Morgunblaðið - 16.02.2006, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 16.02.2006, Blaðsíða 4
Morgunblaðið/Ómar Gunnhildur skrúbbar gluggana á Lækjartorgi 4 FIMMTUDAGUR 16. FEBRÚAR 2006 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Skyr.is drykkurinn fæst nú með bláberjabragði – án viðbætts sykurs Nýjung! DAGSBRÚN, móðurfélag 365 prent- og ljósvakamiðla, hyggst hefja útgáfu á ókeypis dagblaði í Danmörku með haustinu, að því er fram kemur á vef Danmarks Radio. Forstjóri Dagsbrúnar vill hvorki staðfesta þetta né neita. Í vefútgáfu Danmarks Radio seg- ir að samkeppni muni aukast á dag- blaðamarkaðinum í Danmörku með haustinu, en þá hefjist útgáfa frí- blaðs á vegum Dagsbrúnar. Þar segir einnig að ráðgert sé að gefa blaðið út alla daga vikunnar, og bera það á öll dönsk heimili. Þórdís J. Sigurðardóttir, stjórn- arformaður Dagsbrúnar, sagði í samtali við Morgunblaðið í gær að útgáfa á nýju fríblaði í Danmörku væri meðal þess sem verið væri að skoða alvarlega. Gunnar Smári Egilsson, forstjóri Dagsbrúnar, sagðist í gær hvorki geta staðfest þessa frétt Danmarks Radio, né vilja neita henni. „Við höfum ekki farið leynt með áform okkar um að reyna fyrir okkur á er- lendum mörkuðum, þá ekki síst í rekstri fjölmiðla, og ekki síst í prentmiðlum,“ segir Gunnar Smári. Hann staðfestir að einn af þeim möguleikum sem hafi verið skoð- aðir sé að stofna blað frá grunni í stað þess að kaupa blað sem fyrir er á markaðinum. Hann segir að Dan- mörk sé eitt af þeim löndum sem áhugi sé á, auk Skandinavíu og Bretlands. Dagsbrún hyggst gefa út ókeypis dagblað í Danmörku GAMLA Kópavogshælið, sem Guðjón Sam- úelsson húsameistari ríkisins er arkitekt að, verð- ur auglýst til sölu á næstunni samkvæmt sam- þykkt bæjarstjórnar Kópavogsbæjar. Það verður þó ekki hvaða starfsemi sem er sem þangað fer inn, því Gunnar I. Birgisson bæjarstjóri segir ekki aðalmálið að selja húsið með gróða heldur að fá þangað inn starfsemi sem hæfi svæðinu vel. Hann segir að fjöldi samtaka, bæði tengdum líknar- og menningarmálum, sem og fjöldi ein- staklinga með starfsemi af sama toga í huga, hafi lýst yfir áhuga sínum við bæinn á að kaupa húsið. Hafi bærinn því engin önnur úrræði en að aug- lýsa húsið til sölu því ekki hafi komið til greina að taka einn áhugasaman kaupanda út úr. Húsið verður selt með ákveðnum kvöðum og vill bærinn að því verði haldið í sem næst upprunalegri mynd. Ekki selt hverjum sem er „Við höfum ákveðið að selja en það er ekkert víst að við seljum ef okkur líst ekki á þetta,“ segir Gunnar. „Við verðum fyrst að fá hugmyndirnar og ég tel að það muni koma mjög margar spenn- andi hugmyndir.“ Engin starfsemi hefur verið í húsinu frá árinu 1985. Kópavogsbær keypti landið og húsið af rík- inu árið 2003 og hafði það þá staðið autt og óvið- haldið í fleiri ár og gerir enn. Arkitekt hússins var Guðjón Samúelsson, húsa- meistari ríkisins, og var það tekið í notkun 14. nóvember 1926 og er elsta steinsteypta hús Kópa- vogs. Upphaflega var húsið reist sem Hressing- arhæli Hringsins og ætlað fyrir berklaveika sjúk- linga, en Hringskonur hófu að safna fé í bygginguna árið 1906. Árið 1939 fékk ríkið húsið afhent án endurgjalds með öllum búnaði og skömmu síðar voru berklasjúklingarnir fluttir annað og í þeirra stað komu holdsveikisjúklingar frá Laugarnesi og breyttist þá hælið í Holds- veikraspítalann í Kópavogi. Síðasti sjúklingurinn var fluttur úr húsinu árið 1975 og var þá húsið notað í nokkur ár við kennslu þroskaþjálfanema. Auk þess var eldhús staðarins í húsinu til ársins 1985, en síðan þá hef- ur húsið staðið autt og ónotað. „Ég er mjög ánægður með hvað það er mikill áhugi,“ segir Gunnar. „Við höfum mikinn metnað fyrir því að húsið verði sem mest í upprunalegri mynd og verði glæsilegur minnisvarði um elsta steinsteypta hús í Kópavogi og arkitektúr Guð- jóns Samúelssonar.