Morgunblaðið - 27.01.2006, Page 30

Morgunblaðið - 27.01.2006, Page 30
30 FÖSTUDAGUR 27. JANÚAR 2006 MORGUNBLAÐIÐ Hallgrímur B. Geirsson. Styrmir Gunnarsson. Framkvæmdastjóri: Ritstjóri: STOFNAÐ 1913 Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík. Aðstoðarritstjórar: Karl Blöndal, Ólafur Þ. Stephensen. Fréttaritstjóri: Björn Vignir Sigurpálsson. SIGUR HAMAS Úrslitin í kosningunum í Palest-ínu marka straumhvörf í pal-estínskum stjórnmálum. Sig- ur Hamas-samtakanna þýðir að Fatah, flokkur þeirra, sem hafa leitt sjálfstæðisbaráttu Palestínumanna, lengst af undir forystu Yassers Ara- fats, hefur misst stöðu sína. Hamas er stærsta hreyfing palestínskra íslam- ista og var stofnuð fyrir tæplega tveimur áratugum þegar fyrri upp- reisn Palestínumanna gegn hernámi Vesturbakkans og Gaza hófst. Sam- tökin hafa m.a. barist fyrir markmið- um sínum með hryðjuverkum, sem beint hefur verið gegn borgurum í Ísr- ael. En þau hafa einnig unnið ötullega að uppbyggingu á svæðum Palestínu- manna, þar á meðal reist skóla, sjúkrahús og trúarstofnanir. Hamas fékk samkvæmt síðustu töl- um rúman meirihluta atkvæða og 76 af 132 sætum á á löggjafarsamkundu Palestínumanna. Palestínumenn kusu síðast til þings árið 1996. Þá var Fatah undir forystu Yassers Arafats, hafði litla sam- keppni, ekki síst vegna þess að Ham- as-liðar sniðgengu kosningarnar, og vann afgerandi sigur. Nú var staðan önnur. Innan Fatah var hver höndin upp á móti annarri. Upp blossuðu deil- ur, sem greinilega hafði verið haldið niðri á meðan Arafats naut við. Þær voru ekki síst á milli kynslóða, annars vegar útlagakynslóðarinnar, sem ásamt Arafat hafði haldið völdum í samtökunum, og hins vegar yngri Pal- estínumanna, sem báru hitann og þungann af sjálfstæðisbaráttunni gegn hernámi Ísraela heima fyrir. Stjórnarfarið undir forustu Fatah hef- ur í þokkabót einkennst af spillingu og einkavinavæðingu. Þar við hefur bæst upplausn og óöld, meðal annars vegna þess að hinn vopnaði armur Fatah hef- ur ógnað öryggi á landsvæðum Palest- ínumanna. Að einhverju leyti bera úr- slit kosninganna því vitni að almenningur efist um hæfni Fatah til forystu. Ísraelar, Bandaríkjamenn og Evr- ópusambandið hafa fordæmt Hamas fyrir hryðjuverk og sagði Ehud Ol- mert, forsætisráðherra Ísraels, að hann myndi ekki semja við stjórn, sem ekki uppfyllti lágmarksskuldbinding- ar um að berjast gegn hryðjuverkum. Kosningarnar í Palestínu virðast hafa farið vel fram. Um 900 kosninga- eftirlitsmenn fylgdust með kosning- unum. Í tilkynningu frá sendinefnd á vegum Evrópuþingsins sagði að kosn- ingarnar hefðu farið betur fram en í sumum aðildarríkjum Evrópuráðsins og hefðu í raun borið fjölræði vitni. Allir hlutaðeigendur hefðu haldið aft- ur af sér og sýnt lýðræðinu virðingu sína. Þessi staðreynd gefur tilefni til bjartsýni um hið pólitíska framhald. Það væri aftur á móti miður ef úr- slitin leiddu til pólitískrar einangrun- ar Palestínumanna. Forysta Hamas verður að sjálfsögðu að snúa baki við hryðjuverkum, eigi að takast að koma í veg fyrir það. Það verður hins vegar að gefa samtökunum kost á að gera það. Hluti af því að Ísraelar og Palest- ínumenn geti búið hlið við hið er að draga strik yfir fortíðina og ekki má gleyma því að eitt sinn voru stjórn- málamenn í forystu í Ísrael, sem á sín- um tíma voru eftirlýstir af Bretum fyrir hryðjuverk. Það er hins vegar ekki líklegt að neitt miði í þeim efnum fyrr en kosið hefur verið í Ísrael í lok mars. Sigur Hamas gæti jafnvel orðið vatn á myllu þeirra afla í Ísrael, sem telja að gengið hafi verið of langt í að koma til móts við Palestínumenn. Það verður því forvitnilegt að fylgjast með framhaldinu, en ekki er hægt að segja að óvissan fyrir botni Miðjarðarhafs hafi minnkað með sigri Hamas. STYTTINGIN OG TUNGUMÁLIN Tungumálakennarar við HáskólaÍslands, á vegum Stofnunar Vig- dísar Finnbogadóttur, og