Morgunblaðið - 27.01.2006, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 27.01.2006, Blaðsíða 8
8 FÖSTUDAGUR 27. JANÚAR 2006 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Við hjá Öryrkjabandalaginu boðum að hommar megi giftast og við boðum að lesbíur megi giftast, en við boðum ekki að blindir fái sýn, við boðum að þeim sé sparkað. Síðastliðið sumarlagði María HrönnNikulásdóttir, í samvinnu við Ólaf Örn Bragason, sálfræðing hjá Ríkislögreglustjóra, fram spurningalista fyrir lög- reglumenn en tilgangur rannsóknarinnar var að kanna tíðni áfallastreitu og starfsþrot lögreglu- manna. Áfallastreita og starfsþrot hafa að undan- förnu fengið aukna athygli og þekking á þessum fyr- irbærum er sífellt að aukast. Streitumikið starf Áfallastreitu má skipta í þrjá flokka; endurupplifun atburðar- ins, þar sem fólk upplifir uppá- þrengjandi hugsanir eða endur- teknar martraðir um atburðinn, tilfinningalegan doða og áhuga- leysi (hliðrun), þannig að fólk forðast áreiti sem minna á atburð- inn, missir áhuga á mikilvægum athöfnum og finnur til minni til- finninga og að lokum viðvarandi einkenni aukinnar örvunar, þar sem fólk er stöðugt á varðbergi og bregst á öfgafullan hátt við minnstu áreitum. Þá eru einbeit- ingartruflanir, pirringur, reiði- köst og erfiðleikar með svefn al- geng einkenni. Starfsþrot, eða kulnun, er hug- tak sem á ensku nefnist „burnout“ en starfsþrot fela einnig í sér þrenns konar einkenni: tilfinn- ingalega örmögnun þar sem við- komandi upplifir sig tilfinninga- lega upp urinn eftir samskipti við annað fólk og finnst hann ómögu- lega geta slakað á eða náð sér að nýju. Hlutgerving er einkenni þar sem kaldhæðin viðhorf og nei- kvæðar tilfinningar eru í garð fólksins sem starfsmaður hefur afskipti af og versnandi árangur þar sem viðkomandi upplifir hrak- andi hæfni í starfi, einkum varð- andi það hvernig hann tekst á við málefni skjólstæðinga. Samrýmist erlendum rannsóknum Í niðurstöðum rannsóknarinn- ar, sem var B.A.-verkefni Maríu Hrannar frá sálfræðiskor Háskóla Íslands, kemur fram að um 31% lögreglumanna sýndi vísbending- ar um upplifun á mikilli áfalla- streitu en starfsþrot voru mismik- il eftir einkennum. Talsvert var um hlutgervingareinkenni og upplifun á versnandi árangri en minna var um tilfinningalega ör- mögnun. Tengsl áfallastreitu við starfsþrot voru mest við tilfinn- ingalega örmögnun sem er talið vera megineinkenni starfsþrota. Þeir sem höfðu mikil einkenni endurupplifunar á áfalli voru hins vegar mun líklegri en aðrir til að hafa öll einkenni starfsþrota. At- burðir líklegastir til að valda til- finningastreitu, samkvæmt rann- sókninni, voru „að horfa upp á manneskju deyja“, „að meðhöndla fólk sem orðið hefur fyrir alvar- legu ofbeldi“ og „að vinna að mál- um varðandi ofbeldi eða misnotk- un á börnum“. Samrýmdust þessar niðurstöður erlendum rannsóknum á áfallastreitu lög- reglumanna en kyn, aldur, starfs- aldur eða hjúskaparstaða sýndu ekki marktæk tengsl. Páll Winkel, framkvæmdastjóri Landssambands lögreglumanna, sagði í samtali við Morgunblaðið að starfsumhverfi lögreglumanna á Íslandi væri mjög streituvald- andi og benti á því til sönnunar að meðalaldur íslenskra lögreglu- manna væri 13 árum lægri en meðalaldur hins almenna borgara og að um 1% lögreglumanna hefði framið sjálfsvíg síðustu sex ár. Spurður hvort lögreglan væri með áfallahjálp sagði Páll að engar sérstakar vinnureglur ættu við um áföll í starfi og væru viðbrögð oftast tilviljunarkennd. Hann tók sem dæmi atvik þar sem maður framdi sjálfsmorð fyrir framan 11 lögreglumenn. Þá hefði verið kall- aður til prestur sem hefði rætt við lögreglumennina en svo hefðu þeir þurft að vinna úr sínum mál- um sjálfir, og það eigi við í flestum tilvikum. Páll sagði að lögreglumenn vildu sjá kerfisbundin viðbrögð við áföllum sem slíkum þar sem hópur fagmanna myndi taka á vandamálum lögreglumanna. Til að mynda hefði verið send skýrsla til dómsmálaráðuneytisins þar sem er samantekt um það sem betur megi fara í starfi lögreglu- manna. Páll benti einnig á að við- horf til áfalla innan lögregluliðsins hefðu breyst á