Morgunblaðið - 15.01.2006, Síða 40
40 SUNNUDAGUR 15. JANÚAR 2006 MORGUNBLAÐIÐ
Álagningarseðlar fasteignagjalda í Reykjavík 2006 verða sendir út næstu daga
sem og greiðsluseðlar fyrstu greiðslu. Tollstjórinn í Reykjavík sér um innheimtu
gjaldanna.
Fasteignagjöldin skiptast í fasteignaskatt, lóðarleigu, holræsagjald, vatnsgjald
og sorphirðugjald.
Fjármálasvið framkvæmir breytingar á fasteignaskatti og holræsagjaldi elli- og
örorkulífeyrisþega eftir yfirferð skattframtala.
Þarf því ekki að sækja sérstaklega um lækkun eða niðurfellingu þessara gjalda.
Þeir sem fengu lækkun á fasteignaskatti og holræsagjaldi á liðnu ári, fá að
óbreyttum aðstæðum einnig lækkun á árinu 2006, að teknu tilliti til tekju- og
eignaviðmiðunar.
Skilyrði lækkunar eru að viðkomandi elli- eða örorkulífeyrisþegi eigi lögheimili í
Reykjavík og sé þinglýstur eigandi viðkomandi fasteignar og/eða geti átt rétt á
vaxtabótum vegna hennar skv. B-lið 68. gr. laga nr. 90/2003 um tekjuskatt og
eignarskatt.
Einungis er veitt lækkun vegna íbúðarhúsnæðis til eigin nota.
Borgarráð hefur ákveðið að tekjumörk elli- og örorkulífeyrisþega vegna
lækkunar fasteignaskatts og holræsagjalds á árinu 2006 hækki um 4% á milli
ára og verði eftirfarandi miðað við tekjur liðins árs:
100% lækkun:
Einstaklingar með tekjur allt að kr. 1.560.000.
Hjón með tekjur allt að kr. 2.180.000.
80% lækkun:
Einstaklingar með tekjur á bilinu kr. 1.560.000- til kr. 1.790.000.
Hjón með tekjur á bilinu kr. 2.180.000- til kr. 2.440.000.
50% lækkun:
Einstaklingar með tekjur á bilinu kr. 1.790.000 til kr. 2.080.000.
Hjón með tekjur á bilinu kr. 2.440.000 til kr. 2.910.000.
Við álagningu fasteignagjalda nú í janúar verður afsláttur elli- og
örorkulífeyrisþega til bráðabirgða miðaður við tekjur ársins 2004. Þegar álagning
vegna ársins 2005 liggur fyrir í ágúst á þessu ári, verður afslátturinn endanlega
ákvarðaður og verða þá allar breytingar tilkynntar bréflega.
Umhverfissvið Reykjavíkurborgar, Skúlagötu 19, veitir allar upplýsingar
varðandi álagningu og breytingar á sorphirðugjaldi í síma 411 8500.
Einnig má leita upplýsinga með tölvupósti á netfangið sorphirda@reykjavik.is.
Orkuveita Reykjavíkur, Bæjarhálsi 1, veitir upplýsingar sem snerta álagningu og
breytingar á vatnsgjaldi í síma 516 6000.
Einnig má leita upplýsinga með tölvupósti á netfangið or@or.is.
Fjármálasvið Reykjavíkurborgar, Ráðhúsi Reykjavíkur, veitir upplýsingar um
álagningu annarra fasteignagjalda og breytingar á þeim í síma 411 3602.
Einnig má leita upplýsinga með tölvupósti á netfangið innheimta@reykjavik.is.
Gjalddagar ofangreindra gjalda umfram kr. 20.000 fyrir árið 2006 eru:
1. febrúar, 1. mars, 1. apríl, 1. maí, 1. júní og 1. ágúst.
Gjalddagi gjalda undir kr. 20.000 og gjalda þeirra gjaldenda er völdu
eingreiðslu fasteignagjaldanna er 1. maí.
