Morgunblaðið - 27.01.2006, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 27.01.2006, Blaðsíða 6
6 FÖSTUDAGUR 27. JANÚAR 2006 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR UMSÓKN þýsku byggingaversl- unarkeðjunnar Bauhaus um lóð í landi Úlfarsfells er ágætlega tekið af forstjórum stærstu keppinaut- anna, Byko og Húsasmiðjunnar, og formanni skipulagsráðs, Degi B. Eggertssyni. Að sögn Dags verður umsóknin tekin fyrir á fundi skipulagsráðs Reykjavíkur næstkomandi miðviku- dag. „Það eru lóðir við Vesturlands- veg sem gætu fallið undir versl- anarekstur af þessu tagi. Bauhaus er að sækja um eina tiltekna lóð við Úlfarsfell en gatnakerfið þar á að geta borið þetta vel,“ segir Dagur og bætir við að það sé ætíð áhuga- vert og ánægjulegt þegar stórar al- þjóðlegar verslunarkeðjur af þessu tagi vilji setja sig niður á Íslandi. „Ég þykist þekkja dæmi erlendis frá þar sem tilkoma Bauhaus á markaðinn leiddi til lækkunar á vöruverði,“ sagði Dagur. Einnig áhrif á minni verslanir Ásdís Halla Bragadóttir, forstjóri Byko, segir alla samkeppni af hinu góða. Bauhaus hafi skoðað íslenska markaðinn í langan tíma og verið ljóst að fyrirtækið vilji koma hing- að, það telji sig hafa forsendur fyrir því en Byko geti ekki lagt mat á þeirra forsendur. Fjölbreytni og samkeppni á markaðnum sé af hinu góða. Ásdís Halla segir Byko hafa sýnt vaxandi styrk á byggingavörumark- aðnum. „Við vitum að við erum með það gott vöruframboð og verð að við höfum getað uppfyllt væntingar okkar viðskiptavina.“ Aðspurð hvort rými sé fyrir Bau- haus á markaðnum bendir Ásdís Halla á að margir fleiri séu þar heldur en Byko og Húsasmiðjan. Margir minni að- ilar keppi í sér- hæfðara vöruúr- vali og viðbót á markaðinn hafi ekkert síður áhrif á þá heldur en hina stóru. Eins og fram kom í Morg- unblaðinu í gær er lóðin sem Bau- haus hefur sótt um í landi Úlfars- fells, austan Vesturlandsvegar. Vestan vegarins, við Korpu, hefur Smáratorgi, fasteignafélagi í eigu Norvik, eiganda Byko, verið út- hlutað lóð. Þar eru áform um að Byko, Rúmfatalagerinn og fleiri að- ilar verði í 40 þúsund fermetra verslunarhúsnæði. Undirbúningur framkvæmda stendur yfir en þær hafa að öðru leyti ekki verið tíma- settar. Húsasmiðjan er svo ekki langt frá þessum lóðum, við Vesturlandsveg- inn. Afkoma undir væntingum Steinn Logi Björnsson, forstjóri Húsasmiðjunnar, segir um áhuga Bauhaus að það ríki frjálsræði á markaðnum, öllum sé frjálst að keppa þar. Það verði að koma í ljós hvort rými sé fyrir Bauhaus eða ekki. Steinn segir það alkunna í grein- inni að afkoma Bauhaus á Norð- urlöndunum hafi verið undir þeirra væntingum, þeir hafi ekki náð að samþætta verslunina fyrir stóra við- skiptavini og neytendur um leið. „Stórir kassar“ hafi verið reistir um verslanir, eingöngu ætlaðar almenn- ingi. Sér vitanlega hafi afkoman verið best í höfuðborgum hvers lands. „Húsasmiðjan leggur upp úr því að sinna fyrirtækjum og fagmönn- um mjög vel, sem og einstaklings- markaðnum. Ef Bauhaus telur sig geta komið hingað og grætt pening þá verður það vonandi til þess að markaðurinn stækkar og við græðum líka,“ segir Steinn Logi. Formaður skipulagsráðs Reykjavíkur um lóðarumsókn Bauhaus við Úlfarsfell Áhugi alþjóðlegra verslana- keðja ætíð ánægjulegur Forstjórar Byko og Húsasmiðjunnar segja samkeppni af hinu góða Dagur B. Eggertsson Steinn Logi Björnsson Ásdís Halla Bragadóttir Á MEÐAN við höldum áfram að kyngera litlar stúlkur, s.s. með klæðnaði sem ýtir undir kynferð- islegar tilvísanir, og á meðan markaðsvæðing kynlífs nær niður til barna er ekki við öðru að búast en að slík viðhorf fái tilvist, sagði Brynhildur G. Flóvenz, lektor við lagadeild Háskóla Íslands, í erindi sínu um barnaklám og hvernig lög- in vernda börnin okkar gegn barnaklámi á netinu. Brynhildur var ein af sex fyr- irlesurum sem fluttu erindi á ráð- stefnu Barnaheilla sem bar heitið „Stöðvum barnaklám á netinu!