við Háskól- ann í Reykjavík hafa í nýrri skýrslu sett fram athugasemdir við drög að námskrám í tungumálum, sem byggð- ar eru á áformum um styttingu náms til stúdentsprófs. Athugasemdirnar koma fram í skýrslu, sem kynnt var á málþingi um tungumálakennslu í fyrradag. Tvennt stendur upp úr í gagnrýni þessara tveggja háskólastofnana á námskrárdrögin. Annað er það, sem mikill fjöldi fagmanna hefur gagnrýnt við styttingaráformin; að í áætlunum um að flytja námsefni úr framhalds- skólanum og niður í grunnskólann sé ekki hugsað nægilega fyrir því að í grunnskólanum sé að finna hæfa kennara með sérmenntun til að kenna tungumál. Skýrsluhöfundar benda á að stórefla þurfi menntun tungumála- kennara og sú spurning vaknar óneit- anlega hvort efling kennaramenntun- ar sé ekki forsenda þess að hægt sé að ráðast í styttingu námsins, eins og hún hefur verið kynnt. Það gerist ekki í einu vetfangi með endurmenntunar- námskeiðum, eins og Morgunblaðið hefur ítrekað bent á. Hitt, sem lesa má út úr skýrslunni, er að höfundar hennar óttast augljós- lega að breytingarnar verði til þess að draga hlutfallslega úr kunnáttu í dönsku og þriðja erlenda tungumálinu (þýzku, frönsku, spænsku) en enskan verði allsráðandi. Hér er sannarlega ástæða til að staldra við. Fáar þjóðir þurfa eins á kunnáttu í erlendum tungumálum að halda og Ís- lendingar. Ísland er pínulítið mál- svæði, en jafnframt ákaflega opið hag- kerfi, sem á viðskipti við mörg ríki. Og við þurfum ekki bara að kunna ensku. Eins og bent er á í skýrslunni eru Norðurlöndin og ýmis ríki á megin- landinu á meðal þeirra landa, sem við eigum við mest viðskipti og önnur samskipti. Ferðamenn sem koma til Íslands kunna ekki nærri því allir ensku. Við verðum að hafa breiðari grunn, ef við ætlum að standa okkur í alþjóðlegri samkeppni – og kunnátta í fleiri tungumálum en ensku er raunar líka forsendan fyrir því að við getum kynnzt fleiri menningarheimum en þeim engilsaxneska og þannig víkkað okkar menningarlega sjóndeildar- hring. Morgunblaðið vill enn ítreka, að varlega verði farið í þær breytingar á námi til stúdentsprófs, sem fyrirhug- aðar eru. Markmiðið er gott; að koma íslenzkum ungmennum ári fyrr út á vinnumarkaðinn en nú er. En á leið- inni má ekki kasta gæðum námsins og mikilvægum menningarviðmiðum Ís- lendinga, á borð við það að læra mörg tungumál vel, fyrir róða. Hagfræðistofnuns HáskólaÍslands og NovatorPartners stóðu fyrirráðstefnu í gær vegna útgáfu skýrslu Hagfræðistofnunar um fyrirkomulag gengismála á Ís- landi. Fyrirlesarar á ráðstefnunni voru Robert Mundell, nóbelsverð- launahafi í hagfræði 1999 og pró- fessor við Columbia University, Frederic Mishkin prófessor við Columbia University og fyrrver- andi stjórnarmaður Seðlabanka New York fylkis og Pentti Kouri, fjárfestir og einn eiganda Kouri In- vestments ásamt þeim Gylfa Zoega, prófessors við viðskipta- og hagfræðideild Háskóla Íslands, og Birkbeck College og Tryggva Þórs Herbertssyni, forstöðumanni Hag- fræðistofnunar og prófessors við viðskipta- og hagfræðideild Há- skóla Íslands, en þeir eru höfundar skýrslunnar. Fyrirlesarar voru flestir sam- mála um að fyrirkomulag gengis- mála hérlendis væri gott og ekki væri þörf á að taka upp annað fyr- irkomulag nema þá ef vera skyldi að Ísland ákvæði að taka upp evru, en þar spiluðu pólitískir þættir stóran þátt. Ný myntkarfa Mundell sagði í samtali við Morgunblaðið að hann teldi að Ís- land ætti að hugleiða alvarlega þann möguleika að ganga í Evrópu- sambandið og taka upp evru. „En ég mæli ekki með því að Ísland ger- ir það strax vegna þess að í fyrsta lagi hefur gengi dollars á móti evru verið óstöðugt undanfarið sem leitt hefur til ákveðinnar óvissu sem skapar vandamál fyrir Ísland því báðir þessir gjaldmiðlar eru mik- ilvægir fyrir Íslandi,“ sagði Mundell. Í öðru lagi sagði Mundell að Evr- ópusambandið hefði átt við