífið til að geta verið við hlið sinnar heittelskuðu og ég sé ömmu Áslaugu fyrir mér brosa sínu einstaka og fal- lega brosi þegar hún tekur á móti honum. Það var alltaf sama hlýjan sem tók á móti manni á heimili þeirra, bæði í Brúnalandinu og seinna á Sléttu- vegi. Á heimili afa Sophusar og ömmu Áslaugar var umhyggja og hjálpsemi í hávegum höfð og ástin var áþreifanleg, svo sterk var hún. Sem barni þótti manni alltaf jafn- SOPHUS A. GUÐMUNDSSON ✝ Sophus AuðunGuðmundsson fæddist á Auðunar- stöðum í Víðidal í Vestur-Húnavatns- sýslu 6. apríl 1918. Hann lést á hjúkr- unarheimilinu Sól- túni 4. janúar síðast- liðinn og fór útför hans fram frá Grensáskirkju 12. janúar. gaman að heimsækja þau, hvort sem það var til þess að sækja kennslustund hjá ömmu eða bara til að njóta félagsskapar ömmu og afa og ann- arra fjölskyldumeð- lima. Manni var alltaf látið líða eins og mað- ur væri einstakur og komið var fram við mann af fullkominni virðingu. Á fáum heimilum gat manni liðið eins vel og hjá afa Sophusi og ömmu Áslaugu. Enda á maður ótal minningar til að ylja sér við, sólböð í garðinum í Brúnalandi á sumrin og jóladags- og gamlársboð- in á veturna voru hápunktar og allar heimsóknirnar þar á milli skilja eftir samansafn af yndislegum stundum. Afi Sophus var gæddur öllum þeim kostum sem góðum afa ber. Hann hafði alltaf gaman af samveru við okkur barnabörnin og maður fann sterkt fyrir þeirri væntum- þykju. Hann var kannski fámáll og talaði jafnan svo lágt að varla heyrð- ist hvað hann sagði en alltaf sperrti maður eyrun þegar hann tók til máls og ósjaldan fengu orð hans mann til að skellihlæja. Það var alltaf stutt í grínið hjá afa Sophusi og hann náði á sinn einstaka hátt að snúa flestu upp í gaman. Ein helsta minning mín úr Brúnalandinu er þegar afi setti litlu fæturna mína upp á sína, tók utan um mig og dansaði og söng „Óla skans“. Alltaf var þetta jafn- skemmtilegt og fyndið og þannig var það með allt sem viðkom afa, hann fékk mann alltaf til að brosa. Þótt afi hafi kannski misst máttinn að miklu leyti þegar amma dó missti hann aldrei kímnigáfuna og hélt áfram að láta mann hlæja. Stundirnar með honum á seinni árum á Sléttuveg- inum eru ekki síður dýrmætar og það gaf mér alltaf mikið að njóta nærveru afa Sophusar. Hann var áhugasamur og fróður, yfirvegaður og rólegur og alltaf með sama strákslega glampann í augunum. Ég get vel skilið að afi hafi verið orðinn óþreyjufullur að komast til ömmu minnar Áslaugar. Ekki er til manneskja með jafnstórt hjarta og eins mikið að gefa og hún. Fyrir mér var hún engill í mannsmynd. Hún var góðmennskan uppmáluð, hjálp- aði og studdi alla sem hún gat. Var alltaf manna stoltust af öllu sem maður tók sér fyrir hendur, sparaði manni aldrei hrósið og vildi allt fyrir mann gera. Að sjá ömmu veikjast var hrikalega erfitt og þá sérstak- lega fyrir afa. En eins og maður vissi var amma sterk og barðist hetjulega og það var dýrmætt að sjá hversu vel afi studdi við bakið á henni og tók hvert skref með henni. Það hefur gefið manni einstaklega mikið að vera hluti af lífi þessa ein- staka fólks sem Sophus Auðun og Áslaug María voru og eru. Í rúmlega sextíu ára hjónabandi lifðu þau sam- an í sátt og samlyndi, samskipti þeirra einkenndust af gagnkvæmri virðingu og einlægri ást. Margt er hægt að læra af þeim og taka þau til fyrirmyndar. Ástin og væntumþykj- an sem þau deildu og dreifðu hefur gefið svo margt gott af sér. Elsku afi minn Sophus Auðun, ég vona að þú hvílir í friði að eilífu. Ég bið að heilsa ömmu og hlakka til að hitta ykkur þegar minn tími kemur. Elsku amma mín Áslaug María, ég sakna þín og geymi þig á góðum stað í hjartanu. Afi minn og amma, ég elska ykkur af öllu hjarta og þakka ykkur fyrir allt sem þið hafið gefið mér sem er svo ótal margt og dýrmætt. Ykkar Helga Guðrún Friðriksdóttir. Símar 581 3300 - 896 8242 Allan sólarhringinn - Áratuga reynsla Suðurhlíð 35 — Fossvogi — www.utforin.is ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR Flatahrauni 5A, sími 565 5892 Kistur - Krossar Prestur - Kirkja Kistulagning Blóm - Fáni Val á sálmum Tónlistarfólk Sálmaskrá Tilk. í fjölmiðla Erfisdrykkja Gestabók Legstaður Flutningur kistu á milli landa og landshluta Landsbyggðar- þjónusta ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS Komum heim til aðstandenda ef óskað er Sverrir Einarsson Bryndís Valbjarnardóttir Oddur Bragason Guðmundur Þór Gíslason Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför móður okkar, tengdamóður og ömmu, KATRÍNAR MARÍU ÞÓRÐARDÓTTUR, Holtsbúð 103, Garðabæ, áður Stangarholti 24. Sérstakar þakkir til Þórarins Sveinssonar læknis og starfsfólks deildar 11E á Landspítalanum við Hringbraut, fyrir sérstaka alúð og ummönnun. Björg Haraldsdóttir, Jóhann Petersen, Halldór Þ. Haraldsson, Ingibjörg Barðadóttir, Ástbjörg G. Haraldsdóttir, Hreiðar Einarsson, Friðrk Haraldsson, Kristrún Zakaríasdóttir, barnabörn og fjölskyldur. Elskulegur eiginmaður minn, faðir og afi, PÉTUR GAUTI HERMANNSSON, lést á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri fimmtudaginn 12. janúar. Guðríður Sveinsdóttir, Hildur Sólveig Pétursdóttir, Erla Þuríður Pétursdóttir, Pétur Geir Magnússon, Ástrós Magnúsdóttir. Þökkum innilega auðsýnda samúð, vináttu og hlý- hug við andlát og útför móður okkar, tengda- móður, ömmu og langömmu, ÁSU GUÐLAUGAR GÍSLADÓTTUR, Fannafold 125a, Reykjavík. Sérstakar þakkir til starfsfólks L5 Landakoti. Gunnar Sighvatsson, Sigrún Sighvatsdóttir, Jón Gústafsson, Ólöf Sighvatsdóttir, Þorvaldur Bragason, Gísli Á. Sighvatsson, Kristjana G. Jónsdóttir, Ástrós Sighvatsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Innilegar þakkir til allra þeirra er sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför SIGRÍÐAR ÁSMUNDSDÓTTUR, Bólstaðarhlíð 41. Ásmundur Jakobsson, Aðalbjörg Jakobsdóttir, Hallgrímur B. Geirsson, Steinunn Sigríður Jakobsdóttir, Sverrir Hilmarsson, Jakob Jakobsson, Moira Helen Jakobsson, Johanne Agnes Jakobsson og aðrir aðstandendur.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.