“ og fram fór í Salnum í Kópavogi í gærdag. Ráðstefnan var vel sótt og farið var yfir lagalega sem og tæknilega hlið málsins. Meðal hug- mynda sem kynntar voru er að koma upp netsíu sem hindra myndi aðgang Íslendinga að ólög- legum vefsvæðum, sem innihalda barnaklám, en slíkt hefur t.a.m. verið notað í Noregi. Kynferðisbrot, ekki tölvuglæpur Í erindi sínu sagði Brynhildur einnig að nauðsynlegt væri að beina sjónum að því að þeir menn sem eru notendur barnakláms hér á landi eru jafnframt hliðhollir kynferðisofbeldi gegn börnum. Þrátt fyrir að efnið sé fengið af er- lendum vefsíðum sé brotið engu að síður kynferðisbrot, ekki tölvu- glæpur. Þá fagnaði hún vinnu að tillögum að breytingum á kynferð- isbrotakafla almennra hegninga- laga en þeirri vinnu ætti að ljúka nú á vormánuðum. Brynhildur segist fylgjandi síun efnis á netinu þrátt fyrir að vera að meginstefnu andvíg afskiptum rík- isvaldsins af einkalífi fólks með ein- hvers konar eftirliti. „Ég hef tals- vert hugsað um þetta mál og mín niðurstaða er á öðru máli hvað þetta varðar, ég tel önnur sjón- armið en þessi almennu tjáning- arfrelsis- og ritfrelsissjónarmið gilda hér,“ sagði Brynhildur en benti á að umræður væru uppi á meðal lögfróðra manna um hvort grundvöllur sé fyrir slíkri ritskoð- un. Sem dæmi um slíka ritskoðun nefndi Brynhildur Kvikmyndaeftir- lit ríkisins sem dæmir hvaða mynd- ir eru hæfar til sýninga í íslenskum kvikmyndahúsum, og eru við hæfi barna. Svo framarlega sem sían yrði bundin við vefsíður sem inni- halda barnaklám sér hún ekki hvernig slík sía geti skert réttindi nokkurs manns. Brynhildur lítur svo á að yfirvöld þyrftu að ákveða hvaða síður eigi að banna en að þau mættu ekki sitja ein að og ættu að vera í samstarfi við samtök á borð við Barnaheill, sem m.a. rekur ábendingarlínu um barnaklám á netinu – og eru í alþjóðlegum sam- tökum ábendingalína. Ola-Kristian Hoff, sem starfað hefur sem lögfræðingur að málum tengdum netinu og aðgangi al- mennings meðal annars fyrir Evr- ópusambandið, fór í gegnum hvern- ig takmörkun netnotkunar virki í Noregi en þar eru síur nýttar. Sí- urnar ná aðeins yfir vefsíður þar sem barnaklám hefur fundist og virðist sem almenn ánægja ríki um fyrirkomulagið. Hoff segir net- þjónusturnar fá lista frá lögregl- unni yfir ólöglegar síður og loki í kjölfarið aðgangi Norðmanna að þeim. Í stað þess að vefsíðan birt- ist sést aðeins skjár sem bendir viðkomandi á að hann hafi reynt að komast inn á ólöglega vefsíðu. Hoff tók dæmi um að þegar rýnt var í tölur um hversu margir reyndu að skoða bannaðar síður yfir einn dag hafi það verið um sjö þúsund. Hann tók jafnframt fram að engin skrá væri haldin yfir það hverjir reyndu að skoða slíkar síð- ur. Símafyrirtækin skoða málið Hrönn Þormóðsdóttir, verkefn- isstjóri hjá Barnaheillum, segir samtökin þegar hafa átt einn fund með Símanum um netsíur. „Síma- fyrirtækin eru að skoða þetta mál og við viljum fá þau bæði [Og Vodafone og Símann] til samstarfs við okkur. Við þurfum að byrja á að ræða þetta, fara svo yfir laga- lega umhverfið og að mínu mati þurfum við að nota þessa aðferð líka.