síðustu árum. Áður fyrr þótti það vottur um linkind ef menn sýndu einhver tilfinninga- viðbrögð en sú hugsun hefði breyst töluvert á síðustu árum. Páll sagði að lögreglumenn væru í auknum mæli að huga að starfsöryggi sínu og umhverfi og benti á í því samhengi að refsi- ramminn væri ekki nýttur nema um 20% í ofbeldismálum gegn lög- reglumönnum. Einnig hefðu hót- anir gegn lögreglumönnum aukist og hótanir gegn fjölskyldum þeirra að sama skapi en fjölskyld- um um 40% lögreglumanna hefði verið hótað. Páll sagði mikilvægt að taka á þessum vandamálum og tryggja starfsumhverfi lögreglu- manna og þar af leiðandi umhverfi borgaranna. Fréttaskýring | Lögreglustarfið streituvaldur Þörf á góðri áfallahjálp 31% lögreglumanna sýndi vísbendingar um upplifun mikillar áfallastreitu Lögreglumaður að störfum. Með hæsta starfsaldur á Norðurlöndunum  Lögreglumenn á Íslandi eru með hæsta starfsaldur á Norð- urlöndunum. Páll Winkel, hjá Landssambandi lögreglumanna, sagði að fyrir árið 2001 hefðu ís- lenskir lögreglumenn ekki kom- ist á lífeyrisaldur fyrr en um sjö- tugt. Í dag komast íslenskir lögreglumenn á lífeyrisaldur 65 ára, en það er í hærri kantinum því að annars staðar á Norð- urlöndunum miðast eftirlauna- aldur lögreglumanna við 55–65 ár. Eftir Sigurð Pálma Sigurbjörnsson siggip@mbl.is ÚTHLUTAÐ verður í fyrsta skipti úr Minningarsjóði hjónanna Helgu Jónasdóttur og Bjarna Snæbjörnssonar, læknis og heið- ursborgara Hafnarfjarðar, hinn 8. mars nk. sem er afmælisdagur Bjarna. Að sögn Bjarna Jónassonar, stjórnarformanns sjóðsins og elsta barnabarns þeirra hjóna, á sjóð- urinn sér nokkuð langa forsögu þótt aldrei hafi áður verið út- hlutað úr honum áður. „Þegar Bjarni varð 75 ára árið 1965 vildi Raftækjaverksmiðja Hafn- arfjarðar (Rafha) gefa honum gjöf og hann kom því þannig fyrir að stofnaður var sjóður sem hét Af- mælisgjafasjóður Hafnfirðinga. Í nóvember 2004 var heiti sjóðsins breytt í Minningarsjóð hjónanna Helgu Jónasdóttur og Bjarna Snæbjörnssonar, læknis í Hafn- arfirði,“ segir Bjarni. Aðspurður segir Bjarni tilgang sjóðsins vera að veita styrki til að hlúa að hagsmunamálum og vel- ferð barna í Hafnarfirði allt að 18 ára aldri. Bendir hann á að í skipulagsskrá sjóðsins sé sér- staklega kveðið á um að einkum skuli veita styrki til starfsemi á vegum einstaklinga, samtaka, fyr- irtækja og opinberra aðila sem veita börnum, sem eiga við erf- iðleika að etja vegna fötlunar, sjúkdóma eða félagslegra að- stæðna, þjónustu og aðstoð. Úthlutað verður árlega Að sögn Bjarna er ráðgert að úthluta árlega úr sjóðnum hér eft- ir. Aðspurður segir hann sjóðs- eignina nema á fimmtu milljón, en í skipulagsskrá sjóðsins er kveðið á um að ekki megi skerða höf- uðstól sjóðsins, aðeins megi ráð- stafa ávöxtun hans hverju sinni. Bjarni Snæbjörnsson fæddist árið 1889 og starfaði frá 1917 sem læknir í Hafnarfirði í 50 ár sam- fellt og var yfirlæknir St. Jós- efsspítala á árunum 1933–1956. Hann var alþingismaður Hafnfirð- inga á árunum 1931–1934 og 1937– 1942. Í fréttatilkynningu um minn- ingarsjóðinn kemur fram að Bjarni hafi átt einkar farsælan starfsferil og notið vinsælda og virðingar bæjarbúa. Hann hafi lát- ið félagsstörf mjög til sín taka og verið falin trúnaðarstörf af ýmsum toga. Bjarni kvæntist Helgu frá Bakka í Hnífsdal, en hún var fædd 1894. Helga var kennari og síðar húsfreyja á Kirkjuvegi 5. Árið 1968 samþykkti bæj- arstjórn Hafnarfjarðar einróma að gera Bjarna að heiðursborgara Hafnarfjarðar í virðingar- og þakklætisskyni fyrir hálfrar aldar læknisstörf í Hafnarfirði. Bjarni lést árið 1970. Umsóknarfrestur um fjárstyrk úr Minningarsjóði Helgu og Bjarna er til 20. febrúar, en styrk- urinn verður sem fyrr sagði af- hentur formlega hinn 8. mars nk. Stjórn sjóðsins skipa auk Bjarna Jónassonar læknis þeir Lúðvík Geirsson bæjarstjóri og sr. Gunn- þór Þ. Ingason sóknarprestur. Minningarsjóður hjónanna Helgu Jónasdóttur og Bjarna Snæbjörnssonar læknis í Hafnarfirði Ætlað að hlúa að hags- munamálum barna Hjónin Helga Jónasdóttir og Bjarni Snæbjörnsson, læknir í Hafnarfirði.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.