“ Minnihlutinn ósáttur við söluna Samfylkingin lagðist eindregið gegn afgreiðslu málsins þar sem engin frekari gögn hafi legið frammi en tillaga bæjarlögmanns um söluna sem bæjarráð fól honum að vinna. Ekkert verðmæta- mat liggi fyrir og engar hugmyndir um hvað skuli gera við húsið. Í frétt frá Samfylkingunni kemur fram að fulltrúar hennar í bæjarstjórn séu afar ósáttir bæði við málsmeðferðina og niðurstöðuna. „Ágreiningur okkar og minnihlutans snýst um það að við viljum leyfa einkaframtakinu að reyna fyrir sér en þeir vilja eins og venjulega láta hið opinbera gera alla hluti,“ segir Gunnar bæj- arstjóri. Gamla Kópavogshælið til sölu Fjöldi áhugasamra kaup- enda haft samband við bæinn, segir bæjarstjóri Morgunblaðið/Þorkell Gamla Kópavogshælið, sem m.a. hefur gegnt hlutverki hressingarhælis fyrir berklasjúka og Holdsveikraspítala, var byggt árið 1926. Arki- tekt þess er Guðjón Samúelsson. Eftir Sunnu Ósk Logadóttur sunna@mbl.is TÓNLEIKAR á vegum Hins hússins sem fram fara í kvöld eru m.a. aug- lýstir með orðunum RAPE TIME! eða TÍMI TIL AÐ NAUÐGA! eins og það útleggst á ís- lensku um alla borg. Á veggspjaldi sem hangir víða um bæ- inn segir m.a. að kynæsandi leyni- gestur frá Þýska- landi sé væntanleg- ur og neðst á auglýsingunni stendur m.a. „naktir líkamar“. Verið er að auglýsa hipp hopp-tónleika sem ætlaðir eru ungling- um eldri en sextán ára. Þrjár hljóm- sveitir eru auglýstar og sagðar frá Þýskalandi og Japan en eftirgrennsl- an hefur leitt í ljós að um tæplega tví- tuga Íslendinga er að ræða. Segjast vera að nota við- urkenndar aðferðir „Ég trúi vel að þetta fari fyrir brjóstið á fólki og ég viðurkenni að það hafi verið mistök að leyfa þeim að gera þessa auglýsingu,“ segir Ása Hauksdóttir, deildarstjóri menning- armála hjá Hinu húsinu. „Ég ræddi þetta mikið við strákana og þeirra rök eru þau að þarna séu þeir að nota að- ferðir sem séu viðurkenndar í popp- heiminum, að sjokkera fólk til að ná athygli. Þeir virðast hafa náð því.“ Ása segist hafa rætt við strákana um að þeir þyrftu að taka þá umræðu sem auglýsingin gæti hrundið af stað. „En ég velti því fyrir mér þegar þeir sýndu mér plakatið hvort við ætt- um að vera að rit- skoða hluti hjá nítján ára gömlu fólki. Það er alltaf spurning um hvar eigi að draga mörkin. En ég tel að þeir þurfi að axla ábyrgðina á því sem um er að ræða.“ Ása segir að ef um- ræða fari af stað um auglýsinguna voni hún að fjallað verði um hvers vegna ungu fólki finnist eðlilegt að auglýsa með þessum hætti. „Þetta endurspeglar samfélagið eins og það er. Svona er hipp hopp-tónlist og -menning markaðssett.“ Ása segir að líklega geti auglýsing- in haft áhrif á hina góðu ímynd Hins hússins. Hún bendir á að mjög mikið og gott starf með ungu fólki fari þar fram en fái því miður ekki alltaf verð- skuldaða athygli. Því sé sorglegt, að þegar svona mál komi upp, séu þau tekin til umfjöllunar. Nauðgun og nekt til að auglýsa tónleika ÁFRAM er unnið að því innan menn- ingar- og ferðamálasviðs Reykjavík- ur að móta framtíðarsýn fyrir Við- ey. Hluti af því verkefni var að færa eyna úr ábyrgð Minjasafns Reykja- víkur og til skrifstofu menningar- og ferðamálasviðs nú um áramótin. Svanhildur Konráðsdóttir, sviðs- stjóri menningar- og ferðamála- sviðs, segir að á næstu mánuðum verði skoðaðar ýmsar leiðir varð- andi framtíðaruppbyggingu í Viðey. „Okkar aðaláhugamál er að efla þarna starfsemi og koma betur á framfæri aðdráttarafli eyjarinnar,“ segir Svanhildur, „bæði sem menn- ingarsögulegs staðar og þarna eru einnig merkileg útilistaverk.“ Í þessum tilgangi verður unnið að stóru umhverfislistarverkefni í Við- ey í vor í tengslum við Listahátíð í Reykjavík. Þá verður einnig list- smiðja barna í eynni í vor líkt og fyr- ir ári. Viðey undan Minjasafni Hólavallakirkjugarður hefur í samstarfi við arkitekt Assistens- garðsins í Kaupmannahöfn látið endurgera fjölda lágmynda eða svokallaðra Thorvaldsenplatta, sem látið hafa á sjá í tímanna rás. Plattarnir, sem steyptir verða í Kína, eru úr hágæða postulíni í nokkrum stærðum. Þeir eru vænt- anlegir til landsins nú í febrúar eða í mars. Mikinn fjölda lágmynda er að finna í Hólavallakirkjugarði. Þetta kemur fram í fréttabréfi Kirkjugarðasambands Íslands. Endurgerðir Thorvaldsenplattar í Hólavallagarði
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.