“ Aðspurð hvort mikið beri á barnaklámi á íslenskum vefsíðum segir Hrönn að Barnaheill hafi tekið við meira en 2500 ábend- ingum, frá því í október 2001, og meira en 700 þeirra hafi reynst raunverulegt barnaklám. Í lang- flestum tilfellum hafi þó verið um að ræða vefsíður sem hýstar eru erlendis en Hrönn leggur mikla áherslu á að vandamálið sé án landamæra. Hún segir löndin í kringum okkur vera að bregðast við og Íslendingar ættu að gera það sama. Ráðstefna Barnaheilla um hvernig hægt sé að sporna við barnaklámi á netinu Síur notaðar til að loka að- gangi að ólöglegum vefsíðum Morgunblaðið/Sverrir Thomas Rickert ræddi á málþingi um varnir við barnaklámi um hvernig Þjóðverjar hafa komið að verndun hagsmuna ungmenna á netinu. Eftir Andra Karl andri@mbl.is HÆSTIRÉTTUR hefur dæmt karlmann í 4 mánaða skilorðsbund- ið fangelsi fyrir kynferðisbrot gegn 10 ára stúlku í ágúst sl. Ákærði og stúlkan voru gestkomandi á heimili bróður ákærða og var hann fundinn sekur um að hafa áreitt telpuna. Hæstiréttur mildaði þó refsinguna að því leyti að hún var að öllu leyti skilorðsbundin en í héraði fékk ákærði tvo mánuði af fjórum á skil- orði. Talin hafa orðið fyrir verulegu andlegu áfalli Ákærði neitaði sök en Hæstirétt- ur taldi framburð hans um máls- atvik í andstöðu við framburð telp- unnar og drengs sem hafði vaknað við grát hennar og bar að hann hefði heyrt ákærða tala við hana. Þá taldi dómurinn að framburður telpunnar fengi stoð í framburði drengsins og í framburði konu sem kvaðst hafa mætt henni um miðja nótt, illa klæddri og snöktandi með mikinn ekka, svo og í framburði móðurinnar. Enn fremur var talið að telpan hefði orðið fyrir verulegu andlegu áfalli sem hún tengdi við atvikið. Málið dæmdu hæstaréttardómar- arnir Gunnlaugur Claessen, Árni Kolbeinsson, Garðar Gíslason, Guð- rún Erlendsdóttir og Markús Sig- urbjörnsson. Verjandi var Helgi Jóhannesson hrl. og sækjandi Kolbrún Sævars- dóttir saksóknari hjá ríkissaksókn- ara. 4 mánaða fangelsi fyrir kyn- ferðisbrot gegn stúlku ICELANDAIR flutti rúma eina og hálfa milljón farþega á síðasta ári og hefur félagið aldrei áður flutt svo marga far- þega á einu ári. Næstflesta farþega flutti fé- lagið árið 2000 þegar flogið var með 1,4 milljónir farþega. Fjölgun farþega milli ára nú var 14,5%, en farþegafjöldi fé- lagsins hefur þrefaldast á und- anförnum þrettán árum frá árinu 1993, að því er fram kem- ur í frétt frá félaginu. Félagið flýgur til 22 helstu borga í Evrópu og í Bandaríkj- unum. Að meðaltali hefur flugvél sig til lofts á vegum félagsins 28 sinnum á dag og farþegafjöld- inn á hverjum degi er um 4.200 að meðaltali. 1,5 millj- ónir far- þega með Icelandair RÚMLEGA fimmtugur maður reyndi að tæla ellefu ára dreng inn í port við Mýrarhúsaskóla seinni- partinn í gær. Drengnum tókst að komast á brott og gera viðvart. Málið var kært til lögreglunnar skömmu fyrir klukkan sex í gær. Samkvæmt upplýsingum lögregl- unnar komst drengurinn á brott og gat gert foreldrum sínum viðvart og þeir kærðu málið. Rannsókn hófst þegar og hélt áfram í gær- kveldi, en hafði ekki skilað nið- urstöðu þegar Morgunblaðið hafði síðast fregnir af. Reyndi að tæla pilt
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.