Morgunblaðið - 27.01.2006, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 27.01.2006, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. JANÚAR 2006 21 MINNSTAÐUR ÚTSALA - ÚTSALA meiri afsláttur Kápur, jakkar, bolir, pils, peysur, kjólar og samkvæmisfatnaður Hafnarstræti 97, 600 Akureyri. Sími 462 3505. Opið virka daga 10-18, laugardaga kl. 10-16. PÓSTSENDUM www.simnet.is/heilsuhorn Glerártorgi, Akureyri, sími 462 1889, fæst m.a. í Lífsins Lind í Hagkaupum, Maður Lifandi Borgartúni 24, Yggdrasil Skólavörðustíg 16, Fjarðarkaupum, Lyfjaval Hæðasmára og Þönglabakka, Lífslind Mosfellsbæ, Stúdíó Dan Ísafirði Fyrir Liðamót Laust við skeldýr og sodium 1000 mg Glucosamine Aðeins 1 hylki á dag. Álftanes | Íbúasamtökin Betri byggð á Álftanesi og Fugla- og nátt- úruverndarfélag Álftaness hafa gert athugasemdir við að framkvæmdir við golfvöll á norðurnesi Álftaness séu hafnar áður en frestur íbúa til gera athugasemdir við deiliskipulag- ið rennur út og áður en deiliskipulag- ið fær lögformlega afgreiðslu í bæj- arstjórn. Bæjarstjóri Álftaness segir athugasemdirnar byggðar á mis- skilningi, enda séu engir samningar enn komnir um framkvæmdir við golfvöll. Ásdís Bragadóttir, sem situr í framkvæmdanefnd íbúasamtakanna Betri byggð á Álftanesi, segir aug- ljóst að framkvæmdir séu hafnar við golfvöllinn. „Það hefur ekki farið fram hjá neinum sem ekur hér um með opin augu að framkvæmdir við níu holu golfvöll eru hafnar á fimm- tán hektara svæði á norðurnesi Álfta- ness, áður en búið er að ganga lög- formlega frá samþykkt deiliskipulagsins, því síðasti dagur- inn til að senda inn athugasemdir rennur út í dag,“ segir Ásdís. „Íbúa- samtökin hafa sent bæjarstjórn bréf þar sem þau spyrja hvers vegna framkvæmdir virðist vera hafnar við þennan golfvöll, því það er greinilega farið að flytja þarna möl til að hafa sem undirlag.“ Engar framkvæmdir hafnar enn Ríkjandi deiliskipulag var sam- þykkt samhljóða í bæjarstjórn Álfta- ness, en Álftaneshreyfingin, sem er með þrjá bæjarfulltrúa, lagði fram sérbókun þess efnis að golfvöllurinn yrði tekinn upp aftur og honum fund- inn nýr staður, vegna þess að í um- hverfismati kemur fram að hann hafi staðbundin neikvæð áhrif á votlendi og fuglalíf við norðvesturbakka Bessastaðatjarnar. „Þarna er þétt- asta og mesta varp hettumávs á land- inu, þannig að það er ljóst að þessi kostur sem var valinn var sá lakasti út frá náttúruverndarsjónarmiði,“ segir Ásdís. „Íbúasamtökin gera at- hugasemdir við það að framkvæmdir virðast vera hafnar áður en deili- skipulagið fær lögformlega af- greiðslu og vegna umhverfismatsins spyrjum við til hvaða mótvægisað- gerða verður gripið til að fuglinn geti flutt sig eða hvernig eigi að mæta þessu umhverfismati með þetta við- kvæma svæði.“ Guðmundur G. Gunnarsson, bæj- arstjóri Álftaness, segir bæjarstjórn- arsamþykkt fyrir því að á þessu svæði sé komið fyrir afgangsefni sem ryðst frá við gerð vega og aðrar fram- kvæmdir. „Þetta er dýrt efni og við viljum ekki farga þessu efni út úr sveitarfélaginu,“ segir Guðmundur og bætir við að efnislagerinn sé minnst 500 metra frá bakka Bessa- staðatjarnar. „Það er ekki verið að vinna við golfvöllinn. Það eru engir samningar eða framkvæmdaleyfi komin um gerð hans, af eðlilegum ástæðum, vegna þess að skipulags- ferlið er enn í gangi. Þetta er ekki einu sinni komið á dagskrá, því það er ekki búið að samþykkja skipulagið.