Morgunblaðið - 15.01.2006, Qupperneq 41

Morgunblaðið - 15.01.2006, Qupperneq 41
Fréttir í tölvupósti MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 15. JANÚAR 2006 41 UMRÆÐAN ÍS LE N SK A A U G L† SI N G A ST O FA N /S IA .I S U R V 3 09 76 1 /2 00 6 www.urvalutsyn.is Ferðir í eina og tvær vikur í janúar og febrúar á hreint ótrúlegu verði. 39.900* kr. Verð óháð fjölda, þó lágmark 2 í íbúð. *Innifalið: Flug, gisting, íslensk fararstjórn og flugvallarskattar. Verð m.v. að bókað sé á netinu. Ef bókað er símleiðis eða á skrifstofu bætist við 2.000 kr. bókunar- og þjónustugjald á mann. Skelltu þér í sólina á frábæru verði! Brottfarir Gistingar í boði 25. jan. og 1. feb. Montemar og Las Camelias. Fleiri gistingar í boði. Hafið samband við skrifstofu. Fáðu ferðatilhögun, nánari upplýsingar um gisti- staðina og reiknaðu út ferðakostnaðinn á netinu! Úrval-Útsýn, Lágmúla 4, sími 585 4000 Verð frá: S U N N U D A G U R 5 D A G A V E Ð U R S P Á F Y R I R G R A N C A N A R I A 18ºC 17ºC Heiðskírt M Á N U D A G U R 18ºC 17ºC Heiðskírt Þ R I Ð J U D A G U R 18ºC 17ºC Heiðskírt M I Ð V I K U D A G U R 19ºC 18ºC Heiðskírt F I M M T U D A G U R 19ºC 17ºC Heiðskírt ÍSLENSKT þjóðfélag tekur hröðum breytingum með hverju ári sem líður. Faðir minn sem fæddur er snemma á síðustu öld bjó sín fyrstu ár á afskekktum bæ austur á landi, þar sem lífsbar- áttan var hörð og ekki mulið undir nokkurn mann. Nú býr hann í hárri elli í sam- félagi, sem engan hefði getað dreymt um í sveit- inni, þar sem hann fæddist. Þetta samfélag býður uppá full- komið velferð- arkerfi, heilsu- gæslu og menntun fyrir alla sem hug hafa á og hæfi- leika og löngun til. Velmegun er hér meiri en víð- ast annars staðar í heiminum og Ís- land er eitt alls- nægtaborð í flestu tilliti. Ekki sitja þó allir við borðið, því lífið leikur marga grátt og mótlæti er misskipt meðal manna. Sumt fólk ánetjast áfengi og aðrir eit- urlyfjum og óregla býr mörgum fjölskyldum þung örlög og ógæfa eins úr fjölskyldunni hvílir eins og mara á ástvinum, sem ekki fá neitt við ráðið. Meðferðarúrræði hafa batnað til muna á síðustu áratugum og sam- tök eins og SÁÁ, Samhjálp, Byrg- ið og Götusmiðjan hafa lyft grett- istaki við að hjálpa fólki á réttan kjöl. Samt er það svo, að margt af þessu ógæfufólki fellur í gegnum möskvana á félagslegu öryggisneti velferðarsamfélagsins. Þetta er ekki margt fólk en þeim mun nöt- urlegra er það fyrir okkur hin, sem ekki skortir neitt, að þessi ógæfa skuli eiga sér stað á okkar vakt. Til þess að bæta þetta böl þarf almenna hugarfarsbreytingu . Við verðum að einsetja okkur að sú samhjálp og náungakærleikur sem við viljum telja meginein- kenni þjóðarinnar verði virkjaður í samvinnu við ríki og borg til að hjálpa þeim sem hafa villst af leið aftur á rétta braut og til að verða virkir í samfélaginu á ný. Mér sýnist að bestur árangur náist hjá samtökum eins og nefnd eru hér að ofan og eru auðvitað fleiri, en þau þurfa öflugan stuðning til sinna kærleiksverka. Sá stuðningur þarf að koma frá okkur þegn- unum beint og flest okk- ar geta vel séð af nokkr- um krónum til slíkra mála og svo þarf auðvitað að koma til stuðningur frá hinu opinbera. Sama hugsun á við varðandi þá sem hungraðir kunna að vera og heimilislausir. Við getum ekki verið þekkt fyrir að búa við mestu velsæld í sögu þjóðarinnar og vera að- gerðarlaus, þegar vitað er að fólk í borginni okk- ar fer að sofa glor- hungrað og sumir eiga hvergi höfði sínu að halla. Enn og aftur, þetta er ekki risavaxið verkefni og fjöldinn alls ekki það mikill að það ætti að vaxa neinum í augum. Þær kynslóðir sem lyftu landinu úr sárri fátækt til velmegunar og gaf okkur í arf eitt mesta velferðarsamfélag í heimi, hefði áreiðanlega sett það skilyrði fyrir arfinum, að við hjálpuðum meðbræðrum okkar í erfiðleikum, ef þeim hefði dottið í hug að taka þyrfti fram svo sjálfsagðan hlut. Möskvastærð velferðarinnar Eftir Gest Kr. Gestsson ’… margt afþessu ógæfu- fólki fellur í gegnum möskv- ana á félagslegu öryggisneti vel- ferðarsam- félagsins.‘ Gestur Kr. Gestsson Höfundur er sölumaður og flutn- ingaráðgjafi, sækist eftir 2. sæti í prófkjöri Framsóknarflokksins í Reykjavík. Prófkjör Reykjavík
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.