ákveðna erfiðleika að stríða undanfarið sem Ísland ætti að bíða eftir að gengju yfir. Minntist hann á stækkun sam- bandsins og Tyrkland í þeim efnum ásamt því að erfitt hafi reynst að fá stjórnarskrá sambandsins sam- þykkta í aðildarlöndunum, m.a. hafi Frakkland og Holland hafnað henni í þjóðaratkvæðagreiðslu. Hann tel- ur þó víst að stjórnarskráin verði samþykkt innan fárra ára. „Ég tel því að best væri fyrir Ís- land að halda þessum möguleika opnum á næstu árum og Íslend- ingar ættu að halda áfram að styrkja sambandið við Evrópu og ekki að útiloka neitt,“ sagði Mundell. Hann sagði að sem stendur ætti að halda áfram að hafa krónuna sjálfstæða en styðja hana við doll- ara og evru, þ.e. taka upp nýja myntkörfu sem myndi styðjast til helminga við dollar og evru. Engin þörf fyrir nýja stefnu Mishkin fjallaði í sínu erindi um kosti og galla þeirra möguleika sem í boði eru þegar þjóðir marka sér stefnu í gengismálum. Hvað Ísland varðar er það mat Mishkin að hið nýja gengisfyrir- komulag sem tekið var upp árið 2001 hefði skilað góðum árangri. Seðlabankinn hafi skapað sér trú- verðugleika og farsællega hafi tek- ist að halda verðbólgumarkmiðum hans. Það sýni að Ísland þurfi ekki flytja hagstjórn sína yfir til Seðla- banka Evrópu. Hann sagði að Seðlabanki Íslands nyti trúverðug- leika en slíkt hið sama væri ekki hægt að segja um alla seðlabanka þróaðra landa og nefndi h dæmi Seðlabanka Ítalíu væri hægt að treysta. Mishkin endaði erindi s unum: „If it ain’t broke, w sem útleggja mætti á hvers vegna að laga það er brotið. Hvers vegn það sem ekki Tryggvi Þór Herbertsson Mundell, nóbelsverðlauna Pentti Kouri fjárfestir og Eftir Sigurhönnu Kristinsdóttur sigurhanna@mbl.is Upptaka evru kostur sem Ísland ætti að íhuga alvarlega RANNSÓKNARSKIP Hafrannsóknastofn- unar, Árni Friðriksson RE 200, lét úr höfn á Reyðarfirði í áframhaldandi loðnuleit um miðj- an dag í gær og var stefnan sett í austur, norð- ur fyrir Þórsbanka, um sex tíma stím, en þar fann færeyska rannsóknarskipið Magnus Heineson loðnu fyrr í vikunni. Leiðangurinn hófst strax eftir áramót en skipið kom til Reyð- arfjarðar á þriðjudag til að taka um borð flott- roll auk þess sem Hjálmar Vilhjálmsson fiski- fræðingur tók við leiðangursstjórninni af Sveini Sveinbjörnssyni, en hann var nýkominn heim af ráðstefnu í Mexíkó. Með Árna Friðrikssyni við loðnuleit verður Ásgrímur Halldórsson SF 250 sem lagði af stað frá Hornafirði í gær og leitar þvers og kruss á 70 sjómílna svæði norður fyrir Dala- tanga til að byrja með en Árni Friðriksson RE verður þar fyrir austan. Leiðangurinn er fram- hald af loðnuleit sem staðið hefur yfir í haust og svo aftur eftir áramót með misjöfnum ár- angri. Nú verður auk leitarinnar skoðað hvern- ig loðnutroll hagar sér við veiðarnar en fengið var að láni troll af Faxa RE. Að sögn Guðmundar Gunnarssonar, þróun- arstjóra Hampiðjunnar í veiðarfæragerð, sem staddur er um borð til að fylgjast með veið- unum, var fengið að láni 1.280 metra langt flottroll og verður skoðað hvort ánetjunin sé eins slæm og af er látið eða hvort flottroll sé það skaðræðisveiðarfæri sem menn vilja vera láta. „Fylgst verður með hvernig loðnutorfan hagar sér þegar trollið fer í gegnum hana en til þess verður notuð mjög tæknilega fullkomin neðansjávarmyndavél sem búin er sónartæki sem sneiðmyndar og má þá vel sjá hvernig og hvort loðnutorfan tvístrast,“ sagði Guðmundur og sagði að bæði væri vísindamönnum Haf- rannsóknastofnunar mikið í mun að sjá þetta sem og Hampiðjumönnum til að geta þróað veiðarfærið í samræmi við þessar niðurstöður til að það yrði sem umhverfisvænast. Hjálmar Vilhjálmsson vildi ekki segja mikið um hversu lengi þessi loðnuleit kynni að s v v u þ m s Spenningur um borð í Á Skipverjar á Árna Friðrikssyni RE gera flottrollið Eftir Kristin Benediktsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.