“ Nokkrir íbúar á Álftanesi gera athugasemdir við jarðrask við golfvöllinn Segja vinnu hafna við golfvöll án samþykkis Morgunblaðið/RAX Kynning á skipulagi Urriðaholts Garðabær | Íbúum Garðabæjar og öðrum áhugasömum er boðið til kynningar á hugmynd að skipulagi Urriðaholts í Garðabæ á morgun, laugardag, kl. 11. Á Urriðaholti er unnið að skipu- lagi nýrrar byggðar. Þar er, að sögn bæjaryfirvalda, stefnt að þéttri, blandaðri byggð þar sem áhersla er lögð á samfélagsupp- byggingu og lífsgæði. Gert er ráð fyrir íbúðabyggð í nálægð við at- vinnusvæði, útivistarsvæði og sam- félagsþjónustu. Þá er lögð áhersla á tengsl byggðar og náttúru og að viðhalda lífríki Urriðavatns og vot- lendisins í kringum það. Hugmynd að skipulagi svæðisins hefur verið unnin af Urriðaholti ehf. í samráði við Garðabæ og verður kynnt á morgun í hátíðarsal Flataskóla við Vífilsstaðaveg. Dagskráin hefst með kynningu kl. 11 þar sem hugmynd að nýrri skipulagstillögu verður skýrð. Frekari upplýsingar má nálgast á vefnum www.urridaholt.is og ábendingum má koma á framfæri á urridaholt@urridaholt.is. Gert er ráð fyrir að endanlegt rammaskipulag svæðisins liggi fyr- ir í byrjun mars ásamt tillögu að deiliskipulagi fyrsta áfanga upp- byggingar í Urriðaholti. Hafnarfjörður | Hafnarfjarðarbær og upplýsingatæknifyrirtækið ANZA hf. hafa undirritað samning um til- raunaverkefni um rafræn innkaup hjá bænum. Verkefnið fellur vel að vistvænni stefnu Hafnarfjarðarbæjar sem meðal annars nær til innkaupa. Að sögn Guðmundar Ragnars Ólafssonar, deildarstjóra innkaupa- deildar Hafnarfjarðarbæjar, mun rafvæðing innkaupa bæði nýtast sem sparnaðarleið en ekki síður sem vist- væn leið til að framkvæma innkaup. Í tengslum við tilraunaverkefnið verð- ur til að mynda skoðað hvort skipu- lögð rafræn innkaup geti leitt til minni aksturs sendibíla umhverfis leik- og grunnskóla, sem bæði minnk- ar mengun og eykur öryggi skóla- barna. Ríkisstofnanir og birgjar þeirra hafa stundað innkaup í gegnum Raf- rænt markaðstorg ANZA frá árinu 2002. Nýverið gerði Reykjavíkurborg einnig samkomulag um þátttöku á markaðstorginu. Vistvæn og rafræn inn- kaup í Hafnarfjarðarbæ Upplýsinga- málastefna kynnt Seltjarnarnes | Bæjarstjórinn á Sel- tjarnarnesi, Jónmundur Guðmars- son, flutti erindi um stefnu bæjarins í upplýsingamálum og hugmynda- fræðina um opið gagnaflutningsnet á Upplýsingatæknideginum, UT-deg- inum, sem haldinn var í fyrsta sinn hinn 24. janúar sl. Tilgangur dagsins var að vekja athygli á þeim tækifær- um sem Íslendingar hafa á sviði upp- lýsingatækni, upplýsingatækniiðn- aðar og fjarskipta. Í erindi Jónmundar kom fram að Seltjarnarnesbær stefnir að því að vera í fremstu röð í nýtingu tækninn- ar íbúum sínum til hagsbóta. Lið í þeirri viðleitni segir Jónmundur að tryggja íbúum aðgang að fullkomnu gagnaflutningsneti, en stefnt er að því að lokið verði við lagningu ljós- leiðara á hvert heimili í bænum fyrir lok þessa árs. Upptökur af erindum fyrirlesara á UT-deginum, ásamt glærukynning- um þeirra, má sjá á heimasíðu UT- dagsins, www.utdagur.is. Hafnarfjörður | Sæunn Jónsdóttir, starfsmaður Heilsugæslustöðv- arinnar í Sólvangi, lætur af störf- um um næstu mánaðamót eftir að hafa starfað í 34 ár í heilsugæsl- unni. En Sæunn hefur starfað lengur fyrir Hafnarfjarðarbæ því áður en hún hóf störf hjá heilsu- gæslustöðinni starfaði hún við símvörslu hjá bæjarskrifstofu Hafnarfjarðar í tíu ár. „Í janúar 1972 fór ég yfir í heilsugæsluna, sem þá var uppi á lofti í Spari- sjóðnum, en hún flutti svo í Sól- vang í lok níunda áratugarins.“ Sæunn, sem er Hafnfirðingur í húð og hár, segir að sér hafi alltaf þótt mjög gott að vera í Hafn- arfirði og starfsumhverfið hafi alltaf verið gott. Hún hafi haft mjög gaman af því að starfa á heilsugæslunni enda hafi hún allt- af haft gaman af að vera í návígi við fólk og hafi fólksfjöldinn auk- ist mikið með árunum. Spurð hvað tæki við eftir vinnu kvaðst Sæunn hafa nóg fyrir stafni enda í fullu fjöri. Hún færi reglulega í sund í Hafnarfjarðarlaugina og stefndi á að ganga mikið auk þess sem hún ætti húsbíl og ætlaði hún að ferðast töluvert í honum í sumar. Morgunblaðið/Ásdís Sæunn Jónsdóttir við störf á Heilsugæslunni á Sólvangi. Lætur af störfum eftir 44 ár í þjónustu við Hafnfirðinga HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.