Morgunblaðið - 15.01.2006, Síða 72
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 SUNNUDAGUR 15. JANÚAR 2006 VERÐ Í LAUSASÖLU 350 KR. MEÐ VSK.
Jóhanna
Thorsteinson
– þinn liðsmaður
2. sætiðwww.johanna.is
Framboð til prófkjörs
Sjálfstæðisflokksins í Kópavogi
21.janúar 2006
BRIMIÐ skellur harkalega á ströndinni í vetrarveðrinu. Á Reykjanesi
er strandlengjan víða heillandi en þó hættuleg á stöku stað þegar
bylgjuhreyfingar hafsins og kraftur þeirra láta til sín taka. Það er því
vissara að dást að náttúruöflunum að verki í öruggri fjarlægð.
Morgunblaðið/RAX
Úfnar öldur við ströndina
Í BÍGERÐ er að
setja upp sjö metra
hátt útilistaverk
eftir listakonuna
Rúrí við Sólheima
í Grímsnesi. Lista-
konan vill lítið
upplýsa um verkið
annað en að mikið
gler verði í því.
Í viðtali við
Tímarit Morg-
unblaðsins í dag
segir Rúrí m.a. frá
uppvexti sínum og
ferli, allt frá því hún vakti athygli fyrir að
ráðast með sleggju til atlögu við gullinn
Benz á Lækjartorgi og mölva hann niður
árið 1974. Skemmst er að minnast gjörn-
ingsins Vocal-2 sem Rúrí flutti á stór-
tónleikunum „Ertu að verða náttúrulaus?“
í Laugardalshöll síðastliðna helgi en sagt
var um viðstadda að þeir hefðu verið
bergnumdir af uppákomunni. „Ég sé ekki
hvernig við ætlum að lifa ef ekki á jörð-
inni og þá hljótum við að þurfa að sýna
henni virðingu, rétt eins og maður þarf að
bera virðingu fyrir þeirri fjölskyldu sem
maður ætlar sér að lifa í. Annars gerum
við eins og köttur sem skítur í bælið sitt,
það er við úthýsum sjálfum okkur,“ segir
Rúrí.
Útilistaverk eftir
Rúrí við Sólheima
BANDARÍSKA
djasstríóið, The
Bad Plus heldur
tónleika á NASA
sunnudaginn 12.
mars næstkom-
andi. The Bad
Plus hefur und-
anfarin ár notið
síaukinna vin-
sælda um allan
heim en sveitin
þykir fara hönd-
um mjög frumlega um djasstónlistina þar
sem ólíkum stefnum á borð við raftónlist,
gruggrokk, popp og djass er blandað sam-
an á frumlegan en um leið áheyrilegan
hátt. Síðasta breiðskífa tríósins Suspicious
Activity? (2005) hlaut víðast hvar lofs-
verða dóma og vilja margir meina að þeir
hafi komið djasstónlistinni til bjargar þeg-
ar hún var við það að gefa upp öndina.
Það er Event sem stendur að komu The
Bad Plus hingað til lands. | 65
Slæmur plús
á Íslandi
STURLA Böðvarsson samgöngu-
ráðherra mun á næstunni kynna
áætlun um það hvernig staðið verð-
ur að uppbyggingu fjarskipta á
landsbyggðinni hvað snertir há-
hraðatengingar, stafrænt sjónvarp
til sjófarenda og dreifðari byggða
um gervihnött og farsímakerfi, und-
ir yfirskriftinni Altengt Ísland, en
ríkisstjórnin ákvað síðastliðið haust
að verja 2,5 milljörðum króna af
söluverði Símans til slíkra verkefna.
Samgönguráðherra mun kynna
þessa fjarskiptaáætlun á fundum
víða um land næstu vikurnar og
fjarskiptasjóð sem stofnaður var
með þessu fé. Samkvæmt upplýs-
ingum Morgunblaðsins mun Póst-
og fjarskiptastofnun halda utan um
framkvæmdir og útboð vegna
þessa.
Samkvæmt ákvörðun ríkisstjórn-
arinnar er gert ráð fyrir að ljúka
farsímavæðingu á þjóðvegi nr. 1 og
á helstu stofnvegum og á fjölmenn-
um ferðamannastöðum, en einnig á
að efla stórlega aðgang landsbyggð-
arinnar að háhraðatengingum. Út-
boð á uppbyggingu farsímaþjónust-
unnar verður innan fárra mánaða.
Áætlað er að uppbyggingin fari
fram næstu tvö árin og verði lokið
árið 2007.