Hægt er að leita upplýsinga um ofangreind atriði á heimasíðu
Reykjavíkurborgar.
www.reykjavik.is
Reykjavík, 15. janúar 2006.
Borgarstjórinn í Reykjavík.
2006
Allt um
íþróttir
helgarinnar
á morgun
Síðasti skiladagur fyrir réttar lausnir er mánudagurinn 23. janúar
2006 kl. 12.00. Lausnir þarf að senda á vef skólans, www.digranes-
skoli.kopavogur.is, en athugið að þessi Pera verður ekki virk þar fyrr en
eftir hádegi þann 16. janúar.
Þessi þraut birtist á vefnum fyrir kl. 16.00 þann sama dag ásamt lausn
síðustu þrautar og nöfnum vinningshafanna.
Frekari upplýsingar eru á vef skólans.
Með bestu kveðjum frá stærðfræðiáhugamönnum í Digranesskólanum.
Stærðfræðiþraut
Digranesskóla og
Morgunblaðsins
Pera vikunnar
Hve margir þríhyrningar
felast í þessari mynd?
Einu sinni á ævinni hef ég óskað þess að jörðin gleypti mig.Við vorum, tvær íslenskar stöllur, að hefja nám í frönsk-um málaskóla þegar okkur varð starsýnt á einn í bekkn-um, sem bar þess ekki glögg merki hvoru kyninu hann til-heyrði. Herðasítt liðað hár, litskrúðugar hálsfestar og
ýmiss konar látbragð gaf helst til kynna að hann væri kona en annað
benti til að svo væri ekki. Við fórum að flissa og pískra í fullvissu
þess að enginn viðstaddur skildi orðin sem við létum falla, t.d.
viðrini, kynvillingur og aftaníossi. Maðurinn
brosti angurvær og ávarpaði okkur á íslensku.
Aldrei hef ég blygðast mín eins.
Til allrar hamingju fékk ég nokkru síðar
tækifæri til að biðja manninn afsökunar. Hann
tók því vel og kvaðst ýmsu vanur af löndum sín-
um. Reyndar hefði hann flúið land vegna kyn-
hneigðar sinnar og slitið öll tengsl við upprunann. Faðirinn hafði af-
neitað honum og komið í fóstur, kennarar drógu dár að honum og
jafnaldrar hundeltu hann með háðsglósum og svívirðingum. „Þú
skilur að ég gat ekki búið á Íslandi,“ sagði hann. „Sem betur fer
vegnaði mér vel erlendis en hlutskipti útlagans er alltaf dapurlegt.“
Síðan er mikið vatn runnið til sjávar og í fljótu bragði virðist kyn-
hneigð fólks ekki skipta miklu máli, raunar svo litlu að háværir hóp-
ar krefjast þess nú að trúfélög í landinu viðurkenni hjónabönd sam-
kynhneigðra. Biskupinn yfir Íslandi hefur verið sakaður um að
lítilsvirða homma og lesbíur með því samþykkja ekki undan-
bragðalaust rétt þeirra til kirkjulegrar hjónavígslu. Þetta var það
eina úr ágætri nýárspredikun hans sem fjölmiðlar sáu ástæðu til að
fjalla um í því skyni að kalla fram viðbrögð. Þannig telja þeir sig
vinna gegn fordómum.
„Einhentur kennari sagður nauðga piltum.“ Dagblað, sem hreykir
sér af sannleiksást, dengdi þessum ósköpum yfir þjóðina rúmri viku
síðar. Einhverra hluta vegna lífgaði það við minninguna um homm-
ann minn í Frakklandi. Þarna var ekki einungis kveðinn upp útlegð-
ardómur, eins og í tilviki hans, heldur annar miklu þyngri. Að baki
honum lá engin ákæra, aðeins kvittur sem aldrei verður staðfestur
og mun að líkindum loða við samvisku þeirra sem hrundu honum af
stað. Nú er hins vegar um seinan að biðjast afsökunar.
Útlegðardómur og annar þyngri
HUGSAÐ
UPPHÁTT
Eftir Guðrúnu
Egilson
gudrun@verslo.is