Morgunblaðið - 27.01.2006, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 27.01.2006, Blaðsíða 18
18 FÖSTUDAGUR 27. JANÚAR 2006 MORGUNBLAÐIÐ ERLENT Ráðstefna KRFÍ í Tjarnarsal Ráðhúss Reykjavíkur 27. janúar 2006 Goðsagnir um hlutverk kvenna Fundarstjóri: Áslaug Dóra Eyjólfsdóttir Kl. 14:00 Setning ráðstefnunnar: Margrét Kr. Gunnarsdóttir ritari Kvenréttindafélags Íslands. Kl. 14:10 Ávarp: Steinunn Valdís Óskarsdóttir borgarstjóri. Kl. 14:20 Erindi: Viðhorf til dæmigerðrar kvennastéttar. Margrét Sverrisdóttir varaformaður Kvenréttindafélags Íslands. Kl. 14:40 Erindi: Viðskiptalífið - er það eitthvað fyrir konur? Þóranna Jónsdóttir framkvæmdastjóri þróunarsviðs Vistor og doktorsnemi við Cranfield University. Kl. 15:00 Erindi: Staðalímyndir og kynferðislegt ofbeldi. Guðrún Jónsdóttir talskona Stígamóta. Kl. 15:20 Erindi: Ímynd kvenna af erlendum uppruna. Sabine Leskopf stjórnarmaður í W.O.M.E.N. - samtökum kvenna af erlendum uppruna. Kl. 15:40 Erindi: Hver er ímynd jafnréttis? Þorgerður Einarsdóttir lektor Háskóla Íslands. Kl. 16:00 Umræður og fyrirspurnir. Léttar veitingar verða í boði að ráðstefnu lokinni. Tbilisi. AFP. | Míkhaíl Shaakasvhili, forseti Georgíu, stytti í gær heim- sókn sína til Davos í Sviss, þar sem nú stendur yfir árleg ráðstefna World Economic Forum, og hélt heim á leið til Tbilisi en ófremdar- ástand ríkir í Georgíu vegna mikilla kulda og vaxandi orkuvandamáls í kjölfar þess að framin voru skemmd- arverk á gasleiðslum frá Rússlandi. Shaakashvili sagði að gasbirgðir í Georgíu væru á þrotum og raf- magnsleysi var viðvarandi víða í landinu. Vond veðrátta undanfarna viku hefur leikið orkuleiðslur í land- inu grátt og sem fyrr segir voru framin skemmdarverk á megingas- leiðslunni til Georgíu frá Rússlandi. Miklar frosthörkur gera vandann enn erfiðari en allt að tíu stiga frost hefur verið á nóttunni. Skólum hefur verið lokað og raforka er skömmtuð, þannig að hægt sé að sjá sjúkrahús- um og öðrum þess háttar stofnunum fyrir orku. „Rafmagnið fór um klukkan eitt í nótt og síðan þá erum við alveg að frjósa. Það er ömurlegt að stjórn- völd skuli ekki geta leyst þetta vandamál. Til hvers eru þau, ef allt landið er að frjósa í hel?“ spurði Irakli Gogokhidze, ellilífeyrisþegi í Tbilisi. Rússar segja skemmdarverkin á gasleiðslunum um síðustu helgi hafa verið hryðjuverk. En Saakashvili Georgíuforseti hefur sakað rússnesk stjórnvöld um að hafa sjálf staðið fyrir skemmdarverkunum. Þeim ásökunum hefur Moskvu-stjórn hafnað, segir þær „móðursýkisleg- ar“, en mál þetta staðfestir hins veg- ar hversu erfitt sambandið er nú milli þessara nágrannaríkja. Reuters Íbúar Tbilisi höggva sér við í gær til að geta hitað upp hús sín. Ófremdar- ástand er í landinu vegna orkuskorts og vetrarveðurs. Ófremdarástand í Georgíu Íbúarnir án gass og raforku í mestu vetrarhörkum í manna minnum London. AFP. | Keppnin um embætti leiðtoga Frjálslynda demókrata- flokksins í Bretlandi tók óvænta stefnu í gær þegar blöð birtu fram- haldsfréttir um kynlíf, lygar og drykkjuskap þeirra sem eftir upp- hafningunni sækjast. Simon Hughes, sem sóttist eftir embættinu , lýsti yfir því í gær að hann hefði átt í samkynhneigðum ástarsamböndum og viðurkenndi