Ekkert farsímasamband er víða á
þjóðvegi 1 og skipta lengstu kafl-
arnir tugum kílómetra, einkum
norðanlands og austan. Bent hefur
verið á að þetta geti haft hættur í
för með sér í slysatilfellum og kom
það berlega í ljós þegar kona velti
bíl á Öxnadalsheiði fyrr í vikunni,
sem sagt var frá í Morgunblaðinu,
en aðeins einn vegfarandi kom til
hjálpar. Þarna var símasambands-
laust.
Tugir kílómetra án sambands
Lengstu kaflarnir sem eru án far-
símasambands á þjóðvegi 1 eru 30–
40 kílómetra kafli á veginum á
Öxnadalsheiði og innst í Norðurár-
dal í Skagafirði, þjóðvegurinn um
Möðrudalsöræfi á Norðausturlandi,
kaflar á Austfjörðum, og á Síðu og í
Fljótshverfi sunnanlands.
Ingimar Eydal, aðstoðarslökkvi-
liðsstjóri á Akureyri, segir að nauð-
synlegt sé að bæta GSM-samband
um fjölfarna þjóðvegi, eins og
Öxnadalsheiðina, en engin byggð sé
frá bænum Engimýri í Öxnadal að
Kotum í Norðurárdal, sem sé um
30–40 kílómetra leið. Ljóst sé að
símasambandsleysi geti kostað
mannslíf ef alvarleg slys verði og
tafir á því að boða björgunarlið.
Útboð á uppbyggingu far-
símanets á næstu mánuðum
2,5 milljörðum króna af söluverði Símans verður varið til að
byggja upp farsímakerfi og háhraðatengingar á landsbyggðinni
* !'
+
*
+
,
-
) . -
/
* +
0 12
/ +
.+
3
*
&
-4
0 -
-
/&5)3"&
)
6
-
*
" +
+&/, -
8&9&9&
!
-
*%27
- Á ÞESSU ári mun Þróunarsam-
vinnustofnun Íslands hafa um 50%
meira fjármagn til ráðstöfunar en
á síðasta ári. Ástæðan er annars
vegar sú að framlög ríkissjóðs hafa
verið aukin og hins vegar gengis-
breytingar, en framlög til þróun-
armála eru reiknuð í dollurum.
Þróunarsamvinnustofnun fær
947 milljónir á fjárlögum þessa árs,
sem er 32% hækkun frá síðasta ári.
Árið 2004 fékk stofnunin 486 millj-
ónir á fjárlögum. Sighvatur Björg-
vinsson, framkvæmdastjóri Þróun-
arsamvinnustofnunar, segir að
vegna gengisbreytinga verði stofn-
unin með um 50% meira fjármagn
til ráðstöfunar í ár en í fyrra.
Sighvatur segir fagnaðarefni að
stjórnvöld skuli hafa ákveðið að
auka framlög til þróunarsamvinnu,
en þau hafa sett sér þá stefnu að
framlögin nemi 0,35% af lands-
framleiðslu á árunum 2008–2009.
Hann segir að Þróunarsamvinnu-
stofnun geti ekki aukið umsvif sín
hraðar en þetta nema að breyta um
stefnu. Stofnunin hafi markað þá
stefnu að undirbúa öll verkefni vel
áður en út í þau er farið, setja skýr
markmið og fylgja þeim eftir allt til
loka. Stofnunin sé að fara út í ný
verkefni á Sri Lanka á sviði sjávar-
útvegs og í Nikaragúa á sviði jarð-
hitamála. Bæði verkefnin krefjist
verulegs undirbúnings. Stofnunin
er fyrir í verkefnum í Malaví, Mós-
ambik, Namibíu og Úganda.
Meira fé til þróunarsamvinnu
Fjárframlög | 8
FJÖLNOTA flugu-
stöng, sem söngv-
arinn og stang-
veiðimaðurinn
Engilbert Jensen
hannaði, er nú
framleidd hjá
bandaríska fyr-
irtækinu Scott, sem
smíðar veiðisteng-
ur í fremstu röð.
Hin nýja lína
flugustanga kallast
E2. Þær eru 28 talsins og byggjast á hönn-
un Engilberts. „Með þessu verkfæri hér,“
segir Engilbert og klappar á E2-stöngina,
„hafði ég í huga fjölnota flugustöng, eina
stöng fyrir öll verkefni. Hún er með mjúk-
an topp, millistífa miðju og mjög harðan
botn. Mjúki toppurinn gerir að verkum að
þú getur veitt 400 gramma fisk og fundið
þig vel með hann. Ef þú setur í stóran fisk
sem tekur á móti, þá kemur hann niður í
stífa botninn og þú getur alveg þreytt 20
punda fisk á stöngina, sem annars er fyr-
irtaks silungastöng. Það þarf bara eina
stöng í öll verkefni.“ | 26
Ein stöng fyrir
öll verkefni