Morgunblaðið - 27.01.2006, Blaðsíða 51

Morgunblaðið - 27.01.2006, Blaðsíða 51
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. JANÚAR 2006 51 MENNING fyrir sælkera á öllum aldri m 1 mtímarit um mat og vín | eitt | 2006 „Og víst er að mörgum finnst það jaðra við guðlast að taka þorramat og gera eitthvað allt annað úr honum en fólk á að venjast.“ m m - tímarit um mat og vín fylgir Morgunblaðinu á morgun FRÖNSK stjórnvöld munu efna til viðamikillar menning- arkynningar í Reykjavík á fyrri hluta næsta árs, samkvæmt upplýsingum frá menntamálaráðuneytinu. Er það í samræmi við ákvörðun Frakklandsforseta, Jacques Chirac, og þáverandi forsætisráðherra Íslands, Davíðs Oddssonar, frá árinu 2001 um gagnkvæmar menningarkynningar Íslands og Frakklands. Ís- lenska menningarkynningin fór fram í París í september 2004 og vakti talsverða athygli. Hefst á Vetrarhátíð og lýkur á Listahátíð Undirbúningur að frönsku menningarkynningunni árið 2007 hér á landi er hafinn og verður samráðsfundur stjórnvalda haldinn 2. febrúar næstkomandi. Frönsku menningarstofn- uninni AFAA hefur verið falið af hálfu franskra stjórnvalda að gera tillögur um þá viðburði sem boðið verður upp á. Er ætl- unin að kynningin byrji á Vetrarhátíð Reykjavíkur í febrúar og ljúki á Listahátíð í Reykjavík vorið 2007. Við íslensku menningarkynninguna í Frakklandi var kostn- aðarskipting með þeim hætti að frönsku samstarfsstofnanirnar báru kostnað sem til féll þar í landi, þar á meðal þóknun til lista- manna, uppihald þeirra og tæknimál af ýmsu tagi. Íslensk stjórnvöld greiddu ferðakostnað og flutningskostnað auk kostnaðar sem til féll við undirbúning hér á landi. Þá kostuðu íslensk stjórnvöld gerð vísindakynningarinnar í Palais de la Dé- couvert og tónleika Kammersveitar Reykjavíkur í Mogador- leikhúsinu. Sömu grundvallarreglum við kostnaðarskiptingu milli íslenskra og franskra stjórnvalda verður fylgt við frönsku menningarkynninguna á næsta ári. Kostnaður af kynning- armálum skiptist þá jafnt á milli stjórnvalda í Frakklandi og Ís- landi og verður sami háttur hafður á við frönsku kynninguna á Íslandi á næsta ári, en fjárhæð hefur ekki verið ákveðin. Eiríkur Þorláksson verkefnisstjóri Til að vinna að undirbúningi af hálfu íslenskra stjórnvalda hefur verið ákveðið að setja á laggirnar samráðshóp sem sam- anstendur af fulltrúum forsætisráðuneytis, utanríkisráðu- neytis, menntamálaráðuneytis og samgönguráðuneytis. Verk- stjórn verður á hendi menntamálaráðuneytis, sem hefur ákveðið að verkefnaráða Eirík Þorláksson, fyrrverandi for- stöðumann Listasafns Reykjavíkur, sem verkefnisstjóra og listrænan ráðgjafa, og Sigrúnu L. Guðbjartsdóttur sem kynn- ingarstjóra. Verkefnisstjóri mun í samráði við frönsk og íslensk stjórnvöld móta hina endanlegu dagskrá og annast samskipti við þær stofnanir og listamenn hér á landi sem Frakkar hafa valið sem samstarfsaðila. Menning | Viðamikil frönsk menningarkynning á Íslandi vorið 2007 Kostnaði skipt milli stjórnvalda landanna Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra opnar íslensku menningarkynninguna í París í september 2004. „MÉR fannst gaman að skoða þetta af því að þetta er nú ekki það fyrsta sem mönnum dettur í hug þegar Halldór Laxness berst í tal,“ segir Halldór Guðmundsson, ævisöguhöfundur skáldsins, sem heldur fyrirlestur í dag á vegum Samtakanna 7́8 og Háskóla Íslands um Lax- ness og samkynhneigð. „Það sem kemur í ljós þegar maður skoðar hans feril, er að hann var mikið að pæla ungur maður í kynhneigð og kynhegðun og var miklu frjálslyndari í þeim efnum heldur en flestir samtíðarmenn hans hér uppi á Íslandi. Hann hafði gaman af að boða í blaðagreinum að op- inskár hómósexúalismi væri nauðsynlegur partur af nútímamenningunni og hafði greini- lega gaman af að ganga fram af fólki með þess- um skoðunum. Hann hafði líka kynnst þessu, bæði í klaustrinu þar sem hann dvaldi og ekki síður á Taormina á Sikiley þegar hann var að skrifa Vefarann mikla sumarið 1925. Taormina var þá eins konar sumarathvarf samkyn- hneigðra frá allri Evrópu. Þeir vinir sem Hall- dór eignaðist þar voru margir hommar og ég held að þessi kynni og pælingar hans hafi setið sterkt í honum og þess sér stað í Vefaranum mikla. Að sönnu er kvenhatrið mjög skýrt þótt það eigi reyndar rætur að rekja til Strindbergs að nokkru leyti, en það eru líka lýsingar sem eiga greinilega upphaf sitt í dvöl hans á Sikil- ey.“ Ætlaði að hafa Organistann homma Halldór segist hvergi hafa rekist á neinar vís- bendingar um að Halldór Laxness hafi sjálfur verið bendlaður við samkyn- hneigð. „Ég ætla nú ekki að koma með neinar yfirlýs- ingar um það. En áhugi hans var mikill og hann átti vini, strax ungur maður, sem voru samkynhneigðir, vinur hans einn í klaustrinu í Clervaux var hommi og hann kynntist snemma Þórði Sigtryggssyni sem var kannski frægasti ís- lenski homminn á sinni tíð. Það mun t.a.m. hafa verið upphaflega hugsun Halldórs að hafa org- anistann í Atómstöðinni homma, og var Þórður Sigtryggsson fyrirmynd hans. Hann féll svo frá þeirri hug mynd á seinni stigum.“ Halldór segir að á þriðja áratug síðustu aldar hafi umræða um sam kynhneigð hér á landi ver- ið „tabú“. „Halldór sagði í frægri grein í Morg- unblaðinu á þeim tíma að „nú hefði Reykjavík eignast hvaðeina sem heimsborg hentar, há- skóla, bíó, football og hómósexúalisma.“ Maður getur rétt ímyndað sér hvernig lesendur Morg unblaðsins hafa hrist höfuðið yfir þessu á þeim tíma.“ Bókmenntir | Halldór Guðmundsson fjallar um samkynhneigð í verkum Halldórs Laxness Halldór Laxness og hommarnir Fyrirlestur Halldórs Guðmundssonar er sá fyrsti í röðinni af sex sem Samtökin 78 efna til . Fyrirlesturinn fer fram í stofu 101 í Odda og hefst kl. 12 í dag. Halldór Guðmundsson
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.