ennfremur að hann hefði logið þegar hann var spurður þar um. Upplýsingar þessar fylgja í kjölfar afsagnar leiðtogans, Charles Kenn- edy, sem lét af embætti eftir að hafa játað að hann ætti við drykkjuvanda að glíma og hefði reynt að leyna hon- um með blekkingum. Annar fram- bjóðandi, Mark Oaten, dró sig í hlé fyrr í vikunni þegar dagblað upplýsti að hann hefði keypt kynlífsþjónustu af karlmanni. Framboðsfrestur í leiðtogakjörinu rann út á miðvikudag og verða þeir Hughes, Chris Huhne, talsmaður flokksins á vettvangi efnahagsmála, og Menzies Campbell, starfandi for- maður, í kjöri. „Ég er öldungis tilbúinn til að upp- lýsa að ég hef verið í bæði samkyn- hneigðum og gagnkynhneigðum samböndum,“ sagði Hughes, sem er 54 ára gamall, í viðtali við The Sun. „Ég vænti þess að þetta verði ekki til að dæma mig úr leik í opinberu lífi,“ bætti hann við. Kvaðst hann ekki vita til þess að hann hefði gerst sekur um afglöp af neinu tagi enda væri hann þeirrar hyggju að kynhneigð manna kæmi hæfni þeirra til að sinna op- inberum embættum ekkert við. Hug- hes, sem er ókvæntur, hefur tvívegis lýst yfir því í viðtölum að hann sé ekki samkynhneigður. Í viðtalinu í gær sagðist hann gera sér ljóst að hann hefði á undanliðnum dögum ef til vill verið „í fullmikilli varnar- stöðu“ gagnvart eigin kynhneigð. Kom inn á þing 1983 Hughes vakti fyrst verulega at- hygli er hann bauð sig fram til þings árið 1983. Þá fór hann gegn þekktum baráttumanni fyrir réttindum sam- kynhneigðra. Aðferðir Hughes þá sættu gagnrýni en helsta slagorð hans var að hann væri „rétti kost- urinn“ („The straight choice“ á enskri tungu). Þótti sýnt að með þeim orðum væri vísað til kynhneigð- ar andstæðingsins. Kynlíf, lygar og áfengi Reuters Mark Oaten, Chris Huhne, Simon Hughes og Menzies Campbell (frá vinstri til hægri) á flokksráðstefnu í London fyrr í mánuðinum. Stefnumálin gleymd í leiðtogakjöri Frjálslyndra demókrata LIÐSMAÐUR varnarsveita Kos- ovo heldur á mynd af Ibrahim Rugova, leiðtoga Kosovo-Albana, þar sem hann gengur fyrir lík- fylgd forsetans, en hann var jarð- settur í Pristina í Kosovo í gær. Þúsundir Kosovo-Albana fylgdu Rugova til grafar en hann lést af völdum lungnakrabbameins sl. laugardag. AP Rugova borinn til grafar Riyadh. AFP. | Stjórnvöld í Sádi-Ar- abíu kölluðu í gær sendiherra sinn í Danmörku, Mohammad Ibrahim Al-Hejailan, heim en ákvörðunin er liður í mótmælum gegn birtingu skopmynda af spámanninum Mú- hameð í danska blaðinu Jyllands- Posten í september sl. Jyllands-Posten birti alls tólf skopmyndir af Múhameð, þ. á m. eina þar sem spámaðurinn sést með sprengju á höfðinu, í líki túrb- ans. Mikillar reiði hefur orðið vart vegna myndanna meðal múslíma í Danmörku og víðar en í íslam eru myndir af spámanninum bannaðar. Anders Fogh Rasmussen, for- sætisráðherra Danmerkur, hefur hins vegar hafnað öllum óskum um að hann beiti sér í málinu, segir hann stjórn sína engin völd hafa yf- ir frjálsum fjölmiðlum í landinu. Og Jyllands-Posten hefur neitað að biðjast afsökunar á birtingu mynd- anna, segir blaðið að mál þetta varði grundvallarréttindi eins og mál- og ritfrelsi. Kalla sendiherra sinn frá Danmörku
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.